Leita í fréttum mbl.is

Hysteria er þetta!

Ef að fólk kynnir sér þetta skjal sem verið er að vitna til þá heitir það til að byrja með ekki „Skýrsla" heldur er þetta kynningarskjal þ.e. "Briefing paper" og inntakið í því er að lögfræðistofan hefur ekki haft tíma til að skoða þetta vel og var að fá gögn í málinu fram á síðasta dag. Lögfræðistofan hvetur íslenska ríkið til að kaupa af þeim formlegt álit sem unnið væri af lögmanni þeirra. Þeir tala um að ESB tilskipandir séu ekki alltaf nákvæmlega orðaðar og því stundum opnar fyrir túlkinum. Og ekki sé alveg víst að það sé niður njörfað að innistæðutryggingar eigi að borgast. 

En þessi kynning sjálf er ekkert sem hægt er að byggja á enda stendur það neðst í skjalinu að þeir hafi ekki haft tíma til að vinna þetta neitt. 

Skv. heimasíðu þessa fyrirtækis er einn lögfræðingur hennar m.a. að  starfa með sennilega samninganefndinni við ráðgjöf því á heimasíðunni stendur um lögfræðinginn Mat Hancook:

Key Experience and Clients

  • Representing a court appointed representative respondent in the precedent setting matter of Global Trader (Europe) Limited (in liquidation).
  • Defending investors against actual and threatened proceedings by spread betting firms. 
  • Pursuing regulated firms in relation to alleged mis-selling of financial products to clients.
  • Advising on the financial consequences of the collapse of an Icelandic bank.
En að láta þetta verða að svona máli er náttúrulega út í hött og sér í lagi að vitna í Höskuld Þórhallsson sem er á einhverri vegferð ásamat Vigdísi  Hauks og að einhverju leiti Sigmundi Davíð að gera allt tortryggilegt og vonlaust.. Samninganefnd um IceSave starfaði á vegum Fjármálaráðuneytis og því er eðlilegt að samninganefndin hafi safnað gögnum þar. 
 
Og það væri hollt fyrir menn að skoða meðferð mála á Alþingi fram að deginum í dag. Aldrei höfum við heyrt að annarri eins upplýsingagjöf. 
 

 

 


mbl.is „Mér er sagt það sé til“
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Það er alveg rétt að þetta er kynningarskýrsla en ekki endanlegt lögfræðiálit.

Menn hljóta samt að spyrja sig að því hverskonar vinnubrögð það eru þegar mönnum berst skýrsla sem gefur til kynna að virt lögfræðistofa sé tilbúin að tala fyrir þeirri lagatúlkun að Íslandi beri ekki skylda til þess að greiða trygginguna þá sé það álit ekki einungis afþakkað heldur skýrslunni stungið undir stól og logið um það í þokkabót.

Það er meira hvað þessari ríkisstjórn er það mikilvægt að láta okkur borga þetta.

Hans Haraldsson (IP-tala skráð) 8.7.2009 kl. 10:17

2 identicon

Hey... vantar þér ekki vaselín?

Óþarfi að láta taka sig svona í ósmurt...

ólinn (IP-tala skráð) 8.7.2009 kl. 11:20

3 Smámynd: Ómar Bjarki Kristjánsson

Bara hlægilegt.

Sjallar og frammarar þvæla og rugla svoleiðis um þetta mál að það á eftir að fara í allar sögubækur sem kennslubokaratriði um lýðskrum.

Það sem er líka áhyggjuefni og alvarlegt er hve þingmenn sína mikla vanþekkingu á efninu.

Annað, hefur fólk almennt kíkt á skjölin á island.is ?

Eg held ekki.  Eg er alveg hissa á að æsingarbelgirnir hérna á moggablogginu skuli ekki hafa tekið sumt sem hægt er að finna þar.  (eg ætla ekki að leiðbeina þeim en eg hef nefnilega lesið öll skjölin)

Umræddir punktar eða nótublað eru nákvæmlega ekkert merkilegir viðvíkjandi skuldbindingum íslands varðandi icesave og breita akkúrat engu.

Það er bara eins og sumir fáist ekki til að skilja staðreyndir máls.  2Tómur sjóður"  kenningin var slegin útaf borðinu af því ljóst var að hún myndi aldrei halda einu né neinu og gjörsamlega tilgangslaust og algjörlega ófært að halda slíkum málflutningi uppi.

Ómar Bjarki Kristjánsson, 8.7.2009 kl. 11:55

4 Smámynd: Ómar Bjarki Kristjánsson

Ps. svo er annað áhyggjuefni hve mogginn er farinn að missa sig rosalega í stjórnrandstöðunni.  Allt fært á versta veg og gert tortryggileg.  uppsetning frétta dáldið spekúleruð og sona.  Atriði tekin úr samhengi.  Ekkert skýrt út.

Hva, er ekki meiningin að mogginn sé hlutlaus fjölmiðill ? 

Eins og ef litið er á þessa klausu í nótublaðinu í heild og samhengi.

"We have received and are considering a number of legal opinions on this point, but we understand the previous Icelandic Government never actually requested a formal UK legal opinion on this matter.

We have closely studied the Directive and the relevant case law and in our preliminary view, whilst the legal opinions from the English and Dutch Government are elegant, we are not persuaded that they are the definitive answer to this question, in particular when you look at the stated purpose of Directive.

European Directives are not always crystal clear and this one is no exception, and there are arguments either way, but we have yet to find clear-cut answers that demonstrate that there exists an obligation for Iceland to guarantee payments from the DIGF.  Therefore we believe it is vital for the Icelandic Government to instruct us to produce a definite legal opinion on this issue by a leading barrister (QC)."

Hvað er merkilegt eða veldur straumhvörfum þarna ?  Einmitt ekki neitt.

Tja, einna helst ersvo að skilja að þeir séu að bjóðast til að sýna fram á á lögfræðilegan hátt að Ísland sé skaðabótaskilt samkv. direktívinu.  Einna helst er það merkilegt.

Ómar Bjarki Kristjánsson, 8.7.2009 kl. 12:19

5 Smámynd: Magnús Helgi Björgvinsson

"Ólinn" takk fyrir hugulsemina en nei takk ég læt ekki taka mig eitt né neitt.

Magnús Helgi Björgvinsson, 8.7.2009 kl. 14:04

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Magnús Helgi Björgvinsson
Magnús Helgi Björgvinsson

Skoðanir Magga um menn og málefni í fréttunum. maggihb@gmail.com Athuga að þetta eru mínar skoðanir og þið megið bara hafa ykkar hentisemi, því ég er að nota mína.

Eldri færslur

Maí 2024
S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31  

Twitter

Teljari

joomla visitor

Twitter

Tenging við twitter

Um bloggið

Vettvangur Magga

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband