Leita í fréttum mbl.is

Held að þeir ættu nú líka að huga að því að ná sáttum við bæjarbúa!

Nú þegar Gunnar er að víkja úr stóli bæjarstjóra væri kannski ráð fyrir samflokksmenn hans að staldra aðeins við og skoða síðust ár og áratug sem þeir hafa verið í meirihluta hér í bæ. Það er alveg einstakt hér á landi hversu oft Kópavogur hefur farið í stríð við bæjarbúa vegna hagsmuna verktaka og fjárfesta.

  • Margra ára stríð við íbúa vegna byggðar á Lundreitnum.
  • Kársnes og hugmynd um stórskipahöfn og vöruskemmur fyrir BYKO.  Kostað áralanga baráttu íbúa þar til að stoppa það.
  • Nónhæð þar sem átti að byggja 3 til 400 íbúðir efst í götunni við leikskóla og með tilheyrandi umferðaþunga.
  • Glaðheimasvæðið þar sem Kópavogur leyfði fjárfesti að kaupa upp hesthús í stórum stíl til að fara að byggja þar allt að 35 hæða hús. Kópavogur varð svo að leysa hann út úr þessu með okurgreiðslum. Og svo allt klúðrið við að finna nýtt svæði fyrir hesthúsin sem kostaði það að Kópavogur þurfti að koma sér upp vatnsveitu til að skaffa Garðabæ vatn sem við Kópavogsbúar niðurgreiðum
  • Lindir. Þar átti Bykó að fá að byggja risahús með tilheyrandi umferðaþunga í næsta nágreini við skóla og íbúðahverfi.
  • Eins má nefna læti upp á Vatnsenda og við Elliðavatn.

Mörg fleiri svona mál. Eins má spyrja fólk sem er að hrósa þessu meirihluta fyrir frammistöðu. Af hverju eru öll gjöld hér í Kópavogi með þeim hæstu? Áttum við sem í bænum búum ekki að njóta þess í neinu a bærinn stækkað? Og ef ekki af hverju að vera að blása hann svona út?


mbl.is Fundað um eftirmann Gunnars
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Jóhannes Guðnason

Nei nei Magnús minn,þú hefur misskilið þetta eitthvað,það átti aldrei að lækka gjöld í kópavogi,elsku karlinn hann Gunnar fyrrverandi bæjarstjóri varð nú að geta borgað 49 miljónir til fyrirtækis dóttur sinnar,þó ekki væri nema fyrir hluta af vinnunni,svo þú getur ekki ætlast til að lækka gjöldin er það.???Hvernig ætti þá að borga dótturinni,ég bara spyr,??,vertu nú tillitsamur við Gunnar kallin,hann hefur nú gert svo margt gott fyrir Kópavog,að ykkur munar ekkert um það að borga smá til dótturinnar,hann á það inni hjá ykkur,hættu nú þessu röfli Magnús minn,og taktu gleðina aftur,það er að koma gott sumar. kær kveðja. konungur þjóðveganna.

Jóhannes Guðnason, 14.6.2009 kl. 19:25

2 Smámynd: Helga

Held að ykkur vanti upplýsingar....

Kynnið ykkur hvar leikskólagjöldin eru lægst....  Á höfuðborgarsvæðinu eru þau leinna ægst í Kópavogi

Kynnið ykkur kostnað vegna daggæslu í Grunnskólum......

Kynnið ykkur Hverjir riðu á vaðið með það að bjóða fyrst upp á frístundakortin á höfuðborgarsvæðinu.....  Í eitt til tvö ár var Kópavogur einn með þessa afslætti á íþrótta og tómstundaiðkun fyrir börn, sem gerði fólki kleift að bjóða börnunum sínum upp á þetta án tillits til efnahags.....

Hef heyrt að sundstaðir hér séu ódýrari..... En sel það svo sem ekki dýrara..... 

Helga , 14.6.2009 kl. 20:55

3 Smámynd: Magnús Helgi Björgvinsson

Sorry Helga er ekki að sjá það skv. könnunum.

leiksk_lar

En ég var að tala um útsvar, fasteignaskatta, vatnsgjald og fleira. Sundlaugar hafa alltaf verið í ódýrari kanntinum hér í Kópavogi. En fyrst að það er svona eftirsöknarvert að stækka sem bæjarfélag þá er skrýtið að þessir skattar og gjöld eru ódýrari í Garðabæ og Seltjarnarnesi.

Magnús Helgi Björgvinsson, 14.6.2009 kl. 21:21

4 Smámynd: Helga

Ok skil þig....  Skýring á af hverju Rvk. er svona undir held ég að sé út af því að nýju hækkanirnar eru ekki komnar inn...  Gjaldskrá fyrir leikskóla er að hækka töluvert þar í Júlí eða ágúst... þú sérð það inn á Reykjavik.is  En er það bara í Rvk og á Seltjarnarnesi sem gjöldin sem þú talar um eru minni?  Ef svo er finnst mér það ekkert skrítið, þar sem uppbygging hefur verið ENGIN á Seltjarnarnesi og frekar lítil í Garðabæ....    Ég aftur á móti bý í nýju hverfi í Kópavogi og hef notið þess hversu vel bærinn hefur byggt upp hér, skólar íþróttamannvirki þjónustukjarnar....  allt kemur um leið....Uppbyggingin í Reykjavík hefur vægast sagt verið skelfileg....  Sjáðu Sæmundarskóla í Grafarholti, hann er ENN í skúrum.... eftir mörg ár.  Sama með Norðlingaholtið og börnin í Úlfarsfellinu þurfa að þvælast í rútum á hverjum einasta degi,....  Þetta horfi ég á , auðvitað er rétt hjá þér að spá í hvort þessa uppbyggingu hafi þurft, en þú verður að athuga að þetta er FRAMTÍÐARFJÁRFESTING fyrir bæinn, sem hefur mikinn startkostnað en þar sem hverfin eru fullbyggð strax er uppbyggingarkostnað nánast LOKIÐ.... og þá er framundan betri tíð... (amk eftir kreppu....)  Ekki satt?  Startið er alltaf mikið, en ávinningurinn líka þegar vel er gert!

Kv. Helga

Helga , 14.6.2009 kl. 23:13

5 Smámynd: Magnús Helgi Björgvinsson

Sæmundarskóli átti held ég bara að vera útibú tímabundir frá Ingunarskóla og hét í upphafi Sæmundarsel og var frístundarheimili aðalleg. Ég get hinsvegar sagt þér að ég vinn í Grafarholti og þar er t.d. frábært skipulag þannig að hvergi á höfðuborgarsvæðinu hef ég séð skemmtilegra göngustígahverfi. Auk þess sem börn geta farið eftir þessum göngustígum án þess að fara nokkrusinni yfir götu. Þessir stígar liggja langt frá götunum. En í göngutúrum mínum hef ég séð að Sæmundarskóli er í byggingu núna. Minni þig á að Grafarholt lenti í því að einn banki átti nær allar lóðir þar og setti allt í stopp. Þegar ég fór að vinna þar um Jólin 2004 þá var t.d. aðeins eitt hús sem flutt var inn í í götunni hjá okkur. Öll önnur hús voru bara grunnar þar sem allt var stopp og hafði verið  nokkur ár. En svo komu bankarnir með sín lán og gatan varð öll fullbyggð á 1,5 árum.

Þetta var nú líka í Kópavogi. Þannig var dóttir mín með krökkum úr Sala og Kórahverfi í Lindarskóla. Krakkar úr Vatnsenda voru lengi í Kópavogsskóla og svo framvegis.

Ekki er ég að draga úr því að Kópavogur hefur verið duglegur að byggja en ég spyr hvar er gróðinn fyrir okkur sem þegar búum í bænum. Veist þú t.d. að við eigum vatnsveitu sem var rudd í gegnum Heiðmörk? Við látum Garðbæinga fá vatn vegna þess að Gunnar vildi byggja inn á vatnsverndarsvæði þeirra. Garðbæingar fá vatnið á mun lægra verði en við sem eigum hana?

Getur þú nefnt mér annað sveitarfélag þar sem þurft hefur að stofan íbúafélög um allan bæinn til að berjast við bæinn sem tók stríð víð íbúa vegna hagsmuna verktaka.

Ég þekki Kópavog nokkuð vel hef búið í bænum frá því 1965. Gekki í skóla hér og dætur mínar líka og önnur þeirra er í Kópavogsskóla nú. Ég man þegar bærinn var fátækur en það sem einkendi Kópavog þá var að allir kraftar bæjarins fóru í að reyna að gera vel við íbúa. Hann var jú kallaður "Félagsmálabærinn"  Gunnar býr að því að þegar hann tók við var allur efnahagur að taka kipp upp á við.  Nenni ekki að reka þá sögu hér núna.

Magnús Helgi Björgvinsson, 14.6.2009 kl. 23:41

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Magnús Helgi Björgvinsson
Magnús Helgi Björgvinsson

Skoðanir Magga um menn og málefni í fréttunum. maggihb@gmail.com Athuga að þetta eru mínar skoðanir og þið megið bara hafa ykkar hentisemi, því ég er að nota mína.

Eldri færslur

Apríl 2024
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

Twitter

Teljari

joomla visitor

Twitter

Tenging við twitter

Um bloggið

Vettvangur Magga

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband