Leita í fréttum mbl.is

Kampavínið hvarf í göngunum

Bíddu er svo mikill leki í göngunum að heilu flöskurnar af kampavíni hverfa?

 

Vísir, 06. des. 2006 12:30

Kampavínið hvarf í göngunum

Ekkert varð af því að þyrstir gestir gætu vætt kverkar sínar í kampavíni, til að fagna því að síðasta haftið í Kárahnjúkagöngum var rofið í gær, því kampavínið var horfið þegar til átti að taka.

Nokkrir tugir gesta höfðu þá aftur lagt á sig klukkustundar ferð á hörðum bekkjum í hastri jarðlest í raka og hita því þeir þurftu frá að hverfa í fyradag eftir að risaborinn, sem átti að ljúka verkinu þá, bilaði.

Í ljósi þeirrar reynslu var það að vonum að gestirnir biðu þess með enn meiri óþreyju en ella, að teiga kalt kampavínið áður en hossast yrði í lestinni til baka en þá fanst ekki dropi af víninu sem flutt hafði verið inn í göngin í fyrradag. Einu veigarnar sem fundust voru kók og appelsín en gestirnir fundu sig ekki í því að skála fyrir stórviðburði í viðlíka glundri, þannig að svipmót hátíðarhaldanna varð með nokkuð öðrum hætti en til stóð.

Með öllu er óljóst hvað gerðist þarna í iðrum jarðar, 150 metrum undir yfirborði Þrælahálsins, í fyrrinótt en lausasagnir herma að óvenju bjart hafi verið yfir bormönnnunum sem unnu alla nóttina við að rífa borinn sem lokið hafði hlutverki sínu en þeim megin haftsins var kampavínið geymt.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Magnús Helgi Björgvinsson

Vona að vikjuninn sé ekki öll reist af rall fullum iðnaðrmönnum. Það gæti haft afleiðingar. Þannig að ég vona að þetta séu bara Landsvættirnir að drekkja sorgum sínum vegna náttúruspjalla sem þarna er verið að vinna. Sé fyrir mér Fjallkonuna með kampavíns glasið og tárin í augunum og farðann út um allt.

Magnús Helgi Björgvinsson, 6.12.2006 kl. 13:48

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Magnús Helgi Björgvinsson
Magnús Helgi Björgvinsson

Skoðanir Magga um menn og málefni í fréttunum. maggihb@gmail.com Athuga að þetta eru mínar skoðanir og þið megið bara hafa ykkar hentisemi, því ég er að nota mína.

Eldri færslur

Maí 2024
S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31  

Twitter

Teljari

joomla visitor

Twitter

Tenging við twitter

Um bloggið

Vettvangur Magga

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband