Bloggfærslur mánaðarins, maí 2007
Mánudagur, 14. maí 2007
Össur með magnaða lýsingu á viðtali við Guðna Ágústsson
Var að ð lesa þessa færstu hjá Össuri um viðtal sem hann horfði á við Guðna Ágústsson. EN þar segir Össur m.a.
Í dag sá íslenska þjóðin í raunalegri mynd hvernig valdið og fríðindi þess fara með jafnvel bestu menn. Í beinni útsendingu Stöðvar 2 reif sonurinn frá Brúnastöðum, Guðni Ágústsson, af sér síðustu leifar pólitískrar sjálfsvirðingar, féll á hnén og nánast grátbað Sjálfstæðisflokkinn um að reka sig ekki á dyr.
Með tárin í augunum bauð landbúnaðarráðherrann allt, sem hægt er að bjóða. Hugsjónir, sjálfsvirðingu, eigin orð. Guðni bauð að Sjálfstæðisflokkurinn fengi frá Framsókn nokkra ráðherrastóla - bara ef hann fengi áfram að vera í ríkisstjórninni
Hvet fólk til að lesa þessa færslu hans Össurar í heild hér
Einnig hægt að benda á þessa færslu hjá Guðríði Arnardóttur En þar segir hún m.a.
En tíðindi dagsins eru vissulega þau að nú tala þeir saman Jón og Geir og miðað við þær fréttir sem leka út virðist eina vandamál þeirra félaga vera hvernig á að dekka ráð og nefndir með þetta litlum styrk Framsóknarmanna. Já ég heyrði ekki betur í útvarpinu í dag en menn hugsi sér 3 ráðuneyti til handa framsóknarmönnum og þannig ætli þeir sér að kalla inn 3 varaþingmenn fyrir þá framsóknamenn sem fá ráðherrastóla. Já og fjölga þannig í þingflokknum!
Mánudagur, 14. maí 2007
Bendi á skrif Egils Helgasonar um þessar fréttir um stjórnarsetu Framsóknar og Sjálfstæðismanna
Góð grein eftir Egil Helgason í kvöld á Silfri Egils þar sem hann fer aðeins yfir hvernig mál eru að þróast í í hugsanlegu áframhaldandi stjórnarsamstarfi Framsóknar og Sjálfstæðismanna:
Hann segir m.a.
Hvernig lítur þetta þá út? Plottið er einhvern veginn svona: Framsókn fer í stjórn, það er óvíst hvað hún tekur marga ráðherrastóla. Fyrir Jón Sigurðsson er þetta lífsnauðsyn. Annars er stuttum tíma hans í pólitík lokið.
Það er líka annað í myndinni - Siv Friðleifsdóttir. Hún styrkti stöðu sína með því að verða eini þingmaður flokksins á höfuðborgarsvæðinu. En flokkseigendafélag Framsóknar vill ekki að Siv fái meiri metorð. Ef Jón þarf að taka pokann sinn er eins líklegt að hún geri aftur tilkall til þess að verða formaður. Með því að fara í ríkisstjórn er hægt að gera Siv óskaðlega.
Þingmenn Framsóknar eru ekki nema sjö. Það gæti verið praktískt erfitt fyrir flokkinn að starfa í ríkisstjórn. En á því er lausn. Ráðherrar flokksins munu ekki sitja á þingi, heldur verður kallað á varamenn. Þá geta fleiri framsóknarmenn komist að þótt þeir hafi ekki fengist kosningu - og þá hefur flokkurinn mannskap til að manna helstu þingnefndir.
Eins þá segir Egill:
Fyrir Framsóknarflokkinn er þetta algjört hættuspil. Þetta gæti hreint út sagt orðið banabiti flokksins. Kjósendur líta almennt svo á að flokkurinn hafi takmarkað umboð til að sitja áfram í ríkisstjórn - og þá alls ekki Jón Sigurðsson sem féll harkalega í kosningunum. Umfjöllun um flokkinn verður mjög neikvæð í kjölfar þessa, rétt eins og þegar Halldór Ásgrímsson var dubbaður upp sem forsætisráðherra.
Ráðherrar flokksins vilja þetta. Eftir yfirlýsingarnar fyrir kosningar og á kosninganóttina hafa frammámenn í Framsóknarflokknum verið í óða önn við að selja sjálfum sér þessa hugmynd. Kannski þurfa þeir ekki beita sig miklum fortölum.
Það er hins vegar spurning um almenna flokksmenn og grasrótina. Þar verður ábyggilega hart deilt um þessar fyrirætlanir sem kunna að varða sjálft líf flokksins.
En þetta má lesa í heild sinni hér. Góðir punktar hjá Agli.
Þingflokkar stjórnarflokkanna á fundum í kvöld | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Mánudagur, 14. maí 2007
Stjórnin geirnegld
Það er ekki hægt að segja að áframhaldandi stjórnarsamstarf hafi verið skilaboð frá kjósendum né að þessir flokkar hafi fengið umboð frá kjósendum. Þessi stjórn kemur til með að vera mynduð vegna galla í kosningakerfin okkar sem gerir það að verkum að flokkar geta fengið meirihluta þingmanna án þess að hafa einu sinni 50% atkvæða. Þetta er náttúrulega ekki í lagi. Nú heiti ég á alla stórnarandstöðuflokkanna, bloggara og ritfært fólk að gera þessari stórn ekki þann greiða að fá að starfa óáreytt. Heldur berjum við í alla bresti og linnum ekki látunum fyrir en að eitthvað brestur.
Það er einnig eftirtektarvert ef þetta sem hér er fyrir neðan er réttm er ekkert verið að tala um málin heldur bara stóla og völd. Það er búið að plata kjósendur til að kjósa og nú verður bara haldið áfram þar sem frá var horfið.
Eftirfarandi er tekið af www.mannlif.is
Stjórnin geirnegld
Fátt virðist nú geta komið í veg fyrir áframhaldandi stjórnarsamstarf Sjálfstæðisflokks og Framsóknarflokks samkvæmt heimildum Mannlífs. Þingflokkur Sjálfstæðisflokksins mun í einu og öllu fara að vilja Geirs H. Haarde og innan Framsóknarflokksins hefur verið tryggt að Siv Friðleifsdóttir og Bjarni Harðarson verði til friðs innan nýrrar ríkisstjórnar.
Vilji formannanna er fyrir hendi og samkvæmt heimildum hefur þegar verið ákveðið að halda samstarfinu áfram þó skipting ráðuneyta og önnur atriði séu enn ófrágengin. Áframhaldandi seta á ráðherrastóli gagnast heilbrigðisráðherranum Siv vel og styrkir stöðu hennar innan Framsóknarflokksins. Hún komst aftur inn á þig, ólíkt Jóni Sigurðssyni sem felldi hana í formannskjöri þannig að meira verður væntanlega látið eftir henni en ella.
Vonir Sifjar um að ná formannsætinu verða bjartari haldi hún ráðherrasæti og ætla má að hún og krónprinsinn Björn Ingi Hrafnsson muni bítast á um stöðuna á miðju kjörtímabili. Björn Ingi stynur vitaskuld þungann, rétt eins og aðrir framsóknarmenn, yfir afhroðinu í kosningunum þó niðurstaðan geti vissulega gagnast honum persónulega. Krafan um að yngt verði upp í flokksforystunni hlýtur að magnast verulega í kjölfar ósigursins og Björn mun þá eflaust stíga fram sem hinn smurði úr ráðhúsinu og gera tilkall til krúnunnar ...
Ný stjórn að skríða saman
Sjálfstæðisflokkur og Framsóknarflokkur eru langt komnir með myndun nýrrar ríkisstjórnar og hún gæti jafnvel litið dagsins ljós seinni partinn í dag. Sjálfstæðismenn telja eðlilegt að þeir fái þrjú veigamestu ráðuneytin og taki forsætis-, utanríkis- og fjármálaráðuneytið. Þá er Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir að öllum líkindum að verða utanríkisráðherra.
Það eina sem stendur í sjálfstæðismönnum er staða Jóns Sigurðssonar, formanns Framsóknarflokksins, þar sem einhverjir líta svo á að kjósendur hafi hafnað honum á laugardaginn. Samkvæmt heimildum Mannlífs munu menn þó ekki láta þetta aftra sér frá því að halda stjórnarsamstarfinu áfram.
Verði þetta úr mun Sjálfstæðisflokkurinn að öllum líkindum fá sjö ráðuneyti og Framsóknarflokkur fimm og þar af væru aðeins fjórir framsóknarráðherrar með þingsæti. Fái Sjálfstæðisflokkurinn sjö ráðherra verður Guðlaugur Þór Þórðarson klárlega ráðherra og erfitt verður að ganga fram hjá Bjarna Benediktssyni sem myndi þýða að einn sitjandi ráðherra flokksins verði að víkja og beinast þá sjónir fyrst og fremst að Einari K. Guðfinnssyni, Sturlu Böðvarssyni og Birni Bjarnasyni. Þá má ekki gleyma þætti kvenna í stjórninni en Sjálfstæðisflokkurinn hlýtur að þurfa að gæta að kynjahlutföllum og þá gætu til dæmis möguleikar Guðfinnu Bjarnadóttur á ráðherrastóli opnast ...
Geir: Sérstök ákvörðun ef stjórnarsamstarfið heldur ekki áfram | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 22:44 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Mánudagur, 14. maí 2007
"Umboðslaus formaður"
Var að lesa eftirfarandi á www.mannlif.is
Umboðslaus formaður
Vaxandi kurr er innan Sjálfstæðisflokksins vegna áforma Geirs Hilmars Haarde um að halda áfram ríkisstjórnarsamstarfi við trausti rúinn Framsóknarflokkinn. Svo virðist sem helstu vandamálin við að að framlengja líf stjórnarinnar sé þau að kalla á dekk varamenn Framsóknar svo þeir nái að manna stöður í stjórn og á þingi. Þannig eigi skattborgarar að leggja út aukalega stórfé svo hræið af Framsóknarflokknum haldist áfram í ríkisstjórn með minna en helmingskjörfylgi. Það truflar ekki síst sjálfstæðismenn að leiðtogi Framsóknarflokksins hefur aldrei haft umboð kjósenda til að sitja á þingi en virðist ætla að storka lýðræðinu með því að skipa sjálfan sig til áframhaldandi setu í ríkisstjórn og þarna eigi því að svína á lýðræðinu. Sumir ganga svo langt að tala um yfirvofandi valdarán Framsóknarflokksins eða allavega sjálftöku ...
Bjarni Harðarson: Fundum fyrir heilmiklum meðbyr" | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Mánudagur, 14. maí 2007
Getur framsókn gert einhverjar kröfur?
Held að flokkurinn fórni sinni félagshyggju fyrir völd verði af þessu. Þá er mér til efs að fólk sætti sig við að ráðherrar víkji af þingi og varamenn komi í staðinn. Þessi hugmynd er kannski skoðunarverð en ekki bara til að bjarga Framsókn núna þegar staðan er sú að flokkurinn getur illa mannað ráðuneyti og allar nefndi.
En skv. fréttum er þetta líklegasta niðurstaðan skv. fréttum. Eins hefur verið nefnd minnihlutastjórn Vg og Samfylkingar með stuðningi Framsóknar. Og svo R lista samstarf.
En það má vera nokkuð ljóst að samstarf Sjálfstæðismanna og Framsóknar verður mótað af því að Framsókn fær að vera með á vagninum og því verður það málefnaskrá Sjálfstæðismanna sem ræður. Og þá er í raun hægt að segja að hér verður ultra hægri stjórnarstefna hér næstu árin. Stóiðjustefnan veður áfram. Sem og að áfram verður unnið að því að koma auðlyndum okkar í einkaeign sem og nýtingu á þeimá. Og hér verður haldið áfram að hagræða fyrir auðmenn á meðan þeir sem minna mega sín verða að lepja dauðan úr skel.
Útvarpið fer sem og Lansvirkjun. Þjónustugjöld verða hækkuð. Þennslan verður hér áfram þar sem að hún stendur undir útrás fjármagns héðan til annarra landa.
Einkavinir stjórnarflokkanna fá forgang að öllum störfum og einkavinavæðing kemst á fullt.
Egill Helgason segir um þessa möguleika á stjórnmyndunum í gær m.a.
Hugsanlega eru þessar viðræður bara til málamynda - eða kannski nennir Geir, sem stundum virkar ansi værukær, barasta ekki að skipta? Það virkar hins vegar dálítið hæpið að fara í stjórn með eins sætis meirihluta sem veltur á Árna Johnsen. Þess utan er engin leið að halda því fram að það séu skilaboð kjósenda að Framsókn eigi að sitja áfram í ríkisstjórn.
Á hvaða forsendum yrði það líka? Varla upp á helmings hlut eins og hingað til - Framsókn yrði kannski að sætta sig við þrjá ráðherrastóla móti til dæmis sjö ráðherrum Sjálfstæðisflokks. Annað væri móðgun við kjósendur.
Frétt af mbl.is
Líklegast að stjórnin sitji áfram
Innlent | Morgunblaðið | 14.5.2007 | 5:30
Miklar líkur eru á því að stjórnarsamstarfi Sjálfstæðisflokksins og Framsóknarflokksins verði haldið áfram, segir Ólafur Þ. Stephensen, aðstoðarritstjóri Morgunblaðsins í fréttaskýringu í blaðinu í dag. Flokkarnir fengu samtals 32 þingmenn í kosningunum á laugardag, minnsta mögulega meirihluta.
Líklegast að stjórnin sitji áfram | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Sunnudagur, 13. maí 2007
Hvað voru kjósendur að hugsa?
Kjósendur á Suðurlandi og Reykjavík sem notuðu útstrikanir héldu þeir virkilega að þeir gætu einhverju breytt. Það þarf svo feiknalegan fjölda útstrikana til að koma mönnum nógu niður listann að það var aldrei raunhæft. Þannig að þeir eru búnir að kjósa hernaðarsinnaðan einræðisherra áfram í stjórn og "tæknileg mistök" inn á þing.
Hvað halda þeir sem kusu frjálslynda að þeir væru að fá inn á þing. Það hefur verðið nokkuð ljóst að Frjálslyndir hafa ekki þann styrk eða stjórnkænsku til að koma málum sínum á koppinn. Þá hafa þeir líka kosið inn á þing mann sem kom þessari útlendinga vitleysu af stað með "Ísland fyrir íslendinga" Og fólk skal gæta að því að nú eru á þingi a.m.k. 2 fyrrverandi þingmannsefni Sjálfstæðismanna fyrir Frjálslynda og einn fyrirverandi þingmaður Framsóknar.
Kjósendur hafa tryggt áframhaldandi stjórn flokka sem eru aðeins með 47 til 48% fylgi.
Rétt að minna fólk á þetta reglulega þegar það æsir sig yfir því þegar að orkufyrirtækin verða einkavædd og þjónustugjöld hækka og öryrkjar kvarta.
Verið að skoða ýmis mál varðandi hugsanlegt samstarf | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 21:21 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
Sunnudagur, 13. maí 2007
R-listinn?
Það er alveg spurning hvað réttast væri fyrir Framsókn að gera . Hvort að það væri rétt fyrir flokkinn að fara í stjórnarandstöðu eða vera áfram með Sjálfstæðismönnum. Ef þeir halda áfram í þessu samstarfi ber þess þó að geta að þeir eru í engri stöðu til að gera nokkrar kröfur hvorki um ráðuneyti né stefnumál. Því verða þeir þá að kyngja öllu stolti og viðurkenna að þeir eru þar aðallega til að viðhalda og efla stöður sínar og sinna manna víðsvegar um stjórnkerið.
En færu þeir í R- lista samstarf er samningastaða þeirra sterkari. Þar kæmu þeir inn á meiri jafnréttisgrundvelli og það yrði samið um stefnumál stjórnar.
Mér sem vinstri manni líst frekar á R lista samstarf frekar en að minn flokkur Samfylking færi í samstarf við Sjálfstæðismenn og tækju þá sveiflu til hægri.
Var annars að lesa þetta á www.mannlif.is
VG daðrar við Sjálfstæðisflokk
Meldingar eru hafnar um nýja ríkisstjórn í stað þeirra lemstruðu stjórnar sem Framsóknarflokks og Sjálfstæðisflokks sem nú þyrfti í framhaldslífi að treysta á eins þingmanns meirihluta eða 32 þingmenn. Vilji er innan VG, sigurvegara kosninganna, að taka upp samstarf við Sjálfstæðisflokkinn með Geir Haarde sem forsætisráðherra. en sú stjórn hefði þriggja þingmanna meirihluta. Einsýnt þykir að stjórnin er óstarfhæf í ljósi þess að ólíkindatól á borð við Árna Johnsen, endurreistan þingmann Sjálfstæðisflokksins, og Bjarna Harðarson,nýliða Framsóknarflokks, eru um borð í löskuðu fleyinu. Bjarni lýsti því í Silfri Egils að hann teldi vinstri stjórn Framsóknar, Samfylkingar og VG æskilegri en núverandi stjórn enb vitað er að Bjarni tilheyrir þeim armi ´Framsóknar sem hefur verið andvígur samstarfi við Sjálfstæðisflokkinn. Þá má víst telja að Árna Johnsen verður ekki haldið áhrifalausum í jafnveikri stjórn. Það eru því spennandi dagar í vændum en Össur Skarphéðinsson, þingmaður Samfylkingar, benti á þann möguleika í Silfri Egils að Framsóknarráðherrar segðu af sér og Ólafur Ragnar Grímsson, forseti Íslands, myndi þá úthluta umboði til stjórnarmyndunar. Var svo að sjá að nýliðanum Bjarna hugnaðist ágætlega sú leið en það er lífsspursmál fyrir Össur og svilkonuna Ingibjörgu Sólrúnu Gísladóttur í skugga stórtaps að fá inni í ríkisstjórn
Og þetta á sama stað www.mannlif.is
Sleggjan felldi formanninn
Sá sigur Kristins H. Gunnarssonar, alþingismanns að hafa náð kjöri sem uppbótarmaður í Norðvesturkjördæmi þykir ganga kraftaverki næst en fáir höfðu spáð því að hann næði kjöri. Ruðningsáhrifin af kjöri Sleggjunnar gera svo sigurinn enn sætari. Þegar Kristinn dúkkaði upp síðla kosninganætur kostaði það nefnilega Jón Sigurðsson, formann Framsóknarflokksins, uppbótarsætið og Herdís Sæmundardóttir, sem hafði verið inni lengst af kosninganótt sem þingmaður datt út við hlið Magnúsar Stefánssonar í Norðvesturkjördæmi. Það má því segja að Kristinn hafi komist inn með stæl og náð samtímis hefndum gegn sínum gömlu félögum í Framsóknarflokknum ...
Ingibjörg Sólrún: Ríkisstjórnin of veik | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 17:20 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Sunnudagur, 13. maí 2007
Nú geta þeir sem vilja breytingar en nenntu svon ekki að kjósa skammast sín
Alveg er þetta makalaust að atkvæði skuli sveiflast svona yfir nóttinna. Þetta þýðir að Sjálfstæðisflokkurinn er með öll spil á hendi. Hann getur boðið Framsókn að halda áfram í samstarfi og samþykkt að ráðherrar flokksins sem duttu af þingi haldi áfram í embætti þó að kjósendur hafi hafnað þeim.
Ef að þessi stjórn heldur áfram þá held ég að það verði lokið við öll þau verstu mál sem hafa komið upp á borðið síðustu ár. Einkavæðing Landsvirkjunar, Vatna og auðlyndalögin og allt það sem fólk hefur óttast. Það er ekki af engu sem að stórir fjárfestar hafa verið að kaupa upp heilu árnar og dalina síðustu ár. RUV verður væntanlega selt. Þennslan heldur áfram því að það þarf að drífa sig í það að koma allri orkunni á sem lægstu verði í stóriðjurnar svo að börn og barnabörn okkar hafi enga orku til að vinna með þegar þau þurfa að skap sér fleiri störf. Og tryggja að þau hafi sem minnsta óspillta náttúru til að hún sé ekki að tefja þau frá því að sinna okkur sem virkjuðum allt sem hægt var að virkja.
Ég segi ekki annað en "Fólk er fífl"
Frétt af mbl.is
Ríkisstjórnin hélt velli með minnsta mun
Innlent | mbl.is | 13.5.2007 | 8:44
Ríkisstjórnin hélt velli í Alþingiskosningunum í gær. Þegar lokatölur bárust úr Norðvesturkjördæmi laust fyrir klukkan 9 í morgun lá fyrir, að Sjálfstæðisflokkur hafði fengið 36,6% og 25 þingmenn, bætt við sig þremur mönnum frá síðustu kosningum og Framsóknarflokkur 11,7% og 7 þingmenn, tapaði fimm
Ríkisstjórnin hélt velli með minnsta mun | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Sunnudagur, 13. maí 2007
Er þetta rétt? - Var ekki verið að tala um Árna Johnsen?
Þetta er finnst mér eitthvað skrítið að fólk sé óánægt með Árna Matt en sátt við Árna Johnsen. Og ef fólk er svona óánægt með 2 af 4 mönnum í efstu sætunum - hvað var það þá að kjósa flokkinn?
Frétt af mbl.is
Árni Mathiesen: Hef ekki heyrt af óánægju í kjördæminu
Innlent | mbl.is | 13.5.2007 | 2:14
Árni M Mathiesen efsti maður á lista Sjálfstæðisflokksins í Suðurkjördæmi sagðist ekki hafa neinar öruggar upplýsingar um útstrikanir á listanum er blaðamaður mbl.is ræddi við hann í kvöld. Ef þetta er rétt þá er þetta eitthvað nýtt sem við verðum að skoða," sagði hann en fyrr í kvöld nefndi Geir H. Haarde formaður flokksins nafn Árna í sjónvarpsviðtali
Árni Mathiesen: Hef ekki heyrt af óánægju í kjördæminu | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 02:25 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
Sunnudagur, 13. maí 2007
Ég held að það sé ekki vænlegt að reyna stjórnarsamstarf bara með 1 manns meirihluta
Ég held að það sé ljóst að það er ekki stjórn sem geti beitt sér í erfiðum málum eða aðstöðu með aðeins eins þingmanns meirihluta. Þetta á bæði vð ef núverandi stjórn heldur meirihluta sínum sem og "Kaffibandalagið" Þannig að ég held að þessa kosti verði að taka út af borðinu nema að eitthvða meiriháttar breytist í nótt.
Það þarf ekki nema einn þingmaður að vera á móti einhverju máli svo að það verði stoppað í þingi. Því ættu menn að skoða eitthvða annað.
Jafnvel finnst mér meira spennandi að hugsa um R lista samstarf frekar en eitthvað svona tæpt.
Geir: Munum ræða við forsvarsmenn Framsóknarflokksins á morgun | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Nýjustu færslur
- 22.10.2017 Nokkrar staðreyndir um skattaþróun í tíð hægristjórna
- 29.11.2016 Auðvita er leiðiinlegt að fyrirtækið skuli vera lent í þessu!...
- 7.11.2016 Á meðan að almenningur almennt á ekki kost á svona fyrirkomul...
- 6.11.2016 Garðabær er nú ekki til fyrirmyndar í málefnum þeirra sem þur...
- 1.11.2016 Halló er ekki allt í lagi á Mogganum?
- 30.10.2016 En jafnaðarmennskan hverfur ekkert!
- 29.10.2016 Hönd flokksins
- 29.10.2016 Þetta á erindi við kjósendur
Eldri færslur
- Október 2017
- Nóvember 2016
- Október 2016
- September 2016
- Ágúst 2016
- Júlí 2016
- Júní 2016
- Maí 2016
- Apríl 2016
- Mars 2016
- Febrúar 2016
- Janúar 2016
- Desember 2015
- Nóvember 2015
- Október 2015
- September 2015
- Júlí 2015
- Júní 2015
- Maí 2015
- Apríl 2015
- Mars 2015
- Febrúar 2015
- Janúar 2015
- Desember 2014
- Nóvember 2014
- Október 2014
- September 2014
- Júlí 2014
- Júní 2014
- Maí 2014
- Apríl 2014
- Mars 2014
- Febrúar 2014
- Janúar 2014
- Desember 2013
- Nóvember 2013
- Október 2013
- September 2013
- Ágúst 2013
- Júlí 2013
- Júní 2013
- Maí 2013
- Apríl 2013
- Mars 2013
- Febrúar 2013
- Janúar 2013
- Desember 2012
- Nóvember 2012
- Október 2012
- September 2012
- Ágúst 2012
- Júlí 2012
- Júní 2012
- Maí 2012
- Apríl 2012
- Mars 2012
- Febrúar 2012
- Janúar 2012
- Desember 2011
- Nóvember 2011
- Október 2011
- September 2011
- Ágúst 2011
- Júní 2011
- Maí 2011
- Apríl 2011
- Mars 2011
- Febrúar 2011
- Janúar 2011
- Desember 2010
- Nóvember 2010
- Október 2010
- September 2010
- Ágúst 2010
- Júlí 2010
- Júní 2010
- Maí 2010
- Apríl 2010
- Mars 2010
- Febrúar 2010
- Janúar 2010
- Desember 2009
- Nóvember 2009
- Október 2009
- September 2009
- Ágúst 2009
- Júlí 2009
- Júní 2009
- Maí 2009
- Apríl 2009
- Mars 2009
- Febrúar 2009
- Janúar 2009
- Desember 2008
- Nóvember 2008
- Október 2008
- September 2008
- Ágúst 2008
- Júlí 2008
- Júní 2008
- Maí 2008
- Apríl 2008
- Mars 2008
- Febrúar 2008
- Janúar 2008
- Desember 2007
- Nóvember 2007
- Október 2007
- September 2007
- Ágúst 2007
- Júlí 2007
- Júní 2007
- Maí 2007
- Apríl 2007
- Mars 2007
- Febrúar 2007
- Janúar 2007
- Desember 2006
- Nóvember 2006
- Október 2006
- September 2006
- Júlí 2006
- Júní 2006
- Maí 2006
- Apríl 2006
- Mars 2006
- Febrúar 2006
Tenglar
ESB
Samfylkingin
Maggi B er flokksbundinn samfylkingarmaður í Samfylkingarfélaginu í Kópavogi
Teljari
Tenging við twitter
Um bloggið
Vettvangur Magga
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (22.1.): 3
- Sl. sólarhring: 6
- Sl. viku: 53
- Frá upphafi: 969573
Annað
- Innlit í dag: 3
- Innlit sl. viku: 51
- Gestir í dag: 3
- IP-tölur í dag: 3
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
RSS-straumar
RSS
Hvað er nýtt
RUV
- Augnablik - sæki gögn...
DV
- Augnablik - sæki gögn...
Visir.is
- Augnablik - sæki gögn...
Pressan
- Augnablik - sæki gögn...
Pressan Kaffistofa
- Augnablik - sæki gögn...
Af Eyjunni fréttir
- Augnablik - sæki gögn...
Bloggvinir
- Ingibjörg Hinriksdóttir
- Guðni Már Henningsson
- Kristbjörg Þórisdóttir
- Kristbjörg Þórisdóttir
- Samfylkingin Norðvesturkjördæmi
- Gísli Tryggvason
- Guðríður Arnardóttir
- Guðmundur Magnússon
- Hlynur Hallsson
- Kristján Pétursson
- Vefritid
- Bjarni Harðarson
- Davíð
- Ólöf Ýrr Atladóttir
- Björn Benedikt Guðnason
- Sigurlín Margrét Sigurðardóttir
- Egill Rúnar Sigurðsson
- Hlynur Halldórsson
- Tómas Þóroddsson
- Adda bloggar
- Killer Joe
- Tíðarandinn.is
- Þórður Steinn Guðmunds
- Kolbrún Jónsdóttir
- íd
- Haukur Nikulásson
- Hrannar Björn Arnarsson
- Sigfús Þ. Sigmundsson
- Bleika Eldingin
- Sigurður Sigurðsson
- Inga Lára Helgadóttir
- Björn Emil Traustason
- Brosveitan - Pétur Reynisson
- Björn Heiðdal
- krossgata
- Þröstur Friðþjófsson.
- S. Lúther Gestsson
- Sigurjón Sigurðsson
- Guðrún Helgadóttir
- Jón Ragnar Björnsson
- gudni.is
- Jakob Falur Kristinsson
- Sæþór Helgi Jensson
- Bergþóra Árnadóttir - RIP 15.2.48 - 8.3.07
- Félag Ungra Frjálslyndra
- Alfreð Símonarson
- Hlekkur
- Þorsteinn Briem
- Jonni
- Torfusamtökin
- Gulli litli
- Sigurður Sigurðsson
- Helena Sigurbergsdóttir
- Elías Stefáns.
- viddi
- Oddrún
- Jón Gunnar Bjarkan
- Heimir Eyvindarson
- Himmalingur
- Eygló
- Hólmfríður Bjarnadóttir
- Axel Jóhann Hallgrímsson
- Ólafur Ingólfsson
- Rúnar Þór Þórarinsson
- Styrmir Reynisson
- Helga Kristjánsdóttir
- Sæmundur Bjarnason
- Ingimundur Bergmann
- Loftslag.is
- Kjartan Jónsson
- Brattur
- Gunnar Helgi Eysteinsson
- Högni Snær Hauksson
- Jack Daniel's
- Kama Sutra
- Magnús Ragnar (Maggi Raggi).
- Ómar Bjarki Smárason
- Stefán Júlíusson