Leita í fréttum mbl.is

Látið stjórnarandstöðu ekki alveg rugla ykkur!

  1. Skuldir okkar vegna IceSave eru í dag 630 milljarðar. En það er verið að miða við gengið í dag. Það á ekki að borga af þessu láni fyrr en eftir 7 ár. Gengið verður væntanlega allt annað þá. Ef það hækkar um 30% þá lækkar þetta lán um 200 milljarða.
  2. Eignir sem seljast af eignarsafni Landbankans i Bretlandi koma til lækkunar höfðustóls
  3. Það hefur verið talað um að það taki ár að hámarka eignir Landsbankans. Nú hvað er verið að gera. Jú fá 7 ár til að hámarka eignir til að greiða þessar skuldir.
  4. Á meðan við erum að komast út úr kreppunni þurfum við ekkert að borga af þessu láni.
  5. Það væri gaman að heyra hvaða leið Framsókn, Sjálfstæðismenn og Borgarahreyfing hefðu viljð far.
    1. Dómsóla leið. Það hefði þýtt að Bretar hefðu fryst allar eigur okkar aftur. Og nú með lögbönnum. Lansbankinn nýji hefði fengið á sig lögbann þar til dómmur hefði fallið og því ekkert getað lánað og jafnvel ekki fengið að greða út innistæður
    2. Betri samning. Væri nú gott að menn sýndu okkur hinum hvernig þeir hefðu getað það.
  6. Hafa ekki allir verið að þrýsta á það að samið yrði um IceSave. Bretar og Hollendingar eru búnir að borga um 1200 milljarða vegna IceSave. Ríkisstjórn Geir Haarde samdi um að við mundum borga 20 þúsund evra tryggingu á innistæðum einstaklinga. Svo við skulduðum 630 milljaðra. En það eru eignir þarna út sem allir hafa verið sammála um að eignirnar komi til með að dekka frá 75% upp í 100% af þessum skuldum.
  7. Eins væri fólki holt að fatta það að þetta væntanlega lán er ekki verðtryggt ásamt þvi sem það er heimilt að greiða inn á höfðustól þess. Sem og að gengi krónunar á eftir að hækka umtalsvert áður en við skiptum í evrur og því á þetta lán eftir að lækka umtalsvert.

mbl.is Steingrímur fær fullt umboð
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Áhugaverðustu punktar sem ég hef heyrt um þetta mál.

Óli Gneisti (IP-tala skráð) 5.6.2009 kl. 17:06

2 identicon

Góð samantekt hjá þér eins og oft áður.  Finnst samt óþolandi hversu illa málin eru kynnt fyrir manni, bæði af yfirvöldum og fjölmiðlum.  Nákvæmlega hvað er verið að semja um?  Að borga max 20.000 Evrur per sparifjáreiganda eða alla upphæðina?  Er þetta fyrir Bretland og öll önnur lönd sem Icesave var í boði?  Eru innistæður forgangskröfur í kröfubúið eður ei (ef ekki þá snarminnka sennilega líkurnar á að náist 90-95% uppí þessa ábyrgð)?  O.s.frv.frv.frv. 

Hvernig stendur á því að einhver fjölmiðill ekki fyrir lifandis löngu búinn að kryfja þetta mál til mergjar og matreiða með teskeið ofan í okkur landsmenn?  Ættum við ekki öll að vita allt sem mögulega er hægt að vita um þetta mál by now?

ASE (IP-tala skráð) 5.6.2009 kl. 17:32

3 Smámynd: Magnús Helgi Björgvinsson

ASE ég sammála þér með fjölmiðlana . Þeir virðast leita eftir sérfræðingum eftir þvi hvernig þeir geti búið til mestu lætin.

Við erum að borga innistæðutyggingar upp á rúmlega 20 þúsund evrur á þær upphæðir sem einstaklingar áttu í IceSave í Bretlandi, Holllandi og Belgíu. Þessrar þjóðir taka á sig miklu hærri upphæðir t.d. Bretar um 1200 milljarðar.

Vilhjálmur Bjarnason benti á í viðtali í Speglinum áðan að eignir Landsbankas sem eru lán og lánasöfn bera líka vexti þannig að þeir koma upp í þessa 630 milljarða. Og minnti fólk á að þjóðir í Evrópu voru allar sammála um að ef við hefðum ekki gengist við þessari ábyrgð okkar þá hefði allt bankakerfið í Evrópu verið í hættu. Og eins að ef innstæður hefðu ekki verið tryggðar hefðu allir bankarnir hér algjörlega hrunið og ekki möguleiki á að halda efnahagslífinu gangandi. Því allt fjármagn hefði þurkast úr úr því og farið undir kodda á heimilum sem og erlendis.

En hann Vilhjálmur bent sem sagt á að eignir Landsbanka bæru vexti sem kæmu á móti vöxtum af þessum ábyrgðum sem og að eignirnar lækka höfðustólinn.

Magnús Helgi Björgvinsson, 5.6.2009 kl. 18:32

4 identicon

Sæll og takk fyrir góðar upplýsingar, margt í samræmi við hvað átti von á.  Ég skil, og átti alltaf von á, að yrðum að borga mikið fyrir Icesave (ótrúlegt en satt en þá trúði ég ekki alveg Björgúlfi gamla síðastliðið haust þegar hann vonaðist til að þjóðin myndi stórgræða á því að taka bankann af honum :-o).  En ég myndi samt vilja skilja nákvæmlega útreikningana á bakvið hvað við erum að ábyrgjast.  Ég hef aðeins skoðað ársreikninga gamla Landsbankans 31/12/07 og 30/06/08 og m.v. að gefa mér ákveðnar forsendur þá finnst mér samt þessi upphæð ekki alveg ganga upp.  Sama gildir ef skoða aðrar upplýsingaveitur, þ.m.t. breskar.  T.d margt mjög áhugavert að finna hérna (bls 25): http://www.fsa.gov.uk/pubs/plan/financial_risk_outlook_2009.pdf.  Hef á tilfinningunni að hér komin skýringin á þessum GBP 200 milljónum sem Björgúlfur Thor talaði um síðastliðið haust, þ.e. að Landsbankinn hafi átt eftir að borga GBP 200 milljónir v/þess að „they were covered on a top-up basis by the UK Financial Services Compensation Scheme (FSCS), to which Landsbanki had chosen to opt in. As a top-up member, Landsbanki would have been liable to meet a share of the costs in the event of the default of another bank covered by the UK scheme“.  Held að drengurinn hafi gjörsamlega algjörlega misskilið málið og meðfylgjandi blogg finnst mér styðja þann grun minn http://lillo.blog.is/blog/lillo/entry/891113Tölurnar ganga alla vega ekki alveg upp fyrir mér (svo eigum við ekki að segja að fjölmiðlum ákveðin vorkunn - en samt hafa haft nokkuð marga mánuði til að reyna að ná einhverri yfirsýn yfir málið :-)  En án þess að skilja útreikninga er vonlaust að meta hvort við erum að semja vel eða illa!!!  En það eru alla vega nokkur atriði sem fyrir vonbrigðum með / skil ekki.Í fyrsta lagi eru það vextirnir, 5.5% vextir eru að mínu mati allt allt allt of hátt fyrir "svona sérstaka" skuld.  Í Bretlandi er hægt að fá húsnæðislán á lægri vöxtum!!!  En geri mér vissulega grein fyrir að við ekki í mjög góðri samningstöðu, ekki beint eins og slegist um að lána okkur á góðum kjörum þessa dagana (né slæmum :-o)Í öðru lagi þá finnst mér að hefðum átt að geta nýtt okkur á einhvern hátt í samingaviðræðunum þann punkt sem þú nefnir, þ.e. "hefðum við ekki gengist við þessari ábyrgð okkar þá hefði allt bankakerfið í Evrópu verið í hættu".  Ef það voru "göt" í Evrópska lagaumhverfinu þá má kannski segja að ekki sanngjarnt að við þurfum að borga alein fyrir það :-o  En sennilega (og örugglegra) flóknara en það!!!Í þriðja lagi, og jafnvel mikilvægasta lagi (og kannski skýringin af hverju enginn vill útskýra þetta beint fyrir okkur!!!) þá er náttúrulega stóra spurningin hvort EUR 20.000 ábyrgðin fellur ekki undir Tryggingasjóð innistæðueigenda og er þar með að fullu á ábyrgð ríkisins.  M.ö.o. er tryggt að söluverðmæti eigna gamla Landsbankans geti gengið á móti þessari upphæð???  Meðfylgjandi blogg skýrir þetta sennilega betur en ég get: http://marinogn.blog.is/blog/marinogn/entry/890985/   Ég myndi gjarnan vilja skilja áhættuna af þessu betur!

Algjörlega sammála að þoli ekki óábyrga umræðu um þessi mál, því við sem þjóð berum réttilega ábyrgð á fjármálakerfinu sem við byggðum upp og vorum hreykin af.  Við lásum hins vegar ekki smáa letrið um þá ábyrgð sem við vorum að taka (vorum sennilega að flýta okkur niður á Oxford stræti fyrir lokun, nú eða á barinn :-o).  En að hlaupast undan ábyrgð og segja „við borgum ekki“ gengur ekki ef við viljum taka þátt í samfélagi þjóðanna sem jafningi í framtíðinni.  Hinn möguleikinn er vissulega að sækja um þróunaraðstoð og gerast efnahagslegir flóttamenn, en við getum ekki bæði haldið og sleppt.  Ef við viljum halda sjálfsvirðingu okkar og stöðu í samfélagi þjóðanna þá verðum við að axla þá ábyrgð sem okkur ber, vissulega ekki meiri ábyrgð en heldur ekki minni. 

Að lokum, takk fyrir áhugavert blogg, les þig reglulega 

ASE (IP-tala skráð) 6.6.2009 kl. 00:00

5 identicon

Bull í þér drengur.  Hvernig í fjandanum getur þú vitað að gengið styrkist, ertu í beinu símasambandi við almættið?  Það er miklu líklegra að gengið veikist, einmitt vegna þessa samnings.

Og ekki ertu vel að þér í lögfræði, hvernig eiga bretar að geta fengið sett lögbann á nýja Landsbankann?  Getur bara hvaða ríkisstjórn sem er fengið sett lögbann á  banka erlendis eftir eigin geðþótta?  Getur þú bent á dæmi um að það hafi einhvern tíman gerst og þá sagt okkur sem erum ekki með beint símasamband við almættið hvaða alþjóðastofnun getur samþykkt og framfylgt slíku lögbanni?

Þessi pistill þinn er bull, þvaður og vitleysa frá einfeldningi sem skortir þekkingu og vit.

bjarni (IP-tala skráð) 7.6.2009 kl. 01:18

6 Smámynd: Magnús Helgi Björgvinsson

Bjarni Icesave innistæðu eigendur geta fengið lögbann á bankan á þeirri forsendu að honum hafi verið skipt upp þrátt fyrir að þeir hafi ekki fengið uppgert skv. jafnræðisreglu varðandi innistæðueigendur. Þetta er mjög auðvelt að rökstyðja en nenni því ekki heldur bendi þér t.d. á pistil Friðriks Jónssonar um innistæður í íslenskum bönkum. Og minni þig á að innistæðu eigendur á IceSave hafa verið hér í hópum að fylgjast með. Og eins að nú eru Bretar og Hollendingar búnir að greiða þessum einstaklingum út og eiga því þeirra kröfur.

Varðandi gengið þá hefur það fallið um 100% frá því 2008. Menn segja að raun gengi krónunar sé miklu hærra. Og þega IceSave deilan er leist þá eru allar líkur á því að gegnið hækki smátt og smátt. Og allir spá því að gengi krónunar eigi eftir að hækka. Þ.e að evran verði um 130 til 150 krónunr og miðað við stöðuna í dag er það miklu meira en 30%. Þú getur líka velt því fyrir þér hvað mörg fyrirtæki með erlend lán eiga eftir að fara á hausin ef að gengið styrkist ekki.

Síðan er ágætt ráð fyrir menn sem skrifa ahugasemdir að það gerir lítið úr þeim sjálfum að fylla athugasemdir sínar með persónulegu skítkasti þar sem þeir gera lítið úr þeim sem skrifar færsluna. Og ef illa lagi á mér gæti ég einmitt sagt sömu hluti því athugsemdin þín gefur fullt tilefni til þess. 

Magnús Helgi Björgvinsson, 7.6.2009 kl. 10:41

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Magnús Helgi Björgvinsson
Magnús Helgi Björgvinsson

Skoðanir Magga um menn og málefni í fréttunum. maggihb@gmail.com Athuga að þetta eru mínar skoðanir og þið megið bara hafa ykkar hentisemi, því ég er að nota mína.

Eldri færslur

Maí 2024
S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31  

Twitter

Teljari

joomla visitor

Twitter

Tenging við twitter

Um bloggið

Vettvangur Magga

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband