Leita í fréttum mbl.is

Smá vangaveltur varðandi mótmælin

Var á flakki um netheima og kíkti á www.vg.is þar sem ég rakst á þetta:

Hópur um aðgeraðáætlun

16.12.2008

Á flokksráðsfundi Vinstri grænna þarsíðustu helgi kom fram mikill áhugi á að ræða næstu skref baráttunnar og búa til aðgerðaráætlun til vorsins með það að leiðarljósi að til kosninga komi í vor. Héðinn Björnsson reið á vaðið og boðar til fundar um þetta efni í dag, þriðjudaginn 16. desember frá kl. 16-18 á Suðurgötu 3. Allir félagar eru velkomnir, nokkrir hafa skráð sig á póstlista af þessu tilefni og fá sendar upplýsingar um framvindu mála eftir fundinn.

 

Eruð þið að segja mér að mótmælin séu að hluta skipulögð af Vg?

 


mbl.is Rólegt á Austurvelli
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Haraldur Davíðsson

Ég er nú búinn að vera með frá byrjun og verð að segja að ég hef ekki orðið var við það. En ef rétt er þá er það óþolandi og ósvífni og lágkúra af þeim að reyna að misnota okkur/mig sem erum að mótmæla meiru en Sjálfgræðiflokknum, kerfið er hrunið og flokkarnir með, allir sem einn.

Haraldur Davíðsson, 23.1.2009 kl. 22:15

2 Smámynd: Magnús Þór Friðriksson

Maður hefur heyrt því fleygt að VG eru meira en viljugir við að leggja hönd á plóg til að greiða götu mótmælanna...

Magnús Þór Friðriksson, 23.1.2009 kl. 22:28

3 Smámynd: Haraldur Davíðsson

Það er sjálfgefið, en ef þau eru að standa fyrir skipulegri aðkomu þá eru þau einfaldlega að skreyta sig stolnum fjöðrum....og skíta upp á bak í leiðinni.

Haraldur Davíðsson, 23.1.2009 kl. 22:33

4 Smámynd: Magnús Helgi Björgvinsson

Já en þá skilur maður betur að t.d. hversu vel er séð til þess að koma upplýsingum í menntaskólana um hvar og hvernig næstu mótmæli eiga að vera.

Ekki misskilja mig mér finnst sjálfsagt að fólk mótmæli ef það er óánægt á meðan það fer ekki út fyrir ákveðin mörk. En mér finnst verra ef það er skipulagt af flokk sem vill ná völdum án þess að hann leggi nafn sitt við mótmælinn.

Magnús Helgi Björgvinsson, 23.1.2009 kl. 22:44

5 identicon

Úff að sjá fyrir kosningar. Nýfrjálshyggjan var að deyja í óktóber, þvílík framsýni að sjá fyrir kosningar. Auðvitað var það vel vitað að stjórnin myndi ekki standa áfallið. Hugmyndafræði sjalla er dauð og því miður fyrir miðju flokkana þá bitnar hún á þeim líka. Því hver vill spillingu.

En hatrið á fallinu nær langt umfram VG. Þið stýrðu síðan 1991 og nú erum við (Íslendingar) í einhverju mesta skuldafeni mannkynssögunnar.

HVERNIG VÆRI AÐ SKOÐA Í EIGIN BARM OG FARA AÐ TAKA TIL EFTIR SIG.

Í stað þess að rífa kjaft.

Andrés Kristjánsson (IP-tala skráð) 23.1.2009 kl. 22:53

6 identicon

Ég mæti á helling af mótmælum en ég er ekki þar í nafni VG eða nokkurs annars en sjálfrar mín. Hef heldur aldrei séð neitt sem bendir til þess að VG sé að koma að skipulagningu. Enda er megnið af þessum mótmælum undanfarið sjálfsprottin, fólk bara mætir þegar því hentar og ber sína potta og pönnur og fer svo heim.

Ibba Sig. (IP-tala skráð) 23.1.2009 kl. 22:54

7 Smámynd: Magnús Helgi Björgvinsson

Ekki það ég hef mætt einu sinni! En þessi mótmæli hafa öll eitthvað upphaf. Það mætir hópur og síðan er það komð á vefmiðla og í fjölmiðla og fjöldinn kemur. Þannig að þetta er ekki sjálfsprottið að því leitinu. Það eru einhverjir sem stýra því hvar og hvenær þetta byrjar hvern dag.

Magnús Helgi Björgvinsson, 23.1.2009 kl. 23:03

8 Smámynd: Magnús Helgi Björgvinsson

Úps þetta átti að byrja hjá mér með "Ekki það að ég hef mætt líka einusinni........" Ég var ekki að mótmæla því sem Ibba sagði um að allra handa fólk mætir og það er vel þegar það gerir það á eigin forsendum.

Magnús Helgi Björgvinsson, 23.1.2009 kl. 23:05

9 identicon

Fjandinn hirði Íslendinga,

og sérstaklega þá sem eru alltaf að finna sök hjá þeim sem ekki komu að bankahruninu, finna flís í augum þeirra sem stóðu valdlausir hjá og vöruðu við vitleysunni. Fjandinn hirði Íslendinga sem eyðileggja baráttu mótmælanda, mótmælenda sem eru að berjast fyrir því að losa okkur við flokksdindla sem eru holgrafnir af spillingu og hafa látið nefapotið og péturslögmálið vaða uppi án þess að hlusta á gagnrýni. Mótmælenda sem eru að berjast gegn ofurvaldi valdspilltra flokka, heimsku stjórnenda mikilvægra eftirlitsstofnanna og gegn aðgerðarleysinu. (Og veikindi eins manns þurrka slíkt ekki út, þó hræðileg séu).

Fjandinn hirði Íslendinga sem grípa alltaf upp hið augljósa, einsog að vera á móti fáeinum vitleysingjum sem börðu á lögreglumönnum, - fjandinn hirði Íslendinga sem ganga alltaf erinda valdsmanna þó þeir leggi þjóðina í rúst. Fjandinn hirði smáborgaramennsku og látlausa talhlýðni og bláeygt viðhorf okkar til heimsins, fjandinn hirði Íslendinga sem strjúka eingöngu kviðinn, gagnrýna og hafa aldrei gert neitt annað en að kjósa, en aldrei staðið með öðru fólki og látið fjöldann tala.

Fjandinn hirði Íslendinga sem sjá aldrei í gegnum blekkingar og sjónhverfingar, fjandinn hirði Íslendinga sem eyðileggja alvöru skynsemi með glámskyggnri ofurskynsemi sem hrópar djöfull og bendir á flugu. Fjandinn hirði Íslendinga sem þykjast sigra en hafa í raun fundið sér sér nægilega ástæðu til að leggja niður lummurnar og vona að Sjálfstæðisflokkurinn séu svo sjóaðir í spillingunni að það sé best að láta þá halda áfram. Annars fer allt til helvítis (??). Og fjandinn hirði Íslendinga sem halda að enginn geti hugsað frumlegri hugsun aðrir en þeir sjálfir. En hugsa ekki annað en: Mikið er ég skynsamur. Fjandinn hirði okkur öll.

Beggi (IP-tala skráð) 23.1.2009 kl. 23:06

10 Smámynd: Haraldur Davíðsson

Svona svona Beggi minn, ekki örvænta, fjandinn fær okkur öll að lokum....

Haraldur Davíðsson, 23.1.2009 kl. 23:13

11 Smámynd: Magnús Helgi Björgvinsson

Gleymdir Beggi og fjandinn hirðir okkur öll ef að Vg kemst til valda nú í Maí

Magnús Helgi Björgvinsson, 23.1.2009 kl. 23:17

12 Smámynd: Magnús Helgi Björgvinsson

Og til að að menn séu ekki að misskilja mig þá vill ég Sjálfstæðisflokkinn burt. En ég held að það yrði ekki lengi ef að Samfylking og Vg færu nú saman í stjórn og færu að skera enn frekar niður þar sem að halli á fjárlögum er svo mikill. Kjósendur yrðu lítið hressi svona rétt fyrrir kosningar. Samfylking á að klára þetta fram að kosningum láta fólk axla ábyrgð bæði ráðherra, Seðlabankastjóra, Fjármálaeftirlit og eins sérfræðinga í fjármálaráðuneyti sem geta ekki hafa verið að standa sig. Og eins í viðskiptaráðuneytinu. Einnig fullt af öðru fólki. Við erum að tala um 105 daga fram til 9 maí. Hvað haldið þið að Jón Bjarnason yrði lengi að setja sig inn í málefni Landbúnaðarins þannig að hann gæti farið að semja um lækkun á styrkjum til hans vegna efnahagsástandsins. Eða Steingrímur að setja sig inn í Utanríkisráðuneytið til að fara að semja um úrsögn úr Nató og uppsögn EES samnings og taka upp tvíhliðaviðræður við ESB. Segja upp eða endursemja við IMF og svo framvegis. Held að það tæki þá báða dágóða stund einhverja vikur. Og við erum að tala um kosningar eftir hvað 14 eða 15 vikur. Svo þarf að undirbúa kosnigabaráttu og kosningastefnuskrá. Hvað haldið þið að ný stjórn mundi afreka fram til 9 maí.

Magnús Helgi Björgvinsson, 23.1.2009 kl. 23:27

13 Smámynd: Óskar Steinn Gestsson

'Eg fer á mótmælin í gegnum hóp á fésbók sem kallar sig stuðningsmenn aðgerðasinna, þar er hægt að sjá að um 3-4 þúsund manns fá boð um að mæta og ég veit að VG er EKKI á bak við þann hóp. Svo er annað mál að mótmælin á sunnudagin "friðarmótmælin" er beint gegn mótmælendum en  ekki glæpahyskinu sem réðst á lögregluna. Forsvarsmaður þeirrar uppákomu er eldheitur stuðningsmaður Geir Haarde, ég ætla að mæta á þau mótmæli og mótmæla eins og ég hef hingað til gert, friðsamlega! En með grímu, því ég vil ekki persónugera mótmæli skipulögð af SUS urum, annars, góðar stundir.

Óskar Steinn Gestsson, 23.1.2009 kl. 23:30

14 Smámynd: Magnús Helgi Björgvinsson

Ég kem til með að mæta á sunnudag! Ég kem líka til með að mæta á mínu forsendum á önnur mótmæli ef mér finnst það dragast að Davíð og fleiri verði vikið frá störfum. En mér þætti miður ef að ég kæmist að því að Vg sé að skipuleggja þessi mótmæli með það að markmið að fá kosningar í vor á meðan fylgið er hátt. Ég er Samfylkingarmaður samt óánægður með skort á ákveðini sem Samfylking hefur sýnt í samstarfi við Sjálfstæðismenn en mér mundi  findist miður ef að annarr flokkur væri að nota mig til að koma höggi á stjórnina. Ég vill fá að gera það á eigin forsendum. Auk þess sem ég treysti ekki Vg eins og er til að geta komið með betir lausnir.

Magnús Helgi Björgvinsson, 23.1.2009 kl. 23:55

15 identicon

Ég er aðgerðarsinni og mótmæli sem slíkur. Óskar ég geri slíkt hið sama.

Erla (IP-tala skráð) 23.1.2009 kl. 23:56

16 Smámynd: Guðmundur Ásgeirsson

Það má vel vera að margir í unghliðahreyfingu VG hafi mætt á mótmæli, sem og aðrir hópar aðgerðasinna eins og er þeirra réttur í lýðræðislegu samfélagi. Ég get auðvitað ekki talað fyrir munn annara en sjálfur ég hef oft mætt til mótmæla og haft hátt, algerlega af eigin frumkvæði. Var meira að segja einn á galtómum Austurvelli þegar alþingi var sett síðastliðið haust, daginn áður en fyrstu formlega boðuðu mótmælin fóru fram. Þá var ég í Sjálfstæðisflokknum en skráði mig úr honum skömmu síðar og hef verið óflokksbundinn síðan þá, hallast helst að nýjum formanni Framsóknar en er þó tortrygginn gagnvart fortíð flokksins, hef þó ekki gert upp hug minn og gæti allt eins skilað auðu í vor.

Guðmundur Ásgeirsson, 24.1.2009 kl. 00:13

17 Smámynd: Magnús Helgi Björgvinsson

Ok en samt var markmiðið með hópnum skv. fréttinni á www.vg.is:

búa til aðgerðaráætlun til vorsins með það að leiðarljósi að til kosninga komi í vor

En ég skal taka þig trúanlegan. Ég læt það þá ekki trufla mig næst þegar ég fer niður í bæ að kíkja á búáhalda byltingunna.

En hvað hefur AGS og IceSave með kosningar i vor að gera og aðgerðahóp? 

Og hvað er Steingrímur að meina með því að taka upp AGS samninga út af stýrivöxtum þegar að fulltrúi AGS sagði strax í nóvember að um leið og við næðum tökum á krónunni og það yrði snemma þá mundu vextir fara að lækka. Og nú er spáð að þeir verði a.m.k. komnir niður í 13% í lok ársins? Af hverju á þá að taka þessa samninga upp? Og af hverju heyrði ég hann segja fyrir c.a. 2 vikum í viðtali að helst ætti að skila peningum sem við höfum fengið og munum fá frá AGS og komast af án þeirra aðstoðar? Og hvernig ætlar hann að halda upp viðskiptum við önnur lönd ef við semjum ekki um IceSave??

Magnús Helgi Björgvinsson, 24.1.2009 kl. 00:17

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Magnús Helgi Björgvinsson
Magnús Helgi Björgvinsson

Skoðanir Magga um menn og málefni í fréttunum. maggihb@gmail.com Athuga að þetta eru mínar skoðanir og þið megið bara hafa ykkar hentisemi, því ég er að nota mína.

Eldri færslur

Maí 2024
S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31  

Twitter

Teljari

joomla visitor

Twitter

Tenging við twitter

Um bloggið

Vettvangur Magga

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband