Leita í fréttum mbl.is

Nokkrir gullmolar úr læknaskýrslum:

 

  • Að höfðu samræði við lækni féllst hann á að koma sjálfviljugur inn.
  • Á öðrum degi var hnéð betra og á þriðja degi var það alveg horfið.
  • Daginn fyrir innlögn borðaði hún kvöldmat á eðlilegan hátt með kjötbollum.
  • Eðlileg augnskoðun fyrir utan sérkennilegt andlitsfall...
  • Eftir það var hún í samkvæmi...
  • Fékk vægan verk undir morgunsárið...
  • Hún hefur þroskast eðlilega framan til...
  • Hún rann til á svelli og virðist að lappirnar á henni hafi farið í sitt hvora áttina í byrjun desember.
  • Húðin var rök og þurr.
  • Misnotaði áfengi í óhófi áður fyrr...
  • Móðir getur látið barnið sitja með því að setja fæturna í hring...
  • Nú er svo komið fyrir henni að hún getur að mestu hjálpað sér sjálf...
  • Saga er fengin hjá uppgefnum ættingjum...
  • Sjúklingur á vanda til að fara austur í sveit um helgar. Þar datt undan henni hestur...
  • Sjúklingur var í morgun að drekka te og borða maís þegar að bar mann sem heitir Kristmundur.
  • Skoðun við komu leiðir í ljós unglingspilt...
  • Tekin var mynd af sjúklingi sem sýndi breytingar í Hafnarfirði...
  • Við komu á spítalann var sjúklingur fljótlega skoðaður af undirrituðum og kemur þá í ljós að um er að ræða 46 ára karlmann sem er mjög þrekvaxinn og vöðvastæltur...
  • Við rectal exploration fannst stækkaður skjaldkirtill...
  • Við skoðun á sjúklingi kemur fram áberandi kyndeyfð...
  •  Við skoðun eru engar eitlastækkanir að gagni...
  • Það sem fyllti mælinn var þvagleki...
  • Það vottar fyrir gyllinæð hægra megin á kálfa...
  • Þegar hann var lagður inn hafði ör hjartsláttur stoppað og honum leið betur.
  • Þessi maður veit ekkert um skyldleika í ætt....
  • Sjúklingur batnar ef lagst er ofan á hann...
  • Sjúklingur borðar reglulegt mataræði...
  • Sjúklingur er ekki þekktur fyrir að fremja sjálfsmorð.
  • Sjúklingur er fertug, að öðru leyti ekkert athugavert.
  • Sjúklingur er svo hress að hann gæti gengið langleiðina til Akureyrar...
  • Sjúklingur er tilfinningalaus frá tá og niður úr.
  • Sjúklingur fékk sér vöfflur í morgunmat og var kominn með lystarstol í hádeginu.
  • Sjúklingur fékk þá mjög langsótt kvef...
  • Sjúklingur fær verki í bringuna ef hún liggur á vinstri hlið lengur en í eitt ár.
  • Sjúklingur hefur aldrei fundið fyrir þessum verkjum nema þegar hann vaskar upp í sumarbústað en er ráðlagt eftirlit ef verkirnir koma fram við önnur tækifæri...
  • Sjúklingur hefur átt við gott heilsufar að stríða...
  • Sjúklingur hefur fremur óbærilega verki...
  • Sjúklingur hefur formlegar hægðir...
  • Sjúklingur hefur skilið eftir hvítu blóðkornin á öðrum spítala.
  • Sjúklingur hefur verið að þyngjast af asmanum sl. sólarhring...
  • Sjúklingur hefur verið mædd sl. fimm ár...
  • Sjúklingur hefur verið niðurdreginn alveg síðan hann byrjaði að hitta mig 1983.
  • Sjúklingur lenti á parketgólfi og bar fyrir sig höndina með þeim árangri að hún brotnaði...
  • Sjúklingur hefur verið í vandræðum með gervifótinn en hann hefur haft fjóra fætur frá því að hann lenti í slysinu, en þann síðasta fékk hann í apríl sl. Sjúklingur lærði söngnám...
  • Sjúklingur tekur engin lyf en magnyl þess á milli...
  • Sjúklingur tárast og grætur stöðugt. Virðist líka vera niðurdreginn.
  • Sjúklingur var í góðu ásigkomulagi þangað til flugvélin hans varð eldsneytislaus og hrapaði

Þetta er gamalt en stendur allaf fyrir sínu!


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Magnús Helgi Björgvinsson
Magnús Helgi Björgvinsson

Skoðanir Magga um menn og málefni í fréttunum. maggihb@gmail.com Athuga að þetta eru mínar skoðanir og þið megið bara hafa ykkar hentisemi, því ég er að nota mína.

Eldri færslur

Maí 2024
S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31  

Twitter

Teljari

joomla visitor

Twitter

Tenging við twitter

Um bloggið

Vettvangur Magga

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband