Laugardagur, 2. janúar 2010
Furðuleg þjóð sem fylgir mönnum í blindni!
Er alvarlega að hugsa um það að þessa þjóð er hægt að spila með eins og ég veit ekki hvað. Þarna fer 20 manna áhugamannahópur. Honum hefur tekist að telja fólk trú um að þjóðin þurfi ekki að borga icesave þó þeir sjálfir hafi viðurkennt að þeir telji að lögin frá því í Ágúst eigi að gilda. Og þau leiða sennilega til þess að við borgum Icesave að fullu 2024.
Þannig að við borgum Icesave hvort sem þessi lög verða feld eða ekki. Reyndar líkur á miklum deilum við Breta og Hollendinga þangað til að við viðurkennum það. En þeir aftur þurfa bara að tilkynna að þeir sætti sig við fyrirvarana og þá taka lögin frá því í Ágúst gildi. En í ágúst sögðu þeir:
""InDefence hópurinn hefur ítrekað bent á galla svokallaðrar fyrirvaraleiðar Alþingis í þessu máli, en hún felur í sér samþykkt ríkisábyrgðar á greiðslum skv. lánasamningunum. Það er álit InDefence að fyrirvaraleiðin sé ekki rétt leið. Hópurinn hefur fram á síðasta dag notað öll tækifæri, fyrir fjárlaganefnd og víðar, til að benda á að þetta sé ekki rétta leiðin til að afgreiða einhliða skuldabréf. Niðurstaða þingmanna var hins vegar fyrirvaraleiðin. Hópurinn taldi í ljósi þess ábyrga afstöðu að reyna að beita sér fyrir því að slíkir fyrirvarar væru sem sterkastir, þannig að með þeim væri samningunum í raun hafnað. Því miður er það ekki raunin."
+Eg hef verið að skoða nokrar af þessum einstaklingum sem eru í Indefence á google. Þarna eru a.m.k. 2 sem eru erfðafræðingar eða frumlífræðingar. Nokkrir kennarar. Talsmaðurinn er menntaður tónlistarmaður. Jú og hinir talsmennirnir eru grunnskólakennari og lögfræðingur. Þetta eru flest fólk sem hefur útskrifast úr skólum fyrir 10 árum eða skemur.
Og enginn þeirra er með neina reynslu af deilum milli landa eða samningum milli landa. Þeir fara mjög frjálslega með útreikninga og fá allt aðrar niðurstöður en sérfræðingar innlendir og erlendir sem hafa ára og áratuga reynslu af þessum málum. Þeir túlka lög og reglur mjög frjálslega.
Þeir ræddu digurbarkalega um að við ættum ekki að greiða neitt af Icesave fram á sumar en eftir það skiptu þeir hljóðlega um stefnu og segja nú að við eigum að borga skv. fyrirvaraleiðinni sem þeir voru áður búnir að fordæma.
Og þjóðin eltir þessa menn blindandi. Trúir fagurgala þeirra og gerir engar athugsemdir. Einn þeirra sem unnu að þvi að stofna Indefence segir nú.
" Ég hef því nokkrar áhyggjur af málflutningi Indefence hópsins nýlega (er sjálfur dálítið úr tengslum við hópinn þar sem ég er aðalega í Bretlandi). Maður fær það á tilfinninguna að hópurinn sé útibú úr Framsóknarflokknum, sem hann vissulega er (var) ekki. Við megum aldrei gleyma því að bæði íslenskur og breskur almenningur
eru fórnarlömb íslenskra fjárglæframanna. .
Kæmi mér ekki á óvart þó margir indefence liðar komi til með að sjást á listum framsóknarflokksins í kosningum sem verða væntanlega í vor ef að Icesave viðaukar verða feldir í þjóðaratkvæðagreiðslu. Því þá verða hér kosningar í vor. Nema að framsókn, Sjálfstæðismenn og Hreyrfingin ásamt hluta Vg taki hér við.
Segir stjórnarþingmennina vera þrjá | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Flokkur: Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 18:47 | Facebook
Nýjustu færslur
- 22.10.2017 Nokkrar staðreyndir um skattaþróun í tíð hægristjórna
- 29.11.2016 Auðvita er leiðiinlegt að fyrirtækið skuli vera lent í þessu!...
- 7.11.2016 Á meðan að almenningur almennt á ekki kost á svona fyrirkomul...
- 6.11.2016 Garðabær er nú ekki til fyrirmyndar í málefnum þeirra sem þur...
- 1.11.2016 Halló er ekki allt í lagi á Mogganum?
- 30.10.2016 En jafnaðarmennskan hverfur ekkert!
- 29.10.2016 Hönd flokksins
- 29.10.2016 Þetta á erindi við kjósendur
Eldri færslur
- Október 2017
- Nóvember 2016
- Október 2016
- September 2016
- Ágúst 2016
- Júlí 2016
- Júní 2016
- Maí 2016
- Apríl 2016
- Mars 2016
- Febrúar 2016
- Janúar 2016
- Desember 2015
- Nóvember 2015
- Október 2015
- September 2015
- Júlí 2015
- Júní 2015
- Maí 2015
- Apríl 2015
- Mars 2015
- Febrúar 2015
- Janúar 2015
- Desember 2014
- Nóvember 2014
- Október 2014
- September 2014
- Júlí 2014
- Júní 2014
- Maí 2014
- Apríl 2014
- Mars 2014
- Febrúar 2014
- Janúar 2014
- Desember 2013
- Nóvember 2013
- Október 2013
- September 2013
- Ágúst 2013
- Júlí 2013
- Júní 2013
- Maí 2013
- Apríl 2013
- Mars 2013
- Febrúar 2013
- Janúar 2013
- Desember 2012
- Nóvember 2012
- Október 2012
- September 2012
- Ágúst 2012
- Júlí 2012
- Júní 2012
- Maí 2012
- Apríl 2012
- Mars 2012
- Febrúar 2012
- Janúar 2012
- Desember 2011
- Nóvember 2011
- Október 2011
- September 2011
- Ágúst 2011
- Júní 2011
- Maí 2011
- Apríl 2011
- Mars 2011
- Febrúar 2011
- Janúar 2011
- Desember 2010
- Nóvember 2010
- Október 2010
- September 2010
- Ágúst 2010
- Júlí 2010
- Júní 2010
- Maí 2010
- Apríl 2010
- Mars 2010
- Febrúar 2010
- Janúar 2010
- Desember 2009
- Nóvember 2009
- Október 2009
- September 2009
- Ágúst 2009
- Júlí 2009
- Júní 2009
- Maí 2009
- Apríl 2009
- Mars 2009
- Febrúar 2009
- Janúar 2009
- Desember 2008
- Nóvember 2008
- Október 2008
- September 2008
- Ágúst 2008
- Júlí 2008
- Júní 2008
- Maí 2008
- Apríl 2008
- Mars 2008
- Febrúar 2008
- Janúar 2008
- Desember 2007
- Nóvember 2007
- Október 2007
- September 2007
- Ágúst 2007
- Júlí 2007
- Júní 2007
- Maí 2007
- Apríl 2007
- Mars 2007
- Febrúar 2007
- Janúar 2007
- Desember 2006
- Nóvember 2006
- Október 2006
- September 2006
- Júlí 2006
- Júní 2006
- Maí 2006
- Apríl 2006
- Mars 2006
- Febrúar 2006
Tenglar
ESB
Samfylkingin
Maggi B er flokksbundinn samfylkingarmaður í Samfylkingarfélaginu í Kópavogi
Teljari
Tenging við twitter
Um bloggið
Vettvangur Magga
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (21.11.): 0
- Sl. sólarhring: 1
- Sl. viku: 17
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku: 16
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
RSS-straumar
RSS
Hvað er nýtt
RUV
- Augnablik - sæki gögn...
DV
- Augnablik - sæki gögn...
Visir.is
- Augnablik - sæki gögn...
Pressan
- Augnablik - sæki gögn...
Pressan Kaffistofa
- Augnablik - sæki gögn...
Af Eyjunni fréttir
- Augnablik - sæki gögn...
Bloggvinir
- Ingibjörg Hinriksdóttir
- Guðni Már Henningsson
- Kristbjörg Þórisdóttir
- Kristbjörg Þórisdóttir
- Samfylkingin Norðvesturkjördæmi
- Gísli Tryggvason
- Guðríður Arnardóttir
- Guðmundur Magnússon
- Hlynur Hallsson
- Kristján Pétursson
- Vefritid
- Bjarni Harðarson
- Davíð
- Ólöf Ýrr Atladóttir
- Björn Benedikt Guðnason
- Sigurlín Margrét Sigurðardóttir
- Egill Rúnar Sigurðsson
- Hlynur Halldórsson
- Tómas Þóroddsson
- Adda bloggar
- Killer Joe
- Tíðarandinn.is
- Þórður Steinn Guðmunds
- Kolbrún Jónsdóttir
- íd
- Haukur Nikulásson
- Hrannar Björn Arnarsson
- Sigfús Þ. Sigmundsson
- Bleika Eldingin
- Sigurður Sigurðsson
- Inga Lára Helgadóttir
- Björn Emil Traustason
- Brosveitan - Pétur Reynisson
- Björn Heiðdal
- krossgata
- Þröstur Friðþjófsson.
- S. Lúther Gestsson
- Sigurjón Sigurðsson
- Guðrún Helgadóttir
- Jón Ragnar Björnsson
- gudni.is
- Jakob Falur Kristinsson
- Sæþór Helgi Jensson
- Bergþóra Árnadóttir - RIP 15.2.48 - 8.3.07
- Félag Ungra Frjálslyndra
- Alfreð Símonarson
- Hlekkur
- Þorsteinn Briem
- Jonni
- Torfusamtökin
- Gulli litli
- Sigurður Sigurðsson
- Helena Sigurbergsdóttir
- Elías Stefáns.
- viddi
- Oddrún
- Jón Gunnar Bjarkan
- Heimir Eyvindarson
- Himmalingur
- Eygló
- Hólmfríður Bjarnadóttir
- Axel Jóhann Hallgrímsson
- Ólafur Ingólfsson
- Rúnar Þór Þórarinsson
- Styrmir Reynisson
- Helga Kristjánsdóttir
- Sæmundur Bjarnason
- Ingimundur Bergmann
- Loftslag.is
- Kjartan Jónsson
- Brattur
- Gunnar Helgi Eysteinsson
- Högni Snær Hauksson
- Jack Daniel's
- Kama Sutra
- Magnús Ragnar (Maggi Raggi).
- Ómar Bjarki Smárason
- Stefán Júlíusson
Athugasemdir
Vel mælt Magnús, þessi hópur hefur lyktað af Jack MAgnet frá byrjun.
Afar óábyrgur og lélegur málaflutningur.
Fólk sem styður þetta telur að við séum að fara að sleppa, það er heimskan í þessu öllu.
Okkur langar svo að sleppa.
Einhver Ágúst, 2.1.2010 kl. 18:15
Furðuleg þjóð segir þú, sem fylgir mönnum í blindni (sem ég tel nú reyndar ekki vera málið, kannski er þetta fólk bara vel upplýst og hefur kynnt sér staðreyndir málsins!). Furðuleg ríkisstjórn segi ég! Ríkisstjórn sem fékk kosningu út á þær yfirlýsingar að ætla að vera rödd fólksins, færa valdið meira til fólksins, hafa allt uppi á borðinu og leggja áherslu á þjóðaratkvæðagreiðslur um hin ýmsu málefni. Lagði þessi ríkisstjórn síðan allt á borðið, þurfti ekki pressu frá fjölmiðlum til að fá fram ýmis gögn í þessu máli? Hvernig greiddi síðan þessi ríkisstjórn atkvæði við tillögu um að þett mál yrði sett í þjóðaratkvæði? NEI var þeirra svar. Afar skrítið, svo ég taki nú bara vægt til orða og í engu samhengi við þeirra fyrri yfirlýsingar!! Málflutningur þinn hér ber mikinn vott um fáfræði á bæði málefninu og mönnum. Tilvitnanir eru að auki slitnar úr öllu samhengi. Ég hef þá stefnu sjálf að bera virðingu fyrir skoðunum annarra og get rætt mismunandi skoðanir málefnalega og hlustað á rök. Um leið leyfi ég mér að fyrirlíta þegar fólk leyfir sér að nota tilvitnanir á þennan hátt og fjalla svona ranglega um málefni og einstaklinga með að því er virðist þann eina tilgang að koma inn ranghugmyndum hjá fólki.
Esther Anna Jóhannsdóttir, 2.1.2010 kl. 21:21
Og Ester hvað gerði þessir ríkisstjórn fyrir kosningar þegar hún var minnihlutastjórn. Hún barðist fyrir því að breyta stjórnarskránni. M.a. að auðlindir yrðu í eigu þjóðarinnar, bindandi þjóðarakvæðagreiðslu og hverjir stoppuðu það. Jú Sjálfstæðismenn sem væntanlega taka þá við eftir að þjóðin hefur fellt viðaukasamninginn. Helgi Áss Grétarsson sem var einn af talsmönnum Indefence vann að þessum samningu við Breta og telur að hann sé það skásta sem var hægt að fá úr úr þessu.
Nú í dag telja um helmingur þeirra sem er að fara fram á að Forsetinn hafin þessu að þar með þurfum við ekkert að greiða af Icesave. Allir búnir að gleyma því að lög voru samþykkt 28 ágúst um fyrirvara. Sem Bretar og Hollendingar þurfa bara að senda okkur samþykkt á til að taki gildi. Og þar þurfum við að greiða jafn mikið af þessum skuldum og við mundum gera skv. þessu nýju lögum nema að við gætum lent í deilum aftur 2024 vegna hugsanlegra eftirstöðva sem þó fáir halda að verð nokkrar.
Síðan sé ég ekki hvað þú átt við með tilvitnanir sem slitnar eru úr samhengi. Þessar tilvitnanir eru úr skjali sem Indefence sendi Alþingi 27. ágúst þegar þeir töldu fyrrvaraleiðiinni allt til foráttu og hin tilvinuni er úr bréfi Guðmundar Auðunssona sem hann birti á síðu Egils Helgasonar.
Og síðan bendi ég þér á að svona breytingar á fólknum samningi er svo lagatæknilegs eðlis að gögn sem fólk þarf að kynna sér nema þúsundum bls. til að geta mynað sér upplýsta skoðun.
En eins og oft áður þá finnst Íslendingum bara best að rjúka á þá sem boða auðveldu lausninar sem koma okkur svo í vanda.
Heldur þú að Steingrímur og Jóhanna hafi talað fyrir þessum samningum af gamni sínu? Heldur þú að þau hafi eytt hundruðum milljóna í þjónust stærstu lögræðisofa Breta til að bara gera einhvern lásý samning? Ríkið hefur aðallega stuðst við 2 af tíu stærstu löfræðistofum Bretlands, allar lögfræðinga og hagfræðing Seðalbankans, fjármálará - utanríkisráðuneytis og miklu fleiri. Samningamenn okkra voru allra reyndustu menn okkar í milliríkjasamningum. VIð notuðum öll okkar tengsl í alþjóðasamfélaginu til að semja við Breta og Hollendinga. Þetta eru kjörin sem náðurst. Heldur þú að ef að við gætum unnið þetta stríð að Bæði Steingrímur og Jóhanna hefðu ekki vilja klára sinn feril á því að sigar það? Það er óvart að okkar túlkun á málunum á ekki hljómgrunn neinstaðar. Skjalið inn á wikileaks sýndi það að Evrópuþjóðir voru undrandi á afstöðu okkar og þeirra lagasérfræðingar voru okkur bara ósammála.
Halda menn að stjórnarflokkarnir vilji verða óvinnsælir og ganga gegn skoðanakönnum? Nei gott fólk þetta er afstaða sem er tekin af vel ígrunduðu máli. Hef t.d. heyrt að samkomlag við Hollendinga sem gert var 8 okt 2008 hafi gert það að verkum að allur okkar málstaður var mótaður þá. Og síðan þó að sett væru Brusselviðmið þá sögðu þau ekkert um að málið væri núllstillt heldur aðeins að greiðslukjör ættu að miðast við að við réðum við þau.
Magnús Helgi Björgvinsson, 2.1.2010 kl. 22:16
Það eru nú varla nema 20 manna hópur sem á meirihluta í Samfylkingu og VG.
Hinir s.k. flokksmenn fylgja eigendunum í blindni. Sé t.d. þessa flokka aldrei boða til nokkurra funda meðal flokksmanna um nokkurt mál sem flokkseigendurnir standa fyrir í það og það sinnið ?
Einar Guðjónsson, 3.1.2010 kl. 12:21
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.