Leita í fréttum mbl.is

Hvernig gátu Bretar gert Páli Vilhjálmssyni þetta?

Páll Vilhjámsson búinn að skrifa margar greinar um að lætin hér á landi væru bara skipulögð aðför RUV að Sigmundi Davíð. Þetta væri ómerkilegt mál sem væri bara blásið upp og gert út á heimsku fólks með því að draga það á Austurvöll án nokkurar ástæðu. Og hefur bent á að Bretar hafi ekki mótmælt opinberlega David Cameron.

En úps hvað er þá að gerast núna. Af visir.is:

Þúsundir eru saman komnir fyrir utan forsætisráðherrabústaðinn að Downingsstræti 10 í Lundúnum til að krefjast afsagnar Davids Cameron vegna tengsla hans við aflandsfélag í skattaskjóli. Boðað var til mótmælanna í vikunni, þar sem breskur almenningur var hvattur til að koma saman að íslenskri fyrirmynd.

Mótmælin fara friðsamlega fram en fólk lætur vel í sér heyra og ber mótmælaskilti með slagorðum á borð við „Cameron verður að fara“. Þá er nokkur konar strandarþema í ljósi þess að aflandsfélag Cameron var staðsett á Bahamaeyjum, en líkt og sjá má á meðfylgjandi myndum er ber fólk meðal annars blómakransa um hálsinn.

 


mbl.is Cameron gengst við ábyrgð
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Hjörtur Herbertsson

Ég er viss um að Páll Vilhjálmsson telur RUV haf skipulagt þessi mótmæli.cool

Hjörtur Herbertsson, 9.4.2016 kl. 12:59

2 Smámynd: Ómar Bjarki Kristjánsson

Æææææ, það á ekki af framsjöllum og þjóðrembingum að ganga hérna.

Að öðru leiti, að er ekki kominn tími til að sé rannsakað hvernig heimsksýn fjármagnar sig og hvort einhver borgi páli?

Ómar Bjarki Kristjánsson, 9.4.2016 kl. 13:04

3 Smámynd: Páll Vilhjálmsson

Ég er með böggum hildar.

Páll Vilhjálmsson, 9.4.2016 kl. 13:27

4 Smámynd: Kolbrún Hilmars

Eru þessi mótmæli semsagt skipulögð af BBC? 

Kolbrún Hilmars, 9.4.2016 kl. 16:17

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Magnús Helgi Björgvinsson
Magnús Helgi Björgvinsson

Skoðanir Magga um menn og málefni í fréttunum. maggihb@gmail.com Athuga að þetta eru mínar skoðanir og þið megið bara hafa ykkar hentisemi, því ég er að nota mína.

Eldri færslur

Maí 2024
S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31  

Twitter

Teljari

joomla visitor

Twitter

Tenging við twitter

Um bloggið

Vettvangur Magga

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband