Leita í fréttum mbl.is

Jæja nú eru fleiri farnir að tala sama tungumál í þessu!

Heyri á Þór Saari sem hefur jú verið harður andstæðingur IceSave en um leið hagfræðingur að hann og fleiri eru að komast á þá skoðun að ekki beri að hafna ríkisábyrgð. Enda má segja að andstaða hans og fleiri hafi kannski kallað fram að gerðir verða eins miklir fyrirvarar við ábyrgðina eins og hægt er. Þannig tek ég undir með honum að við þurfum að hafa í samþykkt Alþingis hámark á greiðslubyrgði okkar. Hef heyrt að um 2% af landsframleiðslu væri algjört hámark. Tryggvi Þór hefur líka sagt þetta. Þetta ákvæði þarf að fara inn og tryggja að það veki  upp ákvæði um endurskoðun á lánskjörum ef að forsendur bregðast.

Þjóðir heims eru náttúrulega farnar að horfa á vandræðagang okkar með þetta mál og þetta er ekki til þess fallið að við getum fljótlega unnið okkur traust og trúverðugleika hjá öðrum þjóðum hvað þá lánastofnunum. Það væri mjög sterkt fyrir Alþingi að ná nú sátt um þetta mál með fyrirvarar leiðinni og koma fram sem einheild þegar að málið verður tekið fyrir aftur á þingi. Með því að samþykkja þetta mál eftir að bætt hefur verið í það fyrirvörum, og með miklum meirihluta þá fær heimurinn skilaboð um að við séum að sameinast við að koma okkur á skrið aftur.

Ef við höldum svona áfram eins og nú er þar sem allir véfengja aðgerðir og skoðanir annarra þá fær enginn trú á okkur í bráð.


mbl.is „Undirliggjandi tónn skýrslunnar svartsýnn“
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Jóhann Elíasson

Vandræðagangurinn með þetta mál stafar fyrst og fremst af því að samninganefnd okkar réði engan vegin við verkefnið og lét samninganefndir Breta og Hollendinga taka sig trekk í trekk í ra.......  og ekki nóg með það formaðurinn lýsti því yfir að hann hefði bara ekki nennt þessu lengur og því bara drifið samninginn af hvað sem það kostaði.  Ég get hvergi séð á máli Þórs að hann sé meðmæltur samningnum heldur þvert á móti að andstaða hans hafi styrkst, enda þarf ekki neinn hagfræðing til að sjá að það er glapræði að samþykkja ríkisábyrgð á hann.

Jóhann Elíasson, 4.8.2009 kl. 20:27

2 Smámynd: Magnús Þór Jónsson

Mæl þú manna heilastur nafni.

Þjóð sundraðra niðurrifsmanna mun ekki eignast marga aðstoðarmenn.  Við erum sigruð þjóð, sigruð af siðlausum einstaklingum sem hafa stofnað börnum okkar í skuldir til að fá Elton John til að spila í afmælinu sínu og keppa í millarallýi í Evrópu.

Við verðum að standa saman, annars verður allt farið til fjandans fljótlega!

Magnús Þór Jónsson, 4.8.2009 kl. 20:44

3 Smámynd: Sigurður Þorsteinsson

Það er ég viss um að þessi Icesave samningur hefði verið samþykktur samhljóða, ef áfengisbann hefði verið sett á samninganefndina. Þeir geta varla hafa verið með réttu ráði.

Sigurður Þorsteinsson, 4.8.2009 kl. 21:14

4 Smámynd: Sjóveikur

ég er dálítið spældur út í þig Magnús Helgi, ég hélt að þú værir svolítið töff, svona jaxl, en þú blæst bara með vindinum og leggur orð í annara munn, ég er frekar hræddur um að þú skiljir ekki þær keðjuverkanir sem eiga eftir að fylgja því að samþykkja að taka á sig greiðslur fyrir ævintýrin sem aðrir hafa leitað í á vitundar flestra né samþykkis, ævintýraferð byggða á lygum og þvættingi, prufaðu að lesa í gegnum þetta með nýjum huga og gáðu hvort þú sért nokkuð í sjálfsblekkingu, ég veit ekki, en sakar ekki að skoða aðeins uppá nýtt, ég hef svona á tilfynningunni að þú sért klókari en þú gefur þig út fyrir að vera, kanski bara þreyttur og nennir ekki að taka meira á því ? ég veit ekki Magnús minn, en gefðu þessu eina yfirferð til án þess að pæla í hvað "stjórnmálamennirnir" segja og reyndu að kíkja eftir mögulegum fallbrautum í kjölfarinu !

www.icelandicfury.com

Byltingin étur börnin sín ! lifi Byltingin !!!

kveðja, sjoveikur

Sjóveikur, 5.8.2009 kl. 04:01

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Magnús Helgi Björgvinsson
Magnús Helgi Björgvinsson

Skoðanir Magga um menn og málefni í fréttunum. maggihb@gmail.com Athuga að þetta eru mínar skoðanir og þið megið bara hafa ykkar hentisemi, því ég er að nota mína.

Eldri færslur

Maí 2024
S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31  

Twitter

Teljari

joomla visitor

Twitter

Tenging við twitter

Um bloggið

Vettvangur Magga

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband