Bloggfærslur mánaðarins, febrúar 2007
Miðvikudagur, 28. febrúar 2007
Segið svo að það borgi sig ekki að berjast.
Til hamingju Mosfellsbæingar með árangurinn:
Álafosskvos: Hætt við að sinni
Bæjarstjórn Mosfellsbæjar samþykkti einróma í dag að taka aftur deiliskipulag um umdeilda tengibraut við Álafosskvos. Ragnheiður Ríkharðsdóttir bæjarstjóri segir að með þessu sé tekið tillit til ábendinga úrskurðarnefndar skipulags- og byggingamála.
Með bráðabirgðaúrskurði nefndarinnar voru framkvæmdir við tengibrautina stöðvaðar. Nefndin skoðar hvort að vinna þurfi umhverfisskýrslu. Þá vantaði í skipulagið að gert væri ráð fyrir mótvægisaðgerðum vegna mengunar.
Fyrirtækið Helgafellsbyggingar hefur haft í hyggju að reisa íbúðahverfi á svæðinu en lögðu í dag inn framkvæmdaleyfi fyrir 500 metra kafla tengibrautarinnar í þeim tilgangi að skapa sátt um framkvæmdina og að í nýju framkvæmdaleyfi verði með skýrari hætti gerð grein fyrir mótvægisaðgerðunum.
Miðvikudagur, 28. febrúar 2007
Furðulegt orðalag.
"Krónan styrktist áður en yfir lauk" Er þá öllu lokið núna? Hef alltaf haldið að þetta þýði að endalok. Er þá krónan formlega hætt núna? Kannski kemur þá evra á morgun!
Frétt af mbl.is
Krónan styrktist áður en yfir lauk
Viðskipti | mbl.is | 28.2.2007 | 16:40
Þrátt fyrir að krónan hafi veikst nokkuð við byrjun viðskipta í morgun náði hún sér á strik og áður en yfir lauk
Krónan styrktist áður en yfir lauk | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Miðvikudagur, 28. febrúar 2007
Eins gott að maður á ekki hlutabréf í Eimskip.
Ef ég hefði keypt hlutabréf í Eimskip í gær fyrir 100.000 þá ætti ég í dag 91.220 krónur. Þannig að stundum er gott að vera blankur og eiga engin hlutabréf.
Frétt af mbl.is
Úrvalsvísitalan lækkar um 1,47%
Viðskipti | mbl.is | 28.2.2007 | 16:37
Úrvalsvísitalan lækkaði um 1,47% í Kauphöll Íslands í dag og er lokagildi hennar 7.303,70 stig. Mosaic Fashion hækkaði um 2,03% en Eimskip lækkaði um 8,78% og Kaupþing um 2,38%.
Úrvalsvísitalan lækkar um 1,47% | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Miðvikudagur, 28. febrúar 2007
Jæja þá fer fasteignamarkaðurinn aftur í sama tryllinginn.
Var það ekki einmitt þetta sem gerðist þegar markaðurinn fríkaði út fyrir 3 árum. Lán íbúðalánasjóðs voru hækkuð í 90% sem bankarnir bættu um betur og hækkuðu hámarkstlánin og lánuðu allt að 100% af markaðsverði sem leiddi til að fasteignaverð rauk upp. Nú loksins þegar markaðurinn er að hægja á sér þá byrjar ballið aftur. Þetta tel ég að sé ekki heppilegur tími til að hækka lánin,nema kannski til kaupa á fyrstu íbúð. Nú ábyrgist ég að verðið ríkur upp aftur.
Frétt af mbl.is
Lánshlutfall Íbúðalánasjóðs hækkar úr 80% í 90%
Innlent | mbl.is | 28.2.2007 | 19:59
Lánshlutfall almennra lána Íbúðalánasjóðs verður hækkað í 90% úr 80%, samkvæmt reglugerð sem Félagsmálaráðuneytið hefur gefið út, og hámarksfjárhæð lánanna hækkar í 18 milljónir úr sautján, að því er fram kemur í fréttatilkynningu frá ráðuneytinu.
Lánshlutfall Íbúðalánasjóðs hækkar úr 80% í 90% | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 22:18 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
Miðvikudagur, 28. febrúar 2007
Mexíkóskar húsmæður nema strípidans - Það gera Íslenskar konur líka.
Bíddu er þetta ekki sama og er í tísku hér og út um allan heim. Þykir alveg hin best líkamsrækt fyrir utan að gera makan spenntari og stinnari. Það væri kannski meiri frétt ef þær hefðu ekki stundað þetta nýja æði.
"Úr fréttinni
Margar þeirra kvenna sem numið hafa dansinn hafa haldið áfram að sækja námskeiðið og það jafnvel í þrjú ár. Það er fyrrum strípidansari sem rekur þennan sérstaka dansskóla og kennir þar m.a. hvernig dansa eigi við súlu, fækka fötum með eggjandi hætti og dansa í kjöltu karlmanns svo eitthvað sé nefnt."
En það sem vekur athygli og menn ættu kannski að passa sig á er
Frétt af mbl.is
Mexíkóskar húsmæður nema strípidans
Veröld/Fólk | mbl.is | 28.2.2007 | 10:19
Hundruð húsmæðra sækja nú námskeið í strípidansi í Mexíkóborg og telja það krydda kynlífið og fela þeim aukið vald í svefnherberginu.
Sem sagt að þetta er nýtt bragð í kvennabaráttunni. Því ættu menn kannski að fara að huga að mótvægisaðgerðum til að konur nái ekki yfirhöndinni.
Mexíkóskar húsmæður nema strípidans | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Sniðugt | Breytt s.d. kl. 11:44 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
Miðvikudagur, 28. febrúar 2007
Upphaf Baugsmálsins meintar greiðslur Ísl. Erfðagreiningar til Davíðs?
Alveg fór þessi kjaftasaga fram hjá mér á sínum tíma. En það var víst rætt um það að Íslensk Erfðagreining hafi greitt Davíð 300 milljonir og meint múturboð Jóns Ásgeirs hafi verið brandari byggður á þessum orðrómi. En þetta las ég hér á www.mannlif.is
Meint mútuþægni Davíðs
Bolludagsmál Davíðs Oddssonar, fyrrverandi forsætisráðherra, um að Jón Ásgeir Jóhannesson, forstjóri Baugs hefði viljað bera á hann 300 milljónir króna hefur enn fengið byr undir báða vængi og ýmsir fótgönguliðar halda kenningu Davíðs stíft á lofti og vilja jafnvel rannsókn á því hvort Jón Ásgeir hafi ætlað að beita mútum. Að sögn Davíðs á sínum tíma var það Hreinn Loftsson, stjórnarformaður Baugs, sem var milligöngumaður um tilboðið góða á frægum Lundúnafundi. Það sem enn vantar í sögu forsætisráðherrans fyrrverandi er tilefni orðaskiptanna þegar 300 milljónirnar bar á góma milli Hreins og Jóns Ásgeirs. Þá höfðu, eins og síðar, gengið sögur um að Íslensk erfðagreining hefði gaukað einmitt þeirri upphæð að Davíð. Hreinn hafði vitnað til þess á Lundúnafundinum að Jón Ásgeir hefði sagt í hálfkæringi í því samhengi að kannski væri eina ráðið fyrir Baug til að fá frið að leggja að mörkum sömu upphæð. Í rauninni má segja að stórfurðulegt sé að ekki skuli hafa verið rannsakað hvort flugufótur sé fyrir því hvort 300 milljónirnar hafi raunverulega skipt um hendur á sínum tíma ...
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 08:47 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Miðvikudagur, 28. febrúar 2007
Þetta er náttúrulega bara til að vekja hræðslu
Samkvæmt frétt á www.visir.is var þetta bara einn af þessum klikkuðu unglingum í Bandaríkjunum sem halda að lausn allra vandamála sé að meiða, skaða eða drepa aðra í skólanum sínum. Finnst nú vafasamt að kalla svona hryðjuverk
Úr frétt á www.visir.is
Lögregla yfirbugaði drenginn eftir að skólinn hafði verið rýmdur en alls þurftu 5.500 nemendur að yfirgefa skólasvæðið. Talið er að slælegur námsárangur drengsins hafi verið ástæðan fyrir verknaðinum.
Frétt af mbl.is
Nemandi í bandarískum háskóla handtekinn fyrir að hóta hryðjuverkum
Erlent | mbl.is | 27.2.2007 | 16:13
Maður var handtekinn í dag í háskólanum í Missouri-Rolla í Bandaríkjunum eftir að hafa hótað hryðjuverkaárás. Maðurinn er nemandi við háskólann og var með hvítt duft á sér og lögregla segir hann hafa haft á sér efni sem væru mögulega til sprengjugerðar. 23 menn sem voru í sömu byggingu og maðurinn hafa hreinsaðir af tæknimönnum lögreglu í varúðarskyni, ef efnið skyldi hafa verið skaðlegt.
Nemandi í bandarískum háskóla handtekinn fyrir að hóta hryðjuverkum | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Þriðjudagur, 27. febrúar 2007
Hlutabréfabrask og spákaupmennska eru skrítin fræði
Einn maður talar um hugsanlegan samdrátt í vændum og bara allur heimurinn fer af hjörunum.
Enda eru nokkur atriði sem hafa valdið mér heilabrotum:
- Verðmæti hlutabréfa. Á þessum mörkuðum finnst mér oft að verðmæti hlutabréfa skrúfast alveg óheyrilega upp. Þau eru kominn oft langt upp fyrir það sem verðmæti fyrirtækis gæti nokkru sinni staðið undir. Og virðist ganga út á að kaupa bréf því það sé nokkuð ljóst að á meðan fyrirtækinum gengur ekki áberandi illa þá verði alltaf einhverjir sem verða tilbúnir að greiða meira fyrir þau þegar einhver frétt kemur frá fyrirtækinum um samning um sölu á afurðum eða kaup á einhverju inn í fyrirtækið. En svo er raunverulegur hagnaður (arður) af fyrirtækinu til eigenda varla til að borga afborganir af lánum sem tekin voru vegna kaupana.
- Síðan að þeir sem standa í þessu braski með hlutabréf er oftast ungir menn sem í raun hafa enga þekkingu á þessum fyrirtækjum í raun heldu eru settir í þessi viðskipti beint úr skóla. Og oft finnst mér að þeirra leikur sé aðallega að plata aðra sömu gerðar til að greiða meira fyrir þessi bréf.
- Þá finnast manni þessar sveiflur á mörkuðum oft skrýtnar. T.d. verlsun með olíu. Hversu oft hefur maður ekki heyrt um hækkun á heimsmarkaðsverði vegna frétta um slæma birgðarstöðu í Bandaríkjunum sem breytist mánuði seinna þegar tilkynnt er að hræðsla um birgðastöðu hafi ekki verið rétt.
- Nú í gær er einn maður að ræða um að það gæti komið að einhverri kólnun í efnahagslífi Bandaríkjana og allir markaðir bregðast við þessu.
- Spurning hvort að markaðsmenn stjórni ekki þessari sýningu ekki oft til þess að græða á þessu. Þeir verðfella markaðinn, kaupa bréf og byggja svo upp væntingar aftur.
Eins og sést á ofantöldu þá hef ég ekki mikið vit á þessu. En þessi viðskipti minna mig oft á leik eða spil þar sem menn eru að spila með plat peninga. En reyndin er að þeir eru oft að spila með allan lífeyrissparnað fólks um allan heim sem fela þessum mönnum að annast um hann í hinum ýmsum sjóðum.
Frétt af mbl.is
Dow Jones hríðfellur: Lækkaði um 500 stig en rétti lítillega úr kútnum
Viðskipti | AP | 27.2.2007 | 21:04
Dow Jones-hlutabréfavísitalan á Wall Street hefur hríðfallið í dag og fór niður um rúm 500 stig áður en hún rétti lítillega úr kútnum um hálfri klukkustund fyrir lokun. Lækkunin nam mest 546,02 stigum, eða 4,3%. Skömmu fyrir lokun nam lækkunin 360 stigum, eða 2,85%.
Dow Jones hríðfellur: Lækkaði um 500 stig en rétti lítillega úr kútnum | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Þriðjudagur, 27. febrúar 2007
"Fyllirísfrétt Fréttablaðsins"
Mannlífssíðan www.mannlif.is er nú heldur betur að lifna við með ýmsum skemmtilegum fréttum og skúbbum. Nú í dag má lesa þetta þar um að það getur verið varasamt að trúa skúbbi sem maður heyrir á Krá og sérstaklega ef það er annar fréttamaður að láta hafa það eftir sér.
Fyllirísfrétt Fréttablaðsins
Smáfrétt í dálknum Fréttir af fólki á öftustu opnu Fréttalaðsins í dag hefur vakið töluverða athygli enda telst það til ákveðinna nýmæla í blaðamennsku að drykkjugrín nafngreindra einstaklinga á börum borgarinnar sé fréttaefni. En Fréttablaðið upplýsir semsagt að Kastljóssmaðurinn Helgi Seljan hafi talað fjálglega um það á Ölstofunni um helgina að hjónakornin Svanhildur Hólm Valsdóttir og Logi Bergmann Eiðsson hyggðust stofna deild innan Vísindakirkjunnar á Íslandi. Það vantar hins vegar í molann að enginn sem heyrði grínið virðist hafa trúað því nema hinn skúbbgraði Freyr Gígja Gunnarsson, blaðamaðurinn sem kvittar undir fréttina í blaðinu.
Í þessum kúnstuga fréttamola blaðsins segir að Helgi hafi sagt "öllum sem heyra vildu" á Ölstofunni að Logi og Svanhildur væru langt komin í þessum undirbúningi sínum og að Ölstofan væri einn helsti samkomustaður blaðamanna og eitthvað mun um það að slíkir hafi lagt við eyrun. Helgi hafi svo aftur á móti verið frekar rislágur á mánudegi þegar hann var inntur frekar eftir þessu þar sem hann hafi spunnið þessa tómu vitleysu upp á staðnum.
Að sögn viðstaddra var blaðamaður Fréttablaðsins eini fréttamaðurinn sem heyrði söguna. Helgi fabúleraði því vissulega um stofnun Vísindakirkju á Íslandi ásamt Sveini Waage, blaðamanni Mannlífs, en grín þeirra gekk út á það að þeir tveir væru að stofna deild innan Vísindakirkjunnar og Svanhildur og Logi væri í hópi þess góða fólks sem ætlaði að ganga til liðs við þá en alls ekki að þau hjónin væru forkólfarnir.
Sagan er vissulega góð, væri hún sönn en blaðamaðurinn kokgleypti hana og skrifaði myndarlega frétt um málið þegar hann mætti til vinnu á mánudaginn. Sú vinna var þó öll til einskis þegar hann hafði samband við Helga, eins og sönnum fagmanni sæmir, til þess að fá hann til þess að tjá sig um málið on record eins og það er kallað. Kastljóssmaðurinn játaði þá á sig grínið en undraðist um leið að nokkur skyldi hafa tekið bullið trúanlegt. Allt virðist þetta þó hafa valdið blaðamanninum skiljanlegum vonbrigðum og í framhaldinu má segja að fjallið hafi tekið jóðsótt og lítil furðufrétt hafi fæðst.
Fréttapungnum virðist því fyrst og fremst ætlað að gjalda Helga rauðan belg fyrir gráan en mun vart hafa aðrar afleiðingar en þær að fólk sem er í góðum gír á öldurhúsum mun framvegis snarþagna sjái það blaðamenn Fréttablaðsins blaka eyrunum í kallfæri enda ekki allir jafn léttir og Helgi og það þarf ekki að fjölyrða um það að það getur verið grínlaust að sjá fyllirísrugl sitt prentað í 110.000 eintökum
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 22:38 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Þriðjudagur, 27. febrúar 2007
Þetta er náttúrulega ömurlegt. Að á Íslandi sé ekki hægt að reka skíðasvæði!
Ekki það að ég sé miður mín því ég er ekki skíðamaður en samt finnst manni þetta skrítið. Gætum þurft að breyta nafni landsins bráðum. T.d. taka aftur upp Garðarshólmi.
Frétt af mbl.is
Endurskoðun á rekstri skíðasvæðanna kallar á uppsagnir
Innlent | mbl.is | 27.2.2007 | 14:21
Anna Kristinsdóttir, formaður stjórnar skíðasvæðanna hjá Reykjavíkurborg, segir ekki hafa verið ákveðið enn hvort ráða eigi framkvæmdastjóra svæðanna eða rekstrar- og þjónustustjóra, en endurskoðun á rekstrinum hafi kallað á að fastráðnum starfsmönnum verði sagt upp. Ákveðnar skipulagsbreytingar verði á rekstri skíðasvæðanna í Bláfjöllum og Skálafelli en sex starfsmönnum sem þar vinna verður brátt sagt upp störfum.
Fastráðnum starfsmönnum í Bláfjöllum og Skálafelli sagt upp | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 18:13 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Nýjustu færslur
- 22.10.2017 Nokkrar staðreyndir um skattaþróun í tíð hægristjórna
- 29.11.2016 Auðvita er leiðiinlegt að fyrirtækið skuli vera lent í þessu!...
- 7.11.2016 Á meðan að almenningur almennt á ekki kost á svona fyrirkomul...
- 6.11.2016 Garðabær er nú ekki til fyrirmyndar í málefnum þeirra sem þur...
- 1.11.2016 Halló er ekki allt í lagi á Mogganum?
- 30.10.2016 En jafnaðarmennskan hverfur ekkert!
- 29.10.2016 Hönd flokksins
- 29.10.2016 Þetta á erindi við kjósendur
Eldri færslur
- Október 2017
- Nóvember 2016
- Október 2016
- September 2016
- Ágúst 2016
- Júlí 2016
- Júní 2016
- Maí 2016
- Apríl 2016
- Mars 2016
- Febrúar 2016
- Janúar 2016
- Desember 2015
- Nóvember 2015
- Október 2015
- September 2015
- Júlí 2015
- Júní 2015
- Maí 2015
- Apríl 2015
- Mars 2015
- Febrúar 2015
- Janúar 2015
- Desember 2014
- Nóvember 2014
- Október 2014
- September 2014
- Júlí 2014
- Júní 2014
- Maí 2014
- Apríl 2014
- Mars 2014
- Febrúar 2014
- Janúar 2014
- Desember 2013
- Nóvember 2013
- Október 2013
- September 2013
- Ágúst 2013
- Júlí 2013
- Júní 2013
- Maí 2013
- Apríl 2013
- Mars 2013
- Febrúar 2013
- Janúar 2013
- Desember 2012
- Nóvember 2012
- Október 2012
- September 2012
- Ágúst 2012
- Júlí 2012
- Júní 2012
- Maí 2012
- Apríl 2012
- Mars 2012
- Febrúar 2012
- Janúar 2012
- Desember 2011
- Nóvember 2011
- Október 2011
- September 2011
- Ágúst 2011
- Júní 2011
- Maí 2011
- Apríl 2011
- Mars 2011
- Febrúar 2011
- Janúar 2011
- Desember 2010
- Nóvember 2010
- Október 2010
- September 2010
- Ágúst 2010
- Júlí 2010
- Júní 2010
- Maí 2010
- Apríl 2010
- Mars 2010
- Febrúar 2010
- Janúar 2010
- Desember 2009
- Nóvember 2009
- Október 2009
- September 2009
- Ágúst 2009
- Júlí 2009
- Júní 2009
- Maí 2009
- Apríl 2009
- Mars 2009
- Febrúar 2009
- Janúar 2009
- Desember 2008
- Nóvember 2008
- Október 2008
- September 2008
- Ágúst 2008
- Júlí 2008
- Júní 2008
- Maí 2008
- Apríl 2008
- Mars 2008
- Febrúar 2008
- Janúar 2008
- Desember 2007
- Nóvember 2007
- Október 2007
- September 2007
- Ágúst 2007
- Júlí 2007
- Júní 2007
- Maí 2007
- Apríl 2007
- Mars 2007
- Febrúar 2007
- Janúar 2007
- Desember 2006
- Nóvember 2006
- Október 2006
- September 2006
- Júlí 2006
- Júní 2006
- Maí 2006
- Apríl 2006
- Mars 2006
- Febrúar 2006
Tenglar
ESB
Samfylkingin
Maggi B er flokksbundinn samfylkingarmaður í Samfylkingarfélaginu í Kópavogi
Teljari
Tenging við twitter
Um bloggið
Vettvangur Magga
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (20.1.): 5
- Sl. sólarhring: 21
- Sl. viku: 47
- Frá upphafi: 969562
Annað
- Innlit í dag: 5
- Innlit sl. viku: 46
- Gestir í dag: 5
- IP-tölur í dag: 4
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
RSS-straumar
RSS
Hvað er nýtt
RUV
- Augnablik - sæki gögn...
DV
- Augnablik - sæki gögn...
Visir.is
- Augnablik - sæki gögn...
Pressan
- Augnablik - sæki gögn...
Pressan Kaffistofa
- Augnablik - sæki gögn...
Af Eyjunni fréttir
- Augnablik - sæki gögn...
Bloggvinir
- Ingibjörg Hinriksdóttir
- Guðni Már Henningsson
- Kristbjörg Þórisdóttir
- Kristbjörg Þórisdóttir
- Samfylkingin Norðvesturkjördæmi
- Gísli Tryggvason
- Guðríður Arnardóttir
- Guðmundur Magnússon
- Hlynur Hallsson
- Kristján Pétursson
- Vefritid
- Bjarni Harðarson
- Davíð
- Ólöf Ýrr Atladóttir
- Björn Benedikt Guðnason
- Sigurlín Margrét Sigurðardóttir
- Egill Rúnar Sigurðsson
- Hlynur Halldórsson
- Tómas Þóroddsson
- Adda bloggar
- Killer Joe
- Tíðarandinn.is
- Þórður Steinn Guðmunds
- Kolbrún Jónsdóttir
- íd
- Haukur Nikulásson
- Hrannar Björn Arnarsson
- Sigfús Þ. Sigmundsson
- Bleika Eldingin
- Sigurður Sigurðsson
- Inga Lára Helgadóttir
- Björn Emil Traustason
- Brosveitan - Pétur Reynisson
- Björn Heiðdal
- krossgata
- Þröstur Friðþjófsson.
- S. Lúther Gestsson
- Sigurjón Sigurðsson
- Guðrún Helgadóttir
- Jón Ragnar Björnsson
- gudni.is
- Jakob Falur Kristinsson
- Sæþór Helgi Jensson
- Bergþóra Árnadóttir - RIP 15.2.48 - 8.3.07
- Félag Ungra Frjálslyndra
- Alfreð Símonarson
- Hlekkur
- Þorsteinn Briem
- Jonni
- Torfusamtökin
- Gulli litli
- Sigurður Sigurðsson
- Helena Sigurbergsdóttir
- Elías Stefáns.
- viddi
- Oddrún
- Jón Gunnar Bjarkan
- Heimir Eyvindarson
- Himmalingur
- Eygló
- Hólmfríður Bjarnadóttir
- Axel Jóhann Hallgrímsson
- Ólafur Ingólfsson
- Rúnar Þór Þórarinsson
- Styrmir Reynisson
- Helga Kristjánsdóttir
- Sæmundur Bjarnason
- Ingimundur Bergmann
- Loftslag.is
- Kjartan Jónsson
- Brattur
- Gunnar Helgi Eysteinsson
- Högni Snær Hauksson
- Jack Daniel's
- Kama Sutra
- Magnús Ragnar (Maggi Raggi).
- Ómar Bjarki Smárason
- Stefán Júlíusson