Leita í fréttum mbl.is

Hvað segja andstæðingar ESB núna?

Ein af helstu rökum gegn ESB hefur verið nú upp á síðkastið að við sem trúum því að okkar hag væri betur komið innan ESB værum að kalla yfir Ísland atvinnuleysi. Nú er Fjármálaráðuneytið farið að spá:

Þá er búist við áframhaldandi samdrætti á næsta ári. Ráðuneytið gerir ráð fyrir 1.9% atvinnuleysi á þessu ári en að atvinnuleysi aukist í 3,8% á næsta ári. Fjármálaráðuneytið býst við að verð fasteigna lækki um 4% en þegar tekið er tillit til verðbólgu verði raunlækkun fasteignaverðs 12% á árinu.

Og ekki erum við búin að ganga í ESB og ekki búin að taka upp Evru þannig að þetta erum bara við og krónan sem erum að valda þessu.


mbl.is Spá 15% lækkun fasteignaverðs
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Er krónan að valda þessu?

Á Evrusvæðinu er víðast mikið og langvarandi atvinnuleysi. Hvernig færð þú það út að Evran myndi vera vörn gegn samdrættinum?

Eins skil ég ekki hvernig þú færð það út að Evrópusambandið sé stikkfrí í þeim efnahagssamdrætti sem gengur yfir heiminn núna.

Ég tel að við verðum búin að jafna okkur löngu áður en Evrópusambandslönd gera það.

Hans Haraldsson (IP-tala skráð) 15.4.2008 kl. 15:04

2 Smámynd: Johnny Bravo

Viltu hafa stundum atvinnuleysi eða bara krónískt lol

Johnny Bravo, 15.4.2008 kl. 15:52

3 identicon

Viðvarandi 1% atvinnuleysi til lengri tíma er út í hött og afar verðbólgumyndandi, eins og við höfum verið að sjá undanfarin ár. Eðlilegt atvinnuleysi er á bilinu 5% til 10%, líkt og er á meginlandinu, ef verðbólgan á að haldast niðri. Þetta er ekki flókið.

Með galdmiðil sem er ýktari en hjartalínurit, líkt og íslenska krónan hefur verið undanfarin ár, og svona fáránlega lítið atvinnuleysi þá mun verðbólgan fara úr böndunum algerlega ef ekkert er aðhafst.

Ég segi, förum inn í Evrópusambandið, náum atvinnuleysinu upp í 5%, tökum Evru upp sem gjaldmiðil og við munum hafa það gott hér á þessum klaka um ókomna framtíð.

Heimspekingurinn sagði hér um öldina að aðeins tvennt hvetji menn til aðgerða, græðgi eða ótti. Því miður þurfum við nú að skríða óttaslegin á skeljunum til Brussel og grátbiðja menn um að hjálpa okkur úr þessari sjálfheldu sem við erum búin að koma okkur í. Hefðum við verið aðeins gráðugri hér um árið þegar allt var í blóma og gengið þá í ESB hefði landið legið öðruvísi í dag og spilaborgin okkar staðið á sterkari grunni en innfluttum sandi.

Inn í ESB í dag!!

Kv. Svíi.

Svíi (IP-tala skráð) 15.4.2008 kl. 16:26

4 Smámynd: Guðmundur Jónas Kristjánsson

Meðan við ráðum yfir egin mynt ráðum við yfir atvinnustítingu. Það er
hins vegar pólitísk ákvörðun og sérstaklega Samfylkingarinnar að
keyra niður atvinnustígið og  loka á allar stórframkvæmdir. Pólitísk
meðvituð ákvörðun sem ASÍ varar mjög við. Þess vegna er útlit fyrir
atvinnulrysi á næstunni.

Vísa annars til bloggs míns í dag um efnahagskreppuna í ESB og á
evrusvæðinu.   Yrðum heldur betur fyrir barðinu á atvinnuleysi og
kreppu göngum við í ESB og tækjum upp evru sem er að sliga
fjölmörg ESB-ríki í dag.

Guðmundur Jónas Kristjánsson, 15.4.2008 kl. 16:35

5 Smámynd: Magnús Helgi Björgvinsson

Hans ég var ekkert að segja að evran væri vörn gegn atvinnuleysi. Krónan er það ekki heldur. En evran mundi væntalega skila okkur lægra matvöruverði, eins mundi evran væntalega tryggja okkur hagstæðari bankaviðskipti. En síðan er mismundandi eftir ESB ríkjum hversu atvinnleysi er mikið. Enda eðlilegt að land sem skiptir að mestu við Evrópu þar séu fyrirtækin og fólkið að vinna í sömu miðlum og viðskiptalöndin. Króna sem sveiflast um 30% á 2 mánuðum gerir það að verkum að vörur sem við kaupum, lán og annað sveiflast um 30% á sama tíma. Það getur engin lifað við það til lengdar.

Magnús Helgi Björgvinsson, 15.4.2008 kl. 17:02

6 Smámynd: Örvar Már Marteinsson

Andstæðingar ESB? ESB er ágætt út af fyrir sig og ég er ekkert á móti ESB. Ég er hins vegar andvígur inngöngu Íslands í ESB og vil í því ljósi bara benda á þetta HÉRNA! Þetta segir allt sem segja þarf.

Örvar Már Marteinsson, 15.4.2008 kl. 17:02

7 identicon

Magnús: Hugmyndin með Evrunni var m.a að hún myndi lækka vöruverð og stuðla að aukinni samkeppni. Þetta hefur sárasjaldan gengið eftir og í raun varð meira um verðhækkanir í kjölfar Evruupptöku og þær hafa ekki gengið aftur. Það er engin ástæða til þess að ætla að reynslan verði önnur hér.

Ef þú heldur að 1) þú getir fengið lánsfé á þýskum kjörum við íslenskar efnahagsaðstæður og 2) að það gengi bara fínt fyrir sig þá ert þú á miklum villigötum.

Það er ekki þar með sagt að það sé ekki æskilegt að gera breytingar í myntmálum. Peningastefnan virkar illa, við njótum ekki þess gagns af flotkrónunni sem við vorum að sækjast eftir og engin ástæða til þess að búa við stöðugar gengissveiflur. Í þeim málum eru aðrar leiðir færar en innganga í myntbandalagið, t.d fastgengiskróna, svissneskur franki o.s.frv.

Annars skil ég ekki hvað þú ert að fara með þessari færslu. Það hefur engin haldið því fram að það verði engar hagsveiflur á Íslandi utan ESB. Við verðum fyrir hagsveiflum bæði innan og utan sambandsins.

Hvernig á yfirstandandi niðursveifla að vera til marks um það að við værum betur sett innan ESB? Svipaðir erfiðleikar, eða verri, eru að ganga yfir sambandslöndin.

Hans Haraldsson (IP-tala skráð) 15.4.2008 kl. 17:45

8 Smámynd: Magnús Helgi Björgvinsson

Hans menn hafa haldið því fram að hér á landi yrði viðvarandi atvinnuleysi við inngöngu í ESB. Það er nokkuð ljóst að hér mundi matarverð lækka um allt að 25%. Eins þegar að við erum komin með evru þá eigum við hægra um vik að vera í samskiptum við banka erlendis sem mundu sækja í að lána okkur á betri kjörum en okkur bjóðast. Við værum í sama efnahagsumhverfi og aðrar ESB þjóðir og þar sem að tekjur á Íslandi eru fyrir ofan meðallag gætu bæði við og erlendir bankar haft hag af. Og þegar við værum komin með evru þá mundi hverfa nauðsyn á verðtrygginu lána.

Magnús Helgi Björgvinsson, 15.4.2008 kl. 19:02

9 Smámynd: Guðmundur Jónas Kristjánsson

Magnús. Þetta er meiriháttar þvæla að matarverð lækki við það að
ganga í ESB. Og hvað er þá fengið með því ef kaupmáttur snar-minnkar og atvinnuleysi verði  viðvarandi? Auk þess geta stjórnvöld
á hverjum tíma tekið um það pólitiska ákvörðun að lækka verð á
matvælum. Þurfum enga ESB-aðild til þess. Fyrir utan allt hið stóra
dæmi ef við missum meirihluta virðisaukans úr landi af Íslandsmiðum
göngum við í ESB. Þú Magnús minn ert það skynsamur maður að þú
veist að  áður en nokkuð vit er í að ganga í ESB verðum við að afnema
framsalsheimildir kvóta á Íslandfsmiðum. Að ganga í ESB með
fullt framsal á kvóta getur engum heilvita Íslendingi dottið í hug.

Þess vegna yrði FYRSTI vegvísir að ESB að afnema framsalið á
kvótanum.

Guðmundur Jónas Kristjánsson, 15.4.2008 kl. 21:49

10 identicon

Magnús: Það verður alltaf að vera innistæða fyrir peningunum, annars eru þeir bara loft. Þetta á við um Evrur eins og Krónur.

Þessi umræða er farin að minna á það þegar menn komust að þeirri niðurstöðu að það væri voðalega sniðug hugmynd að veita 100% húsnæðislán til þess að gera fólki auðveldar um vik að eignast húsnæði. Þeim yfirsást það bara að þótt það sé hægt að búa til lánsfé með einu pennastriki þá verður ekki til meira húsnæði við það!

Af hverju heldur þú annars að það séu vextir? Ef að lágir vextir væru alltaf æskilegir þá myndu menn bara setja stýrivextina í 0. Ókeypis peningar fyrir alla!

Á endanum þarf að vera verðmætasköpun á móti peningunum. Það verður ekki til meira af vöru og þjónustu í landinu við það að hér flæði ódýrar Evrur um allt.

Það eru hinsvegar ýmsir aðrir kostir við gjaldmiðilsskipti (og hægt að njóta þeirra án þess að ganga í ESB) en ef þú heldur að þú fáir hræódýrt húsnæðislán innan sambandsins og að það verði allt í fínu lagi þá ert þú að láta draga þig á asnaeyrunum.

Hans Haraldsson (IP-tala skráð) 15.4.2008 kl. 22:05

11 Smámynd: Magnús Helgi Björgvinsson

Kaupmáttur okkar fer nú að minnka hressilega í 10% eða meiri verðbólgu. Matarverð lækkar náttúrulega við afnám tolla. Kaupmáttur ræðst væntanlega af framleiðslu okkar. Kaupmáttur er meiri en hér í mörgum ESB löndum.

Ég er ekkert að draga úr því að það þurfi verðmætasköpun. En þegar allir sem vinna að því að skapa verðmæti telja hag sínum betur borgið með því að fá öflugan stöðugan gjaldmiðil sem þeir geta notað i viðskiptum við útlönd þá held ég að þeirri spurningu sé auðsvarað hvað hentar okkur best.

Matarverð lækkaði í Svíþjóð við inngöngu í ESB. Matarverð hér er a.m.k. 35 til 40% hærra en í þeim ríkjum innan ESB sem næst okkur eru. Bendi t.d. á straum norðmanna yfir til Svíþjóð að versla innn.

Ég upplifið það nú hér fyrir nokkrum vikum að lán sem ég var með upp á 450. þúsund hækkaði í 600 þúsund við gengisfallið. Þetta er hlutur sem ég sætti mig ekki við.

Ég get bara ekki séð hvernig við getum haldið áfram á sömu braut í mörg ár í viðbót.

Og ég skil ekki að fólk sé svona hrætt við allar breytingar. Var að lesa frétt frá 1991 þar sem Jakob forstjóri Hafrannsóknarstofnaunar hélt því fram að við inngöngu í EES og 3000 tonna kvóta í karfa sem við létum ESB fá mundi með svindli og bolabrögðum allur fiskur vera plataður af okkur og ESB mundi ráða hér öllu. Reyndist það rétt?

Nei við vorum bara stíf og ákveðin í samningum og nú er nær ekkert talað um veiðar ESB í okkar landhelgi.

Magnús Helgi Björgvinsson, 15.4.2008 kl. 22:25

12 identicon

Matarverð mun lækka við afnám tolla sama hvort við erum innan ESB eða ekki. Það þarf bara pólitískan vilja til.

Það sama á við um stöðugri gjaldmiðil. Við getum verið búin að tengja krónuna við annan gjaldmiðil áður en árið er úti og skipt alveg innan fárra ára. Þarf ekkert ESB.

Annars var það kjánaskapur til að byrja með að taka myntkröfulán (ef að slíkt væri allmennt skynsamlegt þá myndi ekki skipta máli hvaða gjaldmiðill gildir hvar).

Ég skil ekki ennþá merkinguna með færslunni. Hvernig grefur yfirstandandi samdráttur undan málstað ESB andstæðinga?

Hans Haraldsson (IP-tala skráð) 16.4.2008 kl. 00:43

13 Smámynd: Magnús Helgi Björgvinsson

Ég var að meina að menn hafa rætt um að innganga í ESB mundi kalla yfir okkur atvinnuleysi. En nú er spáð vaxandi atvinnuleysi hjá okkur a.m.k næstu ár og því er ekki hægt að segja að við séum betur sett utan ESB vegna þess.

Varðandi tolla þá er nokkuð ljóst að þeim verður ekki breytt hér á landi án inngöngu í ESB. Hér ríkir verndarstefna  fyrir bændur sem hægt er að deila um. Við meigum ekki kaupa erlenda matvöru nema að hún sé tolluð þannig að það borgi sig varla að flytja hana inn. Við inngöngu í ESB yrði það bannað og í stað tolla greiðir ESB bændum styrki í staðinn. Eins yrðu innflutnings takmarkanir eins og  varðandi osta og kjöt í dag ekki leyft. Þ.e. að hér sé leyft að flytja inn nokkur tonn af þessum vörum sem síðan einn getur keypt upp og heft allann innfluttning.

Við skiptum ekki svo auðveldlega yfir í aðra mynt. Það eru fáir seðlabankar sem mundu bara fagna því að við bættumst við ábyrgð þeirra.

Magnús Helgi Björgvinsson, 16.4.2008 kl. 01:11

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Magnús Helgi Björgvinsson
Magnús Helgi Björgvinsson

Skoðanir Magga um menn og málefni í fréttunum. maggihb@gmail.com Athuga að þetta eru mínar skoðanir og þið megið bara hafa ykkar hentisemi, því ég er að nota mína.

Eldri færslur

Maí 2024
S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31  

Twitter

Teljari

joomla visitor

Twitter

Tenging við twitter

Um bloggið

Vettvangur Magga

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband