Sunnudagur, 7. júní 2009
Vilhjálmur! Vaxandi hreyfing hér á landi sem vill bara alls ekki standa saman!
Mér er svo gjörsamlega nóg boðið! Ég hélt að Íslenska þjóðin væri einmitt sú sem hún er vegna þess að hér hefur fólk þjappað sér saman þegar að á reynir!
Maður getur nefnt t.d. náttúruhamfarir, Þjóðarsátt og hin ýmsu áföll sem við höfum orðið fyrir. Á slíkum stundum hefur þjóðin þjappað sér saman um að styðja stjórnvöld í að leita að leiðum til að koma okkur út úr þessu. Við höfum treyst mönnum og vitað menn hafa leitað lausna sem gagnaðist okkur best. En nú eru í raun 3 stjórnir búnar að vera hér við völd frá því í hruninu en samt er hér ákveðinn hópur sem heldur því stöðugt fram að hér séu stjórnvöld ekkert að hugsa um fólkið í landinu heldur bruggi fólki launráð.
Þessi sami hópur er á því að það sé bara stjórninni að kenna að hér sé kreppa. Fólk sér ekki að hér er í gangi alheimskreppa sem við sökum óvandaðra vinnubragða lentum algjörlega á kafi í.
Svo er fólk á því að hér sé kjörið tækifæri á að afskrifa lán á línuna og bara láta erlenda kröfuhafa borga. Eins og það sé bara ekkert mál. Enginn hefur hugsað út í af hverju engin vestræn þjóð hefur gert það áður. Benda á Argentínu sem gerði þetta 2001 en gleyma því að Argentína er sökum fátætar nærri sjálfbjarga. Og framleiða flest sem þau þurfa þannig að þegar þeir neituðu að borga þá snert það almenning þar lítið. Og eins þá gerðu þeir þetta þegar lánamarkaður var á uppleið og í raun að springa af peningum sem þurfti að koma í verð.
Svo er bara að neita að borga IceSave. Og fara með þetta dómstólaleiðina. Jafn vel þó að skýrslur sýni að t.d. í Bretlandi :
Hins vegar veitir ensk löggjöf stjórnvöldum mikið svigrúm og væri mjög erfitt að fá ákvörðun breskra yfirvalda hnekkt fyrir breskum dómstól. Gildir þá einu hvort íslenska ríkið, eða aðrir sem hagsmuna eiga að gæta, höfða slíkt mál.
(úr skýrslu Lovells LLP, Sem leitað var til vegna hugsanlegrar málhöfðunar vegna kyrrsetningar eigna Landsbankans)
Þetta gerir sér ekki grein fyrir því að það að neita að borga getur skaða viðskiptahagmuni okkar til lengri tíma. Nú þegar eru kröfuhafar erlendis búnir að tapa allt að 10.000 milljörðum og jafnvel meira á lánum til Íslands. Ef svo að við neitum að borga okkar hluta Icesave ábyrgða þá verðum við fræg fyrir að vera þjóð sem borgar ekki skuldir sínar til frambúðar.
Og svo til að bæta á þetta þá eru uppi kröfur um að afskrifa skuldir hér um 20%
Hingað til þegar þjóðin hefur lenti í hörmungum hefur þjóðin einbeitt sér að því að koma þvi fólki sem orðið hefur fyrir mesta tjóninu til hjálpar. Og tryggt að allir hafi þak yfir höfuðið og eitthvað að borða. Við höfum safnað fyrir þeim sem þurftu rauverulega hjálp.
En nú er þetta orðið þannig að fólk segir: Hrunið er ekki mér að kenna" , ´"Ég tók há lán í góðri trú" "Ég ætla ekki að borga skuldir óreiðumanna". "Fólki er alveg sama þó flatur niðurskurður á alla kosti ríkið kannski 900 milljarða því að Sigmundur Davíð og Tryggvin Þór segja að það sé hægt að láta það lenda á erlendum kröfuhöfum. Ég spyr hefur Tryggvin hingað til sem t.d. yfirmaður hagfræðistofnunar haft rétt fyrir sér. Eða Sigmundur Davíð sem hefur varla starfað sem hagfræðingur og einbeitt sér að borgarskipulagi. En fólk vill sökum hrunsins að allir fái hjálp bæði þeir sem þurfa og þeir sem gætu auðveldlega komist í gegnum þetta án aðstoðar.
En ég bendi fólki á að við berum öll ábyrgð á því að halda Íslandi gangandi til framtíðar. Og ef við eigum engin skipti við útlönd og ef engin vill leggja neitt á sig þá verður Íslandi ekki bjargað.
Allir þurfa að standa saman | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Flokkur: Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 21:49 | Facebook
Nýjustu færslur
- 22.10.2017 Nokkrar staðreyndir um skattaþróun í tíð hægristjórna
- 29.11.2016 Auðvita er leiðiinlegt að fyrirtækið skuli vera lent í þessu!...
- 7.11.2016 Á meðan að almenningur almennt á ekki kost á svona fyrirkomul...
- 6.11.2016 Garðabær er nú ekki til fyrirmyndar í málefnum þeirra sem þur...
- 1.11.2016 Halló er ekki allt í lagi á Mogganum?
- 30.10.2016 En jafnaðarmennskan hverfur ekkert!
- 29.10.2016 Hönd flokksins
- 29.10.2016 Þetta á erindi við kjósendur
Eldri færslur
- Október 2017
- Nóvember 2016
- Október 2016
- September 2016
- Ágúst 2016
- Júlí 2016
- Júní 2016
- Maí 2016
- Apríl 2016
- Mars 2016
- Febrúar 2016
- Janúar 2016
- Desember 2015
- Nóvember 2015
- Október 2015
- September 2015
- Júlí 2015
- Júní 2015
- Maí 2015
- Apríl 2015
- Mars 2015
- Febrúar 2015
- Janúar 2015
- Desember 2014
- Nóvember 2014
- Október 2014
- September 2014
- Júlí 2014
- Júní 2014
- Maí 2014
- Apríl 2014
- Mars 2014
- Febrúar 2014
- Janúar 2014
- Desember 2013
- Nóvember 2013
- Október 2013
- September 2013
- Ágúst 2013
- Júlí 2013
- Júní 2013
- Maí 2013
- Apríl 2013
- Mars 2013
- Febrúar 2013
- Janúar 2013
- Desember 2012
- Nóvember 2012
- Október 2012
- September 2012
- Ágúst 2012
- Júlí 2012
- Júní 2012
- Maí 2012
- Apríl 2012
- Mars 2012
- Febrúar 2012
- Janúar 2012
- Desember 2011
- Nóvember 2011
- Október 2011
- September 2011
- Ágúst 2011
- Júní 2011
- Maí 2011
- Apríl 2011
- Mars 2011
- Febrúar 2011
- Janúar 2011
- Desember 2010
- Nóvember 2010
- Október 2010
- September 2010
- Ágúst 2010
- Júlí 2010
- Júní 2010
- Maí 2010
- Apríl 2010
- Mars 2010
- Febrúar 2010
- Janúar 2010
- Desember 2009
- Nóvember 2009
- Október 2009
- September 2009
- Ágúst 2009
- Júlí 2009
- Júní 2009
- Maí 2009
- Apríl 2009
- Mars 2009
- Febrúar 2009
- Janúar 2009
- Desember 2008
- Nóvember 2008
- Október 2008
- September 2008
- Ágúst 2008
- Júlí 2008
- Júní 2008
- Maí 2008
- Apríl 2008
- Mars 2008
- Febrúar 2008
- Janúar 2008
- Desember 2007
- Nóvember 2007
- Október 2007
- September 2007
- Ágúst 2007
- Júlí 2007
- Júní 2007
- Maí 2007
- Apríl 2007
- Mars 2007
- Febrúar 2007
- Janúar 2007
- Desember 2006
- Nóvember 2006
- Október 2006
- September 2006
- Júlí 2006
- Júní 2006
- Maí 2006
- Apríl 2006
- Mars 2006
- Febrúar 2006
Tenglar
ESB
Samfylkingin
Maggi B er flokksbundinn samfylkingarmaður í Samfylkingarfélaginu í Kópavogi
Teljari
Tenging við twitter
Um bloggið
Vettvangur Magga
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (23.11.): 0
- Sl. sólarhring: 1
- Sl. viku: 16
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku: 15
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
RSS-straumar
RSS
Hvað er nýtt
RUV
- Augnablik - sæki gögn...
DV
- Augnablik - sæki gögn...
Visir.is
- Augnablik - sæki gögn...
Pressan
- Augnablik - sæki gögn...
Pressan Kaffistofa
- Augnablik - sæki gögn...
Af Eyjunni fréttir
- Augnablik - sæki gögn...
Bloggvinir
- Ingibjörg Hinriksdóttir
- Guðni Már Henningsson
- Kristbjörg Þórisdóttir
- Kristbjörg Þórisdóttir
- Samfylkingin Norðvesturkjördæmi
- Gísli Tryggvason
- Guðríður Arnardóttir
- Guðmundur Magnússon
- Hlynur Hallsson
- Kristján Pétursson
- Vefritid
- Bjarni Harðarson
- Davíð
- Ólöf Ýrr Atladóttir
- Björn Benedikt Guðnason
- Sigurlín Margrét Sigurðardóttir
- Egill Rúnar Sigurðsson
- Hlynur Halldórsson
- Tómas Þóroddsson
- Adda bloggar
- Killer Joe
- Tíðarandinn.is
- Þórður Steinn Guðmunds
- Kolbrún Jónsdóttir
- íd
- Haukur Nikulásson
- Hrannar Björn Arnarsson
- Sigfús Þ. Sigmundsson
- Bleika Eldingin
- Sigurður Sigurðsson
- Inga Lára Helgadóttir
- Björn Emil Traustason
- Brosveitan - Pétur Reynisson
- Björn Heiðdal
- krossgata
- Þröstur Friðþjófsson.
- S. Lúther Gestsson
- Sigurjón Sigurðsson
- Guðrún Helgadóttir
- Jón Ragnar Björnsson
- gudni.is
- Jakob Falur Kristinsson
- Sæþór Helgi Jensson
- Bergþóra Árnadóttir - RIP 15.2.48 - 8.3.07
- Félag Ungra Frjálslyndra
- Alfreð Símonarson
- Hlekkur
- Þorsteinn Briem
- Jonni
- Torfusamtökin
- Gulli litli
- Sigurður Sigurðsson
- Helena Sigurbergsdóttir
- Elías Stefáns.
- viddi
- Oddrún
- Jón Gunnar Bjarkan
- Heimir Eyvindarson
- Himmalingur
- Eygló
- Hólmfríður Bjarnadóttir
- Axel Jóhann Hallgrímsson
- Ólafur Ingólfsson
- Rúnar Þór Þórarinsson
- Styrmir Reynisson
- Helga Kristjánsdóttir
- Sæmundur Bjarnason
- Ingimundur Bergmann
- Loftslag.is
- Kjartan Jónsson
- Brattur
- Gunnar Helgi Eysteinsson
- Högni Snær Hauksson
- Jack Daniel's
- Kama Sutra
- Magnús Ragnar (Maggi Raggi).
- Ómar Bjarki Smárason
- Stefán Júlíusson
Athugasemdir
Gott kvold; Magnús Helgi !
Þig skal ekki undra; Gullbringusýslumaður góður, að samstaðan sé rofin, líkast til; endanlega.
Ætli; þar beri ekki meginábyrgðina, frjálshyggjuflokkarnir 3 / B - D og S listar, Magnús Helgi.
Og; heldur vex þykkja mín, til þeirra hvítflibba- og blúndukerlinga, hver Alþingi sitja, í dag - hvað þá; samþykki meirihluti þeirra, undirgefnina, við þá Breta og Hollendinga.
Og; síðast í gær, síðdegis;; flaug af landi brott, ein systurdóttur dóttir mín, suður í ríki Eydana (Danmerkur), ásamt sinni 5 manna fjölskyldu.
Verði ekki; grundvallarbreyting, á stjórnarháttum hér - og liðsmenn okkar þjóðernissinna taki hér völd, mun þröng mikil, fyrir durum verða, Magnús Helgi.
Svo virðist í stefna; að óbreyttu.
Með; hinum sæmilegustu kveðjum, úr Árnesþingi /
Óskar Helgi Helgason
Óskar Helgi Helgason (IP-tala skráð) 7.6.2009 kl. 22:19
Magnús ef þér finnst samstöðuleysið vera lítið núna, skulum við skoða dæmið þegar líða fer á haustið. Það á eftir að versna umtalsvert! Það á eftir að segja upp talsverðum fjölda opinberra starfsmanna. Það á eftir að hækka skatta og álögur. Það á eftir að skerða bætur. Atvinnuleysi á eftir að öllum líkindum að ná hæðum sem Ísland hefur aldrei þekkt áður, og þá getum við verið vissir um að þessi ríkisstjórn verður orðin ein sú óvinsælasta sem hér hefur ríkt. Þetta er ekki vegna þess að ráðherrarnir séu svona vont fólk, eða vilji ekki gera sig besta. Vandinn er bara svo stór. Í svona ástandi myndast óánægja og þá er mjög auðvelt að búa til æsing, eins og fram kom í búsáhaldabyltingunni. Sérstaklega þegar stjórnvöld bregðast með að gefa upplýsingar.
Þetta er ástæðan fyrir því að margir vildu fá þjóðstjórn, strax í haust, en þá var ekki hlustað. Aftur í vor komu hugmyndir um þjóðstjórn, og síðan eftir kosningar. Við þurftum á samstöðu að halda, en í svona ástandi sé ég ekki hvernig hún næst nema með því að kalla alla að borðinu.
Fyrningaleiðin hjá Sigmundi Davíð , sem síðar fékk stuðning m.a. hjá Tryggva Herbertssyni og Lilju Mósesdóttur hefur ekki fengið þá skoðun sem eðlilegt er. Þessi leið fékk síðar stuðning frá Umboðsmanni neytanda og ég hef ekki orðið var við að þar færi neinn kjáni. Samstaða krefst þess að við séum tilbúin að skoða launsir með virðingu, en ekki afskrifa þær með hroka.
Sigurður Þorsteinsson, 7.6.2009 kl. 22:23
Sigurður ég hef trú á talsmanni neytenda. Hann reyndar talar um gerðadóm sem ákveði niðurfellingar eftir þvi hvenær lánin voru tekin og fleira. En því miður Sigurður þá hef ég ekki trú á því að svona flatur niðurskurður sé mögulegur án þess að á ríkið falli enn meiri kostnaður. Og ég er næsta viss um að það væri sama hvaða stjórn væri hér við völd að niðurstaðan yrði sú sama. Engin flokkur talaði um svona niðurfærslur nema Borgarahreyfingin og Framsókn. Sjálfstæðismenn fóru að tala um einhverja lagfæringu á höfðustól.
Ég leyfi mér að efast um að þjóðstjórn ráði eitthvað frekar við þetta. Minni á að þessir aðilar eru ekki sammála í dag á þingi og held það yrði eins. Nú eru hinsvegar allir aðilar að borðinu ef við hugsum Verkalýðshreyfingu, fulltrúa atvinnlífsins og Stjórnvöld sem nokkurn vegin þá sem þarf til að mynda Samstöðusamning.
Óskar Helgi hvernig mundu þið þjóðernissinnar bjarga málum???? Með því að segja okkru úr EES og hætta samningum og samstarfi við önnur lönd? Minni þig á að það eru önnur lönd, AGS og fleiri sem halda okkur sennilega á floti næstu misseri.
Magnús Helgi Björgvinsson, 7.6.2009 kl. 22:39
Icesave skuldbindingarnar eru einfaldlega ekki raunverulegar, það er engin lagaskylda til sem þvingar íslenska ríkið að staanda við þær. Auðvitað á Ísland að borga skuldir sem sannarlega eiga rétt á sér, en Icesave skuldirnar gera það ekki. Það er huggulegt að tilheyra "samfélagi þjóðanna" en ef það kostar örbigð fyrir Íslendinga næsta áratuginn þá getur þetta "samfélag þjóðanna" hoppað upp í rassgatið á sér.
Bjarki (IP-tala skráð) 7.6.2009 kl. 22:41
Sjálfstæðismenn eiga að borga þetta,þetta er allt þeim að kenna.Glæframenn í fjármálum.
Árni Björn Guðjónsson, 7.6.2009 kl. 22:49
Sælir; á ný !
Magnús Helgi !
Já; fortakslaust, yrði uppsögn EES skandalans, ásamt Schengen fylgiskjals, meðal fyrstu verka.
Síðan; yrðu tekin upp aukin samskipti, við ríki Norður- Mið- og Suður Ameríku, ásamt Rússlandi - Japan og Kína, auk Indlands og Eyjaálfu.
Gnægð tækifæaranna bíða; handan við hornið - þá Íslendingar átta sig á, að við þurfum ekkert, að vera komnir upp á náð gömlu nýlenduveldanna, suður í Evrópu - hver; eru hvort eð er, á hverfanda hveli, hvar óbilgirni þeirra, við Rússland, í ýmsum efnum, til dæmis, á eftir að koma þeim illilega í koll, Magnús Helgi.
AGS; er pappírstígur gamalkunnur - sem kúgunartól heimsvalda sinnanna vestrænu, sem kunnugt er. Því; skyldi koma erindrekum þeirra, hið fyrsta, héðan frá Fróni, Kópavogsbúi góður.
Með ágætum kveðjum; á ný /
Óskar Helgi Helgason
Óskar Helgi Helgason (IP-tala skráð) 7.6.2009 kl. 23:50
Ágætur og öfgalaus pistill hjá þér Magnús. Næstu mánuðina og árin eru þetta einmitt tvö lykilatriði þess sem við þurfum að tileinka okkar; samstaða og æðruleysi (öfgaleysi). Það mun koma okkur út úr þessum öldudal.
Hvað ICESAVE varðar er gríðarlega mikilvægt að koma öllum upplýsingum og forsendum upp á borðið. Þjóðin þarf að fá að vita hvað lá til grundvallar þeim ákvörðunum sem voru teknar. Það er gríðarlega mikilvægt til að skapa traust, bæði á samningnum og þeim sem hann gerðu.
Sigurður Viktor Úlfarsson, 7.6.2009 kl. 23:57
Ég verð nú að segja að mér finnst þessi pistill bera vott um ákveðið skilningsleysi á aðstæðum og hroka í garð þeirra sem eru að missa allt sitt og má jafnvel lesa á milli línanna að það geti bara haldið kjafti og borgað fyrir alla óráðsíuna frá bankamönnum og auðmönnum sem fjármögnuðu nær því alla stjórnmálaflokkana. Ég vona því að Samfylkingargleraugun séu bara að blinda þig þarna því þessi fyrirlitning í garð fólks sem er í sárum vandræðum og telur úrræði ríkistjórnarinnar gagnist lítt, minnir mann alltof mikið og er nánast samhljóða áróðri Sjálfstæðisflokksins í haust um að"þetta fólk geti bara sjálfu sér um kennt." Þetta fólk keyrði ekki landið í kaf, þetta fólk tók lán í góðri trú og var sannfært um að þetta væri allt í lagi. Þetta fólk vissi ekki að það yrði atvinnulasut og þetta fólk vissi ekki að bankarnir myndu hrynja.
Gott og vel, ég ætla að snúa mér að því sem mér finnst líka skilningsleysi hjá þer. Þú lætur eins og að þetta sé bara normal ástand og fólk geti komið sér saman bara sísvona um sátt og samlyndi líkt og um náttúruhamfarir væri að ræða.
Gleymdu því, það næst ekki nema með róttækum aðgerðum af hálfu stjórnvalda því þjóðin hefur verið svívirt, svikin og er með risastórt opið sár sem er hrækt í reglulega með IceSalave, að heimilin geit sjálfum sér um kennt o.sv.frv.Sundrungin og siðrofið er svo gífurlegt, reiðin svo mikil og vantraustið svo gríðarlegt að ef ríkistjórnin byrjar ekki að hlusta á fólk að einhverju leyti, þá er ég hræddur um að það verði hreinlega blóðbað með haustinu.
Fólki finnst nefnilega ekkert vera að gerast, það er lítið að slá á það, hvort sem það eru aðgerðir, auðmýkt, gagnsæi eða nokkuð annað til að byggja upp traust á nýjan leik. Það hjálapr heldur ekkert til við hlutina að eigur auðmannana hafa ekkert verið frystar né bankamannana. Sama liðið vinnur í bönkunum og ætlar sér að fjármagna afskriftir auðmannana sem eiga eignir út um allt og eru enn að, með því að ganga að heimilum landsins. Þetta er bara hreinilega olía á eldinn og IceSlave er ekki til að hjálpa að slökkva hann, heldur kyndir undir hann. Ballið er því miður bara rétt að byrja því höggið er ekki komið, það verður næsta ár sem er skelflingin ein.
Og hvernig ætlarðu að ná þessari sundrungu í sameinaða heild? Hvernig ætlarðu að sannfæra fólk sem finnst því hafa verið nauðgað um að það sé í lagi að treysta aftur? Hvernig ætlarðu að láta samfélagið ná saman á ný? Þú getur það ekki í gegnum verkalýðsfélögin, þú getur það ekki í gegnum SA og þú getur það ekki í gegnum þing sem ber lítilð traust.
Hvað er þá í stöðunni? Ég sé einu lausnirnar þær að hlusta á fólk og reyna að grípa til aðgerða á borð við þessar:
- Einhverskonar afskriftir(niðurfellingu/leiðréttingu á skuldum heimilanna. Það þýðir ekkert að segja við fólk að það eigi að vera skuldaþrælar um aldur og ævi vegna útrásarvíkinga né að það eigi að vera sett sem einhverskonar þrælar á eigin heimili, niðurlægt með vökulum augum tilsjónarmanns. Þetta mun kosta en það mun kosta einnig að keyra heimilin í þrot og hafa allt í uppnámi hér.
- Frysta eignir auðmanna og bankamanna. Sýna fólki að þeir fái ekki lengur aðgang að bönkunum, þeir séu úti um aldur og ævi. Gera samkomluag við Breta um að þeir verði eltir uppi eins og um hryðjuverkamenn séu að ræða.
- Hreinsa til í bönkunum og reka þá sem bera ábyrgð á IceSave, þeim sem gengu hart fram í að koma landinu í þrot og þeim sem eru hvað verstir í því að hundsa tilmæli stjórnvalda og eru aðgangsharðir gagnvart heimilum landsins.
- Banna starfsemi Intrum og annara slíkra fyrirtækja. Breyta lögum um vanskilaskrá þannig að ekki sé hægt að halda lifandi um aldur og ævi. Bankarnir eru nefnielga að notfæra sér ástandið og sögur segja að fólk sem fer í greiðslufrystingu, greiðsluaðlögun og greiðslujöfnun sé sett á vanskilaskrá jafnvel þó það sé í skilum.
- Stjórnlagaþing
- Hreint og tært gagnsæi. Setja allt upp á borð því á meðan fólki er haldið í óvissu þá er verra að sannfæra það um að sameinast.
- SA og Viðskiptaráð þarf svo að hreinsa í burtu alla óreiðumennina sem hafa áhrif þar og starfa í toppstöðum. Annars verður aldrei nein sátt við atvinnulífið.
Örugglega má týna eitthvað fleira til en stjórnvöld, þurfa að horfast í augun við það, að þau eru ekki að sannfæra fólk né fá það til að fá trú. Mundu, þetta eru ekki náttúruhamfarir, nokkuð sem Íslenidngar myndu allir bíta á jaxlinn með, heldur varð hér algjört kerfishrun og algjört siðrof. Það þarf að bæta og það vinnst ekki með því að láta fólki finnast sem það eitt eigi að bera skaðann, það eitt eigi að þjást fyrir óréttlætið og að almenningi einum sé sagt að hann geti bara sjálfum sér um kennt.AK-72, 8.6.2009 kl. 00:52
Komið þið sælir; á ný !
Agnar Kristján Þorsteinsson ! Þú ert; sjálfsagður leiðtogi endurreisnar hreyfingar íslenzkrar.
Magnús Helgi; sem aðrir, nær og fjær, verða að lesa þessa skörulegu orðræðu AK-72, skrumlausa og hnitmiðaða, og hyggja að þeirri gnótt raunverulegs sannleika, hvern Agnar setur fram, svo stórkostlega, að mætti í öllum dagblöðum - sem héraðsfrétta blöðum landsins birtast.
Heyr; fyrir þér Agnar Kristján !
Með beztu kveðjum; sem áður og fyrri /
Óskar Helgi Helgason
Óskar Helgi Helgason (IP-tala skráð) 8.6.2009 kl. 01:04
Heyr, heyr AK-72 ég er honum sammála.
Jóna Kolbrún Garðarsdóttir, 8.6.2009 kl. 02:11
Magnús, þjóðstjórn vinnur þanneigin að menn sitja við borðið og finna lausnir saman eins og stjórn, en í núverandi stjórnkerfi, sem nota bene er handónýtt, er það þanneigin að það sem kemur frá "hinum" er vont.
Annars er engu að bæta við það sem að ofan er komið, nema að það er vont þegar fólk eins og Árni Björn ganga um með slíkar ranghugmyndir og Sigurður Viktot veit ekki að það er allt uppi á borði, borðið finnst bara ekki, en honum þykir nóg að fá að vita hvað lá að baki samninganna við viljum fá að vita hvað liggur að baki þeirra áður en þeir verða samþykktir.
Högni Jóhann Sigurjónsson, 8.6.2009 kl. 11:55
Högni eins og á að gera á Alþingi. Sé það nú ekki ganga!
Magnús Helgi Björgvinsson, 8.6.2009 kl. 12:11
Þjóðin sínir samstöðu þrátt fyrir að leiðtogar okkar reyni að rjúfa hana og sína frekar samstöðu með erlendu auðvaldi en eigin fólki. Það er þeirra val sem þeir verða að taka afleiðingunum af. Verði þessi samningur samþykktur á þingi verður friðurinn úti á Íslandi og þá geta kröfuhafar verið nokkuð vissir um að fá ekki neitt. Leiðtogar okkar eru því að selja þjóð sína í álög án þess að erlendir herrar þeirra fái neitt fyrir snúð sinn þegar uppi er staðið.
Það væri betra fyrir alla ef stjórnin mannaði sig upp og segði erlendu kröfuhöfum okkar heiðarlega frá stöðu okkar og getuleysi okkar til að greiða þessar skuldir útrásarvíkinganna.
Héðinn Björnsson, 8.6.2009 kl. 13:01
P.S. Er ekki mótsögn í því að það sé vaxandi hreyfing sem ekki vilji sína samstöðu. Hún væri varla hreyfing ef hún væri ekki að sýna samstöðu. Hið rétta er að segja að vaxandi hreyfing neitar að fórna samstöðu sinni fyrir samstöðu með þeim yfirvöldum sem ekkert vilja með okkur hafa.
Héðinn Björnsson, 8.6.2009 kl. 13:10
Ég held að það sé hægt Magnús, þetta er fullorðið fólk þarna allt sem þarf að gera er að ýta ESB umræðunni aftar í forgangsröðinni og ræða það mál næsta vetur og einhenta sér í vandamálin.
Hættum svo að kjósa flokka í svona fámenni kjósum fólk, eða öllu heldur sendum fólk á þing þ.e. allir í framboði nema annað sé tekið Fram.
Högni Jóhann Sigurjónsson, 8.6.2009 kl. 14:45
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.