Leita í fréttum mbl.is

Smá athugsemd varðandi þessa könnun Andríkis

Í fréttinni kemur ekki fram hvenær þessi könnun var gerð en skv. upplýsingum á Vef - Þjóðaviljanum var könnunin gerð  16. til 27. júlí. Því er kannski rétt að setja fyrirvara við þessa niðurstöðu. Því eins og málin þróast í dag er það nýjasta upphrópunin sem mótar skoðanir fólks. Og margt hefur gerst síðan 16. júlí.


mbl.is Meirihluti andvígur Icesave
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Jón Þór Helgason

Magnús, ekkert af því sem komið hefur fram frá 16 júlí eða 27 júli hefur sýnt framá að staða okkar sé að batna.

 Því miður eru Jóhanna og Steingrímur í afneitun yfir klúðri sínu.  

kv.
Jón Þór 

Jón Þór Helgason, 5.8.2009 kl. 10:08

2 identicon

Þetta er alveg rétt sem þú bendir á.  Það eru alltaf að koma fram nýjar upplýsingar um Icesave þannig að það má fastlega gera ráð fyrir því að enn fleiri séu andvígir þessum samningi í dag heldur en fyrir nokkrum vikum síðan.

En niðurstaðan er sú að í þessari könnun er afgerandi meirihluti þjóðarinnar á móti þessu, og þeim fjölgar dag frá degi. 

Jonni (IP-tala skráð) 5.8.2009 kl. 10:18

3 Smámynd: Magnús Helgi Björgvinsson

Það hefur ýmislegt gerst. Fjárlaganefnd hefur fengið fullt af gögnum en ekki kynnt þau almennilega fyrir okkur. T.d. gögn sem andmæla rökum Ragnars Hall. Bendi t.d. á þessa greinagerð sem varpar nokkru ljósi á samningaviðræðurnar við Breta og Hollendinga. Fólk er farið að trúa því að við þessa samninga hefðum við átt öll trompin og gætum bara setta fram okkar ítrustu körfur og fengið.

Og get lík bent á lesefni hér

Greinargerð um forgangsrétt innstæðutryggingasjóða í þrotabú LÍ 

Sjónarmið um forgangskröfur í þrotabú samkvæmt gildandi íslenskum lögum

Tölvupóstur frá Jan Marten

Lögfræðiálit frá P. Mathijsen

Tölvupóstur frá Gary Roberts til Indriða Þorlákssonar

Settlement agreement

Og í raun er þetta ótrúlegt magn af upplýsingum sem finna má á http://www.island.is/endurreisn/stjornvold/adgerdir-stjornvalda/samantekt-adgerda/icesave-samningurinn/skjol-vegna-icesave-samningsins/#skyrslur

Magnús Helgi Björgvinsson, 5.8.2009 kl. 10:28

4 identicon

Mjög afgerandi og marktæk könnum.

Við viljum ekki ESB ! Hinsvergar viljum við að stjórnmálamenn einbeiti sér að finna ráð til að allir Íslandingar komi út úr þessum hremmingum með reisn, en ekki kúgaðir !

Birgir Guðjónsson (IP-tala skráð) 5.8.2009 kl. 10:45

5 identicon

Magnús, það er alveg ótrúlegt hve illa þú vilt selja þjóðina fyrir draum ykkar samfylkingarmanna.

Þór (IP-tala skráð) 5.8.2009 kl. 12:26

6 Smámynd: Magnús Helgi Björgvinsson

Þór það er alveg ótrúlegt að þú viljir taka þátt í að gera tilraun sem gæti kostað okkur það að verða útskúfuð á alþjóðavettvangi. Auk þess sem við erum þegar búin að viðurkenna greiðsluskildu okkar. Það er nær enginn sem mótmælir því lengur.

Magnús Helgi Björgvinsson, 5.8.2009 kl. 12:36

7 Smámynd: Magnús Sigurðsson

Það hafa engir samþykkt þetta rugl nafni nema afdankaðir stjórnmálamenn, svo eru þeirra allra hörðustu aðdáendur til í að borga, eins og kemur fram í þessari könnun.  En í öllum bænum reynið þið ekki að koma þessu yfir á saklaust fólk þó svo að einhverjir séu orðnir smeykir um vinnuna. 

Magnús Sigurðsson, 5.8.2009 kl. 16:07

8 Smámynd: Magnús Helgi Björgvinsson

Þetta er jafn gáfulegt nafni og að segja að sveitarfélög sé ekki ábyrg fyrir skuldum sínum af því að bæjarstjórar hafi skrifað undir en ekki almenningur t.d. eins og í Kópavogi þegar að bærinn keypti hesthús fyrir milljarða af fjáfestum á okurverði til að bjarga þeim. Og hesthúsin stóðu á landi sem Kópavogur átti. Þegar stjórnvöld skrifa undir samkomulag þá er það bindandi þar sem þessi stjórnvöld hafa sitt vald í gegnum það að vera kjörnir fulltrúar.

Magnús Helgi Björgvinsson, 5.8.2009 kl. 16:33

9 Smámynd: Magnús Sigurðsson

Bendlaðu ekki bæjastjórnarmálum í Kópavogi inn í þessa umræðu, nafni.  Ef almenningu á að bera ótakmarkaða ábyrgð á Gunnari Birgissyni og Svavari Gestssyni má ég þá heldur biðja um Geira Goldfinger.

Þó svo að kjósendur í Kópavogi hafi ekki getað hugsað hálfa hugsun í gegnum tíðina, þá er óþarfi að blanda þeim ósköpum við icesave.

Magnús Sigurðsson, 6.8.2009 kl. 08:15

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Magnús Helgi Björgvinsson
Magnús Helgi Björgvinsson

Skoðanir Magga um menn og málefni í fréttunum. maggihb@gmail.com Athuga að þetta eru mínar skoðanir og þið megið bara hafa ykkar hentisemi, því ég er að nota mína.

Eldri færslur

Maí 2024
S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31  

Twitter

Teljari

joomla visitor

Twitter

Tenging við twitter

Um bloggið

Vettvangur Magga

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband