Leita í fréttum mbl.is

Ástþór telur að það sé maðkur í mysunni hjá Guðmundi Franklin og félögum.

Þó ég taki almennt ekki mark á Ástþóri Magnússyni þá verða þessir menn að svara þessu. Ef að Finnur eða S hópurinn er nálægt þessu þá held ég að margir hætti við:

Vefsíðan www.thjodarhagur.is er skráð á fjolnet.is sem er í eigu Kaupfélags Skagfirðinga bakvið það félagt er Svindl hópur Ólafs og Finns:  S-hópurinn - Skyld félög (S-hópurinn: Eignarhaldsfélagið Andvaka gt., Eignarhaldsfélagið Samvinnutryggingar, Fiskiðjan Skagfirðingur hf., Kaupfélag Skagfirðinga svf., Ker hf., Samvinnulífeyrissjóðurinn. ). Það ætti síðan ekki að koma mönnum á óvart að kaupfélagsstjórinn er Þórólfur Gíslason sem áður var stjórnarformaður Gift sem S-hópurinn notaði til að hafa 30 milljarða af tugþúsundum tryggingartaka Samvinnutrygginga.

 Svindl hópur Finns og Ólafs sölsaði undir sig Búnaðarbankann með blekkingum á sínum tíma. Ólafur Ólafsson er líklegast Íslandsmeistari í notkun leppa og sjónhverfingum viðskiptalífsins, og er m.a. nú undir lögreglurannsókn vegna sýndarviðskipta með hlutabréf Kaupthings.

Leikritið sem nú virðist komið í gang er frekar einfalt. Sett er upp vefsíðan www.thjodarhagur.is til að fá almenning til að skrá sig sem örhluthafa. Sett er fram tilboð í nafni örhluthafanna til að kaupa Haga. Kaupthing sem nú ræður Högum gengur að tilboðinu á þeim forsendum að þjóðin sé að kaupa fyrirtækið. Í Framsóknarmennskunni "gleymist" að skýra frá raunverulegum bakhjarl tilboðsins. 99% leppana fá GIFT glýjuna í augun í boði gamla Svindl hópsins meðan strengjabrúður þjófagengisins lauma þýfinu úr gamla Kaupthing aftur í umferð og Bónusmjólka þjóðina.

(http://lydveldi.blog.is/blog/lydveldi/)

Er ekkert að halda því fram að þetta sé rétt hjá honum en verð á fá svör við þessu áður en möguleiki verður á að þessir menn sem stálu af okkur banka áður fái þetta félag líka. Það er t.d. áberandi að aðeins einn maður kemur fram fyrir þennan hóp sem er að safna hluthöfum.


mbl.is Mikill áhugi á Högum
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Hólmfríður Bjarnadóttir

Ekki fannst mér þetta spennand áður en ég las þessa færslu og nú er ég komin á hælana. Vildi ekki með nokkru móti koma að þessu máli, þó ég ætti peninga í haugum. Horfði á GF í Silfrinu áðan og fékk neikvæða tilfinningu fyrir manninum og málinu.

Hólmfríður Bjarnadóttir, 15.11.2009 kl. 16:18

2 Smámynd: Vestarr Lúðvíksson

Gott hjá þér Magnús Helgi að þú ert á varðbergi. Sjálfum fannst mér Guðmund Franklin hafa margt til síns máls varðandi Haga og hugsanlegt kauptilboð í þá frá almenningi. Það er gott að vera á varðbergi ætið.

Vestarr Lúðvíksson, 15.11.2009 kl. 16:38

3 identicon

það þarf náttúrulega ekkert að lesa margar greinar hérna til að átta sig að því að það er ekkert að marka síðueigandann, gífurlega öfgafullur samfylkingarmaður og getur ekki hugsað sér að einhverjir væru vondir við elsku besta Jón Ásgeir

Það þyðir ekkert að  hafa öfgafólk með í umræðunni, fólk sem lítur allltaf bara til vinstri eða alltaf bara til hægri áður en það fer yfir götu t.d. það endar alltaf með ósköpum

Gunnar Þór Gunnarson (IP-tala skráð) 15.11.2009 kl. 19:16

4 Smámynd: Sigurjón

Alveg held ég að ég getir verið sammála Gunnari hér ofar.  Þið Samfylkingarmenn gerið ekkert rétt.

Ég stórefast um að J.G. Sullenberger vilji hafa slíka menn bak við sig ef hann ætlar að viðhalda verzlunarrekstri hér á landi.

Hins vegar er það alveg ljóst að Sammarar fylkja liði bak við Jón Ásgeir og ef spurðir, benda ávallt á að Sjallarnir hafi verið svo vondir...

Skítalið sem þetta Samfylkingarlið getur verið.

Sigurjón, 15.11.2009 kl. 19:54

5 Smámynd: Magnús Helgi Björgvinsson

Ups Gunnar! Ég er ekkert á því að Jón Ásgeir eigi að eiga eitt né neitt. Ég er hinsvegar að benda á að skv. forsvarsmanni þessa hóps sem vill kaupa Haga þá kjósa kjölfestu menn að vera nafnlausir!

Persónulega er það mín skoðun að Högum eigi að skipta upp og selja þá óskildum aðilum. 

Þannig er ég á því að það sé ekki í anda góðra viðskiptahátta að sami eigandi eigi innflutningsfyrirtæki, kjötframleiðslu og svo 3 tegundir matvöruverslana sem selja sömu vörunar á ólíkum verðum. 

Alveg ótrúlegt hvað menn eru alltaf að flækja samfylkinguna inn í þetta. Minni menn á að Samfylkingin komst ekki til valda fyrr en þetta viðskiptaveldi var orðið svona gríðarlega stórt. 

Hins vegar hlýt ég að benda á að ég held að fólk yrði ekki ánægt nú þegar við höfum óbeint tangarhald á Högum að það verði fært frá Bónusfjölskyldunni yfir til annarra manna sem sannarlega haf fengið óeðlilega fyrirgreiðslu til að eignast heilan banka og fullt af örðum fyrirtækjum. Og braskað eignum annarra í Kaupþingi og Exista. 

Og svo væri gaman að vita hvaða blogg menn geta fundið þar sem að stjórnmálaskoðanir manna endurspeglast ekki í skrifum þeirra?

Magnús Helgi Björgvinsson, 15.11.2009 kl. 20:31

6 Smámynd: Júlíus Björnsson

Persónulega er það mín skoðun að Högum eigi að skipta upp og selja þá óskildum aðilum. 

Þannig er ég á því að það sé ekki í anda góðra viðskiptahátta að sami eigandi eigi innflutningsfyrirtæki, kjötframleiðslu og svo 3 tegundir matvöruverslana sem selja sömu vörunar á ólíkum verðum. 

Þarna er við algjörlega sammála, nú þarf bara að sannfæra Ríkisstjórnarflokkanna.

Almenningur virðist alls ekki gera sér grein fyrir hvað EU lágvaran kostar áður en til Íslands er komið. Bakreikningar fákeppninnar virðast heldur ekki hafa nein áhrif á þá sem þjást af fjárólæsi.

Í Þýskalandi er sú skoðun almenn að neytendur eigi sinn markað, og þar haga einstakir aðilar ekki neyslumarkaði almennings til að uppfylla ofurfjárfestingar erlendis ef okrið kostar almenning hærra vöruverð til langframa.

Þegar verðlagning var föst miða hundraðshluta af innkaupsverði, þá var einungis það hagstæðasta og besta flutt inn, vörur oft helmingi eða meira dýrari í innkaupum, miðað við voru mönnum svo reiknaðar tekjur. Síðan var álagning gefin frjáls og þá kom fákeppni eða einokun í kjölfarið.

Þetta ber ríkistjórnum almennings á hverjum tíma að leiðrétta helst í gær.

Annars flækjast þær að sjálfsögðu í fákeppni samsærið gegn almenningi.

Ríkisstjórnir stjórni eða víki.

Júlíus Björnsson, 15.11.2009 kl. 21:05

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Magnús Helgi Björgvinsson
Magnús Helgi Björgvinsson

Skoðanir Magga um menn og málefni í fréttunum. maggihb@gmail.com Athuga að þetta eru mínar skoðanir og þið megið bara hafa ykkar hentisemi, því ég er að nota mína.

Eldri færslur

Maí 2024
S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31  

Twitter

Teljari

joomla visitor

Twitter

Tenging við twitter

Um bloggið

Vettvangur Magga

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband