Leita í fréttum mbl.is

Bara að benda á góða grein á Silfri Egils

Á vefsvæði sínu í dag skrifa Egill Helgason m.a. um aftöku Saddams. Mér finnst það góðir punktar sem hann kemur þar með  En hann segir m.a.

 

Vísir, 30. des. 2006 21:24

Vísir, 30. des. 2006 21:24
Jónas Kristjánsson vitnaði um daginn í bókina The March of Folly eftir Barböru Tuchman. Mér hefur líka oft verið hugsað til þessarar bókar undanfarna mánuði og ekki síst í dag eftir aftöku Saddams Husseins. Tuchman skrifaði um hvernig heimska leiddi til glötunar í mörgum frægum styrjöldum fortíðarinnar, allt frá Trjóju til Víetnam. Heimskan ríður heldur ekki við einteyming í Írak. Öllu siðmenntuðu fólki býður við aftökunni og myndum af henni sem eru sýndar aftur og aftur í sjónvörpum heimsins - þessu litla herbergi, úlpuklæddum mönnum með lambúshettur sem hengja einræðisherrann gamla. Þetta var ömurlegt sjónarspil.

Þeir hreykja sér kannski hátt yfir þessu í Washington. Samkvæmt kokkabók Bush eru dauðarefsingar allra meina bót. Þar hefur líka verið eindregin tilhneiging til að persónugera stríðið með sífelldu tali um Saddam. Það var reynt að kenna honum um 11/9 og honum var jafnvel líkt við Hitler. Samt var hann sérstakur vinur Bandaríkjanna fram til 1990 - á tímanum þegar hann framdi sína verstu glæpi. Kannski vildu Bandaríkjamenn ekki að hann fengi að lifa til að segja alla sólarsöguna.

 


mbl.is Skiptar skoðanir um aftöku Saddams Hussein
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Magnús Helgi Björgvinsson
Magnús Helgi Björgvinsson

Skoðanir Magga um menn og málefni í fréttunum. maggihb@gmail.com Athuga að þetta eru mínar skoðanir og þið megið bara hafa ykkar hentisemi, því ég er að nota mína.

Eldri færslur

Maí 2025
S M Þ M F F L
        1 2 3
4 5 6 7 8 9 10
11 12 13 14 15 16 17
18 19 20 21 22 23 24
25 26 27 28 29 30 31

Twitter

Teljari

joomla visitor

Twitter

Tenging við twitter

Um bloggið

Vettvangur Magga

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband