Bloggfærslur mánaðarins, apríl 2007
Laugardagur, 28. apríl 2007
Framsókn á flugi í auglýsingagerð - En hvað á þetta að þýða?
Stjórnmál og samfélag | Breytt 29.4.2007 kl. 00:43 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (3)
Laugardagur, 28. apríl 2007
NV-kjördæmi: Frjálslyndir kæmu ekki manni inn
Samfylkingin er að hægt og sígandi á leiðinni í það fylgi sem hún á skilið. Sterkasta vígi Frjálslyndara að falla.
Frjálslyndi flokkurinn kemur ekki manni inn á þing Í Norðvesturkjördæmi samkvæmt Gallup en þeir höfðu tvo menn áður, anna kjördæmakjörinn en hinn er jöfnunarþingmaður. Þetta þýðir að formaður flokksins, Guðjón Arnar Kristjánsson, kemst ekki inn á þing. Úrtakið var tilviljunarúrtak úr þjóðskrá og í því voru 800 manns. Nettósvarhlutfall var 64,5%. |
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 22:16 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (4)
Laugardagur, 28. apríl 2007
Vinnubrögð Allsherjarnefndar!
Þetta mál með afgreiðslu Allsherjarnefndar á umsóknum um íslenskan ríkisborgararétt kemur held ég til með að skapa umræður um störf þessarar nefndar og því hvort að hún hafi í störfum sínum gætt jafnræðis. Var að lesa grein í Fréttablaðinu eftir Falasteen Abu Libdeh En hún segir m.a. í greininni:
Hingað var gott að koma, þó það skuli engum detta í hug að Ísland hafi verið hluti af framtíðardraumum sextán ára unglings frá Palestínu. Koma mín hingað var liður í þeirri viðleitni móður minnar að reyna að finna okkur börnunum öruggt umhverfi til að búa í.
Eftir að hafa verið hluti af íslensku samfélagi í þrjú ár, verið við nám, eignast barn og starfað á íslenskum vinnumarkaði fannst mér tímabært að sækja um að öðlast í fyrsta sinn á ævinni þann rétt sem fylgir því að tilheyra sjálfstæðu ríki – að fá raunverulegt ríkisfang.
Þrátt fyrir að það væri fullljóst að ég væri komin hingað til að vera, þrátt fyrir að hafa lært tungumálið, þrátt fyrir að ég væri farin að gefa íslenska ríkinu hlutdeild í tekjum mínum og þrátt fyrir að ég væri orðin móðir, þá sá allsherjarnefnd ástæðu til að hafna ósk minni um að gerast íslenskur ríkisborgari. Einu rökin sem lögð voru til grundvallar ákvörðun nefndarinnar voru þau að ég væri ekki búin að búa hér í full sjö ár.
Lucia Celeste Molina Sierra er án efa hin álitlegasta tengdadóttir og eflaust hefur hún sínar forsendur fyrir þeirri ákvörðun sinni að sækja um íslenskt ríkisfang en mér finnst að bæði ég og aðrir sem hafa gengið í gegnum þá reynslu á undanförnum árum að þurfa að leggjast á hnén og biðja um að fá að tilheyra þessu samfélagi og vera hafnað, eigi skilið frekari útskýringar.
Þetta vekur náttúrulega spurningar um afgreiðslu þessarar nefndar og hversu vönduð vinnubrögð hennar eru. Fólk man ekki eftir ástæðum fyrir að ein umsókn er samþykkt en öðrum hafnað. Spurning hvort að þessir þingmenn séu að valda starfi sínu? Hér býr fullt af fólki sem hefur verið látið bíða í 7 ár eftir að verða íslenskir ríkisborgarar og annað fólk hefur þá væntanlega jafnvel hrakist héðan. Þetta verður náttúrulega að laga. Og það verður að vinna að nýjum starfsreglum
Laugardagur, 28. apríl 2007
Ég hef nú ekkert á móti háum húsum - en er þetta ekki að verða of mikið?
Ég bjó um tíma á 5 hæð í Engihjalla í Kópavogi. Þar var staðan sú að ef það var gola úti þá gat maður varla opnað svalarhurð ef að gluggi var opinn. Nú stendur yfir keppni í kring um Smáralind að byggja eins hátt og hægt er. Þar er þegar í byggingu rúmlega 20 hæða turn sem verður hæsta hús á Íslandi og við Smáralind er annar aðeins minni að fara að rísa. Nú er farið að tala um einn enn sem verður yfir 100 metra hár. Það sem veldur mér vangavelturm er t.d. er búið að kanna hverning veður er þarna. Efstu 10 til 15 hæðirnar verða opnar fyrir öllum áttum og mér finnst þegar að þarna sé mikill næðingur? Þá er ég að velta fyrir mér byggingarkröfum sem gerðar eru til þessara turna. Sá sem þegar er farinn að spretta upp er að mínu mati furðulega byggður. Hann virðist vera með með alla útveggi sem steypueiningar sem hífðar eru sinn stað. Síðan eru bara steyptar súlur sem binda hæðirnar saman. Tek kannski mynd af þessu seinna í dag til að sýna. En þetta er náttúrulega bara pælingar hjá mér hvað gerist ef að almennilegur jarðskjálfti ríður yfir hjá okkur.
En fyrst og fremst eru það umferðamálin. Eins og venjulega er skipulagið í Kópavogi þannig að til að komast að þessu hverfi þarf á 3 vegu að keyra í gegn um Íbúðahverfi. Og hver svona turn táknar umferð upp á þúsundir bíla. Og þar sem ég bý í hverfi ekki langt frá Smáralind þá hræðist ég þetta mjög.
Frétt af mbl.is
Hæsti turninn 100 metrar
Innlent | Morgunblaðið | 28.4.2007 | 5:30Fasteignafélag Íslands ráðgerir að reisa 28 hæða turn á lóð félagsins sunnan við Smáralind, skv. heimildum Morgunblaðsins. Turninn yrði yfir 100 metra hár og þar með hæsta hús á Íslandi. Fleiri turnar munu einnig rísa á lóðinni gangi áætlanir félagsins eftir.
![]() |
Hæsti turninn 100 metrar |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Föstudagur, 27. apríl 2007
Nóg að gera hjá Þorgerði
Skrifar undir samninga þvers og kruss núna nokkrum dögum fyrir kosningar. Í dag var hún á Akureyri að lofa nokkrum hundruða milljóna í stækkun þar og svo skaust hún á húsavík og skrifaði undir samning við öll sveitarfélög á NA landi um menningarmál og menningatengda ferðaþjónustu. Og þessu fylgir: Framlög ríkisins til samningsins verða 25 milljónir á árinu 2007, 30 milljónir árið 2008 og 31 milljón árið 2009
Þetta eru sjálfsagt hin mætustu verkefni en það er tímasetning þeirra sem pirrar mig. Ég er ekki hress með að ráðherrar séu að skreyta sig með skrautfjöðrum síðustu dag fyrir kosningar sem þeir þurfa svo kannski ekki að fylgja eftir. Þetta vekur alltaf grunsemdir og spurningar eins og afhverju var ekki búið að gera þessa samninga fyrir löngu.
Frétt af mbl.is
Ríki og sveitarfélög á Norðurlandi eystra semja um menningarsamstarf
Innlent | mbl.is | 27.4.2007 | 17:57Skrifað var í dag í Hvalasafninu á Húsavík undir samning um samstarf menntamálaráðuneytis og samgönguráðuneytis við 16 sveitarfélög á Norðurlandi eystra um menningarmál og menningartengda ferðaþjónustu. Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir menntamálaráðherra undirritaði samninginn f.h. ríkisins en Björn Ingimarsson, formaður sveitarfélaganna í Eyþingi, undirritaði samninginn fyrir hönd sveitarfélaganna.
![]() |
Ríki og sveitarfélög á Norðurlandi eystra semja um menningarsamstarf |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Föstudagur, 27. apríl 2007
Þessar kannanir eru hálf skrýtnar
Hvað hefur framsókn t.d. gert í síðustu viku sem eykur fylgi hans. En svona ef maður pælir í þessum könnunum þá er nær hún bara til 23. apríl sem var síðasti mánudagu Og eftir það hefur eftirfarandi gerst:
- Landspítalinn sendir út neyðarkall. Reksturinn þar kominn í bullandi erfiðleika
- Páll Magnússon ráðinn í Landsvirkjun og ekki samkomulag um það í Framsókn
- Jónina og tengdadóttirin
- Barna og unglinga geðdeild í bullandi vandræðum og langir biðlistar.
Þannig að það kæmi mér mjög á óvart að framsókn ætti eftir að hækka meira í næstu könnun. Ég trúi ekki að fólk sé að kaupa þessar auglýsingar með honum Jóni Sig.
Eins þá skil ég ekki þessar sveiflur á fylgi milli Vg og Samfylkingar því að það er ekkert í þessari viku sem könnunin stóð yfir sem skýrir það. Fer að halda að það náist illa í ákveðna kjósendahópa sumar vikurnar þannig að þessvegna séu þessarsveiflur
Síðan er skrítið að birta niðurstöður ekki fyrr en á föstudagi þegar könnuninni líkur á mánudeg. Við erum ekki að fá stöðuna eins og hún er í dag.
Frétt af mbl.is
Fylgi Samfylkingar og VG jafnmikið
Innlent | mbl.is | 27.4.2007 | 19:11Fylgi Samfylkingarinnar og Vinstrihreyfingarinnar-græns framboðs er jafnmikið, eða 21,2%, samkvæmt nýrri skoðanakönnun, sem Capacent Gallup hefur gert fyrir Morgunblaðið og Ríkisútvarpið. Fylgi Sjálfstæðisflokksins mælist nú 39,1%, Framsóknarflokksins 10%, Frjálslynda flokksins 5,7%, Íslandshreyfingarinnar 2,3% og Baráttusamtakanna 0,6%.
![]() |
Fylgi Samfylkingar og VG jafnmikið |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Föstudagur, 27. apríl 2007
Landsvirkjun verður að muna að fyrirtækið er eign þjóðarinnar ekki starfsmanna LV
Föstudagur, 27. apríl 2007
Er þetta ekki fullmikil bjartsýni. Er spítalinn ekki kominn í vandræði nú þegar á þessu ári?
Vissulega metnaðarfullt markmið og yrði gott ef að það tækist. En ég held að það sé nokkuð ljóst að með nú verandi stjórnvöld sem hafa á hverju ári skorið niður framlög til LSH og látið spítalan safna skuldum, verður þessu markmið ekki náð. Þannig var forstjórinn í fréttum í gær og fyrradag og sagði spítalann kominn upp að vegg. Það væru gerðar kröfur um þjónustu en um leið kröfur um niðurskurð þannig að spítalinn væri rekinn með dúndrandi tapi.
Frétt af mbl.is
LSH komist í hóp fimm bestu
Innlent | Morgunblaðið | 27.4.2007 | 5:30Landspítalinn hefur sett sér það markmið að vera árið 2012 eitt af fimm bestu háskólasjúkrahúsum á Norðurlöndum hvað varðar árangur og afköst í vísindarannsóknum. Magnús Pétursson, forstjóri LSH, segir öflugt vísindastarf forsendu góðrar heilbrigðisþjónustu og menntunar heilbrigðisstétta.
![]() |
LSH komist í hóp fimm bestu |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 08:39 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Fimmtudagur, 26. apríl 2007
Svo ætlum við að reisa hátæknisjúkrahús en getum nú ekki rekið það gamla.
Þetta eru nú eitt af því sem fólk ætti að hugsa til áður en það setur x við B í maí. Framsóknarflokkurinn hefur farið með þetta ráðuneyti í 12 ár og staðan hefur verið svona nær allan tíman. Fjárveitingar alltaf skornar niður í fjárlögum þó að allir viti að sú þjónusta sem við ætlumst til af sjúkarhúsinu er alltaf að aukast. Og því eru flest öll ár mörkuð af því að ríkið er að senda smá summur á haustin og á aukafjárlögum en samt aldrei nóg þannig að rekstrarhalli fylgir með í byrjun næsta árs.
Þetta er alfarið á ábyrgð Framsóknar. Það þýðir ekki að benda á Sjálfstæðisflokkinn því að ef framsókn var óánægð með fjárveitingar og fjárheimildir frá fjármálaráðuneytinu þá bar þeim að slíta stjórn eða að heilbrigðisráðherra bar að segja af sér þar sem hann gat ekki tryggt LSH nægjanlegt fjármagn til að sinna skildum sínum
Frétt af mbl.is
Fjárveitingar til LSH í engum takti við þróun eftirspurnar eftir þjónustu
Innlent | mbl.is | 26.4.2007 | 18:56Anna Lilja Gunnarsdóttir, framkvæmdastjóri fjárreiðna og upplýsinga á Landspítalanum, sagði á ársfundi sjúkrahússins í dag, að hún teldi fjárveitingar til spítalans á undanförnum árum vera í engum takti við þróun eftirspurnar eftir þjónustu hans. Sú eftirspurnar ætti eftir að aukast á næstu árum, m.a. vegna þróun sjúkdóma og fjölgun aldraðra
![]() |
Fjárveitingar til LSH í engum takti við þróun eftirspurnar eftir þjónustu |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Fimmtudagur, 26. apríl 2007
Nú þetta skýrir kannski ummæli sem ég heyrði í dag
Ég heyrði einhversstaðar haft eftir Bjarna Ármannssyni að efla þyrfti fjármálaeftirlitið til muna. Og svo las ég þetta hjá Jóni Axel:
Litla frjálsa fréttastofan hefur áræðanlegar heimildir fyrir því að mikil uppstokkun verði hjá Glitni í framhaldi af hluthafafundi á mánudaginn kemur. Er næsta víst að Bjarni Ármannsson hætti störfum og hverfi til annarra verkefna, samkvæmt þessu sömu heimildum.
Hefur því verið fleygt að Kristín Pétursdóttir, f.v. fjármálastjóri Kaupþings og f.v. aðstoðarforstjóri Kaupþings í London, taki við forstjórastarfi Glitnis af Bjarna
Maður er bara svona að velta þessu fyrir sér.
![]() |
Fimm nýir menn í stjórn Glitnis |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Nýjustu færslur
- 22.10.2017 Nokkrar staðreyndir um skattaþróun í tíð hægristjórna
- 29.11.2016 Auðvita er leiðiinlegt að fyrirtækið skuli vera lent í þessu!...
- 7.11.2016 Á meðan að almenningur almennt á ekki kost á svona fyrirkomul...
- 6.11.2016 Garðabær er nú ekki til fyrirmyndar í málefnum þeirra sem þur...
- 1.11.2016 Halló er ekki allt í lagi á Mogganum?
- 30.10.2016 En jafnaðarmennskan hverfur ekkert!
- 29.10.2016 Hönd flokksins
- 29.10.2016 Þetta á erindi við kjósendur
Eldri færslur
- Október 2017
- Nóvember 2016
- Október 2016
- September 2016
- Ágúst 2016
- Júlí 2016
- Júní 2016
- Maí 2016
- Apríl 2016
- Mars 2016
- Febrúar 2016
- Janúar 2016
- Desember 2015
- Nóvember 2015
- Október 2015
- September 2015
- Júlí 2015
- Júní 2015
- Maí 2015
- Apríl 2015
- Mars 2015
- Febrúar 2015
- Janúar 2015
- Desember 2014
- Nóvember 2014
- Október 2014
- September 2014
- Júlí 2014
- Júní 2014
- Maí 2014
- Apríl 2014
- Mars 2014
- Febrúar 2014
- Janúar 2014
- Desember 2013
- Nóvember 2013
- Október 2013
- September 2013
- Ágúst 2013
- Júlí 2013
- Júní 2013
- Maí 2013
- Apríl 2013
- Mars 2013
- Febrúar 2013
- Janúar 2013
- Desember 2012
- Nóvember 2012
- Október 2012
- September 2012
- Ágúst 2012
- Júlí 2012
- Júní 2012
- Maí 2012
- Apríl 2012
- Mars 2012
- Febrúar 2012
- Janúar 2012
- Desember 2011
- Nóvember 2011
- Október 2011
- September 2011
- Ágúst 2011
- Júní 2011
- Maí 2011
- Apríl 2011
- Mars 2011
- Febrúar 2011
- Janúar 2011
- Desember 2010
- Nóvember 2010
- Október 2010
- September 2010
- Ágúst 2010
- Júlí 2010
- Júní 2010
- Maí 2010
- Apríl 2010
- Mars 2010
- Febrúar 2010
- Janúar 2010
- Desember 2009
- Nóvember 2009
- Október 2009
- September 2009
- Ágúst 2009
- Júlí 2009
- Júní 2009
- Maí 2009
- Apríl 2009
- Mars 2009
- Febrúar 2009
- Janúar 2009
- Desember 2008
- Nóvember 2008
- Október 2008
- September 2008
- Ágúst 2008
- Júlí 2008
- Júní 2008
- Maí 2008
- Apríl 2008
- Mars 2008
- Febrúar 2008
- Janúar 2008
- Desember 2007
- Nóvember 2007
- Október 2007
- September 2007
- Ágúst 2007
- Júlí 2007
- Júní 2007
- Maí 2007
- Apríl 2007
- Mars 2007
- Febrúar 2007
- Janúar 2007
- Desember 2006
- Nóvember 2006
- Október 2006
- September 2006
- Júlí 2006
- Júní 2006
- Maí 2006
- Apríl 2006
- Mars 2006
- Febrúar 2006
Tenglar
ESB
Samfylkingin
Maggi B er flokksbundinn samfylkingarmaður í Samfylkingarfélaginu í Kópavogi
Um bloggið
Vettvangur Magga
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (2.4.): 0
- Sl. sólarhring: 2
- Sl. viku: 13
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku: 11
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
RSS-straumar
RSS
Hvað er nýtt
RUV
Augnablik - sæki gögn...
DV
Augnablik - sæki gögn...
Visir.is
Augnablik - sæki gögn...
Pressan
Augnablik - sæki gögn...
Pressan Kaffistofa
Augnablik - sæki gögn...
Af Eyjunni fréttir
Augnablik - sæki gögn...
Bloggvinir
- Ingibjörg Hinriksdóttir
- Guðni Már Henningsson
- Kristbjörg Þórisdóttir
- Kristbjörg Þórisdóttir
- Samfylkingin Norðvesturkjördæmi
- Gísli Tryggvason
- Guðríður Arnardóttir
- Guðmundur Magnússon
- Hlynur Hallsson
- Kristján Pétursson
- Vefritid
- Bjarni Harðarson
- Davíð
- Ólöf Ýrr Atladóttir
- Björn Benedikt Guðnason
- Sigurlín Margrét Sigurðardóttir
- Egill Rúnar Sigurðsson
- Hlynur Halldórsson
- Tómas Þóroddsson
- Adda bloggar
- Killer Joe
- Tíðarandinn.is
- Þórður Steinn Guðmunds
- Kolbrún Jónsdóttir
- íd
- Haukur Nikulásson
- Hrannar Björn Arnarsson
- Sigfús Þ. Sigmundsson
- Bleika Eldingin
- Sigurður Sigurðsson
- Inga Lára Helgadóttir
- Björn Emil Traustason
- Brosveitan - Pétur Reynisson
- Björn Heiðdal
- krossgata
- Þröstur Friðþjófsson.
- S. Lúther Gestsson
- Sigurjón Sigurðsson
- Guðrún Helgadóttir
- Jón Ragnar Björnsson
- gudni.is
- Jakob Falur Kristinsson
- Sæþór Helgi Jensson
- Bergþóra Árnadóttir - RIP 15.2.48 - 8.3.07
- Félag Ungra Frjálslyndra
- Alfreð Símonarson
- Hlekkur
- Þorsteinn Briem
- Jonni
- Torfusamtökin
- Gulli litli
- Sigurður Sigurðsson
- Helena Sigurbergsdóttir
- Elías Stefáns.
- viddi
- Oddrún
- Jón Gunnar Bjarkan
- Heimir Eyvindarson
- Himmalingur
- Eygló
- Hólmfríður Bjarnadóttir
- Axel Jóhann Hallgrímsson
- Ólafur Ingólfsson
- Rúnar Þór Þórarinsson
- Styrmir Reynisson
- Helga Kristjánsdóttir
- Sæmundur Bjarnason
- Ingimundur Bergmann
- Loftslag.is
- Kjartan Jónsson
- Brattur
- Gunnar Helgi Eysteinsson
- Högni Snær Hauksson
- Jack Daniel's
- Kama Sutra
- Magnús Ragnar (Maggi Raggi).
- Ómar Bjarki Smárason
- Stefán Júlíusson