Leita í fréttum mbl.is

Sjálfstæðismenn búnir að finna lausn á þessu mál?

Þeir ætla að selja allt nema nafnið. Þá geta þeir sagt að RAI sé áfram í almennings eign. Og Ásta Þorleifs og Ólafur F bara kát með þetta!

Hvað er átt við með að REI eigi að einbeita sér að Ráðgjafa og þróunarverkefnum. Ætla menn að segja að þróunarverkefnum fylgi engin fjárhagsleg áhætta?

Held nú að allir borgarfulltrúar ættu að leggjast á eitt við að hætta þessum draumum um ofsagróða í útlöndum. Reykjavík á Orkuveituna hún er að þjóna þeim ágætlega og græða fullt af peningum sem aldrei hafa verið notaðir til að lækka verð á heitavatni né rafmagni. Því held ég að aukin gróði mundi ekki skila sér til neytenda hvort eð er. Spurning hvort að kjörnir borgarfulltrúar megi hvort eð er fara í svona ævintýri með fé borgarbúa. Minni á mál sem kom upp í Noregi um daginn þar sem að sveitarstjórn hafði fjárfest fé í hlutabréfum og tapað milljörðum af fé skattborgara. Ef útrás í orkuiðnaði er svona spennandi leyfið þá einkaaðilum að gera það og taka áhættuna.

 


mbl.is Haldið áfram á ógæfubraut
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Magnús Helgi Björgvinsson
Magnús Helgi Björgvinsson

Skoðanir Magga um menn og málefni í fréttunum. maggihb@gmail.com Athuga að þetta eru mínar skoðanir og þið megið bara hafa ykkar hentisemi, því ég er að nota mína.

Eldri færslur

Apríl 2024
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

Twitter

Teljari

joomla visitor

Twitter

Tenging við twitter

Um bloggið

Vettvangur Magga

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband