Leita í fréttum mbl.is

Held að Sjálfstæðisflokkurinn ætti að átta sig á vilja meirihluta þjóðarinnar!

 Eða kannski ekki! Þeir held ég tala frá sér atkvæði með hverri mínútu þessa málþófs.

Þeir eru á móti því að þjóðin eigi auðlindir sínar. Menn eru alvarlega farnir að eigna sér fiskinn í sjónum til frambúðar. Og kvótakerfið er að skapa mönnum eignarrétt á óveiddum fiski. Sem erfist á milli kynslóða og því eru hér að verða til ættir sem koma til með að eiga allan okkar fisk. Þetta er Sjálfstæðisflokkurinn á móti því að breyta og færa þjóðinni aftur eignarrétt á þessari auðlind. Eins er þetta með orkuauðlindir okkar þær vil Sjálfstæðisflokkur ekki að séu tryggilega í þjóðareign.

Sjálfstæðisflokkur vill ekki stjórnlagaþing sem hafi einhver völd. Hann treystir ekki öðrum en Alþingismönnum sínum til að breyta stjórnarskrá.

Sjálfstæðisflokkurinn vill ekki auðvelda þjóðaratkvæðagreiðslur. Hann vill ekki að fólkið fái að hafa bein áhrif á ákvarðanatöku.

Þannig að þeir velja að tefja afgreiðslu vilja meirihlutans til að standa vörð um hagsmuni útgerðamanna og koma í veg fyrir allt sem gæti opnað á þjóðaratkvæði um aðildarviðræður við ESB. Þeir vilja ekki að stjórnarskrá verði breytt í heild því að flokkurinn og hagmundaaðilar tengdir þeim gætu misst völd við það.


mbl.is Enn fjölmargir á mælendaskrá
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Ef þetta er vilji meirihluta þjóðarinnar afhverju má þetta þá ekki bíða þangað til eftir kosningar svo það virkilega komi í ljós ef þetta er vilji þjóðarinnar?

Það er ekki eins og það sé meirihluta-ríkisstjórn sem standi fyrir þessu máli heldur minnihlutastjórn. 

Davíð Snær (IP-tala skráð) 3.4.2009 kl. 23:21

2 Smámynd: Magnús Helgi Björgvinsson

Vegna þess að Alþingi hefur í gegnum árinn tekist að fresta þessu aftur og aftur. Þær breytingar sem hafa verið gerðar á stjórnarskránni voru t.d. ekki gerðar fyrir en atkvæða munur milli kjördæma var orðinn þannig að 1 atkvæði á Vestfjörðum var jafnt og 5 hér á höfuðborgarsvæðinu. Og önnur breyting var þegar að allar aðrar þjóðir voru búnara að taka mannréttindi inn í Stjórnarskrár sínar löngu áður. En ákvæði um þjóðareign á auðlindum og þess háttar fer aldrei inn ef að Sjálfstæðismenn komast til valda eftir kosningar.

Eins þá vill þjóðin endurskoða alla stjórnarskránna en sjálfstæðismenn hafna því að stjórnlagaþing fái rétt til að leggja hana fullbúna fyrir okkur. Og ef að ákvæðum um að þjóðaratkvæðagreiðsla geti breytt stjónarskrá fæst ekki í geng núna þá þarf að rjúfa þing aftur eftir að nýtt þing er kosið og kjósa enn og aftur til þings. Því að breytinguna þarf að staðfesta með því að kjósa aftur til Alþingis. Og því er kjörið að breyta þessu núna.

Magnús Helgi Björgvinsson, 3.4.2009 kl. 23:30

3 identicon

Ja ... nema það að Sjálfstæðismenn hafa stungið upp á því að setja atkvæði í Stjórnarskránna eða fella út það sem segir að rjúfa skuli þing ef stjórnskipunarlög eru samþykkt.

Og stærsta málið er nú ekki þetta auðlinda ákvæði, það má vel vera að það hafi  verið rætt heillengi - en Stjórnlagaþingið er  nú mesta ágreiningsmálið.

Ég er nú enginn Sjálfstæðismaður, en það er verið að gera þetta allt með svo miklu offorsi eitthvað.

Og aftur er ég ekki sannfærður um að þetta sé eitthvað sem ,,öll þjóðin'' vill, hefði haldið að ,,öll þjóðin'' vildi einhverja aðgerðir í átt til þess að koma hér á efnahagslegu jafnvægi eða umbótum - efa að einhver í þessu landi væri til í að láta þetta stjórnlagaþing ,,trompa'' frumvörp sem snerta efnahaginn í þessu landi eða heimilin. 

Æ ég veit ekki. Finnst þetta bara skrítið.

Davíð Snær (IP-tala skráð) 3.4.2009 kl. 23:39

4 Smámynd: Brattur

Það er bæði skondið og grátbroslegt að flokkur sem kennir sig við frelsi einstaklingsins skuli ekki treysta einstaklingnum til að taka ákvarðanir í stórum málum í gegnum þjóðaratkvæðagreiðslu... mér finnst Sjálfstæðisflokkurinn ofar en ekki vera tvísaga í málflutningi sínum... segja eitt en gera svo eitthvað allt annað...

Brattur, 3.4.2009 kl. 23:42

5 identicon

Ég hef verið að velta fyrir mér þeirri spurningu hvort einhver geti bent mér á bloggara sem er Sjálfstæðismaður, sem hefur einhvern tíman verið ósammála flokkslínunni í einhverju máli? Ég er að velta þessu upp vegna þess að þó ég styðji Samfylkinguna, þá er ég ekkert alltaf sammála öllu sem þar er gert og hika ekki við að gagnrýna það ef svo ber undir, en þessir bloggarar sem eru Sjálfstæðismenn, eru ALLTAF sammála FLOKKNUM. Er ekki einn einasti Sjálfstæðismaður sammála því að það væri nú gott að geta haft eitthvað með málin að segja og þess vegna sé það réttlætanlegt að breyta stjórnarskrá til að bæta lýðræðið. En nei, þeir eru ALLIR sammála FLOKKNUM og FORYSTUNNI.

Valsól (IP-tala skráð) 3.4.2009 kl. 23:48

6 Smámynd: Árni Gunnarsson

Skoðanakannanir sýna 70% fylgi við stjórnlagaþing. Sjálfstæðismenn voru bláir af heift þegar því var haldið fram að þjóðin væri búin að fá nóg af ríkisstjórn Geirs og Ingibjargar. Hvað kom í ljós? Þegar stjórnin var farin frá og ný stjórn komin í staðinn þá féll allt í dúnalogn!

Og þessi ríkisstjórn hefur mikinn meirihluta í skoðanakönnunum. En sjallarnir taka ekki mark á öðru en því sem kemur frá Valhöll og Hannes H. hefur lagt blessun sína yfir.

Mín spá er sú að sjallarnir verði flengdir svo í kosningunum að það verði söguleg útreið. Þá mun þjóðin gera sér dagamun. 

Árni Gunnarsson, 4.4.2009 kl. 00:44

7 Smámynd: Ingibjörg Hinriksdóttir

Davíð Snær, minnihlutastjórnin er minnihlutastjórn. Stjórnlagaþingið er hins vegar tillaga frá öllum flokkum á þingi NEMA Sjálfstæðisflokki. Síðast þegar ég vissi, þá var hann ekki með meirihluta á Alþingi. Það er vilji MEIRIHLUTA Alþingis að efna til stjórnlagaþings og þó frumvarpið sé borið fram af MINNIHLUTASTJÓRNINNI þá er meirihluti þingsins að baki tillögunnar.

Ingibjörg Hinriksdóttir, 4.4.2009 kl. 15:15

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Magnús Helgi Björgvinsson
Magnús Helgi Björgvinsson

Skoðanir Magga um menn og málefni í fréttunum. maggihb@gmail.com Athuga að þetta eru mínar skoðanir og þið megið bara hafa ykkar hentisemi, því ég er að nota mína.

Eldri færslur

Apríl 2024
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

Af mbl.is

Twitter

Teljari

joomla visitor

Twitter

Tenging við twitter

Um bloggið

Vettvangur Magga

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband