Leita í fréttum mbl.is

Það væri nú við hæfi að Sigmundur væri spurður um sínar leiðir að lausnum

Maðurinn dælir hér út svartnætti í hvert sinn sem hann tekur til máls.

Skv. honum ætti

  • Hálf þjóðin að vera orðin gjalþrota
  • Ríkð orðið gjaldþrota
  • Börnin okkar og barnabörn gjaldþrota

Svo má lesa eftirfarandi á www.pressan.is

Sigmundur Davíð Gunnlaugsson, formaður Framsóknarflokksins, segir að með samkomulagi íslenskra, breskra og hollenskra stjórnvalda um Icesave-innlánsreikningana, sé verið að taka vonina af fólkinu í landinu. Stórauknar skuldir veiki gengi krónunnar og hætt sé við stórauknum fólksfjölda úr landi.

Þetta er meðal þess sem fram kom í yfirlitsræðu formannsins á Miðstjórnarfundi Framsóknarflokksins sem nú er nýhafinn. Hann fer að þessu sinni fram í Kirkjulundi, safnaðarheimili Keflavíkurkirkju.

Sigmundur Davíð sagði að Íslendingar verði að semja um Icesave með forsvaranlegum hætti og gefa ekki eftir efnahagslegt sjálfstæði þjóðarinnar.

Og Vigdís flokksystir hans hrópar að kollegar hennar á þingi séu landráðamenn. Og allir embættismenn skv. þeim eru aumingjar. Og eins segir hún að skuldir vegna icesave séu um 1000 milljarðar. (Hún hirðir ekkert um eignir á móti)

Ég vitna í færsu mína fyrr í dag og segi:

Fékk þessa hugmynd þegar ég var að skrifa athugasemd einhverstaðar í bloggheimum:

  • Alþingi fær Icesave skuldbindingarnar til með höndlunar fljótlega.
  • Í framhaldi af því veiði skipuð samninganefnd sem skipuð verði þeim Sigmundi Davíð, Tryggva Þór og kannski Guðfríði Lilju og Þór Saari.
  • Þau ráða til sín hæfustu sérfræðinga í ESB málum eftir vild.
  • Hlutverk nefndarinnar verði að fara erlendis og ræða við samningsaðila okkar Breta og Hollendinga. ´
  • Fá þá til að fallast á rök okkar og ganga til samninga eða fyrir dómastóla eins og Sigmundur Davíð segi að við eigum að gera.
  • Eða finna dómstól sem að getur tekið þetta mál fyrir strax og allir aðilar fást til að mæta fyrir.
  • Þau koma þá væntanlega með nýjan betri samning um þetta.
  • Eins ber þeim að tryggja að allir þeir samingar eða gjörningar sem þeir gera fyrir okkar hönd hafi ekki verri áhrif hér á landi en fyrirliggjandi samningur
  • Og þar sem þeir telja þetta svo lítið mál þá gefum við þeim kannski 1 mánuð til að klára þetta.
  • Og bönnum þeim að koma heim fyrr en þessu er lokið.

Finnst reynar með afbrigðum að þessir menn telji að ekki hafi verið reynt í þessa mánuði að ná eins góðum samningum og hægt var. Finnst það að Sigmundur skauti alveg framhjá því hvað mundi gerast ef við semdum ekki við þessar þjóðir. Sigmundur er allur í því að  lán heimila, skuldir Icesave eigi bara að láta lenda á útlendingum. Eins og þetta sé ekkert mál.

Tryggvin Þór sagði þó í morgun að hann sem ráðgjafi ríkisstjórnar í október síðastliðin hafi orðið vitni að því þegar að öll 28 ríkið EES lögðust á eitt að þvínga okkur í samninga um þessi mál og útilokuðu dómstólaleiðna. Tryggvi Þór viðurkennir að það þarf að ná samningum.

Minni á að Jón Daníelsson prófessor segir að ef við semjum ekki getum við reiknað með að allar okkar eigur erlendis verði teknar upp í skuldir okkar. Sem og að okkur hefur veirð sýnt fram á að hægt er að stoppa allar okkar útflutningstekjur.


mbl.is „Fjarar undan stjórninni"
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Jón Þór Helgason

Þetta er rosaleg einföldun hjá þér.

ok búið að semja við Breta, Össur sem ætlar að gefa EU okkur á silfurfati búinn að klára það mál, notaði í það stúdetinn Svavar Gestsson.

Þú gleymir því að við eigum eftir að semja við kröfuhafa skuldabréfa sem fá ekkert uppí sínar kröfur þar sem bretarnir eru búnir að begja okkur til að nota eignir Lí til að greiða þeim.

 Samfylkinginn vill afhenda ESB okkur til að Össsur og fleyrra fólk sem fær hvergi vinnu nema í gengum klíku en ekki getu getur fengið smá mola frá Brussel til að nata í. Við fáum á meðan Naglasúpu.

kv.

Jón Þór

Jón Þór Helgason, 13.6.2009 kl. 17:35

2 identicon

Verð að viðurkenna að Sigmundur Davíð og málflutningur hans hræðir mig og það mjög mikið.  Ég ætla ekki að kalla Framsóknarflokkinn öfgaflokk.... ennþá!  Ég býð bara eftir að vilji henda öllum útlendingum út úr landinu.... eins og þú bendir á þá er a.m.k. ekki borin nein virðing fyrir peningum útlendinga.

Ég tel mig hins vegar vita af hverju hann talar svona, enda missti hann það út úr sér um daginn.  Hans eina markmið er að koma ríkisstjórninni frá.  Ekki af því að hann telji það best fyrir hagsmuni þjóðarinnar (enda erfitt að sjá að nýjar kosningar / stjórnarkreppa sé best fyrir þjóðina á þessari stundu).  Hann er að vinna fyrir allt aðra aðila, þeir eru ekki margir en þeir hafa mikla hagsmuni að verja, bæði peninga, völd og sitt frelsi (þ.e. að lenda ekki í fangelsi).  Við vitum öll hverja Framsókn berst með kjafti og klóm að vernda, og það eru ekki almenningur þessa lands. 

ASE (IP-tala skráð) 13.6.2009 kl. 17:41

3 identicon

Talandi um svartnætti: Hvað hefur Jón Daníelsson fyrir sér í því að "allar eigur Íslendinga erlendis verði gerðar upptækar" ef við höfnum nauðarsamningnum?

Ef samninganefndir Breta hafa hótað þessu, þarf sklyrðislaust að fá það gert heyrinkunnugt.

Það yrði saga til næsta bæjar ef það vitnaðist að Bretar og Hollendingar hóti okkur styrjaldaraðgerðum, ef við lútum ekki þeirra kröfum.

Það getur enginn heilvita maður samþykkt samning sem hefur orðið til með þessum hætti.

Doddi (IP-tala skráð) 13.6.2009 kl. 17:54

4 Smámynd: Magnús Helgi Björgvinsson

Jón Þór! Þú veist væntanlega að það er verið að ganga frá skiptum á bönkunum. Þar munu eignir og skuldir gömlubankana að stórum hluta lenda í Gömlu bönkunum. Og þeim skipt upp til kröfuhafa.  Nema hja´Landsbanka þar sem að neyðarlögin settu innistæður fremst í hóp kröfuhafa. Þannig að það gætu orðið læti hjá gamla landbanka vegna þessa en ekki hjá hinum bönkunm. Þar eru allar eignir undir.

Neyðarlögin gætu jú verið ástæða fyrir lögsóknum en við þennan samning þá er a.m.k. tryggt að Breska og Hollenska ríkisstjórnin fer ekki mál vegna þess.

Og svona verður þetta þar til að öllum málum hefur verið lokað. En með að neita að semja um Icesave eru líklegt að við fáum málsóknir í hundruðum vegna þess eða þúsundum. Auk þess sem að félagasamtök, fyrirtæki, sveitarfélög og fleiri sem áttur eignir á icesave mundur lögsækja okkur llka sem ekki veriður ef að samningurinn verður samþykktur.

Magnús Helgi Björgvinsson, 13.6.2009 kl. 19:41

5 identicon

Já...AUDVITAD eiga thessir flokkar...VG og Samfylkingin ad starfa saman áfram.  Mér vaeri alveg sama thótt BH kaemi inn thar líka.

SPILLINGARFLOKKURINN OG FRAMSÓKNARSPILLINGIN eiga EKKERT ERINDI VID THJÓDINA ANNAD EN AD DRAGA HANA NIDUR Í SVADID ENDANLEGA.

Thessir flokkar eru bestir í VARANLEGRI SÓTTKVÍ.  Vidbjódslegt fólk.  Drulluhalar!

Krummólutextelpepperilló (IP-tala skráð) 13.6.2009 kl. 19:59

6 identicon

Hvað er Sigmundur að sperra sig , veit hann ekki að það er Jóhanna sem ræður og Sf sem er og var í stjórn

Sveinbjörn (IP-tala skráð) 13.6.2009 kl. 23:18

7 Smámynd: Jón Þór Helgason

Magnús, þú gleymir því að með að samþykkja Icesave samninginn mun íslenska ríkið taka á sig alla áhættu að vegna skuldabéfa sem landsbankinn gaf út.  Sú upphæð er mikið hærri en nokkurntíma Isesave!

 Því eigum við  ekki að samþykkja Icesave, því að Bretarnir eru ábyrgir fyrir falli Landsbankans.  Hriðjuverkalöginn sáu til þess.

Eins er að Það verður að láta reyna að Lög ESB um innistæðutryggingar. ESB á að bera ábyrgð á sjálfum sér. En menn verða að hafa þor og líka hætta feluleiknum sem er í gangi.

Og af hverju ættu Breska Ríkið að fara í mál við okkur þegar við höfum miklu sterkara vopn á móti þeim?

Síðan ofan á allt þetta, virðist eina vinnan sem er unnin í stjórnkerrfinu snúast um ESB, ekki um að bjara landinu.

kv.

Jón Þór

Jón Þór Helgason, 14.6.2009 kl. 19:07

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Magnús Helgi Björgvinsson
Magnús Helgi Björgvinsson

Skoðanir Magga um menn og málefni í fréttunum. maggihb@gmail.com Athuga að þetta eru mínar skoðanir og þið megið bara hafa ykkar hentisemi, því ég er að nota mína.

Eldri færslur

Apríl 2024
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

Twitter

Teljari

joomla visitor

Twitter

Tenging við twitter

Um bloggið

Vettvangur Magga

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband