Leita í fréttum mbl.is

Jæja! Á meðan að fylgjendur stjórnarflokkana hafa verið önnum kafnir að berja á Samfylkingunni!

Á þeim tíma hefur ýmislegt gerst og m.a. stofnaður nýr hægri flokkur sem á held ég eftir að laska bæði Sjálfstæðisflokkinn, Framsókn og fleiri flokka. Það er Viðreisn.  En þar er kominn flokkur með nútímalegri áherslur og ekki eins forpokaður og hinir hundraðára gömlu afturhaldsflokkar. En menn bæði hér á blogginu og almennt í umræðunni hafa bara verið fókuseraðir á hatur sitt á Samfylkinunni. Jafnvel látið Vg nær alveg í friði þó hann mælist helminigi stærri en Samfylkingin. Og á meðan hefur þetta gerst:

Af eyjan.is

Með því að öflugir, hægrisinnaðir liðsmenn hafi gengið til liðs við Viðreisn aukast líkurnar á því að flokkurinn taki til sín kjósendur sem hingað til hafa lýst yfir stuðningi við Pírata. Gagnrýnt hefur verið síðustu vikur að framboðslistar Pírata, sem hafa verið að birtast kjósendum, séu skipaðir fremur vinstrisinnuðu fólki og fæli þar með frá sér kjósendur af hægri vængnum.

Þessi umræða hefur meðal annars sést frá Ernu Ýr Öldudóttur, fyrrum formanni framkvæmdaráðs Pírata. Erna Ýr tók þátt í prófkjöri Pírata í Reykjavík en hafði ekki erindi sem erfiði og hvarf við svo búið á braut úr flokknum. Hún hefur þó ekki legið á skoðunum sínum og bent á að mikil vinstrisvipur sé á framboðslistum flokksins.

Í gær bárust þau tíðindi úr herbúðum Viðreisnar að þeir Pawel Bartoszek stærðfræðingur og Þorsteinn Víglundsson framkvæmdastjóri Samtaka atvinnulífsins hefðu gengið til liðs við Viðreisn. Egill Helgason segir í pistli hér á Eyjunni að þeir Pawel og Þorsteinn séu báðir afburðaklárir hægri menn. Koma þeirra til liðs við Viðreisn muni styrkja flokkinn, bæði gegn Pírötu en einnig gegn Sjálfstæðisflokkunum. Þeir Pawel og Þorsteinn séu markaðssinnaðir og alþjóðasinnaðir.

Það er í þessum tveimur atriðum sem skilur helst milli þeirra og Sjálfstæðisflokksins eins og hann er nú um stundir. Það hefur verið talað um Viðreisn sem einhvers konar miðjuflokk, en þarna hallast hann til hægri. Með þessa menn í forystu er hann skeinuhættari Sjálfstæðisflokknum en manni hefur virst, en ólíklegri til að skaða Samfylkinguna. En hún á náttúrlega nóg með að verjast ógninni frá Pírötum.

 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Nú er nauðsinlegt fyrir Magnús og allt safylkingarfólk, að kynna sér vel, hvernig fjölmenningin í Kaupmanhöfn hefur tekist, Það má gera með að fara inn á facebookar síðu íslensku þjóðfylkingarinnar, verulega óhugnanlegt það sem þar kemur fram, þar má heyra göngufólk hrópa í sífellu, Sahria lög, Sharia lög. verulega óhugnanlegt, nú er engin vafi á því hvað ég kýs í næstu kosningum.

Jón Ólafur (IP-tala skráð) 24.8.2016 kl. 12:29

2 Smámynd: Jón Valur Jensson

"Alþjóðasinnaðir"! Það orð merkir EKKI í munni evrókratans Magnúsar: fullveldissinnaðir. Sbr. hér: http://fullveldi.blog.is/blog/fullveldi/entry/2178625/

Jón Valur Jensson, 24.8.2016 kl. 14:51

3 Smámynd: Sveinn R. Pálsson

Ég leit á þetta myndband á facebook síðu Þjóðfylkingarinnar og hugsaði með mér: af hverju vill góða fólkið búa til þessi átök sem óhjákvæmilega fylgja íslamistunum? Hvers vegna vilja menn fórna frelsinu sem tók hundruð ára að ná á Vesturlöndum, fyrir fólk sem er blindað af miðaldamyrkri?

Sveinn R. Pálsson, 24.8.2016 kl. 22:25

4 Smámynd: Anna Sigríður Guðmundsdóttir

Magnús Helgi. Samfélag stendur saman, en flokkar sig ekki eftir einhverjum sundrandi og stríðandi og ósanngjörnum sérleyfisferða-flokkum.

SAM-FÉLAG!

Nafn á flokki finnst mér ekki skipta neinu úrslitamáli, eftir að hafa fylgst mjög nákvæmlega með pólitíkinni á Íslandi í tæpan áratug.

Í öllum flokkum er þverskurður af fólkinu í landinu.

Bólu-Hjálmar kallaði heildina mannssorp, en sagði að margan gimstein mætti finna í mannssorpinu.

Hvort við erum sorp eða gimsteinar ræðst af mörgum þáttum í öllu lífi og aðstæðum hvers og eins frá byrjun. Ekki er víst hægt að flokka, meta né dæma fólk af fullri sanngirni í sorp eða gimsteina, nema hafa staðið í nákvæmlega sömu sporum, og með sömu tækifæri, tilverurétt og hæfileika í lífinu.

Sem er auðvitað ekki mögulegt, því hver og einn er einstakur á sinn hátt. Og í sinni einstöku stöðu.

Þetta flokkaleikrit er barn síns tíma að mínu mati.

Það vantar heiðarleika í samfélagið allt, en ekki stríðandi sundrungar-flokka. Nýir flokkar breyta ekki hugarfari fólks. Sú breyting getur einungis komið innanfrá hverjum og einum, og með fræðslu og samtali, (ég er svo sannarlega ekki barnanna best í því vandasama hlutverki).

Það er misþroska fólk í öllum flokkum og á allri jörðinni. Engir tveir eru staddir á sama þroskastigi, né með sömu hæfileikana og færnina. Allir mega vera eins og þeir eru, en mega ekki skaða eða ganga á rétt annara. Það er flókið fyrir alla, ef sannleiksfræðsluna og heiðarleikann í opinberri valdastjórnsýslu skortir.

Þess vegna þarf fyrst og fremst að breyta hugarfarinu bæði efst og neðst í valdapíramídanum, í átt að virðingu fyrir skoðunum og tilverurétti annarra. Með mis-jafnri og ólíkri reynslu/þekkingar-sýn á allt og alla.

Allir eru fæddir góðir á jörðinni. Ég hef alla vega aldrei heyrt um að hægt sé að afsanna það. Og þar er góði grunnurinn sem hlúa þarf að, til að skapa siðmenntað og mannúðlegt samfélag.

Þetta eru bara mínar skoðanir Maggi minn, en að sjálfsögðu alls ekki heilagur sannleikur. Við lærum öll af hvert öðru.

M.b.kv.

Anna Sigríður Guðmundsdóttir, 24.8.2016 kl. 23:25

5 identicon

Þetta myndband er af fjölmenningarsamfélaginu Danmörk, í sinni skýrustu mynd. þetta er fjölmenningin sem síðuhöfundur Magnús og Sema Erla, Píratar og Samfylkingin, vilja koma á, á Íslandi. Það er bara eitt orð til að lísa því sem kemur fram á þessu myndbandi, það er skelfilegt,liðið hrópar í sífellu Sharia, Sharia, og hugsa sér að þetta á kanski eftir að koma til Íslands. Þetta eru tveir gjörólíkir menningarheimar, sem eiga enga samleið, hafa aldrei gert, og munu aldrei gera. Og ef múslimum tekst ekki að byggja upp siðuð samfélög sem þeira geta búið í, geta kristnir lítið gert að því.                            65.gr Stjórnarskrárinnar kveður á um jafnrétti kynjanna, jafnrétti kynjanna er ekki leift hjá Islam, því á ekki að leifa þessi trúarbrögð á Íslandi, og engar Moskur.

Halldór Guðmundsson (IP-tala skráð) 24.8.2016 kl. 23:34

6 Smámynd: Jón Valur Jensson

Gott hjá þér, Sveinn.

Jón Valur Jensson, 24.8.2016 kl. 23:43

7 Smámynd: Halldór Egill Guðnason

Enn einn heimskulegi og illa ígrundaði pistill síðuhafa. Ekki hissa að bjórkannan sé í forgrunni hjá honum á forsíðunni. Öl er böl.

 Góðar stundir, með kveðju að sunnan.

Halldór Egill Guðnason, 25.8.2016 kl. 02:07

8 Smámynd: Halldór Egill Guðnason

Sveinn toppar kommentin, við illa hugsaðan og fárænlegan pistil síðuhafa.

 Engar kveðjur, að sunnan.

Halldór Egill Guðnason, 25.8.2016 kl. 03:17

9 Smámynd: Kolbrún Hilmars

Hin nýja Viðreisn ætlar eflaust að reyna að bjarga því sem bjargað verður varðandi ESB umsókn Samfylkingar - sem reyndist hinum síðarnefnda flokki dýrkeypt í fylgi.  Athyglisvert þó að í fréttum hefur verið fjallað um skort á frambærilegum konum í nýja flokknum.  Skyldu Sharialög fjölmenningarstefnu ESB hafa eitthvað með það að gera?

Kolbrún Hilmars, 26.8.2016 kl. 13:26

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Magnús Helgi Björgvinsson
Magnús Helgi Björgvinsson

Skoðanir Magga um menn og málefni í fréttunum. maggihb@gmail.com Athuga að þetta eru mínar skoðanir og þið megið bara hafa ykkar hentisemi, því ég er að nota mína.

Eldri færslur

Apríl 2024
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

Twitter

Teljari

joomla visitor

Twitter

Tenging við twitter

Um bloggið

Vettvangur Magga

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband