Leita í fréttum mbl.is

Þetta eru bara sanngjarnar kröfur

Ég get heilshugar tekið undir með ASÍ varðandi þessar kröfur þeirra. Mér finnst alveg með ólíkindum þessi skortur á upplýsingum á mannamáli til fólks og eins að aðgerðir til hjálpar skuldugum einstaklingum séu ekki meira samræmdar en orðið er. Þar hafa bæði embættismenn, starfsmenn ríkisbanka og stjórnvöld brugðist.

www.island.iser jú ágætur sem slíkur en ég undrast enn að ekki skuli vera daglega þáttur í útvarpi og sjónvarpi RUV þar sem fólki er er ráðlagt, bent á leiðir og málin útskýrð á mannamáli. Til að byrja með eru ekki allir á netinu stöðugt. Svo eru dálítið mál að lesa sér til um málin inn á island.is. Þar vantar svona kafla eins og:

  • Nú á ég ekki fyrir skuldum hvað á ég að gera?
  • Nú hefur lánið mitt hækkað hvað get ég gert?

Og undir þessum liðum væri nákvæmlega á mannamáli skýrt hvernig fólk á að bregðast við til að fá lausnir á sínu máli. Svona eins og Fyrst gerir þú þetta. Númer 2 gerir þú svo þetta  og svo framvegis.

Þetta eiga ráðherra að tryggja sem og starfsfólk ráðuneyta. Það er til skammar að gera ráð fyrir að allir geti eða viti hvernig þau eiga að fletta á milli lagabálka og finna rétt sinn. Það sem fólki í ráðuneytum og stofnunum finnst vera augljóst mál er ekki víst að fólk sem ekki er innvígt í þetta umhverfi skilji.

EIns er furðulegt að Ráðgjafastofa heimilina hafi ekki verið stækkuð 3 til 4 falt strax. Og fólki auðveldað strax um áramót að fá þar ráðleggingar.

Þetta allt leiðir til reiði og dregur úr því að fólk reyni að bjarga sér sjálft.


mbl.is ASÍ áréttar kröfur gagnvart ríkinu
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Magnús Helgi Björgvinsson
Magnús Helgi Björgvinsson

Skoðanir Magga um menn og málefni í fréttunum. maggihb@gmail.com Athuga að þetta eru mínar skoðanir og þið megið bara hafa ykkar hentisemi, því ég er að nota mína.

Eldri færslur

Apríl 2024
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

Twitter

Teljari

joomla visitor

Twitter

Tenging við twitter

Um bloggið

Vettvangur Magga

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband