Leita í fréttum mbl.is

Ekki okkur að kenna ?

30% með bílalán í erlendri mynt. Sko við erum ekki í lagi. Ég einmitt skulda nú um 600 þúsund í erlendu bílaláni. En þetta gaf mér tilefni í eftirfarandi pælingu.

"Ekki okkur að kenna ?"

Nú síðustu mánuði hefur þessi frasi glumið allsstaðar þar sem fólk kemur saman og ræðir kreppuna sem nú dynur yfir okkur.

En er þetta allskostar rétt. Ég hef verið að fara aðeins í huganum yfir síðustu ár og það eru nokkur atriði sem ég hnýt um.

  • 1. Húsnæðisverð rauk hér upp með aðkomu bankana að húsnæðismarkaði. Og bönkunum náttúrulega kennt um að hafa lánað frjálslega. Þetta er að hluta til með réttu. EN það rifjaðist upp fyrir mér nokkur dæmi sem ég heyrði af á þessum tíma. Fólk var að leita sér að nýju húsnæði og fann sér íbúðir sem voru kannski langt umfram það sem þau þurftu. Þau buðu í íbúðina uppsett verð en komust að því að aðrir höfðu boðið hærra og þá var tilboðið bara hækkað um milljónir og svona var haldið áfram þar til að húsnæðið fékkst. Þá var fólk búið að skuldsetja sig langt umfram það sem það ætlaði og og veðsetja eignina allt að 100%.
  • 2. Hlegið var að fólki sem átti skuldlausar eignir. Það var sagt að þetta fólk kynni ekki að láta peninga vinna fyrir sig. Auðvita átti að taka lán út á eignina og nota peningana í að láta sér líða vel eða ávaxta þá í hlutabréfum og þessháttar.
  • 3. Fólk var að kaupa bíla eins og ég veit ekki hvað. Og algengasta aðferðin var að fá þá á 80 til 100% lánum. Og helst varð að eiga 2 og jafnvel 3 bíla á heimili. 17 ára strákar voru komnir á sportbíla upp á 1 til 2 milljónir eða meira. Og síðan voru keypt leiktæki eins og mótorhjól, vélsleðar, fjórhjól og allt á lánum.
  • 4. Fólk var tilbúið að kaupa sumarhús kannski 50 fm. á leigulóð fyrir meira en sambærileg íbúð mundi kosta í bænum. Jafnvel þó að sumarhúsið væri gamalt timburhús og landið lítið ræktað. Og þetta tók fólk á sig með lánum.
  • 5. Svo var það innréttinga og endurnýjunar æðið. Það var algengt að fólk rifi út úr íbúðum og húsum allar innréttingar þó þær væru í fullkomnu lagi og nýlegar. Það var svona Innlits/útlits æði hér. Og þeim mun dýrara sem hægt var að kaupa inn, þeim mun betra. Helst að hlutirnir hétu einhverjum flottum nöfnum t.d. Stark minnir mig að vaskarnir eða kranarnir yrðu að heita. Og fyrir þessu voru tekin lán.

Ég veit að það voru ekki allir í þessum gír en samt ótrúlega margir. Ég veit um fullorðið fólk sem ættingjar voru að hvetja til að skuldsetja íbúðir sínar til að hafa meira á milli handana. Fólkið var vant því að skulda ekki meira en það nauðsynlega þurfti og neitaði  að gera þetta. Þetta fólk hrósar happi nú í dag.

Þó að bankar hafi boðið öllum lán fyrir öllu þá var það fólksins að þiggja þau. Það var okkar að hafa vit fyrir okkur.  Var ekki verið að segja að heimilin í landinu skuldi um 1200 milljarða.

skuldir heimila

Held að þó það sé ljóst að fjármálabraskarar hafa komið okkur í vond mál, þá eigum við okkar þátt í þessu brjálæði.

Málið er að þó bankarnir væru að bjóða lán á "hagstæðum kjörum" þá þurftu við ekki að taka þau öll.

 


mbl.is 30% með bílalán í erlendri mynt
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Vá þetta er svo akkurat það sem ég hef verið að hugsa..
Alla mína skólatíð, framhalds og háskóla sem spanna síðastliðin 8 ár hefur mér blöskrað fjöldinn af bílum sem standa á bílastæðum skólanna... Stráklingar komnir á 1-2-3 milljón kr bíl og ég veit ekki hvað og hvað..

David (IP-tala skráð) 13.1.2009 kl. 15:39

2 identicon

Ja hérna hér, Magnús.  Mikið afskaplega er ég sammála þér !!

 Ég bý erlendis en kem til Íslands öðru hverju.  Ég hef horft á landið rísa til hæstu hæða og hrapa niður aftur.  Fyrst snérist mikil undrun mín á þessari svakalegu velferð sem maður rakst þá á götum úti, allir (flestir) á líka þessum rosalegum jeppum.  Svo risu hverfin og aftur varð ég undrandi.

Svo kom skellurinn með tilheyrandi timburmönnum.  Aftur varð ég undrandi en nú er ég það ekki lengur.  Eftir höfðinu dansa limirnir eins og íslendingar dönsuðu eftir lánsframboðinu.  Auðvitað springur blaðran fyrr en síðar.  Allt sem fer upp kemur niður aftur.

Innlegg þitt er hins vegar það fyrsta sem ég hef lesið, skrifað á raunsæjan hátt um raunverulegan efnivið kreppunnar á Íslandi.

Takk fyrir þessu frábæru skrif.

Thorsteinn Eggertsson (IP-tala skráð) 13.1.2009 kl. 15:48

3 Smámynd: Haraldur Haraldsson

Endilega komdu með okkur á www.heimilin.is þar sem nokkuð stór hóður er að stofna öflug samtök undir heitinu Hagsmunarsamtök Heimilinna. Stofnfundur á fimmtudaginn. Þessi mál eru í brennidepli þar. Þetta ferli sem hefur átt sér stað sl. 3 ár er brjálæði.

Haraldur Haraldsson, 13.1.2009 kl. 16:33

4 Smámynd: Baldvin Jónsson

Ég er sammála því Magnús að þetta er ekki BARA þeim að kenna, við erum öll samsek. En þegar kemur að lánapakkanum að þá er nú okkar hlutur t.d. í heildarútlánum árið 2007 ekki nema 9%. 91% voru lán bankanna til rekstraraðila, sem að þeir áttu stærstan hlut í sjálfir eða eigendur þeirra.

Þannig að já, við höfum hagað okkur fáránlega sem gerir kreppunni enn verri fyrir marga hér heima. Það er hins vegar ekki ástæða hrunsins eða neitt nálægt því.

Við berum hins vegar stærsta ábyrgð að mínu mati í því að hafa hlustað á þennan fréttaflutning árum saman án þess að nokkurs staðar staldra við og reyna að skilja eða fá upplýsingar um hvað væri raunverulega í gangi. Nei, við meira að segja kusum svo aftur yfir okkur árið 2007 stærstan hluta þeirra ráðamanna sem að höfðu þegar sýnt fram á getuleysi sitt við að vernda okkur og fylgja eftir eftirliti.

Baldvin Jónsson, 13.1.2009 kl. 16:39

5 identicon

Mikið hefur þú rétt fyrir þér.....hefði ekki getað orðað þetta betur. Fólkið í landinu á sinn þátt í þessu öllu saman. Ég þekki fólk sem var að kaupa nýlegt hús með 1 árs gömlu eldhúsi (virkilega flott) og það var rifið niður og farið á haugana með það og svo var allt keypt nýtt...og það var verið að sérpanta flísar og krana frá Italíu og Frakklandi...ég hristi hausinn þá og geri enn.  Góð grein hjá þér!

Eirikur Jonsson (IP-tala skráð) 13.1.2009 kl. 16:53

6 Smámynd: Riddarinn

Sammála sammála sammála !!!!

Þarna hittir þú naglann sannarlega á höfuðið,ég var svo heppinn að sjá þetta vandamál með þessi skelfilegu lán(rán) mjög snemma 2000 þegar ég keypti mér í eitt skipti og eina skipti bíl að hluta til á bílaláni og fannst þetta vera eins og að láta ræna sig í björtu þegar afborgurnar seðillin birtist um póstlúguna, þvílík eignarupptaka að það hálfa væri nóg.

Þá gaf ég sjálfum mér það loforð að taka ekki svona lán því það væri ekki mikið að eignast 4 þúsund í bíl þegar maður væri að borga 20 þúsund af honum,bara ógáfulegt hvernig sem ég leit á það.

þetta hef ég staðið við og ekki lent í þessari hrikarlegu hringavittleysu þar sem fólk fer á bullandi kúpuna bara vegna þess að bíllinn hækkar um 3 milljónir á örskotsstundu og ekkert sem hægt er að gera nema að rétta bankanum Vaselínið og láta taka sig endalega í ...........

Þessari ákvörðun sé ég ekki eftir og nú er skuldlaus maður á íslandi "ríkur "maður, en nágranninn á Range Rovernum.....maður finnur eiginlega til með þeim núna því hann er líklega dæmdur til að borða hafragraut í náinni framtíð og líklega dugar það ekki til og bíllinn fer sína leið á uppboð hvað sem tautar og raular.

Þakka góða grein.

Riddarinn , 13.1.2009 kl. 18:07

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Magnús Helgi Björgvinsson
Magnús Helgi Björgvinsson

Skoðanir Magga um menn og málefni í fréttunum. maggihb@gmail.com Athuga að þetta eru mínar skoðanir og þið megið bara hafa ykkar hentisemi, því ég er að nota mína.

Eldri færslur

Maí 2024
S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31  

Twitter

Teljari

joomla visitor

Twitter

Tenging við twitter

Um bloggið

Vettvangur Magga

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband