Leita í fréttum mbl.is

Bloggfærslur mánaðarins, nóvember 2008

Breytingar í vændum? - Niðurstaða skoðanakönnunar Moggans bendir til þess.

Nú er álit fólk fyrst að koma í ljós. Þetta er úr Sunnudags Morgunblaðinu 2 nóv

skodunarkonnu_mbl1nov

Og 80% vilja evru skv sömu könnun

vilja evru

 


mbl.is Um þúsund mótmælendur
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Held nú að menn ættu nú að passa sig í yfirlýsingum

Finnst eins og menn séu alveg að sleppa sér í að magna upp ástandið. Menn ættu að muna að hér á landi býr fólk sem er mjög viðkvæmt líka. T.d. fólk sem alltaf var hrætt um að það kæmi Suðurlandsskjálfti þó það byggi í Reykjavík og væri aldrei í neinni hættu.

Kreppan á fyrrihluta síðustu aldar var t.d. mjög erfið okkur. Þá var mun meira atvinnuleysi en verður nokkurn tíma nú. Fólk fyrir kreppu hafði varla í sig og á, þannig að kreppan kostaði miklar hörmungar. Eins þá var íslenska þjóðin mun fátækar þegar að síldin hvarf rétt fyrir 1970. Þá var hér fyrir atvinnuleysi og alvarleg staða.

Síðan 1992 hefur kaupmáttur og almenn velmegun rokið upp og íslendingar lifað hát. Og því verða svona áföll stór en við erum ekki að tala um að fólk fari að svelta hér eins og í Móðuharðindum þar sem að við gátum ekki einu sinn aflað okkur matar því að hér voru stórir hlutar landsins óbyggilegir um tíma vegna eldgosa.

Mér finnst eins og í dag séu allir að keppast um að lýsa ástandinu með kraftmeiri lýsingarorðum en næsti á undan. Veit ekki hvað þeir haldi að þeir nái fram með því. Ástandið er ömurlegt að við þurfum ekki að lýsa því ömurlegra en það er


mbl.is Staðan ekki alvarlegri síðan í móðuharðindunum
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Af hverju í anskotanum var þá ekkert gert?

Manni skilst að Geir hafi verið út um allt að leita að lausnum og peningum. Öll lönd sem hann leitaði til bentu honum á IMF. En Davíð og Geir voru á móti því. Liti illa úr fyrir okkur.  Og svo loks í október hrynur allt í hausinn á okkur. Maður gæti nú haldið að með því að t.d.:

  • Setja lög á bankanna hér hefði verið hægt að skipa þeim að selja eignir í vor.
  • Kalla eftir aðstoð IMF fyrr og losnað við þessa kollsteypu í haust.
  • Heimta að Landsbankinn flytti úr landi. A.m.k. IceSave hlutann. T.d. með því að þrýsta betur á Bretana.

Eins er þetta náttúrulega svakalegt ef að Bretarnir vissu af þessum erfiðleikum og gerður ekkert í því. T.d. með því að banna Landsbankamönnum að taka á móti meiru af innistæðum.

Þetta er nú meira djöfulsins klúður.


mbl.is Geir aðvaraði Brown í apríl
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Fyrri síða

Höfundur

Magnús Helgi Björgvinsson
Magnús Helgi Björgvinsson

Skoðanir Magga um menn og málefni í fréttunum. maggihb@gmail.com Athuga að þetta eru mínar skoðanir og þið megið bara hafa ykkar hentisemi, því ég er að nota mína.

Eldri færslur

Júní 2025
S M Þ M F F L
1 2 3 4 5 6 7
8 9 10 11 12 13 14
15 16 17 18 19 20 21
22 23 24 25 26 27 28
29 30          

Twitter

Teljari

joomla visitor

Twitter

Tenging við twitter

Um bloggið

Vettvangur Magga

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband