Leita í fréttum mbl.is

Æi Birgir hættu þessu!

Sé ekki að Birgir Ármannsson hafi gert neitt á sínum þingferli sem gefur honum leyfi til að koma með svona yfirlætsfull ummæli um þingmenn  annarra flokka.
mbl.is Lásu þau Icesave-plöggin?
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Er Birgir ekki einn af þessum últra hægrimönnum, sem voru valdir af hruninu. Þarf hann ekki að fara að biðjast afsökunar?

Sveinn hinn Ungi (IP-tala skráð) 21.10.2009 kl. 14:27

2 Smámynd: Magnús Helgi Björgvinsson

Jú hann er eins og sést á honum einn af þeim sem hefur án nokkura kosta verið hossað upp metorðastigan í Sjálfstæðisflokknum án þess að hafa nokkuð til að bera nema að haga sér eins og menntaskólastrákur í ræðukeppni.

Magnús Helgi Björgvinsson, 21.10.2009 kl. 14:39

3 identicon

Hef litla samúð með Sjálfstæðismönnum. En er alveg búinn að fá mig fullsaddan af þessum lygalaupum í VG og S. Guðfríður Lilja fullyrti það fyrir tveim til þrem vikum síðan að ríkisstjórnin hefði samþykkt Icesave óséð. Eftir að hafa sjálfur lesið Icesave samninginn þá fullyrði ég það miðað við yfirlýsingar Steingríms og Jóhönnu sem þau létu frá sér opinberlega að þau höfðu ekki samninginn a.m.k. fyrstu dagana sem þau vörðu hann opinberlega.Svo að hafa ætlað að láta þingmenn samþyggja Icesave óséðan....KOM ON!! Svo það er von að spurt er nú: Hefur þetta fólk örugglega lesið samninginn í þetta sinn?? Allavega hef ég fullan skilning á þessari spurningu.

Helgi (IP-tala skráð) 21.10.2009 kl. 14:41

4 identicon

"...Þau höfðu ekki lesið samninginn..." átti þetta að vera....

Helgi (IP-tala skráð) 21.10.2009 kl. 14:43

5 Smámynd: Magnús Helgi Björgvinsson

Helgi bendi þér á að það eru líkur á því að aldrei reyni á þá fyrirvara sem Alþingi samþykkti því miklar líkur eru á því að við verðum búin að borga Icesave fyrir 2024. Og svo held ég að þú eins og aðrir hafir einhverja skrýtna hugmynd um samninga. Samningar eru þannig að allir verða að gefa eitthvað eftir. Bretar og Hollendingar lækkuðu kröfur sínar frá þvía ð við ættum að borga allar innistæður allra á Icesave sem var 3 til 4 þúsund miljarðar. Á endanum eru það bara innistæðutryggingar sem við þurfum að borga og við sömdum um það í október síðast liðinn. Aðeins átti eftir að semja um hvernig við borguðum þessa 660 milljaða. Um það snérist Icesave um annað var Árni Matt og Geir búnir að semja um í október 2008. Þ.e. við viðurkenndum ábyrgð okkar og lýstum því yfir að Bretar og Hollendingar borguð út Icesave bæði okkar hlut. Og gleymdu því ekki að Bretar og Hollendingar borguðu svipaða upphæð en við til þessara innistæðueigenda þvi að heildar innistæður einstaklinga voru um 1300 milljarðar.

Magnús Helgi Björgvinsson, 21.10.2009 kl. 14:49

6 Smámynd: Baldur Már Róbertsson

hann hafði það fyrir sér eitt að ríkisstjórnin las ekki fyrsta samningin þannig að þetta var þörf spurning.

http://brobba.blog.is/blog/brobba/entry/968323/

Baldur Már Róbertsson, 21.10.2009 kl. 15:09

7 Smámynd: Magnús Helgi Björgvinsson

Baldur þú veist náttúrulega betur! Það voru a.m.k. 3 ráðuneyti sem komu að upprunalega samningnum. Samninganefnd var skipuð embættismönnum úr Fjámála, viðskiptaráðuneyti og forsætisráðuneyti sem og seðlabanka. Enda eru nú líkur á að samningurinn upprunalegi dugi því allar líkur eru á að lánið verði uppgreitt án þess að reyni á atriði er snerta fyrirvara sem Alþingi setti í sumar og eru nú að mestu teknir inn í viðbótarsamning.

Magnús Helgi Björgvinsson, 21.10.2009 kl. 15:25

8 Smámynd: Ingibjörg Guðrún Magnúsdóttir

já það er nóg til að hvaða mannsbein á landinu velti þessari þörfu spurningu fyrir sér..það vill nefnilega svo til að FLESTIR íslendingar eru aldnir þannig upp að þeim er stranglega bannað að skrifa undir eitt eða neitt nema LESA vel og vandlega SMÁA letrið sérstaklega,,og sína svona mikla ,heimsku, hefði það verið kallað í minni sveit er í raun brottrekstrar fært.

Ingibjörg Guðrún Magnúsdóttir, 21.10.2009 kl. 15:25

9 Smámynd: Magnús Helgi Björgvinsson

Það má í þessu samhengi spyrja hvort að Davíð og Halldór hafi vitað undir hvað þeir voru að skirfa þegar þeir seldu bankana. Vissu þeir t.d. að þessir spekingar tóku lán á víxl sömu bönkum þega þeir keyptu þá?  Veit að aðrir en þeir sem beint eru hér að skapa sér nöfn sem álitsgjafar hafa skoðað Icesave samninginn og talið hann eins góðan og við gátum fengið miðað við aðstæður. Bendi á að Norðulöndin voru á sama tíma ekki tilbúin að lána okkur nema með 6,7% vöxtum og stífari endurgreiðslum. Eins AGS!

Magnús Helgi Björgvinsson, 21.10.2009 kl. 16:01

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Magnús Helgi Björgvinsson
Magnús Helgi Björgvinsson

Skoðanir Magga um menn og málefni í fréttunum. maggihb@gmail.com Athuga að þetta eru mínar skoðanir og þið megið bara hafa ykkar hentisemi, því ég er að nota mína.

Eldri færslur

Maí 2024
S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31  

Twitter

Teljari

joomla visitor

Twitter

Tenging við twitter

Um bloggið

Vettvangur Magga

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband