Leita í fréttum mbl.is

Gaman að vita hvernig Sigurður Kári og co ætla að takast á við fjárlagahalla upp á 150 milljaðra

Manni finnst það kannski huggun harmi gegn að það eru líkur á því að Sigurður detti út af þingi. Væri rétt að kjósendur rukkuðu þessa menn um hvernig þeir ætli að loka fjárlagahalla upp á 150 milljarða á næstu 3 árum eins og við erum búin að semja um við IMF og fleiri. Ef það á ekki að hækka skatta á einstaklinga, ekki á fyrirtæki og bara enga skatta? Og eins þá vilja þeir að við eyðum milljörðum af gjaldeyrisforðanum til að halda uppi gervigengi á krónunni.

Eina sem mér dettur í hug er að þeir vilji selja orkuver, sjúkrahúsin, náttúruauðlindir og taka upp þjónustugjöld í miklu mæli. Sjálfstæðismenn líta svo á að þjónsutugjöld séu ekki skattar!


mbl.is Tekist á um skattahækkanir
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Þú getur allavega treyst því að Sigurður Kári og félagar munu ekki hækka skatta og lækka launin hjá þér. Sigurður mun sjá til þess að vextir lækki og stöðugleiki verði á krónunni, sem yrði kannski til þess að þú kæmist í frí til útlanda. Þetta eru nógu góðar ástæður til þess að kjósa Sigurð Kára.

En ef þú vilt heldur kjósa Jón Ásgeir og Jóhönnu þá býðst þér áframhaldandi, hátt vöruverð þar sem hann stjórnar lægsta verðinu í boði Samfylkingar. Svo færðu hærri skatta og lægri laun í boði Jóhönnu og Helga Hjörvars. 

Svo er VG enn einn möguleikinn en þeir eru líka búnir að lofa hærri sköttum, lægri launum og ríkisafskiptum af öllu. Ríkið mun eiga bankann, verslanir, bílaumboð (allir á Volvo eins og Steingrímur), lífið yrði einslit, eins og það var hér árum áður þegar allir áttu gallabuxur (Lóubúð), skó (Hvannbersbræður) og peysur (Iðunn), unga fólkið i dag man ekki eftir þessu en með því að kjósa VG færð það þetta beint í æð.

 Ég segi nú bara nei takk og kýs stoltur Sjálfstæðisflokkinn, í von um að lífið verði aftur eins og fyrr, dásamlegt, nóg til af öllu, engin verkföll og allir höfðu vinnu.

Ólafur P. (IP-tala skráð) 15.4.2009 kl. 11:44

2 Smámynd: Magnús Helgi Björgvinsson

Ég held Ólafur að þú sért ekki alveg að fylgjast með. Árið 2013 þurfum við að borga til baka lánið frá IMF og fyrir þann tíma þurfum við að loka fjárlaga gati upp á 150 milljarða. Það verða hækkaðir skatta hver sem verður við völd. Það verður samið um frystingu eða jafnvel lækkun launa. Og það er þegar byrja á almennamarkaðnum. Ríkið hefur haft um 450 milljarða innkomu. Hún er komin niður í 350 milljarða á þessu ári. Við þurfum að borga meira og því er gat upp á 150 milljarða. Það þarf að skera niður og auka tekjur ríkisins. Til að auka tekjur ríkisins nú eru skatta eina tækið. Ekki erum við að græða svo mikið af álverum nú. Heldur er landsvirkjun að borga með rafmagni til þeirra. Og þó að við gefum grænt ljós á álver í Helguvík þá er ekkert víst að Norðuál sé tilbúið að halda áfram, Orkufyrirtækin fá ekki lán og svo framvegis.

Magnús Helgi Björgvinsson, 15.4.2009 kl. 11:54

3 identicon

það er öruggt að kvort sem það er sigurður kári eða einhver annar, sennilega eru velflestir færari, en núverandi "stjórn" að takast á við komandi vanda.

Þrátt fyrir að álverð sé lágt nú er ekki þar með sagt að álverð verði lágt 2013, álverð hefur alltaf sveiflast  til og þegar norðurál var byggt á sínum tíma var mjög lágt verð á áli.

Anton (IP-tala skráð) 15.4.2009 kl. 12:19

4 identicon

Gott innlegg hjá þér.  Staðan er grafalvarleg og það er ótrúlegt að stjórnmálaflokkar skuli komast upp með svona málflutning.  Gatið sem þarf að stoppa er geigvænlegt, og það verður bara gert með því að auka tekjur og lækka kostnað ríkisins.  Það er engin önnur leið, ekki flóknara en það.  Tími þess að fá lánað fyrir hlutunum er liðinn. 

Bæði er erfitt, alltaf en ekki síst í núverandi árferði, þ.s. tekjustofnar ríkisins eru á mjög hraðri niðurleið og því takmörkuð tækifæri til að auka tekjurnar.  En þar sem það er hægt verður að gera það, það verður nógu erfitt að skera niður samt. 

Að hækka tekjur ríkisins þýðir að hækka skatta eða greiðslur almennings fyrir þá þjónustu sem ríkið veitir (sem bitnar yfirleitt verst á þeim sem minna mega sín).  Að lækka kostnað eins mikið og þarf gerist ekki án þess að taka á öllum málaflokkum, þ.m.t. þeim stærstu sem eru heilbrigðis- og menntamál.  Vissulega má (og á) að spara (hlutfallslega mest) í utanríkissþjónustunni, kirkjunni, o.s.frv. en það dugar bara enga veginn.  Við verðum að horfast af augu við vandann og fara vandlega yfir hvernig við viljum forgangsraða sem þjóð, hverju við viljum halda og hvað skerða og hverju sleppa alveg.  Það verður ekki bara haldið lengur.

Að mínu mati þá eru það óábyrgir stjórnmálaflokkar sem halda því fram að hvorki ætli að hækka skatta né skera niður.  Og það er óábyrgt af fjölmiðlum að lofa stjórnmálaflokkum að halda slíku fram.  Og það er óábyrgt af almenningi að trúa slíku og ber vott um verulega veruleikafirringu. 

AS (IP-tala skráð) 15.4.2009 kl. 12:27

5 identicon

ég segi nú bara einsog Geir Harði "hvar á ég að skrifa undir"

zappa (IP-tala skráð) 15.4.2009 kl. 12:34

6 identicon

Ég minni á að öfugt við það sem margir halda vorum við hvað skattpíndust undir hægri stjórninni. 

Gríðarleg raunHÆKKUN skatta á 90% þjóðarinnar var staðreynd!

Einu hóparnir sem högnuðust og fengu skattalækkanir voru fjármagnseigendur og fyrirtæki. Gengið var lengra en sjálfur Milton Friedman lagði upp með í að skattpína þá lægst launuðu.

Sjá greinar Stefáns Ólafssonar, félagsfræðiprófessors við HÍ:

http://www3.hi.is/~olafsson/

Erla (IP-tala skráð) 15.4.2009 kl. 17:18

7 Smámynd: Magnús Helgi Björgvinsson

Sammála Erla. Hér er bútur úr frétt á www.visir.is frá því 12 mars í fyrra:

Ísland er í hópi þeirra ríkja þar sem skattar á barnafjölskyldur hafa aukist á árabilinu 2000-2006 samkvæmt samtantekt Efnahags- og framfarastofnunarinnar, OECD. Þá hafa breytingar á skattkerfi hér á landi fyrst og fremst gagnast þeim tekjumeiri ólíkt því sem víða gerist innan OECD.

Þessvegna  er það að ég held að þeir ættu að hætta að ljúga að fólki svon rétt fyrir kosningar.

Magnús Helgi Björgvinsson, 15.4.2009 kl. 18:49

8 Smámynd: Ingibjörg Hinriksdóttir

Þjónustugjöld, ekkert nema þjónustugjöld, helst á þann hóp sem er fjölmennastur og fátækastur!

Ingibjörg Hinriksdóttir, 15.4.2009 kl. 19:05

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Magnús Helgi Björgvinsson
Magnús Helgi Björgvinsson

Skoðanir Magga um menn og málefni í fréttunum. maggihb@gmail.com Athuga að þetta eru mínar skoðanir og þið megið bara hafa ykkar hentisemi, því ég er að nota mína.

Eldri færslur

Apríl 2024
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

Twitter

Teljari

joomla visitor

Twitter

Tenging við twitter

Um bloggið

Vettvangur Magga

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband