Leita í fréttum mbl.is

Á morgun eru líkur á að komið hafi verið á móts við allar kröfur mótmælenda.

Það verður gaman að sjá hvað þá tekur við. Nú er þetta sennilega að nálgast að vera lífsstíll hjá ákveðnum hópum að mótmæla. Nú á morgun er líklegt að staðan verði svona:

Ég er að velta fyrir mér hvort að mótmælin séu að verða lífstíll. Og þá hvað fólk gerir nú þegar felst 

 

  • Reikisstjórn burt! Hún fer og ekki seinna en eftir 100 daga
  • Stjórn fjármálaeftirlist burt! Hún er búin að segja af sér og forstjórinn hættir 1 mars.
  • Þeir sem áttu bankana eru búnir að missa þá og eiga ekki að hafa áhrif þar lengur
  • Davíð verður vonandi settur af á morgun. Sem og bankastjórnin. Jón Sig þegar búinn að ákveða að segja af sér í stjórn. 
  • Geir er að hætta 
  • Búið að ákveða að auglýsa stöður bankastjóra Landsbanka og Glitnis
  • Hafin rannsókn á bankahruninu
  • Samfylking búin að lýsa yfir að það verði tekið til í stjórnkerfi sem þýðir að einhverjir fleiri embættismenn fjúka á næstunni.
  • Líkur á að Árni Matt verði færður eða segi af sér.

 

Það er spurning hvort að mótmælendum finnst sniðugt að skipta um stjórn núna. Menn hafa talað um utanþingsstjórn og nefnt ýmsa til að leiða hana. Veit ekki? Um þá flesta er það að segja að maður hefur nú ekki séð þá stýra einu eða neinu hvað þá hagsmunum 320 þúsundmanna þjóðar. Það tekur menn örugglega mánuði að komast inn í störfin og þá eru komnar kosningar.  Held að flestir þeir sem nefndir hafa verið ættu kannski frekar heima sem ráðgjafar þá nýrrar stjórnar eða sem fulltrúar á stjórnlagaþingi. 

Munum að ný stjórn þarf að eiga í samskiptum við marga og ólíka aðila innanlands sem utan. Og nú á næstunni reynir mjög á samskipti okkar við erlendar þjóðir.

Held líka að fólk haldi að með nýrri stjórn verði strax hægt að lækka lánin þeirra, skatta og skapa störf. Held  að fólk sé alltaf í einhverjum drauma heimi. Það hafa verið þurrkaðir út úr þessu samfélagi þúsundir milljarðar sem í raun voru aldrei til hér. Og eftir sitjum við með skuldir vegna lána sem bankarnir tóku m.a til að lána okkur. Og þessar skuldir þarf að borga. Og til þess þarf að skera niður.  Og fólk þarf að borga lán sín því annars lendir það öðrum með hærri sköttum. Stjórnvöld eiga að gera fólki það mögulegt með ráðstöfunum en ef láni er aflétt á einum þarf annar að borga meira fyrir vikið.

En það verður gaman að sjá hvað fólk gerir á morgun. 


mbl.is Mótmælt við Seðlabankann
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Held að ef eins miklar breytingar og við viljum komi á morgun þá hætti fólk bara að mótmæla. svo einfalt er það nú. hinsvegar er ólíklegt að þetta gerast þannig að fólk mun halda áfram því það er nauðsynlegt.

 það er auðvitað erfitt að koma inn í stjórn mála núna, en það er nauðsynlegt að þeir sem ekki hafa sérhagsmuna að gæta eins og stjórnin, sem ekki tengjast auðvaldi og þeirra fjölmiðlum, sem ekki vilja koma öllu í sama farið..sé falin stjórn. fagaðilum. þeas, fólki sem er annt um íslensku þjóðina. 

 í þessu er mikilvægt að við stofnum nýtt lýðveldi með nýja stjórnarskrá þar sem við tryggjum, að sama hversu ógeðslegan flokk við sitjum uppi með, að valdhöfum muni ekki takast að mata eigin krók án afleiðinga, að þeir muni virða pólitíska ábyrgð, að auðvaldið nái ekki fótfestu hér eins og það hefur í dag og að fjölmiðlarnir muni vera frjálsir eða fyrirlitnir

Þröstur (IP-tala skráð) 25.1.2009 kl. 23:42

2 Smámynd: Haukur Nikulásson

Þegar þetta er skrifað er ekki ósennilegt Geir rjúfi þing og boði til kosninga innan 6 vikna skv. lögum.

Í millitíðinni sitji stjórnin eða forsetinn skipar utanþings- eða starfstjórn til að sinna verkum ráðherra næstu 6 vikurnar.

(Magnús, ég er með svar til þin vegna stjórnlagamálanna á minni síðu í athugasemd á eftir þinni.) 

Haukur Nikulásson, 25.1.2009 kl. 23:55

3 identicon

Uppstokkun hjá valdamönnum er bara byrjunin, smá millistig sem þarf til að fylla upp í og greiða fyrir alvöru breytingum.

Eins og Búdda orðaði það þá hafði hann rámað um í þjáningum í gegnum sífeldar endurfæðingar, en það var ekki fyrr en hann hafði lagt húsið í rúst og skilið grunninn eftir á jörðinni sem hann gat byrjað að lifa hamingjusamur. Eitthvað sem hann kallaði Straumhvörf (pali: Sotāpanna)

Samfélagið okkar þarf að fara í gegnum svipuð straumhvörf og Búdda. Við þurfum að ganga að öllu dauðu sem áður olli okkur þjáningum. Pappírsverðmæti, einkaeign og allt annað sem getur gert manni kleyft að lifa eins og kóngur á kostnað annarra verður að hverfa, enda engum til gagns. Þegar það hefur verið gert, þá skipta lán, skattar og atvinna ekki nokkuru máli, hvort sem lánið er þúsund milljarðar eða tíu þúsund milljarðar.

Á morgun mun fólk gera heiðarlega tilraun til að losna þær hindranir sem gamlar hefðir og tiltrúr valda.

Rúnar Berg Baugsson (IP-tala skráð) 26.1.2009 kl. 00:02

4 Smámynd: Þór Jóhannesson

Páll Skúlason stýrði Háskólanum með miklum sóma í fjölda ára - hann er kjörinn til að leiða Utanþingsstjórn. Nánast óumdeildur.

Þór Jóhannesson, 26.1.2009 kl. 01:00

5 Smámynd: Magnús Helgi Björgvinsson

Ég er alveg sammála að Páll stóð sig mjög vel í HÍ. En við erum að tala um allt annan hlut hér. Hvað heldur þú að hann yrði lengi að koma sér inn í embættið. Þetta er ekkert smá mál. Samningar við erlendar þjóðir, samskipti við sveitarfélög, hagmunahópa, almenning. Allur rekstur ríkisins, Seðlabankinn. Samskipti við stéttarfélög, atvinnurekendur. Og fleira og fleira. Það væri ekki óeðlilegt að það tæki nokkra mánuði. Það tók hann örugglega nokka mánuði í Háskólanum þó hann starfaði innan hans.

Magnús Helgi Björgvinsson, 26.1.2009 kl. 01:15

6 Smámynd: Sigurður Hrellir

Ég skil ekki af hverju þú heldur að það taki marga mánuði fyrir utanþingsstjórn að ná utan um verkefnið. Í raun gætu ráðuneytin starfað eðlilega án nokkurns ráðherra! Kosturinn við utanþingsstjórn væri að þeir myndu einbeita sér að því allra nauðsynlegasta og láta starfsmenn ráðuneytanna um allt hitt.

Sigurður Hrellir, 26.1.2009 kl. 01:32

7 Smámynd: Magnús Helgi Björgvinsson

Ráðuneytin taka engar veigamiklar ákvarðanir án þess að ráðherra leggi þær fyrir eða samþykkir. Og nú er tími ákvarðana. T.d. hvað varðandi lán og vertryggingar, frystingar, nýjar vísitölur. Hvað með samskipti við Breta og IceSave. Og svo framvegis. Og á þessum tíma þarf væntanlega að ráða nýjan Seðlabankastjóra og stjórn, Stjórn fjármálaeftirlits og þeir að ráða forstjóra. Það á að hitta fulltrúa IMF í næsta mánuði og fara yfir sameiginlegu áætlunina. Það er svo ótrúlega margt sem þarf að gera. Og við erum bara að tala nú um 103 daga til kosninga.

Magnús Helgi Björgvinsson, 26.1.2009 kl. 01:38

8 Smámynd: Sigurður Hrellir

Því betra að hafa stjórn sem ekki er með hugann við kosningar daginn út og inn.

Sigurður Hrellir, 26.1.2009 kl. 07:57

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Magnús Helgi Björgvinsson
Magnús Helgi Björgvinsson

Skoðanir Magga um menn og málefni í fréttunum. maggihb@gmail.com Athuga að þetta eru mínar skoðanir og þið megið bara hafa ykkar hentisemi, því ég er að nota mína.

Eldri færslur

Maí 2024
S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31  

Twitter

Teljari

joomla visitor

Twitter

Tenging við twitter

Um bloggið

Vettvangur Magga

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband