Leita í fréttum mbl.is

Ekki þarf nú mikið til að breyta skoðun Lilju

Orð eins þingmanns og það þingmanns Verkamannaflokksins í Bretlandi og Lilja skiptir um skoðun! Og furðulegt að hún skuli undra sig á því að þingmenn innan ESB skuli tengja saman vilja okkar til aðildarviðræðna við ESB og að við þurfum að leysa deilur okkar við 2 aðildarríki ESB. Hvað mundi fólk segja innan ESB ef að ESB væri að taka inn ríki sem eiga í deilum um grundvallaratriði ESB? Held að það yrði ekki ánægja með það í ESB.
mbl.is „Þá eruð þið bara vandamál fyrir framkvæmdastjórnina“
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Jón Þór Helgason

Ef ég geri mistök sem bitnar á öðrum þarf ég að standa skil á því.

Þarf ESB ekki að taka ábyrgð á aflar lélegu innistæðukerfi?

Nei auðvitað ekki.   Þeir taka bara þakkirnar en ekki skammirnar.

Ef stóru bankarnir á bretlandi hefðu fallið þá hefði sennilega allt bankakerfi Bretlands á eftir. Ekki hefði þessi meistarasmíð ESB bjargað þeim.

með að Lilja sé fljót að skipta um skoðun vil ég segja að það er bara Samfykingarfólk sem er eins og hundar í bandi gagnvart ESB.

 Líkleg skýring að lykillmenn í flokknum er búinn að fá loforð um góða stöðu í Brussel langt frá okkar vandamálum.  Með öðrum orðum Mútur. Samanber það sem gerðist í Króatíu.

kv.

Jón Þór 

Jón Þór Helgason, 1.10.2009 kl. 09:18

2 Smámynd: Fannar frá Rifi

ætli maggi sé að fá styrki óbeint frá áróðursmálafjárlögum ESB? hvað eru það margir tugir og hundruðir milljarða króna á ári sem ESB eyðir í áróður?

Fannar frá Rifi, 1.10.2009 kl. 09:35

3 identicon

Já.. .þannig að þetta var bara cool...

Einmitt....

Ólinn (IP-tala skráð) 1.10.2009 kl. 09:36

4 Smámynd: Kári Harðarson

Stundum fær fólk svona "Aha!" augnablik.  Það þurfti ekki mikið fyrir Newton til að uppgötva þyngdaraflið, eitt epli sem datt, hermir sagan.

Lilja verður ekki minni manneskja fyrir það.

Kári Harðarson, 1.10.2009 kl. 09:48

5 identicon

"og það þingmanns Verkamannaflokksins í Bretlandi"

Er það ekki sjórnarflokkurinn í Bretlandi, sá sem ræður.  Eru það kannski hótanir frá sjórnarandstæðingum sem ber að varast, Bjarni Ben. þinn tími er víst kominn.

Þá vitum við það, ein hótun er OK, ómarktæk.  

Málið er að þetta er enn ein hótunin, ekki sú fyrsta og staðfestingin á afstöðu Breta, kannski var það þessi hótun sem fyllti mælinn.

Magnús ætlar að kaupa bíl, seljandinn byrjar á því að tilkynna Magga að hann verði tekin í karpúsið ef hann kaupir ekki bílinn á forsendum seljandans, Magnús espast upp, þetta byrjar bara vel, engin ástæða til að reyna að semja við aðra seljendur. 

Bjorn Jónasson (IP-tala skráð) 1.10.2009 kl. 10:45

6 Smámynd: Magnús Helgi Björgvinsson

Björn ég er nú bara að segja að þetta sé jafn gáfulegt og koma í fjölmiðla og segja að Norska stjórnin sé tilbúin að lána okkur 2000 milljarða af því að einhver þingmaður segir eitthvað. Breskur þingmaður þó hann sé valdamikill talar ekki fyrir bresku stjórnina né fyrir ESB

Magnús Helgi Björgvinsson, 1.10.2009 kl. 11:34

7 Smámynd: Magnús Helgi Björgvinsson

Og Fannarh. Held að ESB og Samfylkingnin mundu nú ekki fara að eyða peningum í mig. Til þess eru fleiri betri. Og ef ég fengi greitt fyrir blogg þá væri ég nú duglegri og vandvirkari.

Magnús Helgi Björgvinsson, 1.10.2009 kl. 11:37

8 identicon

Ja, það er nú ekki annað hægt en að taka undir með Fannari, svo ákafur er þessi ESB-bægslagangur í þér, Magnús Helgi.

Kolbeinn (IP-tala skráð) 1.10.2009 kl. 11:48

9 identicon

Jón Þór, það er einmitt það sem ESB gerði. Með því að viðurkenna að kerfið væri ónýtt, og í raun gagnslaust. Það sem ESB gerir í þeim tilfellum er að bæta kerfið og endurskoða reglunar. Nú þegar hefur reglunum verið breytt, og hefur sú breyting tekið gild á ESB svæðinu, en ekki hjá EES ríkjunum.

 Fannar, ertu að ganga í samsæriskenninga deildina ?

Annars er augljóst að þetta var bara afsökun hjá Lilju, ekkert annað. Í raun þá hefði hún líklega aldrei samþykkt ESB hvort sem var. Þetta er bara blaður hjá henni í fjölmiðlum og ekkert annað.

Jón Frímann (IP-tala skráð) 1.10.2009 kl. 11:58

10 Smámynd: Magnús Helgi Björgvinsson

Kolbeinn ég  er búinn að lifa hér á þessu landi í 48 ár. Og á þeim tíma hef ég með reglulegu millibili gengið í gegnum alvarlegar kreppur. M.a. þegar síldinn hvarf, þegar krónan var feld reglulega með handafli og að lokum voru tekinn af henn 2 núll svo við þyrftum ekki að fara með peninga í hjólbörum til að versla í matinn. Ég upplifði óðaverðbóguna 1980 til 91 þar sem að að ég var íbúðarkaupandi i verðbólgu sem náði að vera 100%. Síðan litlu kreppunna um 2000 og loks hrunið hér 2008. Finnst þér skrýtið að ég vilji að reyndar séu aðrar leiðir?

Magnús Helgi Björgvinsson, 1.10.2009 kl. 13:42

11 Smámynd: Magnús Helgi Björgvinsson

Og Jón Þór hérna í athugasemd 1. ESB hefur tekið ábyrgð af því. Hefur heyrt um eitthvað land annað en okkar innan EES sem hefur ekki viljað standa við innistæðutryggingar sínar?

Magnús Helgi Björgvinsson, 1.10.2009 kl. 13:43

12 identicon

Ríki ESB eru ekki laus við kreppur eða sveiflur heldur. Atvinnuleysistölur eru ekkert til að hrópa húrra yfir hjá þeim öllum. Hér hefur verið farin sú leið að halda sem flestum í vinnu á kostnað stöðuleika krónunar.

Icesave er lagalega séð ekki okkar að greiða og framganga Breta og Hollendinga er dæmi um það hver virkilega ræður í ESB. Allt tal um eitthvað vald sem við munum hafa þar er tóm þvæla.

Landið (IP-tala skráð) 1.10.2009 kl. 14:17

13 Smámynd: Magnús Helgi Björgvinsson

Þær eru samt ekki svona svakalegar eins og okkar. Minni á að krónan féll á 80 árum um 99,5% miðað við danska krónu. Og verðbólga er heldur ekki ríkjandi í ESB ríkjum. Þetta er það sem hefur verið að há okkur. Og við sem útflutningsþjóð og þjóð sem á mikið af orku ættum ekki að þurfa að standa í svona sveiflum.

Magnús Helgi Björgvinsson, 1.10.2009 kl. 14:25

14 identicon

Það hefur verið gífurleg verðbólga á stóru gjaldmiðlunum alla tíð síðan 1973. Það hægt að bera saman verð á hrávöru vs. gengi gjaldmiðla. Þá má auðveldlega lagfæra sveiflur á gjaldmiðlum svo sem að festa þá við hrávörufót. Vissulega tökum við þá allar sveiflur út í atvinnuleysi í staðinn. Fólk verður að velja og hafna.

Landið (IP-tala skráð) 1.10.2009 kl. 19:13

15 Smámynd: Magnús Helgi Björgvinsson

Já ég veit að við sterkan gjaldmiðil eins og Evran er veltur því að sveiflur koma fram í að fyrirtæki í útflutning taka á sveiflum með því að segja upp fólki og ráða. En við erum óvart í þeirri stöðu að miklar sveiflur eru ólíklegar í útflutningsiðnaði okkar. T.d. sterk fyrirtæki í áliðnaði sem eru jú með sínar tekjur og gjöld í dollara í dag. Og eins með útgerðinna að hún er í dag með sínar skuldir í erlendum myntum og tekjur líka að miklu leyti. Og því er þetta í dag ekki vandamál fyrir okkur að taka upp svona stóra mynnt.

En verðbólga í þeim löndum sem eru með t.d. evru er og hefur verið undir 5% og undir 3% á evrusvæðinu

Magnús Helgi Björgvinsson, 1.10.2009 kl. 20:06

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Magnús Helgi Björgvinsson
Magnús Helgi Björgvinsson

Skoðanir Magga um menn og málefni í fréttunum. maggihb@gmail.com Athuga að þetta eru mínar skoðanir og þið megið bara hafa ykkar hentisemi, því ég er að nota mína.

Eldri færslur

Maí 2024
S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31  

Twitter

Teljari

joomla visitor

Twitter

Tenging við twitter

Um bloggið

Vettvangur Magga

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband