Bloggfærslur mánaðarins, nóvember 2008
Þriðjudagur, 4. nóvember 2008
Lykilstarfsmenn skulduðu bankanum jafn mikið og Noregur er að lána okkur
Þetta sýnir svo um er villst að þeir sem stýrðu bankanum voru gjörsamlega búnir að missa alla glóru. Og ekki voru eigendurnir skárra. Held að Bakkavarar menn ættu nú snarlega að hætta afskiptum af sínum fyrirtækjum og reyna að finna einhverja sérfræðinga til að stjórna fyrir sig til að bjarga því sem bjargað verður. Að hafa ekki fylgst betur með hvað menn eru að gera í banka sem þeir eiga stóran hlut í bendir til þess að árangur þeirra í viðskiptum fram að þessu hafi verið heppni sem síðustu ár snérist í höndunum á þeim og þeir kunnu ekkert til verka.
Ef menn eru að reka fyrirtæki þá leyfa þeir starfsfólki ekki að blanda sínum fjármálum svona gríðarlega inni reksturinn. Því þá geta þeir ekki treyst að ákvarðanir starfsmanna séu með hag annarra eigenda í fyrirrúmi.
Um 80. milljarðar!!!!!!!!! Það er ljóst að það voru fjárglæframenn eða kannski fjárglæpamenn við stjórn. Og minnir á þá umræðu að það þurftir að borga þeim svo hátt kaup til að þeir yrðu ekki fengnir til starfa í erlendum fyrirtækjum. Það hlýtur þá að vera slegist um þá núna.
Þessir skuldsæknu starfsmenn eiga ekkert heima í ríkisbanka. Það er ekki hægt að treysta þeim. Þeim þótti þetta allt í lagi og af hverju ættum við að treysta þeim til að byggja upp heilbrigða banka.
![]() |
Lykilmenn skulduðu 80 milljarða króna |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 17:53 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (8)
Þriðjudagur, 4. nóvember 2008
Það tók ekki nema nokkur andartök að koma þessum ófögnuði á
![]() |
Hvað tefur eftirlaunin? |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Þriðjudagur, 4. nóvember 2008
Kaup starfsmanna á hlutum í fyrirtækjum sem þeir starfa hjá!
Hef verið að velta fyrir mér þessari áráttu sem verið hefur síðustu ár og birtist í að starfsmenn eru að fá kauprétti í fyrirtækjum sem þeir starfa hjá og eins að þeir eru að kaupa og selja hluti í þeim umfram kauprétti.
Nokkur atriði:
- Er það virkilega gott fyrir fyrirtæki að starfsmenn séu á vinnutíma að annast eigin hagsmuni og vesenast í eigin hlutafélögum.
- Hagsmunir starfsmanna og fyrirtækis fara ekki alltaf saman. Er ekki hætta á að starfsmenn fari að starfa að eigin hagsmunum og þar með gegn hagsmunum fyrirtækis? Með því að taka ákvarðanir í rekstri sem hentar ekki fyrirtækinu en starfsmenn hagnast.
- Maður hefur jú heyrt að það sem hafi keyrt upp lántöku æðið hafi einmitt verið að starfsmenn voru að hugsa um eigin hag og aukna bónusa en vitað ósköp vel að t.d. bankarnir voru komnir í óefni.
![]() |
Voru skuldir stjórnenda Kaupþings afskrifaðar? |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Mánudagur, 3. nóvember 2008
Hannes heldur því fullum fetum fram að bankakreppa og staða okkar sé Ólafi Ragnari að kenna.
Ég held að Hannes Hólmsteinn hafi slegið öll met í vitleysunni í dag. Heyrði bút úr viðtali við hann á Útvarpi Sögu. Þar hélt hann því virkilega fram að með því að neita að skirfa undir fjölmiðlalögin þá hafi Ólafur Ragnar hrundið þessu öllu af stað. Með því hafi hann komið málum svo fyrir að auðmenn hafi átt öll blöðin og blaðamenn ekki þorað að rannsaka málin hér.
Svei mér þá þá held ég að honum takist illa að dreyfa málinu svona. Það hljóta allir að sjá í gegnum þetta. Það er rétt að Ólafur valdi að styðja við útrásina en svo gerðu flestir ráðherrar og seðalbankastjórar líka. En Hannes verður að viðurkenna að Ólafur hafði ekkert með lög og reglur að gera né eftirlit. Og þó maður fljúgi með viðskiptamönnum til útlanda þá er hann ekki sekur um neitt nema að hafa ekki fengið viðvaranir eins og aðrir frá stofnunum sem áttu að vara okkur við og stoppa þetta brjálæði.
Hér er frétt af www.visir.is um málið.
Hannes Hólmsteinn GissurarsonHannes Hólmsteinn Gissurarson er harðorður í garð þeirra auðmanna sem eiga fjölmiðlana á Íslandi. Í viðtali hjá Arnþrúði Karlsdóttur á Útvarpi Sögu í dag sagði hann Ólaf Ragnar Grímsson vera klappstýru auðmannanna og sakaði fjölmiðlamenn á Ríkisútvarpinu um meðvirkni og hræðslu í garð auðmanna.
Með því að auðmennirnir eignuðust fjölmiðlana minnkaði allt aðhald," segir Hannes í viðtalinu og tekur nokkur dæmi. Þar nefnir hann m.a þegar Inga Jóna Þórðardóttir eiginkona forsætisráðherra sagði sig úr stjórn Flugleiða vegna þess að henni hefði ekki líkað hvernig komið var fram þar að sögn Hannesar.
Fjölmiðlarir gerðu ekki neitt með þetta því þeir voru í eiguumsjón auðmannanna."
Hann sagði fólkið ekki treysta fjölmiðlunum því þeir væru allir keyptir eða leigðir af þessum auðmönnum og miðlarnir myndu ganga erinda þeirra.
Aðspurður hversvegna Ríkisútvarpið hefði ekkert látið í sér heyra segir Hannes að fjölmiðlafólk þar hafi verið meðvirkt því einn daginn gæti það misst vinnuna. Og þá gæti það eingöngu farið að vinna á fjölmiðli sem auðmennirnir áttu. Þannig að fjölmiðlamennirnir á Ríkisútvarpinu urðu meðvirkir með fjölmiðlamönnum á öðrum stöðum."
Hann sagði einnig að það hefði verið ákveðin samtrygging þeirra sem áttu blöðin um að gagnrýna ekki hver annan. Það var ekkert heilbrigt aðhald."
Hannes sagði að afrifaríkt skref hefði verið tekið í ranga átt árið 2004 þegar fjölmiðlafrumvarp Davíðs Oddssonar hefði verið synjað af forseta Íslands.
Ólafur Ragnar Grímsson og auðmennirnir settust upp í einkaþoturnar og lystisnekkjurnar, eignuðust fjölmiðlana, bankana, stærstu viðskiptavinana og gleyptu þetta allt."
Þetta heitir í minni bók að "hengja bakara fyrir smið."!
![]() |
Árvakur verði almenningshlutafélag á næstu árum |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Mánudagur, 3. nóvember 2008
Annað segir visir.is
Reyndar á þetta að hafa gerst í vikunni áður en Kaupþing var þjóðnýttur en hlýtur að vera ólöglegt.
Fréttastofa kannaði í dag hvað væri hæft í þessum orðrómi sem hefur vakið gríðarlega reiði hjá almenningi. Og hann virðist ekki úr lausu lofti gripinn. Fréttastofa hefur heimildir fyrir því að stjórn Kaupþings hafi skömmu fyrir þjóðnýtingu bankans ákveðið að fella niður skuldir æðstu stjórnenda, lán sem viðkomandi einstaklingar höfðu tekið til að fjármagna kaup á bréfum í bankanum.
Það er á huldu hversu margir fengu þessa lúxusmeðferð, að skuldum þeirra hafi verið sópað út af borðinu, en talið er að þeir hlaupi á tugum.
Gríðarlegar fjárhæðir munu hafa verið felldar niður með þessum hætti, og samkvæmt heimildum fréttastofu munu endurskoðendur bankanna hafa rekið augun í að þarna væri maðkur í mysunni.
Og á www.ruv.is stendur líka m.a
Kaupþing afskrifaði skuldir fjölda starfsmanna bankans í lok september, örfáum vikum áður en bankinn var þjóðnýttur. Heimildarmaður fréttastofu, sem ekki vill láta nafns síns getið, segir að stjórn bankans hafi tekið þessa ákvörðun. Fjárhæðirnar munu vera háar og skuldir fjölda starfsmanna munu hafa verið afskrifaðar.
Samkvæmt heimildum fréttastofu voru skuldir margra stjórnenda Nýja Kaupþings afskrifaðar. Sigurður Einarsson, fyrrverandi stjórnarformaður Kaupþings vildi ekki svara spurningum fréttamanns þegar náðist í hann í dag. Ekki náðist í Hreiðar Má Sigurðsson, fyrrverandi forstjóra Kaupþings, né Finn Sveinbjörnsson, forstjóra Nýja Kaupþings
![]() |
FME hefur ekki samþykkt niðurfellingu skulda |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 18:54 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
Mánudagur, 3. nóvember 2008
Það eru farnar að berast furðulegar sögur frá bönkunum.
Þetta bréf gegnur nú ljósum logum á netinu.
Yfirmaður áhættustýringar Kaupþings tapaði 2 milljörðum (mest tekið að láni) og allar skuldir hreinsaðar við hann og mörg hundruð aðra bankastarfsmenn sem tóku lán frá 10-1000 milljónir til að kaupa hlutabréf,sumir fengu sér cruiser 100 jeppa, fjármögnuðu heimsreisur og lúxusheimili. Allar skuldir hreinsaðar upp svo þeir geti hafið störf í nýju ríkisbönkunum okkar. Rökin sem FME og ráðamenn færa fyrir þessu er að það sé ómögulegt að manna yfirmannastöður í nýju bönkunum nema þetta sé gert, því lögum samkvæmt mega gjaldþrota einstaklingar ekki starfa fyrir banka!!! Fyrir mér er þetta stríðsyfirlýsing við okkur venjulegu borgarana í þessu landi sem erum flest með lán í þessum bönkum. Ef skuldir og sukk þessara óreiðumanna eru sópaðar útaf borðinu þá vil ég að það sama gangi yfir alla!!!!!! tugþúsundir töpuðu stórum hluta af sparnaði sínum, tugþúsundir venjulegra hluthafa í bönkunum töpuðu öllu sínu.... ég gæti haldið endalaust áfram... ég hef aldrei reiðst eins mikið á ævi minni og þegar ég heyrði þetta.Þetta er hámark spilingarinnar og hvet ég ykkur til að hafa samband við sem flesta og beina reiði ykkar að þingmönnum okkar. Þetta endar með ofbeldi annars.
Og þetta las ég á blogginu hennar Oddnýjar Sturludóttur:
Nú hefur dómsmálaráðherra falið ríkissaksóknara að gera skýrslu um stöðu og starfsemi íslenskra peninga- og fjármálastofnana á tímamótum í rekstri þeirra og eignarhaldi. Skýrsluhöfundar eiga að afla staðreynda um starfsemi bankanna og fyrirtækja í þeirra eigu og tilfærslu eigna, einkum á síðustu mánuðum starfseminnar.Ríkissaksóknarinn Valtýr Sigurðsson og fyrrverandi ríkissaksóknari Bogi Nilsson stýra gerð skýrslunnar og efnisöflun.Valtýr á son.Sá sonur er forstjóri Exista hf. sem er stærsti hluthafi Kaupþings hf., hann er líka stjórnarformaður Vátryggingafélags Íslands hf., Lýsingar hf., Líftryggingafélags Íslands hf., Íslenskrar endurtryggingar hf., Exista Invest ehf. og Exista Trading ehf. Meðal annars.Bogi á líka son.Sá sonur er forstöðumaður á lögfræðisviði Stoða hf. Hann er jafnframt stjórnarformaður og fer með prókúru fyrir Stoðir Capital ehf., Stoðir Eignarhaldsfélag ehf., Stoðir Finance ehf. og FL Bayrock Holdco ehf. Meðal annars.Hafa menn ekkert lært? Þarf íslenska þjóðin ekki á því að halda núna að þessi mikilvæga skýrsla verði unnin af þeirri almestu fagmennsku sem völ er á?
Þegar litið er yfir ríkisstjórnarborðið kemur í ljós að Björn Bjarnason, dómsmálaráðherra og yfirmaður ríkissaksóknara, er tengdafaðir Hreiðars Más Guðjónssonar, lykilstjórnanda í viðskiptaveldi Björgólfs Thors Björgólfssonar. Eiginmaður Þorgerðar Katrínar Gunnarsdóttur menntamálaráðherra er Kristján Arason, sem var yfirmaður einkabankaþjónustu hjá Kaupþingi. Björgvin G. Sigurðsson viðskiptaráðherra er svili Sigurðar G. Guðjónssonar, sem sat í stjórn Glitnis. Geir H. Haarde forsætisráðherra er stjúpfaðir Borgars Þórs Einarssonar, sem starfaði í lögfræðideild Landsbankans. Eiginkona Geirs, Inga Jóna Þórðardóttir, sat sem kunnugt er í stjórn FL Group en sagði sig úr stjórninni 2005 af ástæðum sem enn eru að miklu leyti óljósar.
![]() |
Árás á fullveldi þjóðarinnar |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Sunnudagur, 2. nóvember 2008
Fleiri þingmenn þurfa að fara að átta sig á vilja þjóðarinnar varðandi ESB
Fór í fljótheitum yfrir þingmannalista og hvaða skoðun ég held þeir hafi á aðildarviðræðum við ESB
Arnbjörg Sveinsdóttir (ArnbS) | 5. þm. | Norðaust. | Sjálfstfl. | formaður þingflokks | Nei |
Atli Gíslason (AtlG) | 7. þm. | Suðurk. | Vinstri-gr. | nei | |
Ágúst Ólafur Ágústsson (ÁÓÁ) | 4. þm. | Reykv. s. | Samf. | Já | |
Álfheiður Ingadóttir (ÁI) | 11. þm. | Reykv. s. | Vinstri-gr. | Nei | |
Ármann Kr. Ólafsson (ÁKÓ) | 4. þm. | Suðvest. | Sjálfstfl. | Nei | |
Árni Páll Árnason (ÁPÁ) | 11. þm. | Suðvest. | Samf. | Já | |
Árni Johnsen (ÁJ) | 6. þm. | Suðurk. | Sjálfstfl. | Nei | |
Árni M. Mathiesen (ÁMM) | 1. þm. | Suðurk. | Sjálfstfl. | fjármálaráðherra | Nei |
Árni Þór Sigurðsson (ÁÞS) | 9. þm. | Reykv. n. | Vinstri-gr. | nei | |
Ásta R. Jóhannesdóttir (ÁRJ) | 8. þm. | Reykv. s. | Samf. | 1. varaforseti | Já |
Ásta Möller (ÁMöl) | 7. þm. | Reykv. s. | Sjálfstfl. | nei | |
Birgir Ármannsson (BÁ) | 9. þm. | Reykv. s. | Sjálfstfl. | nei | |
Birkir J. Jónsson (BJJ) | 6. þm. | Norðaust. | Framsfl. | Já | |
Bjarni Benediktsson (BjarnB) | 3. þm. | Suðvest. | Sjálfstfl. | Ath | |
Bjarni Harðarson (BjH) | 8. þm. | Suðurk. | Framsfl. | nei | |
Björgvin G. Sigurðsson (BjörgvS) | 2. þm. | Suðurk. | Samf. | viðskiptaráðherra | Já |
ráðherra norrænna samstarfsmála | |||||
Björk Guðjónsdóttir (BjörkG) | 9. þm. | Suðurk. | Sjálfstfl. | Nei | |
Björn Bjarnason (BBj) | 6. þm. | Reykv. s. | Sjálfstfl. | dómsmálaráðherra | nei |
Einar K. Guðfinnsson (EKG) | 5. þm. | Norðvest. | Sjálfstfl. | sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra | nei |
Einar Már Sigurðarson (EMS) | 7. þm. | Norðaust. | Samf. | 4. varaforseti | Já |
Ellert B. Schram (EBS) | 11. þm. | Reykv. n. | Samf. | Já | |
Geir H. Haarde (GHH) | 1. þm. | Reykv. s. | Sjálfstfl. | forsætisráðherra | nei |
Grétar Mar Jónsson (GMJ) | 10. þm. | Suðurk. | Frjálsl. | nei | |
Guðbjartur Hannesson (GuðbH) | 2. þm. | Norðvest. | Samf. | Já | |
Guðfinna S. Bjarnadóttir (GSB) | 3. þm. | Reykv. n. | Sjálfstfl. | Ath | |
Guðjón A. Kristjánsson (GAK) | 6. þm. | Norðvest. | Frjálsl. | nei | |
Guðlaugur Þór Þórðarson (GÞÞ) | 1. þm. | Reykv. n. | Sjálfstfl. | heilbrigðisráðherra | nei |
Guðni Ágústsson (GÁ) | 3. þm. | Suðurk. | Framsfl. | nei | |
Gunnar Svavarsson (GSv) | 2. þm. | Suðvest. | Samf. | Já | |
Helgi Hjörvar (HHj) | 7. þm. | Reykv. n. | Samf. | Já | |
Herdís Þórðardóttir (HerdÞ) | 8. þm. | Norðvest. | Sjálfstfl. | nei | |
Höskuldur Þórhallsson (HöskÞ) | 10. þm. | Norðaust. | Framsfl. | Já | |
Illugi Gunnarsson (IllG) | 3. þm. | Reykv. s. | Sjálfstfl. | varaformaður þingflokks | Ath |
Ingibjörg Sólrún Gísladóttir (ISG) | 2. þm. | Reykv. s. | Samf. | utanríkisráðherra | Já |
Jóhanna Sigurðardóttir (JóhS) | 5. þm. | Reykv. n. | Samf. | félags- og tryggingamálaráðherra | Já |
starfsaldursforseti | |||||
Jón Bjarnason (JBjarn) | 4. þm. | Norðvest. | Vinstri-gr. | nei | |
Jón Gunnarsson (JónG) | 7. þm. | Suðvest. | Sjálfstfl. | nei | |
Jón Magnússon (JM) | 10. þm. | Reykv. s. | Frjálsl. | formaður þingflokks | Já |
Karl V. Matthíasson (KVM) | 7. þm. | Norðvest. | Samf. | Já | |
Katrín Jakobsdóttir (KJak) | 4. þm. | Reykv. n. | Vinstri-gr. | varaformaður þingflokks | nei |
Katrín Júlíusdóttir (KaJúl) | 5. þm. | Suðvest. | Samf. | Já | |
Kjartan Ólafsson (KÓ) | 4. þm. | Suðurk. | Sjálfstfl. | 3. varaforseti | nei |
Kolbrún Halldórsdóttir (KolH) | 5. þm. | Reykv. s. | Vinstri-gr. | nei | |
Kristinn H. Gunnarsson (KHG) | 9. þm. | Norðvest. | Frjálsl. | 5. varaforseti | Ath |
varaformaður þingflokks | |||||
Kristján Þór Júlíusson (KÞJ) | 1. þm. | Norðaust. | Sjálfstfl. | nei | |
Kristján L. Möller (KLM) | 3. þm. | Norðaust. | Samf. | samgönguráðherra | Já |
Lúðvík Bergvinsson (LB) | 5. þm. | Suðurk. | Samf. | formaður þingflokks | Já |
Magnús Stefánsson (MS) | 3. þm. | Norðvest. | Framsfl. | varaformaður þingflokks | Já |
Ólöf Nordal (ÓN) | 9. þm. | Norðaust. | Sjálfstfl. | nei | |
Pétur H. Blöndal (PHB) | 6. þm. | Reykv. n. | Sjálfstfl. | nei | |
Ragnheiður E. Árnadóttir (REÁ) | 9. þm. | Suðvest. | Sjálfstfl. | nei | |
Ragnheiður Ríkharðsdóttir (RR) | 12. þm. | Suðvest. | Sjálfstfl. | 6. varaforseti | nei |
Sigurður Kári Kristjánsson (SKK) | 8. þm. | Reykv. n. | Sjálfstfl. | nei | |
Siv Friðleifsdóttir (SF) | 10. þm. | Suðvest. | Framsfl. | formaður þingflokks | Ath |
Steingrímur J. Sigfússon (SJS) | 4. þm. | Norðaust. | Vinstri-gr. | nei | |
Steinunn Valdís Óskarsdóttir (SVÓ) | 10. þm. | Reykv. n. | Samf. | varaformaður þingflokks | Já |
Sturla Böðvarsson (StB) | 1. þm. | Norðvest. | Sjálfstfl. | forseti | nei |
Valgerður Sverrisdóttir (VS) | 2. þm. | Norðaust. | Framsfl. | Já | |
Þorgerður K. Gunnarsdóttir (ÞKG) | 1. þm. | Suðvest. | Sjálfstfl. | menntamálaráðherra | Já |
Þórunn Sveinbjarnardóttir (ÞSveinb) | 8. þm. | Suðvest. | Samf. | umhverfisráðherra | Já |
Þuríður Backman (ÞBack) | 8. þm. | Norðaust. | Vinstri-gr. | 2. varaforseti | nei |
Ögmundur Jónasson (ÖJ) | 6. þm. | Suðvest. | Vinstri-gr. | formaður þingflokks | nei |
Össur Skarphéðinsson (ÖS) | 2. þm. | Reykv. n. | Samf. | iðnaðarráðherra | Já |
Þetta gera
25 sem ég er viss um að vilji prófa að sækja um
33 sem ég tel að vilji ekki sækja um
5 sem eru ekki vissir eða ég veit ekki hvaða skoðun þeir hafa
Nokkuð ljóst að Alþingi endurspeglar ekki vilja þjóðarinar nú.
![]() |
Tilbúin að endurskoða afstöðu |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 22:46 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (7)
Sunnudagur, 2. nóvember 2008
Eðlilegt að Samfylking vilji ekki bera ábyrgð á Seðlabankanum
Finnst þetta (ef rétt er) algjörlega eðlilegt. Ef að Samfylkingin getur ekki sætt sig við störf ákveðins embættismanns og hann er ekki látinn fara, þá er eðlilegt að neita því að hann starfi í þeirra umboði.
Nú er það Geir sem ber ábyrgð á Seðlabanka og hann neitar að gera þar breytingar og hann ber því ábyrgð ásamt Sjálfstæðismönnum á verkum Davíðs.
Nú er Seðlabanki rúin trausti og allir kalla eftir því að þar verði skipaður maður með mikla þekkingu til að takast á við vandamálin sem steðja að peningakerfi. Jafn vel útlendan. En öll svör Geirs eru að ekki sé tímabundið að ræða þau mál. Eins og með ESB og samskipi við Breta.
![]() |
Samfylking afneitar Davíð |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Sunnudagur, 2. nóvember 2008
Vinstri sveifla en er hún til góðs? Evrópuflokkur?
Ég sem jafnaðarmaður fagna náttúrulega að fólk skuli átta sig á að til að manneskjulega verði tekið á þeim vandamálum sem við göngum nú í gegn, verði það að leita til þeirra flokka sem leggja áherslu á jöfnuð. En til þess að við fáum einhverja almennilega framtíðarsýn er ég þó hugsi vegna andstöðu Vg við aðildarumsókn að ESB.
Því tel ég grundvöll nú fyrir að fólk úr öllum flokkum sem vilja taka upp viðræður við ESB kljúfi sig út úr sínum flokkum og myndi tímabundið flokk sem hefði það að höfuð markmiði að ganga í ESB. Önnur helstu baráttumál þess flokks yrði einskonar sáttmáli milli ólíkra aðila í Evrópuflokknum. Flokkurinn gæti sett sólarlag um hversu lengi hann ætlaði að starfa og yrði slitið eftir að við erum gengin inn í ESB eða fyrir næstu kosningar þar á eftir.
Síðan yrði þá samstaf við Samfylkingu eftir næstu kosningar um aðildarumsókn að ESB
Held að vegna þess að Framsókn og Sjálfstæðisflokkurinn ætla ekki að taka tillit til vilja meirihluta þjóðarinnar sé þetta eini möguleikinn ef við ætlum ekki að bíða í 10 eða 20 ár eftir ákvörðun eða næsta hruni efnahagslífsins.
![]() |
Samfylking með langmest fylgi |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 01:13 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
Laugardagur, 1. nóvember 2008
Ég hvet fólk til að lesa heimasíðu Björns. Nú á að kæfa ESB umræðu aftur.
Mér er t.d. hulin ráðgáta af hverju alltaf er verið að vitna í Jón Daníelsson eins og hann hafi hina einu réttu skoðun. Hann m.a. predika að prenta seðla og taka í kjölfarið á okkur gríðarlega verðbólgu. Í hann vitnar björn um að hættulegt sé að tala um evru og ESB að svo stöddu.
Og m.a. vitnar Björn í viðtal við Jón Daníelsson sem segir:
Það er langtíma pólitísk spurning, sem íslenska þjóðin getur tekið afstöðu til þegar stundir líða fram. Það er fullkomlega ótímabært. Þar fyrir utan hefur Evrópusambandið nóg að gera og hefur engan tíma til að taka afstöðu til Íslands um þessar mundir. Ef landið verður svo rjúkandi rúst eftir einhverja mánuði er vafamál að sambandið hafi áhuga á að fá Íslendinga í hópinn.
Þarna er Jón farinn að gefa sér full mikið finnst mér. Hvað í ósköpunum á maðurinn við? Heldur hann að þarna séu bara nokkrir starfsmenn? Og hvað eigum við að hans mati að bíða lengi. Kannski þar til að næsta hrun skellur á okkur. Menn hafa bent á að nær allar þjóðir sem gegnið hafa í ESB undafarna áratugi hafa gengið þar inn eftir að hafa orðið fyrir efnahagsáfalli. T.d. Svíþjóð, Finnland og mun fleiri ríki.
Og síðar segir Björn:
Evrópuumræðum verður enn á ný að skipa á þann veg, að þær þvælist ekki fyrir hinum brýnu úrlausnarefnum líðandi stundar.
Held að þetta eigi að vera stefna Sjálfstæðismanna þ.e. að drepa þessa umræðu niður og koma aftur á sama kerfi og hér hefur verið.
![]() |
Ríkisstjórn og seðlabanki verða að ganga í takt |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Nýjustu færslur
- 22.10.2017 Nokkrar staðreyndir um skattaþróun í tíð hægristjórna
- 29.11.2016 Auðvita er leiðiinlegt að fyrirtækið skuli vera lent í þessu!...
- 7.11.2016 Á meðan að almenningur almennt á ekki kost á svona fyrirkomul...
- 6.11.2016 Garðabær er nú ekki til fyrirmyndar í málefnum þeirra sem þur...
- 1.11.2016 Halló er ekki allt í lagi á Mogganum?
- 30.10.2016 En jafnaðarmennskan hverfur ekkert!
- 29.10.2016 Hönd flokksins
- 29.10.2016 Þetta á erindi við kjósendur
Eldri færslur
- Október 2017
- Nóvember 2016
- Október 2016
- September 2016
- Ágúst 2016
- Júlí 2016
- Júní 2016
- Maí 2016
- Apríl 2016
- Mars 2016
- Febrúar 2016
- Janúar 2016
- Desember 2015
- Nóvember 2015
- Október 2015
- September 2015
- Júlí 2015
- Júní 2015
- Maí 2015
- Apríl 2015
- Mars 2015
- Febrúar 2015
- Janúar 2015
- Desember 2014
- Nóvember 2014
- Október 2014
- September 2014
- Júlí 2014
- Júní 2014
- Maí 2014
- Apríl 2014
- Mars 2014
- Febrúar 2014
- Janúar 2014
- Desember 2013
- Nóvember 2013
- Október 2013
- September 2013
- Ágúst 2013
- Júlí 2013
- Júní 2013
- Maí 2013
- Apríl 2013
- Mars 2013
- Febrúar 2013
- Janúar 2013
- Desember 2012
- Nóvember 2012
- Október 2012
- September 2012
- Ágúst 2012
- Júlí 2012
- Júní 2012
- Maí 2012
- Apríl 2012
- Mars 2012
- Febrúar 2012
- Janúar 2012
- Desember 2011
- Nóvember 2011
- Október 2011
- September 2011
- Ágúst 2011
- Júní 2011
- Maí 2011
- Apríl 2011
- Mars 2011
- Febrúar 2011
- Janúar 2011
- Desember 2010
- Nóvember 2010
- Október 2010
- September 2010
- Ágúst 2010
- Júlí 2010
- Júní 2010
- Maí 2010
- Apríl 2010
- Mars 2010
- Febrúar 2010
- Janúar 2010
- Desember 2009
- Nóvember 2009
- Október 2009
- September 2009
- Ágúst 2009
- Júlí 2009
- Júní 2009
- Maí 2009
- Apríl 2009
- Mars 2009
- Febrúar 2009
- Janúar 2009
- Desember 2008
- Nóvember 2008
- Október 2008
- September 2008
- Ágúst 2008
- Júlí 2008
- Júní 2008
- Maí 2008
- Apríl 2008
- Mars 2008
- Febrúar 2008
- Janúar 2008
- Desember 2007
- Nóvember 2007
- Október 2007
- September 2007
- Ágúst 2007
- Júlí 2007
- Júní 2007
- Maí 2007
- Apríl 2007
- Mars 2007
- Febrúar 2007
- Janúar 2007
- Desember 2006
- Nóvember 2006
- Október 2006
- September 2006
- Júlí 2006
- Júní 2006
- Maí 2006
- Apríl 2006
- Mars 2006
- Febrúar 2006
Tenglar
ESB
Samfylkingin
Maggi B er flokksbundinn samfylkingarmaður í Samfylkingarfélaginu í Kópavogi
Teljari
Tenging við twitter
Um bloggið
Vettvangur Magga
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (8.6.): 0
- Sl. sólarhring: 2
- Sl. viku: 18
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku: 17
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
RSS-straumar
RSS
Hvað er nýtt
RUV
Augnablik - sæki gögn...
DV
Augnablik - sæki gögn...
Visir.is
Augnablik - sæki gögn...
Pressan
Augnablik - sæki gögn...
Pressan Kaffistofa
Augnablik - sæki gögn...
Af Eyjunni fréttir
Augnablik - sæki gögn...
Bloggvinir
- Ingibjörg Hinriksdóttir
- Guðni Már Henningsson
- Kristbjörg Þórisdóttir
- Kristbjörg Þórisdóttir
- Samfylkingin Norðvesturkjördæmi
- Gísli Tryggvason
- Guðríður Arnardóttir
- Guðmundur Magnússon
- Hlynur Hallsson
- Kristján Pétursson
- Vefritid
- Bjarni Harðarson
- Davíð
- Ólöf Ýrr Atladóttir
- Björn Benedikt Guðnason
- Sigurlín Margrét Sigurðardóttir
- Egill Rúnar Sigurðsson
- Hlynur Halldórsson
- Tómas Þóroddsson
- Adda bloggar
- Killer Joe
- Tíðarandinn.is
- Þórður Steinn Guðmunds
- Kolbrún Jónsdóttir
- íd
- Haukur Nikulásson
- Hrannar Björn Arnarsson
- Sigfús Þ. Sigmundsson
- Bleika Eldingin
- Sigurður Sigurðsson
- Inga Lára Helgadóttir
- Björn Emil Traustason
- Brosveitan - Pétur Reynisson
- Björn Heiðdal
- krossgata
- Þröstur Friðþjófsson.
- S. Lúther Gestsson
- Sigurjón Sigurðsson
- Guðrún Helgadóttir
- Jón Ragnar Björnsson
- gudni.is
- Jakob Falur Kristinsson
- Sæþór Helgi Jensson
- Bergþóra Árnadóttir - RIP 15.2.48 - 8.3.07
- Félag Ungra Frjálslyndra
- Alfreð Símonarson
- Hlekkur
- Þorsteinn Briem
- Jonni
- Torfusamtökin
- Gulli litli
- Sigurður Sigurðsson
- Helena Sigurbergsdóttir
- Elías Stefáns.
- viddi
- Oddrún
- Jón Gunnar Bjarkan
- Heimir Eyvindarson
- Himmalingur
- Eygló
- Hólmfríður Bjarnadóttir
- Axel Jóhann Hallgrímsson
- Ólafur Ingólfsson
- Rúnar Þór Þórarinsson
- Styrmir Reynisson
- Helga Kristjánsdóttir
- Sæmundur Bjarnason
- Ingimundur Bergmann
- Loftslag.is
- Kjartan Jónsson
- Brattur
- Gunnar Helgi Eysteinsson
- Högni Snær Hauksson
- Jack Daniel's
- Kama Sutra
- Magnús Ragnar (Maggi Raggi).
- Ómar Bjarki Smárason
- Stefán Júlíusson