Leita í fréttum mbl.is

Ok nú er að verða ljóst að stjórnvöld verða að fara gera eitthvað!

En það er spurning hvað verður til að lægja þessa öldur.

  • Er nóg að stjórnin ákveði að fara frá og efna til kosninga? Er það nóg til að draga úr þessu ástandi?
  • Og ef stjórnin ákveður kosningar í vor t.d. er það nóg fyrir fólk til að hætta mótmælum?
  • Hvað verður þá um stjórn landsins á meðan. Ég er ekki viss um að allir forystumenn flokkana séu tilbúinir í bjóða sig fram aftur. Hvað tekur þá við næstu mánuði? 
  • Verður ekki þá langur tími þar sem lítið eða ekkert kemst í framkvæmd því að fólk verður upptekið af kosningabaráttu?
  • Verður ekki í ljósi þess að það eru kosningar í vændum fullt af kosningaloforðum sem eiga eftir að kosta okkur kreppu nokkrum árum lengur?
  • Hvað verður um hugsanlegar aðildarviðræðu við ESB? Koma mótmælendur til með að einbeita sér að því að koma í veg fyrir þær með hótunum um svona mótmæli?
  • Ætli hæfir menn séu tilbúinir að hella sér í stjórnmála þátttöku eftir að hafa upplifað þetta?
  • Koma mótmælendur til með að sættast allir á eina lausn eða verða til nokkrir mótmælahópar hver gegn öðrum? Manni heyrist að fólk hafi mismunandi ástæður fyrir þátttöku. Einn segir að hann sé að koma í veg fyrir að börnin hans svelti, annar vill að skuldir hans séu afskrifaðar, þriðji er reiður við útrásavíkinga og hugsanlega glæpamenn, 4 er reiður af því að Davíð er ekki vikið frá, 5 vill að fólk axli ábyrgð.
  • Ef að þessi stjórn fer frá virðist sem fólk haldi að það komi upp stjórnvöld sem reddi þessari kreppu bara strax. Er það raunhæft? 

Ég er sammála að það þurfa að verða kosningar. En ég verð að þó að viðurkenna að þegar stjórnarskipti eru kölluð fram með svona þrýstingi þá verð ég hræddur um að flokkarnir nái varla að mynda sér raunhæfa stefnu og framtíðarsýn. Ég held að sölumennska þeirra verði hræðilegt samsuð af því sem þeir halda að fólk kaupi og svo taki allt það sama við aftur nema að við verðum mun verra sett. Ég er hræddur um að við fáum ekki þá stjórn sem fólk getur hópað sig um. Stjórn sem fær okkur til að vilja taka þátt í þeim launaskerðingum og öðrum erfiðleikum sem við þurfum að að taka á okkur, hverjir sem stjórna.

Vona að við gefum okkur tíma til að endurskipuleggja Ísland. Setja okkur nýja stjórnarskrá, mynda sátt um leikreglur sem við setjum okkur. Fara af stað í aðildarviðræður við ESB og annað sem nauðsyn er að gera hér til að skapa land jöfnuðar og sanngirni.


mbl.is Jólatréð brennt á bálinu
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Guðmundur Ásgeirsson

Að öðrum ólöstuðum yrði það strax til að róa mannskapinn ef þessi spillta og vanhæfa ríkisstjórn ásamt æðstu embættismönnum Fjármálaeftirlits og Seðlabanka myndu einfaldlega drulla sér í burtu og aldrei láta sjá sig aftur, þá yrði það strax til að róa mannskapinn. Við gætum valið okkur hæfara fólk af handahófi úr símaskránni...

Lengi lifi byltingin!

Guðmundur Ásgeirsson, 21.1.2009 kl. 01:06

2 Smámynd: Óskar Steinn Gestsson

Flokkarnir ERU eða ÆTTU að vera með stefnu ekki satt? Hvers vegna þurfa þeir tíma til að marka sér stefnu? Það er rétt hjá þér að mótmælendur eru með mismunandi áherslur en flestir ef ekki allir vilja að þing verði rofið og boðað verði til kosninga. Það eru 3 hópar tilbúnir með stefnuyfirlýsingar og aðgerðaráætlun um hvað beri að gera og ég veit að allavega tveir þeirra ættla að bjóða sig fram í næstu kosningum. Margir vilja meina að kosningar séu ekki ´tímabærar og að með því að rjúfa þing verði til stjórnmálakreppa, halló! það ER stjórnmálakreppa í landinu! Ég er ekki viss hvað þú meinar með að ekkert komist í framkvæmd á meðan? Nú eru yfir hundrað dagar síðan kreppan skall á og hvað hafa núverandi stjórnvöld gert? Ekkert nema aukið skuldahalann sem við þurfum að bera!

Óskar Steinn Gestsson, 21.1.2009 kl. 01:10

3 Smámynd: Brynjar Jóhannsson

Nóg að fá kostningar og ekki seinna en strax... Því ég get lofað þér .. að þetta er bara upphafið.. Byltingin er hafin... Þetta er fólk á öllum aldri.... það eru fjöldagjaldþrot framundan og mögulega þjóðargjaldþrot.... Það er ekki hægt að réttlæta þessa ríkisstjórn lengur..

Brynjar Jóhannsson, 21.1.2009 kl. 01:10

4 Smámynd: Magnús Helgi Björgvinsson

Óskar það er nokkuð ljóst að fólk er að biðja um Nýtt Ísland. Við það þurfa allir að endurskoða sína stefnu. Fólk vill aukið lýðræði, breytta stjórnarskrá, annað kosningakerfi, aðskilnað framkvæmdar- og löggjafarvalds. Fólk vill nýja mynnt. Sumir að taka hana upp einhliða aðrir að taka evru upp með inngöngu í ESB og fleira og fleira.

Magnús Helgi Björgvinsson, 21.1.2009 kl. 01:14

5 Smámynd: Magnús Helgi Björgvinsson

Brynjar heldur þú að það séu til einhverja töfralausnir sem komi í veg fyrir erfiðleikana framundan. Erum við ekki bara að biðja um að það verði aðrir sem leiða okkur í gegnum þá. Við komumst ekki hjá því að fólk verði gjaldþrota. Það eru bara ekki til nóg verðmæti til að koma í veg fyrir það að einhverjir lendi í því . Þú mannst að við skuldum smávegis svona um 2000 milljarða.

Magnús Helgi Björgvinsson, 21.1.2009 kl. 01:17

6 Smámynd: Magnús Helgi Björgvinsson

Neyðarstjórn væri möguleiki ef að kjörnir fulltrúar væru tilbúnir að styðja hana. En þá þurfum við ekki kosningar. Ef við kjósum verður ekki skipuð Neyðarstjórn.

Magnús Helgi Björgvinsson, 21.1.2009 kl. 01:18

7 Smámynd: Magnús Helgi Björgvinsson

Fólk sem við veldum úr símaskrá þyrftu væntanlega mánuði eða misseri til að komast svo vel inn í málin að þeir gætu ákveðið hvaða leiðir væru bestara út úr þessu hroðalega ástandi.

Magnús Helgi Björgvinsson, 21.1.2009 kl. 01:19

8 identicon

Þakka fyrir góðan pistil. Finnst ansi margir horfa ansi stutt, vilja bara nýja stjórn og horfa ekkert á stóru myndina. Auðvitað vildum við öll að til væri einföld lausn á þessu, eins og t.d. bara það að fá nýja stjórn, en svo er bara ekki!!!

Magga (IP-tala skráð) 21.1.2009 kl. 14:08

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Magnús Helgi Björgvinsson
Magnús Helgi Björgvinsson

Skoðanir Magga um menn og málefni í fréttunum. maggihb@gmail.com Athuga að þetta eru mínar skoðanir og þið megið bara hafa ykkar hentisemi, því ég er að nota mína.

Eldri færslur

Apríl 2024
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

Twitter

Teljari

joomla visitor

Twitter

Tenging við twitter

Um bloggið

Vettvangur Magga

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband