Leita í fréttum mbl.is

Var það þá markmið þeirra að drepa ákveðinn fjölda barna og kvenna?

Hefði ekki verið skynsamlegra að bjóða friðarviðræður? Þurfti að drepa á annað þúsund manna og særa 5000 og valda kannski 500 þúsund börnum óbætanlegum andlegum skaða til að hægt væri að semja svo um vopnahlé?  Hvað ætli mörg börn í Palestínu hafi lært að hata Ísrael á þessu 3 vikum?
mbl.is Ísraelar við það að ná markmiðum sínum
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Já vissulega eru þeir villimenn.

Þeir eru rottur sem svífast einskis í þessum hernaði, hvaða markmiðum ætla þeir að ná?    Mér finnst að þessir helvítis júðar hefðu hver og einn átt að fá smá sturtutíma hérna í denn.. enginn átti að fá að sleppa að mínu mati

Kannski voru SS sveitirnar sálugu ekki svona grimmar ?

Jón (IP-tala skráð) 17.1.2009 kl. 15:10

2 identicon

Gyðingar virðast hafa lært mjög vel af kvölurum sínum og beita nánast alveg sömu aðferðum og gert var í gettóinu í Varsjá forðum daga. Það vantar bara gasklefana til að kóróna sköpunarverkið. Ætli Bandaríkjamenn mundu þora að gagnrýna Ísraelsmenn ef starfræktir væru gasklefar á Gasa því Gasa er, eins og sakir standa, hreinar útrýmingarbúðir.

Þorvaldur Þórsson (IP-tala skráð) 17.1.2009 kl. 15:32

3 Smámynd: Siggi Lee Lewis

Ég hefði lúmskt gaman á því að sjá þig semja við Hamaz félagi!

Siggi Lee Lewis, 17.1.2009 kl. 16:14

4 Smámynd: Magnús Helgi Björgvinsson

Og hvað eru þeir að gera núna? Siggi Lee. Þeir eru að fara að semja við Hamaz. Og heldur þú að að svona árásir þurki Hamaz út eða hvað? Fyrir nokkrum árum var þða PLO nú Hamaz og hvað svo næst? Þeir verða að gera sér grein fyrir því að varanlegur friður næst ekki nema að þeir skili öllum svæðum sem þeir hafa tekið m.a. á Vesturbakkanum og aflétta viðskipabanni sem og að samþykkja það að fjölþjóðlegur her komis sér fyrir á milli Ísrael og svæða Palestínu. 

Magnús Helgi Björgvinsson, 17.1.2009 kl. 16:42

5 identicon

Markiðið er að losa sig við morðingja og aula sem fela sig á bakvið saklaust fólk. 

Höddi (IP-tala skráð) 17.1.2009 kl. 16:49

6 Smámynd: Magnús Helgi Björgvinsson

Og? Þetta hafa þeir gefið upp sam ástæður í 40 ár. En hvernig má það vera að þegar allt var búið að vera með friði og engar árásir á Ísrael í 6 mánuði þá hefja þeir "aðgerðir" á Gaza. Og í kjölfarið byrja Hamaz að skjóta þessum smábombum sem í raun valda fæstar skað. Og þá gera Ísraelsmenn bara árás á heilt samfélag. Er það réttlætanlegt að drepa kannski um 400 börn bara til að sýna mátt sinn og meginn. Og ganga svo bara til samninga eins og ekkert sé. Halda menn að það komi ekki nýjir öfgamenn út úr svona ómanneskjulegu stríði. Menn gera sér væntanlega grein fyrir að Gaza er á stærð við Höfuðborgarsvæðið svo fólk gat ekkert flúið þar sem að Ísrael lokar öllum útgönguleiðum.

Höddi værir þú sáttur við að ef nokkriri morðingjar mundu fela sig á Íþróttaleik þar sem væru kannski 3 þúsnund manns að horfa, að húsið yrði bara sprengt í loft upp?

Magnús Helgi Björgvinsson, 17.1.2009 kl. 17:18

7 Smámynd: Ómar Bjarki Kristjánsson

Þetta er allt alveg þvílíka ruglið frá a-ö.   Auðvitað ekkert svaravert sem einhverjir kjánar sem gleypa við israelsku propaganda rugli eru að babbla annað slagið.  

Þap sem mér finnst merkiegt á þessum tímapunkti er,  að enn hefur ekki komið fram sannfærandi skýring á framferði Israela.  Hver var og er raunverulegi tilgangur hryðjuverkanna. 

Ennfremur að allt áróðurstal Israela um mikið vopnabúr á Gaza er augljóslega aðeins það.  Áróður. 

Þarna hafa þeir dundað ser við það í fleiri fleiri daga,  að murka lífið úr varnlausu fólki sem ekkert getur flúið,  með einni fullkomnustu vígvél í heimi. 

Þetta er svo hroðalegt að orð fá ekki lýst.

Afleiðingarnar verða skelfilegar.

Ómar Bjarki Kristjánsson, 17.1.2009 kl. 17:41

8 Smámynd: Björgvin Gunnarsson

Höddi: Hvað hefur þú fyrir þér í því þegar þú talar um að Hamas liðar feli sig innan um saklausa borgara? Frá Ísraelum kannski? Það er alltaf að koma meira og meira í ljós að þetta eru lygar, t.d. viðurkenndu stjórnvöld í Ísrael að enginn hafi skotið á hermenn þeirra frá skóla Sameinuðu þjóðanna fyrir rúmri viku, heldur hafi verið um "tæknileg mistök" (að hætti sjálfstæðismanna). Rauði krossinn og UN hafa einnig vísað á bug fullyrðingum Ísraelsstjórnar að þeir sprengi bara hús þar sem Hamas menn fela sig.

Björgvin Gunnarsson, 17.1.2009 kl. 17:44

9 Smámynd: Siggi Lee Lewis

Þú bara bullar! Hvernig ætlar þú að þurrka út Hamaz ?? Gefa þeim öllum nudd? Það þarf að eyða Hamaz til þess að friður komist á! Áttar þú þig ekki á því eða? Efast um að þú sért svo tregur...

Siggi Lee Lewis, 17.1.2009 kl. 19:02

10 Smámynd: Magnús Helgi Björgvinsson

Það er ekki hægt að útrýma Hamas. Hvernig á að finna þá. Þeir eru Palestínumenn . Helsta leiðin væri að  að fólk í Palestínu sjái að hagur þeirra færi batnandi en það hefur ekki verið.. Það er ekki réttlætanlegt að deyða börn eða saklaust fólk. Minni á að það má ekki fljúga til Palestínu, það má ekki sigla þangað. Fólk fær varla leyfi til að ferðast þangað eða þaðan. Ísrael heldur þessu fólki í heljargreypum og hefur gert lengi. Það er eðlilegt að öfgamenn eigi sér fylgjendur þarna.

Það hafði ekki neinn ísraeli dáið eftir árásir Hamas í eitt ár áður en þessi árás Ísraela byrjaði.

Magnús Helgi Björgvinsson, 17.1.2009 kl. 19:27

11 identicon

Markmið Ísraelsmanna í þessari aðgerð er að stöðva eldflaugaárásir hamas inn í Ísrael og stöðva vopnasmygl inn á svæðið. Þetta hefur verið ljóst frá byrjun aðgerðarinnar.

Jonas (IP-tala skráð) 17.1.2009 kl. 19:39

12 Smámynd: Magnús Helgi Björgvinsson

Og ég spyr hvernig stendur þá á því að yfir 400 börn vorur drepin voru þau að skjóta. Og hvernig stöðva þeir svona árásir með því að sprengja upp birgðarstöðvar Sameinuðu þjóðana.

Og gera menn sér grein fyrir að þessar eldflaugar sem Hamas nota eru flestar smíðaðar á staðnum. Þetta eru flestar heimasmíðarar sprengjur.

Þetta er bara bull. Það voru engum eldflaugum skotið í 6 mánuði fyrr en Ísraelsmenn ruddust þangað inn í nóvemer af óúskýrðum ástæðum.

Það hafa um 1100 palestínumenn dáið í þessu blóðbaði og 13 ísraelmenn. Þar af voru um 700 óbreyttir palestínumenn og 3 ísraelar.

Magnús Helgi Björgvinsson, 17.1.2009 kl. 20:00

13 identicon

Hamas á það til að fela sig á bakvið saklausa borgara og reyna að fá samúð vegna dauða þeirra.

Þeir stöðva þessar árásir með því að taka þá sem eru ábyrgir fyrir þeim úr umferð og minnka getu annarra til að fremja svona árásir. Hamas meðlimir hafa stundað hernað úr byggingum sameinuðu þjóðanna, moskum ofl. stöðum, m.a. til að skapa spennu á milli Ísraels og umheimsins. Það gengur ekki fyrir Ísraelsmenn að leyfa þeim bara að skjóta á sig þaðan og gera ekkert í málinu.

Hvaðan helduru að efnin í sprengjugerðina koma? Svo er slatti af vopnum sem er smygglað þangað og það hafa fundist göng sem voru notuð í þetta smyggl. 

"Þetta er bara bull. Það voru engum eldflaugum skotið í 6 mánuði fyrr en Ísraelsmenn ruddust þangað inn í nóvemer af óúskýrðum ástæðum."

Ertu ekki að grínast? Hamas byrjaði í nóvember á því að skjóta eldflaugum í Ísrael og þess vegna er Ísrael þarna núna. 

Hérna eru "nokkur" dæmi um eldflaugaárásir úr palestínu á Ísrael í desember 2008. 

http://en.wikipedia.org/wiki/List_of_rocket_and_mortar_attacks_in_Israel_in_2008#December

M.a. "December 18th
Hamas declares the end of the 6 Month Truce with Israel. Three rockets are fired at Israel by the Al-Quds Brigades."

Hvað er að því að aðeins 13 Ísraelsmenn hafi dáið í þessum átökum? Viltu að þeir að fórni fleiri til að jafna stigin? Mér finnst þetta líka frekar vafasamar tölur sem þú notar. Síðast þegar ég vissi voru saklausir borgarar um 25-30% af látnum.

Jonas (IP-tala skráð) 17.1.2009 kl. 20:57

14 Smámynd: Magnús Helgi Björgvinsson

Ég nenni nú ekki svona leik. Hvað höfðu þessi 410 börn og 300 konur til saka unnið. Og konur og börn eru um helmingur af þessum 5000 sem eru limlestir og slasaðir eftir þetta.

Árið 2005 þá dóu 216 palestínu menn og þar af 16 börn í árásum Ísraela. Á því ári dóu 48 Ísraelar og þar af 6 börn. Aðallega í sjálfsmorðssprengjum. 1260 paelsínumenn slösuðust og þar af 12 börn 484 ísrelar slösuðust á sama tíma þar af 4 börn.

Árið 2006 dóu 678 palestínumenn þar af 127 börn í árásum Ísraela. Á sama ári dóu 25 Ísraelar og þar af 2 börn. 3194 palestínumenn slösuðust þar af 470 börn en 377 ísraelar og þar af 7 börn

2007 dóu 394 palestínumenn og þar af 43 börn. En 13 Ísraelar og þar engin börn. 1843 palestínumenn slösuðust þar af 265 börn. 322 Ísraelar slösuðust á þessum tíma og þar af 3 börn.

2008 er ekki komið á hreint það á eftir að grafa upp úr rústum enn þá til að fá nákæmatölu. En talið er að í þessari árás Ísraela hafi:

Að minnsta kosti 1,205 Palestínumenn, þar af  410 börn, hafa látist í árásum Ísraelshers sem eru taldar þær mannskæðustu á svæðið til þessa. Þá hafa rúmlega 5.000 manns til viðbótar særst.

13 Ísrelar hafa dái vegna þessara átaka. Þar af 10 hermenn. Og nokkrir meiðst.

Magnús Helgi Björgvinsson, 17.1.2009 kl. 21:43

15 identicon

Svo að við höfum þetta á hreinu þá voru þessi rúmlega 400 börn MYRT af Júðasvínum.
Og síðast er ég vissi þá falla hermenn í þjónustu og teljast þá ekki til mannfalls sem slíkt.  Eru þá ekki nema 3 júðar sem dóu
Á að reyna að reikna þetta eitthvað ?

Jón Ingi (IP-tala skráð) 17.1.2009 kl. 21:54

16 identicon

Þú hefur s.s. samúð með hliðinni sem hefur fleiri dauða saklausra borgara, ekki hvor hliðin hefur réttlæti og siðferði á sinni hlið? 

Það er ekki Ísrael að kenna að Hamas noti saklausa borgara sem skyldi. Það eru svo Ísraelsmenn sem eyða mörgum milljörðum í nákvæmari vopn svo þeir geti fækkað dauðum saklausra borgara á meðan hamas er alveg sama um það og ræðst á hvaða Ísraelsmenn sem er.

Meira að segja ef þessar tölur hjá þér eru réttar þá finnst mér hún vera mjög lág miðað við hversu þéttbýlt svæði þetta er sem er verið að berjast í. Ég er hræddur um að tala látinna borgara væri mun hærri ef bardagarnir ættu sér stað þar sem Ísraelskir borgarar búa. Mér finnst dauði aðeins eins Ísraelsks borgara vera of há miðað við að bardagarnir eiga sér ekki einusinni stað í Ísrael.

Jonas (IP-tala skráð) 17.1.2009 kl. 22:01

17 Smámynd: Magnús Helgi Björgvinsson

Hvaða réttlæti er í því að Ísrael hefur markvisst unnið að því í 40 ár að koma í veg fyrir að Palestína yrði land þar sem að fólk gæti lifað. Þeir hafa vísvitandi byggt landnemabyggðir allstaðar inn á milli svæða Palestínumanna á landi sem þeir hertóku. Það er líka munur þegar að land með 4 sterkasta her beitir öllum sínum mætti á saklaust fólk þó þar eins og í Ísrael sú einstaklingar og hópar sem vilja ekki semja frið. Þessi aðferð þeirra hefur verið reynd svo lengi svo oft. Það eru ekki nema nokkur ár síðan að að Ísrael fór yfir allan Vesturbakkan hnefti Arafat í stofufangelsi í nokkur ár og hverju skilaði það. Það sem þau græða á þessu er að þau ala á hatri palestínumanna og barna og auðveldara verður að fá börn og aðra til að ganga í þessa öfgahópa. Minni á að það eru líka öfgahópar í Ísrael sem beita Ísraelska hernum fyrir sig. Þeir styrkja líka landtökufólkið. Þeir vilja ekki að palestínumenn fái að mynda ríki þarna þvi "Guð hafi gefið þeim allt þetta land"

Magnús Helgi Björgvinsson, 17.1.2009 kl. 22:14

18 identicon

Jón Ingi, dauði þeirra er ekki morð. Orðið sem passar best til þess að útskýra dauða þeirra er það sem heitir á ensku "collateral damage" og er skilgreint svo:

"Unintended damage, injuries, or deaths caused by an action, especially unintended civilian casualties caused by a military operation."

Ég veit ekki hvort það sé til íslenskt orð fyrir þetta.

Það er algjör óþarfi að vera með fordóma og hroka gagnvart fólki sem lifir öðrum lífstíl en þú... ég mundi ekki fara að nota móðgandi slangur um þig og kalla þig skaufasugu eða saurþjappara.

Jonas (IP-tala skráð) 17.1.2009 kl. 22:14

19 Smámynd: Magnús Helgi Björgvinsson

Þýðingin væri í rauninni dauðsföll eða skaði sem afleiðingar stríðs án þess að það væri ætlunin. En þeir ætluðu að myrða allt þetta fólk. Ef einn hugsanlegur Hamasliði var í húsinu þá hikuðu þeir ekki vð að sprengja það. Jafnvel þó þeir vissu að þar voru konur og börn.

Magnús Helgi Björgvinsson, 17.1.2009 kl. 22:25

20 identicon

Ég er hræddur um að palestínumönnum hafi boðist það margoft að búa í friði á því landsvæði sem þeir búa núna á en þeir halda alltaf áfram að skjóta eldflaugum á Ísrael.

Hvernig væri að kynna sér málið aðeins betur? Ísraelsk stjórnvöld eru á móti landnemabyggðunum í Gaza og á Vesturbakkanum.

"HEBRON, West Bank - Israeli troops and police on Thursday stormed a disputed building in the West Bank city of Hebron, one of the region's most explosive hotspots, dragging out 250 settlers in a raid meant to send a tough message to Jewish extremists fighting to keep what they see as God-promised land."

http://www.msnbc.msn.com/id/28049089/

Annað fyndið úr fréttinni...

"Meanwhile, Palestinians on rooftops threw rocks at the settlers and Israeli forces below."

Sniðugt hjá þessum hálfvitum að kasta steinum í hermennina sem eru að reyna að losa þá við landnemana.

Hættu nú þessu bulli. Ísraelski herinn er ekki að "beita öllum sínum mætti á saklaust fólk". Þeir ráðast á hernaðarlega mikilvæg skotmörk og það vill svo til að stundum verða borgarar fyrir. Ef þeir væru viljandi að ráðast á saklausa borgara í þessu þéttbýla svæði þá væri tala látinna borgara MIKIÐ hærri. Hamas er svo ekki einstaka hópur. Það eru samtökin sem palestínska fólkið kaus yfir sig og þar með eru yfirlýsingar þeirra yfirlýsingar palestínu.

Við erum þó sammála um það að trúa því ekki að þetta sé endirinn á átökunum. Ég trúi því hins vegar að þessi aðgerð mun hafa þó nokkur áhrif. Ef Ísraelarnir vildu klára þetta í eitt skipti fyrir öll þyrftu þeir að vera mun grimmari.

Finnst þér það virkilega vera möguleiki hjá Ísrael að gera ekkert í málinu og halda áfram að leyfa þessum óþokkum að láta rigna sprengjum yfir Ísraelska íbúa?

Ísraelar hafa svo þónokkrum sinnum hætt við sprengjuárásir vegna fjölda saklausra borgara í nálægð. Því miður er samt ekki alltaf hægt að eyða skotmörkunum án þess að nokkur annar deyji.

Jonas (IP-tala skráð) 17.1.2009 kl. 22:28

21 Smámynd: Magnús Helgi Björgvinsson

Og nú þegar þeir eru búnir að lýsa yfir vopnahléi. Þá segja þeir að þeir hafi náð þeim árangri sem þeir ætluð sér og jafnvel meiri. Og segja að nú viti Hamasliðar hvernig þeir bregðist við. Og það kostaði dauða og hörmungar yfir milljónir. T.d. er hægt að bera þetta saman við að allir íbúar væru annað hvort drepnir eða særðir. Og svo halda viðskitabönnin áfram til að æsa fólkið upp. Skammta þeim olíu þannig að það verði rafmagnslaust, banna innflutning á matvælum og lyfjum. Allt til að æsa fólkið upp aftur. Svo þeir geti ráðist á þá aftur. Draumurinn þeirra er að allt fólkið flýji yfir í næstu lönd.

Magnús Helgi Björgvinsson, 17.1.2009 kl. 22:31

22 identicon

Kæri Magnús og aðrir,

Þið tryllist yfir því sem Ísrael er að gera og Magnús telur upp tölur á dánu fólki og víst er það mjög sorglegt. En þú og aðrir á þínu bandi segið ekki orð um bloggið frá nasistanum honum Jóni (hér ofar á síðunnin) sem lofar það sem Hitler gerði þegar 6 milljónum gyðinga var útrýmt. Það eru greinilega sumir sem mega myrða í ykkar bók. - Algjör HRÆSNI !!    

Höddi (IP-tala skráð) 17.1.2009 kl. 22:32

23 Smámynd: Ómar Bjarki Kristjánsson

Orðstýr Israels er búinn að vera.  Alveg búinn að vera.   Allavega mun taka tugi ára að vinna hann upp aftur glóbalt séð og miðað þá við að þeir hagi sér þokalega skikkanlega.

Stjórnendur Israels eru búnir að rústa eigin ríki með framferði sínu.  Rústa því.

Ómar Bjarki Kristjánsson, 17.1.2009 kl. 22:59

24 Smámynd: Magnús Helgi Björgvinsson

Þessi færsla hans Jóns kom bara málinu ekkert við. Nazistar og það sem þeir gerðu er liðin tíð. Það óþarfi blanda því í þetta mál. Hvorki af hálfu þeirra sem telja að Ísrael hefi bara fullan rétt á að ráðast hvenær sem þeim þóknast á Araba þó það séu aðeins nokkuð þúsund manns sem eru í Hamas. Það er svona svipað að Bretar réðust á okkur vegna Björgúlfs. Ég er að hugsa um börnin sem er þá bara allt í lagi að drepa þó þau tengist ekki Hamas á nokkurn hátt. Mér finnst þetta bara ekki í lagi. Mannir finnst líka að stríð Ísraela gegni aðallega því hlutverki að sýna hvað þeir eru sterkir. t.d. í Líbanon hvað skilaði það Ísrael? Það eru sömu hættur þarn enn.

Magnús Helgi Björgvinsson, 17.1.2009 kl. 23:05

25 identicon

Afsakaðu en hvaða della er þetta um að engum eldflaugum hafi verið skotið á Ísrael á meðan að "vopnahléið" var í gildi? Vopnahléssamkomulagið var undirritað 19. júní 2008. Hamas byrjaði aftur að skjóta 25. júní 2008.

Eldflaugarásunum fækkaði en þær hættu ekki.

Ég hef ekki tölu yfir heildarfjölda eldflaugaárása á vopnahléstímanum en þær voru orðnar 48 í nóvember einum áður en vopnahléinu var slitið.

Hans Haraldsson (IP-tala skráð) 18.1.2009 kl. 00:59

26 Smámynd: Magnús Helgi Björgvinsson

Byrjun látana var í nóvember:

Erlent | mbl.is | 12.11.2008 | 14:34

Ísraelar felldu fjóra Palestínumenn

Ísraelskir hermenn felldu fjóra liðsmenn Hamas samtakanna á landamærum Ísraels og Gasasvæðisins í morgun. Samkvæmt upplýsingum Ísraelshers voru mennirnir að koma fyrir sprengjum við landamærin er á þá var skotið. Þetta kemur fram á fréttavef Ha’aretz.

Mennirnir svöruðu árásinni og notuðu m.a. sprengjuvörpur til þess. Þá sprakk ein sprengja sem þeir höfðu meðferðis. Abu Obeida, talsmaður hernaðarvængs Hamas, samtakanna hefur hótað hefndum eftir mennina. Fawzi Barhoum, talsmaður stjórnmálaarms Hamas á Gasa, segir árás Ísraelshers á mennina brjóta gegn fimm mánaða vopnahléi. Hann hefur þó ekki gefið í skyn að vopnahléið sé í hættu.  

Ehud Barak, varnarmálaráðherra Ísraels, varaði við því í gær að ólga kraumi undir yfirborðinu. „Þrátt fyrir að fremur rólegt hafi verið í kring um okkur vitum við að það eru hlutir að gerjast undir yfirborðinu,” sagði hann.

Vika er frá því sjö Palestínumenn létu lífið í átökum Palestínumanna og ísraelskra hermanna en átökin brutust út eftir að hermennirnir fóru inn á Gasasvæðið til að eyðileggja göng sem Palestínumenn höfðu notað til smygls inn á Gasasvæðið.

Fram að því hafði verð nokkur ró. Síðan stigmagnast þetta. Talið var að það hefðu verð aðrir hópar en Hamas sem skutu fyrstu flaugunum í vikunni eftir þetta. Og síðan urðu þær nokkuð margar en hittu sjaldnast nokkurn skapaðan hlut.

Magnús Helgi Björgvinsson, 18.1.2009 kl. 01:29

27 identicon

Ísraelar hafa ekki fengið að búa í ró. Það voru eldflaugaárásir fyrir aðgerðina til að eyðinleggja göngin í nóvember. Eiga Ísraelar s.s. að sætta sig við að fá "fáar" eldflaugar á sig? Ég veit ekki með þig en ég mundi vera alveg brjálaður ef ég þyrfti stanslaust að lifa í ótta við eldflaugaárásir og her landsins míns hefði getuna en væri ekkert látinn gera í því.

Jonas (IP-tala skráð) 18.1.2009 kl. 01:53

28 identicon

Magnús: Ég miðaði við árásina á gangagerðarmennina. Áður en hún var gerð voru flaugarnar orðnar a.m.k 48.

Hans Haraldsson (IP-tala skráð) 18.1.2009 kl. 02:29

29 Smámynd: Ómar Bjarki Kristjánsson

Þetta er einfallt.  Israelar stóðu aldrei við vopnahléð og héldu áfram kúgun sinni og umsátri um Gazabúa.  Sjúga blóðið úr þeim hægt og rólega. 

Á svokölluðu vopnahléstímabili stóðu Hamasmenn fullkomnlega við sína plikt.  Einhverjum 4-5 ragettum var skotið en alveg óvíst hver stóð að baki því.  Hamas kom í veg fyrir ragettuskot og tókst það það 99% sem sínir hve einbeittir þeir voru í friðarvilja sínum alveg gagnstætt við terroristaríkið sem stóð ekki við neitt.  Ja, etv 1%.

Israelar monta sig nú af því sjálfir að þeir hafi verið að plana hryjuverk sín í fleiri fleiri mánuði ef ekki ár.  Halló !  Kveikja nú á perunni !

Enda er það í fersku minni þegar einhver fígúra innan hryðjuverkaflokks IDF hótaði Gazabúum "Shoah" fyrir nokkrum mánuðum.  Hann missti útúr sér að Shoah væri yfirvofandi.  Shoah = Helför.  Það er nú komið fram.

Ómar Bjarki Kristjánsson, 18.1.2009 kl. 13:18

30 identicon

Hvernig er að vera í svona mikilli afneitun, Ómar?

Ísraelar stóðu furðulega vel við vopnahléið miðað við að palestínumenn hættu aldrei algerlega að skjóta á þá.  Þetta voru ekki einhverjar 4-5 rakettur eins og þú ert að ljúga til um.

http://en.wikipedia.org/wiki/List_of_rocket_and_mortar_attacks_in_Israel_in_2008

Það voru ekki Ísraelar sem skutu á hina hliðina 6 af 6 mánuðum vopnahlésins. 

"Israelar monta sig nú af því sjálfir að þeir hafi verið að plana hryjuverk sín í fleiri fleiri mánuði ef ekki ár.  Halló !  Kveikja nú á perunni !"

Halló, Ísraelar vita að palestínumenn eru búnir að vera að skjóta á sig og eiga eftir að halda því áfram. Þeir voru að búa sig undir hvernig ætti að bregðast við árásunum þegar þær yrðu gersamlega óbærilegar... og viti menn, það gerðist.

Jonas (IP-tala skráð) 18.1.2009 kl. 14:05

31 Smámynd: Ómar Bjarki Kristjánsson

"Jónsi" minn, þú hefur ekki vit eða þekkingu í þessa umræðu.

Þú ræður aðeins við hálfvitaprópaganda Israela.

Ómar Bjarki Kristjánsson, 18.1.2009 kl. 14:22

32 identicon

Menntaskólarnir hafa örugglega verið að berjast um að fá þig í kappræðuliðin sín, Ómar.

Nafnið er Jonas, ekki Jónsi.

Jonas (IP-tala skráð) 18.1.2009 kl. 14:28

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Magnús Helgi Björgvinsson
Magnús Helgi Björgvinsson

Skoðanir Magga um menn og málefni í fréttunum. maggihb@gmail.com Athuga að þetta eru mínar skoðanir og þið megið bara hafa ykkar hentisemi, því ég er að nota mína.

Eldri færslur

Maí 2024
S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31  

Twitter

Teljari

joomla visitor

Twitter

Tenging við twitter

Um bloggið

Vettvangur Magga

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband