Bloggfærslur mánaðarins, desember 2007
Laugardagur, 29. desember 2007
Áramótakveðja
Fimmtudagur, 27. desember 2007
Björólfur Thor er klár
Fór eftir Kastljós í kvöld að velta fyrir mér af hverju að ég mundi ekki eftir Björgólfi Thor á lista yfir hæstu skattgreiðendur. Því þarna var hann m.a. að tala um að hann hefði hagnast gríðarlega á sölu Búlgarska símanum. Þannig ég reiknaði með að hann hefði á síðasta ári haft líka gríðarlegar tekjur. EN viti menn hann var ekki að finna þar. Mig rámar í að hann greiði sína skatta erlendis. Klár karl:
Frétt af ruv.is
Hreiðar Már Sigurðsson, forstjóri Kaupþings, er skattakóngur Íslands. Hann greiðir rúmlega 400 miljónir króna í opinber gjöld. Þrír hæstu greiðendur opinberra gjalda hér á landi eru búsettir í umdæmi skattstjórans í Reykjavík.
Í umdæmi Skattstjórans í Reykjavík voru opinber gjöld ríflega 80 miljarðar. Hreiðar Már Sigurðsson trónir þar á toppnum með 400 miljónir. Hann greiddi í fyrra 110 miljónir króna og var þá í þriðja sæti yfir íslenska skattgreiðendur. Í öðru sæti er Hannes Smárason, forstjóri FL Group, með tæpar 377 miljónir og í þriðja sæti Ingunn Wernersdóttir fjárfestir með 288 miljónir. Þau þrjú eru einnig efst yfir landið allt. Langt bil er síðan í þann sem er í fjórða sæti, Eirík Kristján Guðnason, en hann greiðir 106 miljónir og í fimmta sæti er Guðmundur Ingi Jónsson með 88 miljónir.
En þó finnst manni skýringar hans á af hverju að við eigum að sleppa því að ganga í ESB en taka bara upp gjaldmiðil að eigin vali nokkuð ódýrar. Hann talar um að forðast reglugerðarfarganið í ESB. Og þegar hann skýrði það betur þá var það frelsi fyrirtækjanna. Og þegar menn segja svona þá hugsa ég alltaf "Já holur til að sleppa við að fara að almennum reglum" T.d. eins og færa allar eignir sínar eins lands vegna skatta þar. Stofna annað í öðru landi til að sleppa við að greiða söluskatt.
Ég er farinn að halda að á endanum greiði engin fyrirtæki hér skatt eða eigendur þeirra.
Viðskiptablöð veita viðurkenningar | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Miðvikudagur, 26. desember 2007
Jólahugvekja Magga B
Ég er og hef verið síðustu áratugina. Og með því að fylgjast með um ræðu um trú þessa dag hef ég algjörlega samfærst um að leið mín og kristinnar trúar á ekki saman. Þetta á reyndar við um flest og í raun öll trúarbrögð sem ég þekki eða hef heyrt af.
Mér er það lífsins ómögulegt að skilja nokkur megin atriði í kristinni trú:
- Guð er almáttugur: Og hann skapaði heiminn og manninn í sinni mynd. Og hefur síðan með einni undantekningu horft upp á allar þær hörmungar sem hafa dunið yfir manninum. Jafnt trúuðum sem þeim sem trúa ekki á Guð. Hann sendi son sinn til jarðar til að boða manninum kærleik og taka á sig syndir manna. En mér finnst það lélegur árangur því að heimurinn hefur andskotans ekkert batnað síðan að Jesús var og hét.
- Allar þær túlkanir sem hafa verið á því hvað Guð og Jesú eiga að hafa sagt og meint. Þannig byggjum við hér á landi á túlkunum Lúters frá því á 15 öld. Kaþólikkar byggja á trú sem hefur í veigamiklum atriðum breyst á síðustu öldum.
- Fjöldi kirkjudeilda hver með sína skýringu á biblíunni.
- Gamlatextamennið sem flestir sagnfræðingar eru sammála um að séu að stórumhluta saman safn flökku - og þjóðsagna sem er raðað saman til að mynda eina heild.
- Furðulegt hversu Guð hin almáttugi skipti gjörsamlega um skoðun þarna fyrir 2007 árum og umturnaði öllu sem hann hafði áður sagt.
- Furðulegt að kristnir líta á Ísrael sem fyrirheitnalandið sem lifir af heimsendi sem allir bíða eftir. EN það er bara alls ekki kristið land. Og hagar sé bara alls ekki sem slíkt.
- Þá finnst mér furðulegt miðað við að Guð sé almáttugur að hann skuli drita kraftaverkum svona hér og þar en lætur síðan foreldra deyja frá ungum börnum og ung börn veikjast og kveljast og jafnvel deyja.
- Held að trúarbrögð sé tæki fólks sem getur ekki sætt sig við að við fæðumst lifum og deyjum og síðan ekki meira.
- Sé ekki að trúarbrögð skili fólki betri heilsu, meira langlífi, betra lifi en þeirra trúlausu.
- Ég til að menn sem eru á sæmilegum launum frá ríkinu og rukka svo aukalega fyrir alla þjónustu við fólk auk þess sem þeir eru menntaðir í skóla með styrkum frá ríkinu, geti ekki verið þeir fulltrúar Guðs sem lýst er í Biblíunni.
Þetta eru bara nokkur atrið sem eru að veltast fyrir mér. Nú ber þess þó að geta að ég hef ekki sagt mig úr þjóðkirkjunni, börnin mín eru skírð og dóttir mín er fermd og hin gerir það líklega líka. Því ég vill ekki taka ákvörðun fyrir þær. Þær geta síðan sagt sig úr kirkjunni síðar. Ég kem til með að gera það þegar ég finn gjöldum mínum betri farveg. T.d. ef þau mundu ganga til hjáparstarfs. Vill ekki borga til HÍ sérstaklega.
Jam þetta var Jólahugvekja mín.
Gleðileg JólStjórnmál og samfélag | Breytt 27.12.2007 kl. 14:43 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
Föstudagur, 21. desember 2007
Gleðileg Jól!
Föstudagur, 21. desember 2007
Alveg er þetta stórmerkilegt!
Árni M. Mathiesen, sem var settur dómsmálaráðherra í málinu, sagðist hins vegar vera ósammála niðurstöðu nefndarinnar.
Svona getur maður menntaður sem dýralæknir gert lítið úr þekkingu og reynslu lögfræðinga og dómara sem voru í þessari matsnefnd. Þeir bara skv. honum vita bara ekkert um þessi mál og hann veit betur.
Gagnrýna skipun í dómaraembætti | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Þriðjudagur, 18. desember 2007
Óperuhús samþykkt í Kópavogi
Var að lesa á bloggi oddvita Samfylkingarinnar í Kópavogi að það var samþykkt einróma í Bæjarstjórn Kópavogs að skaffa lóð undir Óperuhús í Kópavogi. Ég hef ekki verið talsmaður þess að þetta hús kæmi a.m.k. ekki á þann stað sem rætt hefur verið um en það er á reit fyrir neðan Kópavogskirkju í klesst við Borgarholtið. Mér finnst að að hús af þessari stærð rýri þetta svæði og skemmi enn frekar þennan fallega reit sem þar er. Nú veit ég ekki hvort að húsið er endanlega ákveðið þarna en óttast það.
Þá er á blogginu hennar Guðríðar vitnað í skýrslu frá Nordica ráðgjöfehf þar sem sett er fram áætlun sem gerir ráð fyrir frá 140.000 gestum í húsið til um 260 þúsund gestum. Miðað við að húsið á að taka um 800 manns í sæti minnir mig finnst mér þetta nokkuð mikil bjartsýni. Því að 260 þúsund gestir þýðir að húsið er fyllt 360 sinnum á ári. Held að það sé nú full mikil bjartsýni.
En segjum svo að það heppnist sem að ofan er reyfað þ.e. að alla daga sé húsið fullt a.m.k. 1x það þýðir að um 600 bílar þurfa að komast fyrir þarna vegna þessa húss. En þarna á sama svæði er líka Salurinn sem tekur um 300 manns í sæti og þar bætast við 150 til 200 bílar. Þá er þarna stórt bókasafn sem þarf a.m.k. pláss fyrir 20 til 30 bíla heldur maður. Ekki nóg með það heldur er þarna líka Gerðarsafn þar sem haldnar eru listsýningar og þangað koma gestir líka hundruðum saman. Því má ætla að þegar allir staðirnir eru í gangi í einu verði þarna á annað þúsundi bílar sem þurfa að komast til og frá og fá stæði. Og þá er komið að því að þarna er bara ein leið fyrir fólk að fara sem kemur frá Reykjavík. Og það er óvart sama leið og þúsundir Kópavogsbúa þurfa að nota til að komast heim til sín. M.a. þarf ég að fara þarna um oft á dag. Mér óar við þessu og vona heitt og inilega að annar staður verði fundin fyrir þetta hús.
Það kom mér líka á óvart að á bæjarstjórnarfundi kom fram að ríki og Íslenska Óperan ætla að ábyrgjast rekstur hússins. Hef ekki heyrt þetta nefnt t.d. á Alþingi. Rekstur svona hús kostar væntanlega hundruð milljóna á ári. Hefði haldið að svona skuldbinding væri tilkynnt opinberlega frá ráðherra.
Ég hef haldið því fram að vegna takmarkaðs markaðar þrífist svona hús varla þegar tónlistarhúsið er líka komið við höfnina í Reykjavík.
Mánudagur, 17. desember 2007
Það kaupir nátturulega enginn þessar skýringar.
Ekkert athugavert við félag | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 22:41 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Sunnudagur, 16. desember 2007
Og hvaðan fær LV þessa 8 milljarða? - og hvernig þjónar þetta hagsmunum okkar?
Ég furða mig á því að fyrirtæki eingöngu í eigu okkar [þjóðarinnar] skuli án nokkrar umræðu geta bara farið af stað og stofnað dótturfélag og sett í það 8 milljarða.
- Hefði haldið að það þyrfti að sýna fram á að hagur okkar sem eigum fyrirtækið mundi batna við þetta. Ekki held ég að það lækki orkureikninga einstaklinga þegar að allur hagnaður er settur í etthvert fyrirtæki sem ætlar að vinna verk erlendis. Sé ekki að þau skili hagnaði fyrir en eftir áratugi í fyrsta lagi.
- Hefur verið talað um fjárfestingar í þessum geira séu áhættufjárfestingar. Og það er nokkuð ljóst að við nýtum ekki orku eða annað frá þessum fjárfestingum erlendis.
- Ef að tap verður af þessum fjárfestingum verður því óhjákvæmilega velt út í verðlag á rafmagni til okkar sem rekum heimili og lítil fyrirtæki. Stóru notendur rafmagns hér á landi eru með samninga um ákveðið verð áratuga fram í tímann.
- Ef að vel gengur þá verður þetta væntanlega selt til einkaaðila.
Mér finnst að fyrirtæki sem eru í eigu ríkis og sveitarfélaga og eru stofnuð til að tryggja fólki vörur, orku eða þjónustu hafi bara ekki leyfi til að gera svona án nokkrar umræðu.
Held að þetta sé leikur í fléttu til að einkavæða jafnvel eindavinavæða LV í hlutum.
Landsvirkjun hefur útrás | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 21:41 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
Laugardagur, 15. desember 2007
ÖÞÍ eða EGÍ
Kynning fyrir starfshóp utanríkisráðherra um hættumat "
Þar sem hann var að kynna fyrir nefnd sem utanríkisráðherra skipaði sem til að vinna hættumat og tillögur um samskipti Íslands og annarra Nató ríkja um t.d. Ratsjárstöðvar.
En sem sagt ég var að lesa þessa kynningu Björns og það er ýmislegt sem stakk mig m.a. þessi texti sérstaklega undirstrikaði hlutinn.
Öryggisþjónusta eftirgrennslan:
Með nýrri öryggisþjónustu eða eftirgrennslanadeild yrði unnt að efla samstarf við önnur ríki um skipti á trúnaðarupplýsingum og við forvirkar rannsóknir og tryggja betur en nú er þátttöku Íslands í samstarfi Evrópusambandsins (ESB) í baráttu þess gegn hryðjuverkum
m.a. í samstarfi við aðgerðamiðstöð ESB í Brussel og samtök landsbundinna öryggisþjónustustofnana aðildarríkja Evrópusambandsins, Noregs og Sviss.Í nýrri skýrslu ríkisendurskoðunar um ráðstafanir gegn ólöglegum innflutningi fíkniefna segir (bls. 21): Svigrúm yfirvalda til að stunda sértæka eftirgrennslan er takmarkað ef þau hafa ekki heimildir til að beita svokölluðum forvirkum rannsóknaraðferðum (e. proactive investigation). Hafi yfirvöld slíkar heimildir mega þau fylgjast með og safna upplýsingum um einstaklinga jafnvel þótt ekki liggi fyrir rökstuddur grunur um brot. Erlendis eru slíkar heimildir yfirleitt bundnar við tilteknar löggæslustofnanir sem háðar eru sérstöku eftirliti."
Síðan er þessi orðaleikur fáránlegur því þarna er verið að tala um ekta leyniþjónustu vantar bara að þarna séu tilgreind verk erlendis. En ofan á þetta er nú þegar komin greiningrdeild með víðtækar heimildir. Spuening hvort þetta verður kallað ÖÞÍ eða EGÍ (sbr.öryggisþjónustu eða eftirgrennslanadeild )
Auk þess hafa verið fréttir um að kaupa nú á næstunni 4 ökutæki sér útbúinn til að nota í viðbrögðum við óeirðum. Þá á að skipa hér 240 manna varalið sem á að vopna og er í raun og veru lítill her.
Miðað við hverning lögregla hefur brugðist við hér síðustu ár þegar einhver hefur reynt að mótmæla, þá bíð ég ekki í það þegar lögreglan verður komin með þessi tæki og tól.
En sérstaklega finnst mér það óhuganlegt að einhverjum sé gefið leyfi til að safna upplýsingum um okkur án þess að við höfum neitt til saka unnið. Ísland er lítið land og þó að að þessir væntanlegu leyniþjónustumenn verði bundnir trúnaði þá hafa upplýsingar nú oft lekið hér á landi.
Við gætum t.d. séð fyrir okkur að sonur einhvers sem þarna starfar kynnist stúlku. Faðir eða móðir sem þar starfar gæti sem best farið í þessar skrár og séð eitthvað um þessa stúlku og eða fjölskyldu hennar. Og sagt syninum að passa sig eða slíta sambandinu. Hann gerir það og til að skýra þetta fyrir vinum sínum þá segir hann frá þessum upplýsingum. Þannig væru svona upplýsingar fljótar að komast á kreik.
Stjórnmál og samfélag | Breytt 16.12.2007 kl. 01:01 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (3)
Föstudagur, 14. desember 2007
Rokrassgat!!!!!
Áfram annríki vegna veðurs | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Nýjustu færslur
- 22.10.2017 Nokkrar staðreyndir um skattaþróun í tíð hægristjórna
- 29.11.2016 Auðvita er leiðiinlegt að fyrirtækið skuli vera lent í þessu!...
- 7.11.2016 Á meðan að almenningur almennt á ekki kost á svona fyrirkomul...
- 6.11.2016 Garðabær er nú ekki til fyrirmyndar í málefnum þeirra sem þur...
- 1.11.2016 Halló er ekki allt í lagi á Mogganum?
- 30.10.2016 En jafnaðarmennskan hverfur ekkert!
- 29.10.2016 Hönd flokksins
- 29.10.2016 Þetta á erindi við kjósendur
Eldri færslur
- Október 2017
- Nóvember 2016
- Október 2016
- September 2016
- Ágúst 2016
- Júlí 2016
- Júní 2016
- Maí 2016
- Apríl 2016
- Mars 2016
- Febrúar 2016
- Janúar 2016
- Desember 2015
- Nóvember 2015
- Október 2015
- September 2015
- Júlí 2015
- Júní 2015
- Maí 2015
- Apríl 2015
- Mars 2015
- Febrúar 2015
- Janúar 2015
- Desember 2014
- Nóvember 2014
- Október 2014
- September 2014
- Júlí 2014
- Júní 2014
- Maí 2014
- Apríl 2014
- Mars 2014
- Febrúar 2014
- Janúar 2014
- Desember 2013
- Nóvember 2013
- Október 2013
- September 2013
- Ágúst 2013
- Júlí 2013
- Júní 2013
- Maí 2013
- Apríl 2013
- Mars 2013
- Febrúar 2013
- Janúar 2013
- Desember 2012
- Nóvember 2012
- Október 2012
- September 2012
- Ágúst 2012
- Júlí 2012
- Júní 2012
- Maí 2012
- Apríl 2012
- Mars 2012
- Febrúar 2012
- Janúar 2012
- Desember 2011
- Nóvember 2011
- Október 2011
- September 2011
- Ágúst 2011
- Júní 2011
- Maí 2011
- Apríl 2011
- Mars 2011
- Febrúar 2011
- Janúar 2011
- Desember 2010
- Nóvember 2010
- Október 2010
- September 2010
- Ágúst 2010
- Júlí 2010
- Júní 2010
- Maí 2010
- Apríl 2010
- Mars 2010
- Febrúar 2010
- Janúar 2010
- Desember 2009
- Nóvember 2009
- Október 2009
- September 2009
- Ágúst 2009
- Júlí 2009
- Júní 2009
- Maí 2009
- Apríl 2009
- Mars 2009
- Febrúar 2009
- Janúar 2009
- Desember 2008
- Nóvember 2008
- Október 2008
- September 2008
- Ágúst 2008
- Júlí 2008
- Júní 2008
- Maí 2008
- Apríl 2008
- Mars 2008
- Febrúar 2008
- Janúar 2008
- Desember 2007
- Nóvember 2007
- Október 2007
- September 2007
- Ágúst 2007
- Júlí 2007
- Júní 2007
- Maí 2007
- Apríl 2007
- Mars 2007
- Febrúar 2007
- Janúar 2007
- Desember 2006
- Nóvember 2006
- Október 2006
- September 2006
- Júlí 2006
- Júní 2006
- Maí 2006
- Apríl 2006
- Mars 2006
- Febrúar 2006
Tenglar
ESB
Samfylkingin
Maggi B er flokksbundinn samfylkingarmaður í Samfylkingarfélaginu í Kópavogi
Teljari
Tenging við twitter
Um bloggið
Vettvangur Magga
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (22.1.): 3
- Sl. sólarhring: 6
- Sl. viku: 53
- Frá upphafi: 969573
Annað
- Innlit í dag: 3
- Innlit sl. viku: 51
- Gestir í dag: 3
- IP-tölur í dag: 3
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
RSS-straumar
RSS
Hvað er nýtt
RUV
- Augnablik - sæki gögn...
DV
- Augnablik - sæki gögn...
Visir.is
- Augnablik - sæki gögn...
Pressan
- Augnablik - sæki gögn...
Pressan Kaffistofa
- Augnablik - sæki gögn...
Af Eyjunni fréttir
- Augnablik - sæki gögn...
Bloggvinir
- Ingibjörg Hinriksdóttir
- Guðni Már Henningsson
- Kristbjörg Þórisdóttir
- Kristbjörg Þórisdóttir
- Samfylkingin Norðvesturkjördæmi
- Gísli Tryggvason
- Guðríður Arnardóttir
- Guðmundur Magnússon
- Hlynur Hallsson
- Kristján Pétursson
- Vefritid
- Bjarni Harðarson
- Davíð
- Ólöf Ýrr Atladóttir
- Björn Benedikt Guðnason
- Sigurlín Margrét Sigurðardóttir
- Egill Rúnar Sigurðsson
- Hlynur Halldórsson
- Tómas Þóroddsson
- Adda bloggar
- Killer Joe
- Tíðarandinn.is
- Þórður Steinn Guðmunds
- Kolbrún Jónsdóttir
- íd
- Haukur Nikulásson
- Hrannar Björn Arnarsson
- Sigfús Þ. Sigmundsson
- Bleika Eldingin
- Sigurður Sigurðsson
- Inga Lára Helgadóttir
- Björn Emil Traustason
- Brosveitan - Pétur Reynisson
- Björn Heiðdal
- krossgata
- Þröstur Friðþjófsson.
- S. Lúther Gestsson
- Sigurjón Sigurðsson
- Guðrún Helgadóttir
- Jón Ragnar Björnsson
- gudni.is
- Jakob Falur Kristinsson
- Sæþór Helgi Jensson
- Bergþóra Árnadóttir - RIP 15.2.48 - 8.3.07
- Félag Ungra Frjálslyndra
- Alfreð Símonarson
- Hlekkur
- Þorsteinn Briem
- Jonni
- Torfusamtökin
- Gulli litli
- Sigurður Sigurðsson
- Helena Sigurbergsdóttir
- Elías Stefáns.
- viddi
- Oddrún
- Jón Gunnar Bjarkan
- Heimir Eyvindarson
- Himmalingur
- Eygló
- Hólmfríður Bjarnadóttir
- Axel Jóhann Hallgrímsson
- Ólafur Ingólfsson
- Rúnar Þór Þórarinsson
- Styrmir Reynisson
- Helga Kristjánsdóttir
- Sæmundur Bjarnason
- Ingimundur Bergmann
- Loftslag.is
- Kjartan Jónsson
- Brattur
- Gunnar Helgi Eysteinsson
- Högni Snær Hauksson
- Jack Daniel's
- Kama Sutra
- Magnús Ragnar (Maggi Raggi).
- Ómar Bjarki Smárason
- Stefán Júlíusson