Leita í fréttum mbl.is

Ég er ekki alveg að skilja þetta mál.

Er það t.d. rétt að Hafnarfjörður eigi stóran hlut í Hitaveitu Suðurnesja en kaupi heitt vatn síðan af Orkuveitu Reykjavíkur? Og Kópavogur á einhvern smá hlut en kaupir sitt vatn og rafmagn frá OR. Og er orkuveitan svo hluthafi í Geysir green energy? Og er þetta þá flétta til að Glitnir eignist Hitaveituna? Er þetta eitthvað sem við erum tilbúinn að sætta okkur við? Hefur Glitnir sýnt hingað til að hann veiti fólki bestu kjör sem möguleg eru??

 


mbl.is VG vill að Hafnarfjörður neyti forgangsréttar í HS
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Guðrún María Óskarsdóttir.

Sæll Magnús.

Það er ekki fyrir hvern mann að skilja íslenskt bissnessumhverfi he he..

kv.gmaria.

Guðrún María Óskarsdóttir., 2.7.2007 kl. 02:53

2 Smámynd: Elfur Logadóttir

Sæll Magnús,

ég hef ekki heyrt að OR eigi í hitaveitunni annað en það sem þeim stóð til boða að kaupa þar til Geysir bauð betur.

Eins hef ég ekki heyrt að OR sé hluthafi í Geysi. Mér skilst að eignarhaldið á Geysi sé fyrst og fremst hjá Glitni og FL Group en hins vegar eigi Reykjanesbær þar einhver 2,5% sem agnarsmár minnihlutaeigandi. Það má velta fyrir sér til hvers þeir eru þar inni.

Eins og þú veist þá gerir Kópavogur hvað hann getur til þess að versla ekki við OR - meira að segja reisir frekar eigin vatnsveitu og selur öðrum undir kostnaðarverði.

Glitnir er ekkert verri eða betri en annar banki, þeir eru kapitalískt fyrirtæki sem bjóða þau kjör sem þeir komast upp með í samræmi við lögmál framboðs og eftirspurnar. Ef við viljum önnur kjör, þá eigum við ekki að sætta okkur við þau sem eru í boði (segir manneskjan sem lifir á lánum í útlöndum á meðan hún klárar próf).

Glitnir hefur hins vegar komið sér ansi vel fyrir í Reykjanesbæ sýnist manni. Fasteignarfélagið þeirra á þar orðið ansi mikið af húsnæði sem bærinn leigir af þeim. Því virðist þar vera að Glitnir og bærinn taki ákvarðanir sameiginlega og í samræmi við það sem gagnast báðum vel - líka í málefnum Hitaveitu Suðurnesja. 

Elfur Logadóttir, 2.7.2007 kl. 14:28

3 Smámynd: Magnús Helgi Björgvinsson

Ég var að tala um að Hafnarfjörður ætti í Hitaveitu Suðurnesja en keypt síðan heitt vatn af orkuveitunni. Það finnst mér skrítið. Þá eru nú fréttir um það í dag að orkuveitan sé í gegnum Hafnarfjörð og Grindavík að kaupa í í Hitaveitu Suðurnesja. Þannig að þó ég hafi veið að bulla um að þeir ættu í Geysir green þá eru þeir þó að eignast væntnlega stóran hlut í Hitaveitunni sem á jú allar lagnir á Suðurnesjum þannig að þeir sem þar búa eru dæmdir til að kaupa af þeim. Því var ég að nefna að það væri ekki spennandi kostu að´bankar eins og Glitnir sem ekki hefur fremur en aðrir sýnt fram á að geta boðið almenningi kosta kjör, ættu í svona almenningþjónustu fyrirtæki. Sem er í einokunaraðstöðu.

Magnús Helgi Björgvinsson, 2.7.2007 kl. 18:26

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Magnús Helgi Björgvinsson
Magnús Helgi Björgvinsson

Skoðanir Magga um menn og málefni í fréttunum. maggihb@gmail.com Athuga að þetta eru mínar skoðanir og þið megið bara hafa ykkar hentisemi, því ég er að nota mína.

Eldri færslur

Maí 2024
S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31  

Twitter

Teljari

joomla visitor

Twitter

Tenging við twitter

Um bloggið

Vettvangur Magga

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband