Bloggfærslur mánaðarins, nóvember 2008
Mánudagur, 10. nóvember 2008
IMF ætlar ekki að taka fyrir lánaumsókn okkar í þessari viku
Eftirfarandi las ég á www.visir.is og í framhaldi fer ég fram á að við förum að leita nýrra leiða. Tökum upp evru/dollar einhliða. Gerum eitthvað! Þetta gengur ekki lengur. Við verðum að leita nýrra leiða.
Hugsum út fyrir kassann!!!!!!!!!!!!!
Samkvæmt heimasíðu Alþjóðagjaldeyrissjóðsins (IMF) er Ísland ekki á dagkrá þar á bæ þessa vikuna. Hinsvegar mun stjórn IMF ræða málefni Al Salvador, Líbanons, Seychelles-eyja og Armeníu í vikunni.
Greining Glitnis fjallar um lánið frá IMF í Morgunkorni sínu. Þar er haft eftir forsætisráðherra að umsókninverði vonandi afgreidd á næstu dögum. Afgreiðslu lánsins hefur nú verið frestað í þrígang.
![]() |
Fitch lækkar lánshæfishorfur hjá sex ríkjum |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Mánudagur, 10. nóvember 2008
Þessi fyrirsögn segir nú margt
Framtíðarsýn í greiðslustöðvun"
Það að fyrirtækið skuli heita Framtíðarsýn og sé komið í greiðslustöðvun er náttúrulega hægt að yfirfæra þetta yfir á Ísland. Og svo er þetta náttúrulega táknrænt að það skuldi vera "Viðskiptablaðið" sem er að hætta eða breyta um form.
![]() |
Framtíðarsýn í greiðslustöðvun |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Sunnudagur, 9. nóvember 2008
Nokkrar góðar hugmyndir hafa komið nú um helgina!
Af hverju er það ekki skoðað í alvöru hvort að kröfuhafar í gömlubankana fáist til að breyta kröfum í hlutabréf? Með því fengju þeir einhver verðmæti upp í lánin sín og við fengju erlenda banka hér að málum. Þetta eru m.a. sterkustu bankar Evrópu og USA. Það yrði þá þeirra hagur að efla bankana og ná til baka með því tapinu. Og við værum trygg fyrir að sama gengið kæmist ekki hér að völdum í fjármálalífinu aftur. Eða að eigendur Ice Save reikninga yrði boði slíkt hið sama og leyst úr deilum.
Það hefur komið fram að það sé raunhæft að taka einhliða upp evru. Það gæti kostað okkur minna en gjaldmiðilsbreytingin 1980. Sérfræðingurinn sem stóð að þessu fyrir Svartfjallaland segir að þetta sé möguleiki sem við gætum nýtt okkur og gert þetta á nokkrum vikum. Hann hvetur okkur til þess þar sem að krónunni verður ekki bjargað? Og síðar mundum við laga okkur að skilyrðum ESB áður en við gengjum þangað inn. Þetta mundi spara okkur lánið sem við erum að reyna að taka nú.
Eins hefur verið bent á að þetta lán sem við erum að taka nú gæti horfið á nokkrum vikum ef að eigendur jöklabréfa fara að innleysa þau.
![]() |
Segja að eignir hafi verið umfram skuldir |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 22:01 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Sunnudagur, 9. nóvember 2008
Hvurslags stjórnkerfi er þetta eiginlega hjá okkur?
Á ég að trúa því að fjármálaeftirlit sé ekki reglulega að upplýsa yfirmenn sýna um stöðu mála? Eru aðgerðir eins og að flytja heljar rekstur á milli landa ekki nægt til þess að menn séu í stöðugu sambandi? Af hverju var viðskiptaráðherra ekki kallaður inn löngu fyrr til að flýta þessu ferli? Af hverju trúði FME svona blint á uppgjör Landsbankans og IceSave? Eru þarna ekki menn sem næga þekkingu á þessum málum?
Og af hverju þurfa allar fréttir af þessum málum nú að ganga út á að meira að segja fundir og tímasetningar á hver átti að vita hvað eru allar rengdar? Væri nú ekki vit hjá stjórnvöldum að segja okkur frá gangi mála frá upphafi, frekar en að standa í svona leik varðandi allt þetta helvítis mál.
![]() |
FME: Upplýsti ekki ráðherra |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Laugardagur, 8. nóvember 2008
Ég held að það sé orðið nauðsyn að fara að skipta út fólki
Eftir fréttir sagisins held ég að það sé oðrið alveg nauðsynlegt að skipta út fólki. Þá er eiginlega alveg sama hvort við erum að tala um stjórnmálamenn, embættismenn sem og aðra.
- Það er ljóst að Seðlabankinn var ekki að standa sig. Þar verða menn að víkja
- Það er ljóst að fjármálaeftirlit var ekki að standa sig. Þar verða menn að víkja.
- Ýmsir stjórnmálamenn hafa ekki verði að standa sig. Þá þarf að horfa í það hvort að þeir hafi ekki hlustað á embættismenn sína sem eiga að vera sérfræðingar. Eða hvort að embættismenn þeirra hafa ekki gert sér grein fyrir stöðunni, afleiðingum aðgerða og þess háttar. Eða að þeir hafa ekki upplýst stjórnvöld með nægjanlegum hætti.
![]() |
Sigurður: Lenti illilega saman við Davíð |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Fimmtudagur, 6. nóvember 2008
Hjartanlega sammála Geir. Frekar sveltum við!
Það er ekki nokkrum bjóðandi ef að Bretar geta haft svo mikil áhrif á IMF að þeir ætli að skilyrða lánið. Þá frekar sveltum við. Það verður að fara að láta heiminn vita af þessu að Bretar ætli að gera okkur 316 þúsund einstaklinga líða fyrir það að fjármálaeftirlit þeirra fylgdist ekki betur með fyrirtækjum sem voru að hirða inneignir fólks í Bretlandi.
Þeir hljóta að gera sér grein fyrir að landið stendur ekki undir þessu. Ef þeir halda svona áfram þurfum við ekkert við þá að eiga fyrr en dómar hafa fallið í þessum málum.
- Engan Breskan her hingað í loftrýmiseftirlit.
- Hótum úrsögn úr NATÓ
- Semjum við Rússa um loftrýmiseftirlit hér.
- Rekum sendiherra þeirra úr landi
Ef að þeir beita IMF til að kúga okkur þá gerum við heiminum ljóst að við getum ekki starfað með IMF og lýsum ábyrgð á hendur Breta ef að ástand mála verður þannig að við líðum verulegan skort og fátækt.
Og að lokum fer ég þess á leit að við sækjum um aðild að ESB
![]() |
Við hættum frekar við lánið |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 22:16 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
Miðvikudagur, 5. nóvember 2008
Ég hef reyndar aldrei svo ég viti greitt í VR en er að velta fyrir mér einu
En af hverju í ósköpunum hafði Kaupþings stjórnin bara 2 kosti:
-
- Að segja við lykilstarfsmenn að selja hlutabréfin og greiða upp lánin. Sala
lykilstjórnenda á hlutabréfum er tilkynningarskyld til Kauphallarinnar og því hefði sala bréfanna væntanlega leitt til ofsaótta á markaðinum og að öllum líkindum verulegs söluþrýstings frá öðrum aðilum. Öll rök benda til að slíkt ferli hefði leitt til þess að hlutabréf í bankanum hefðu fallið eins og steinn og hugsanlega leitt bankann í þrot af þeim sökum.
- Að líta svo á að bankinn væri traustur og að hann myndi komast í gegnum erfiðleikana. Hugsanlega mætti þó búast við að hlutabréfaverð félli um 10-20% í viðbót í vetur en þegar rofaði til aftur, risi hlutabréfaverðið og veð bankans gagnvart umræddum skuldum yrðu fullnægjandi á ný. Ég leit svo á að við værum því ekki að samþykkja að fella niður skuldir heldur að víkja tímabundið frá skilmálum um veðtryggingar. Markmiðið var að verja bankann frá falli. Því miður breyttist staðan og eftir á að hyggja var sú ákvörðun byggð á röngum forsendum.
- Að segja við lykilstarfsmenn að selja hlutabréfin og greiða upp lánin. Sala
Af hverju hefðu starfsmenn átt að selja bréfin ef þeir hefðu trúað því að bankinn kæmist í gegnum erfiðleikana. Hefði ekki verið hægt að halda skilmálunum eins. Hafði bankinn ekki lækkað á hlutabréfamarkaði síðustu misseri. Hefðu því ekki flestir starfsmenn orðið að borga með bréfunum ef þeir hefðu selt þau. Þ.e. þeir hefðu þurft að borga bankanum lánin sem þeir fengu til að kaupa bréfin.
Síðan vildir ég gjarnan fá að vita á hvaða kjörum starfsmenn fengu þessi lán. Hef heyrt að bankarnir hafi reiknað með að arður af bréfunum færi í að greiða þau. Getur það verið að banki sé tilbúin að lána svo háar upphæðir út á þessi kjör. Hvað er starfsmaður hætti svo?
Meiri djöfuls drullubissness sem þarf að ríkja hér á landi! Ef menn eiga rétta vini eða eru í réttu klíkunni þá virðast þeir geta fengið lánað út á allan andskotans og þurfa svo aldrei að borga þegar þetta hrinur því allt er komið í einhver einkahlutafélög sem síðan rúlla.
Og ein hvað þurfa menn sem eru með 1500 þúsund og meira í laun á mánuði sífellt að reyna að græða meira? Og þegar menn eru komnir með 500 milljónir af hverju að halda áfram að græða? Hvað ætla menn að gera við meira?
Held að þetta sér sjúkleiki og í ætt við spilafíkn. Svona menn ættu ekki að stýra fyrirtækjum sem almenningur treystir fyrir peningum.
![]() |
Ekki hægt að taka aðra ákvörðun |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 23:20 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
Miðvikudagur, 5. nóvember 2008
Hugmynd fyrir stjórnmálamenn!!
Ráðum fólk sem hefur þekkingu á ástandinu og hvernig þetta skall á okkur til að leiða þá vinnu. Helst erlenda sérfræðinga. Á meðan þá snúum við okkur að því að byggja hér upp aftur. Reynum að hugsa út fyrir kassann og koma fram með framsýnar lausnir og áræðnar. Snúum að alla og komust fyrr út úr þessu.
Hlustum t.d. á hópana í kring um Björk Guðmundsdóttur. Hugmyndir eins og að selja skiplagðar spa og sundferðir um landið. Seljum aðgang að þögn og ósnortnu landi. Styðjum við sprotafyrirtæki í stað þess að steypa okkur í risavaxnar erlendar skuldir vegna verkefna sem standa aðeins í nokkur ár og skaffa að lokum ekki nema 400 manns vinnu. Snúum okkur að hátækni.
Hefur t.d. dottið í hug: Af hverju erum við ekki framarlega í að þróa rafvæddar samgöngur? Ættum við ekki að vera framarlega þar?
Þegar að erlendir og innlendir sérfræðingar hafa tekið út stöðuna, komið upp um lögbrot og sett fram hugmyndir af reglur um fjármálamarkað þá breytum við því sem þarf að breyta. En ekki allir að leggjast í það að velta sér upp úr af hverju þetta gerðist.
Við getum verið alveg rosalega útsjónasöm. Minni t.d. á þegar við björguðum byggð í Heimaey með því að kæla hraunið með sjó.!
Ég mundi kjósa að nú þegar sæktum við um aðild að ESB og evru en veit að einhverjir eru ennþá ekki tilbúnir
Eyðum orkunni í að byggja upp hraðar en nokkur trúir að við getum.
![]() |
Þingmenn eins og afgreiðslufólk á kassa |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 15:40 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Þriðjudagur, 4. nóvember 2008
Hvar eru eigninar sem allur þessi peningur fór í?
Skv. stöð 2 í kvöld eru grunsemdir að 100 milljarðar hafi verið fluttir úr Kaupþingi inn á reikninga þar sem erfitt er að finna þá. Talað um 100 milljarða að minnsta kosti. Síðan var aflétt persónulegum ábyrgðum upp á 80 milljarða. Þessi upphæð er um 1/3 sem að ríkið er að reyna að fá lánað til að reyna að komast út úr verstu krísunni. Síðan má nefna þegar bankarnir innheimtu mikinn gengishagnað. En síðan virðast öll lán hafa farið að mestu í skuldsettar yfirtökur. Að minnstakosti eru fá af þessum fyrirtækjum sem við þekkjum og hafa fengið lán hjá þessum bönkum, sem koma til með að lifa af að fá ekki meiri lán.
Maður hefur jú heyrt um stór sumarhús og snekkjur en anskotinn hafi það hvar eru allir þessir peningar sem hafa streymt í gegnum bankana. Maður hefði haldið að 9 til 12000 milljarðar hefðu átt að sína sig í stórum eignum hérlendis og erlendis. EN þetta virðist að mestu vera skuldasúpur sem eru veð í þessum lánum. Hvar eru þá raunverulegu peningarnir sem bankarnir voru að fá lánaða?
Jú ég veit að eignir hafa rýrnað og allt það en bendi á að þetta eru það háar upphæðir að þær einar og sér mundu duga okkur til að reka allt landið í 12 til 15 ár Og jú eitthvað er hér í húsnæðislánum en samt.
Eru kannski bankar á "góðum stöðum sem eru að springa vegna Íslenskra peninga sem hafa streymt þangað?
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 22:45 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Þriðjudagur, 4. nóvember 2008
Þjófnaður?
![]() |
100 milljörðum skotið undan |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Nýjustu færslur
- 22.10.2017 Nokkrar staðreyndir um skattaþróun í tíð hægristjórna
- 29.11.2016 Auðvita er leiðiinlegt að fyrirtækið skuli vera lent í þessu!...
- 7.11.2016 Á meðan að almenningur almennt á ekki kost á svona fyrirkomul...
- 6.11.2016 Garðabær er nú ekki til fyrirmyndar í málefnum þeirra sem þur...
- 1.11.2016 Halló er ekki allt í lagi á Mogganum?
- 30.10.2016 En jafnaðarmennskan hverfur ekkert!
- 29.10.2016 Hönd flokksins
- 29.10.2016 Þetta á erindi við kjósendur
Eldri færslur
- Október 2017
- Nóvember 2016
- Október 2016
- September 2016
- Ágúst 2016
- Júlí 2016
- Júní 2016
- Maí 2016
- Apríl 2016
- Mars 2016
- Febrúar 2016
- Janúar 2016
- Desember 2015
- Nóvember 2015
- Október 2015
- September 2015
- Júlí 2015
- Júní 2015
- Maí 2015
- Apríl 2015
- Mars 2015
- Febrúar 2015
- Janúar 2015
- Desember 2014
- Nóvember 2014
- Október 2014
- September 2014
- Júlí 2014
- Júní 2014
- Maí 2014
- Apríl 2014
- Mars 2014
- Febrúar 2014
- Janúar 2014
- Desember 2013
- Nóvember 2013
- Október 2013
- September 2013
- Ágúst 2013
- Júlí 2013
- Júní 2013
- Maí 2013
- Apríl 2013
- Mars 2013
- Febrúar 2013
- Janúar 2013
- Desember 2012
- Nóvember 2012
- Október 2012
- September 2012
- Ágúst 2012
- Júlí 2012
- Júní 2012
- Maí 2012
- Apríl 2012
- Mars 2012
- Febrúar 2012
- Janúar 2012
- Desember 2011
- Nóvember 2011
- Október 2011
- September 2011
- Ágúst 2011
- Júní 2011
- Maí 2011
- Apríl 2011
- Mars 2011
- Febrúar 2011
- Janúar 2011
- Desember 2010
- Nóvember 2010
- Október 2010
- September 2010
- Ágúst 2010
- Júlí 2010
- Júní 2010
- Maí 2010
- Apríl 2010
- Mars 2010
- Febrúar 2010
- Janúar 2010
- Desember 2009
- Nóvember 2009
- Október 2009
- September 2009
- Ágúst 2009
- Júlí 2009
- Júní 2009
- Maí 2009
- Apríl 2009
- Mars 2009
- Febrúar 2009
- Janúar 2009
- Desember 2008
- Nóvember 2008
- Október 2008
- September 2008
- Ágúst 2008
- Júlí 2008
- Júní 2008
- Maí 2008
- Apríl 2008
- Mars 2008
- Febrúar 2008
- Janúar 2008
- Desember 2007
- Nóvember 2007
- Október 2007
- September 2007
- Ágúst 2007
- Júlí 2007
- Júní 2007
- Maí 2007
- Apríl 2007
- Mars 2007
- Febrúar 2007
- Janúar 2007
- Desember 2006
- Nóvember 2006
- Október 2006
- September 2006
- Júlí 2006
- Júní 2006
- Maí 2006
- Apríl 2006
- Mars 2006
- Febrúar 2006
Tenglar
ESB
Samfylkingin
Maggi B er flokksbundinn samfylkingarmaður í Samfylkingarfélaginu í Kópavogi
Teljari
Tenging við twitter
Um bloggið
Vettvangur Magga
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (7.6.): 2
- Sl. sólarhring: 2
- Sl. viku: 29
- Frá upphafi: 969909
Annað
- Innlit í dag: 2
- Innlit sl. viku: 28
- Gestir í dag: 2
- IP-tölur í dag: 2
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
RSS-straumar
RSS
Hvað er nýtt
RUV
Augnablik - sæki gögn...
DV
Augnablik - sæki gögn...
Visir.is
Augnablik - sæki gögn...
Pressan
Augnablik - sæki gögn...
Pressan Kaffistofa
Augnablik - sæki gögn...
Af Eyjunni fréttir
Augnablik - sæki gögn...
Bloggvinir
- Ingibjörg Hinriksdóttir
- Guðni Már Henningsson
- Kristbjörg Þórisdóttir
- Kristbjörg Þórisdóttir
- Samfylkingin Norðvesturkjördæmi
- Gísli Tryggvason
- Guðríður Arnardóttir
- Guðmundur Magnússon
- Hlynur Hallsson
- Kristján Pétursson
- Vefritid
- Bjarni Harðarson
- Davíð
- Ólöf Ýrr Atladóttir
- Björn Benedikt Guðnason
- Sigurlín Margrét Sigurðardóttir
- Egill Rúnar Sigurðsson
- Hlynur Halldórsson
- Tómas Þóroddsson
- Adda bloggar
- Killer Joe
- Tíðarandinn.is
- Þórður Steinn Guðmunds
- Kolbrún Jónsdóttir
- íd
- Haukur Nikulásson
- Hrannar Björn Arnarsson
- Sigfús Þ. Sigmundsson
- Bleika Eldingin
- Sigurður Sigurðsson
- Inga Lára Helgadóttir
- Björn Emil Traustason
- Brosveitan - Pétur Reynisson
- Björn Heiðdal
- krossgata
- Þröstur Friðþjófsson.
- S. Lúther Gestsson
- Sigurjón Sigurðsson
- Guðrún Helgadóttir
- Jón Ragnar Björnsson
- gudni.is
- Jakob Falur Kristinsson
- Sæþór Helgi Jensson
- Bergþóra Árnadóttir - RIP 15.2.48 - 8.3.07
- Félag Ungra Frjálslyndra
- Alfreð Símonarson
- Hlekkur
- Þorsteinn Briem
- Jonni
- Torfusamtökin
- Gulli litli
- Sigurður Sigurðsson
- Helena Sigurbergsdóttir
- Elías Stefáns.
- viddi
- Oddrún
- Jón Gunnar Bjarkan
- Heimir Eyvindarson
- Himmalingur
- Eygló
- Hólmfríður Bjarnadóttir
- Axel Jóhann Hallgrímsson
- Ólafur Ingólfsson
- Rúnar Þór Þórarinsson
- Styrmir Reynisson
- Helga Kristjánsdóttir
- Sæmundur Bjarnason
- Ingimundur Bergmann
- Loftslag.is
- Kjartan Jónsson
- Brattur
- Gunnar Helgi Eysteinsson
- Högni Snær Hauksson
- Jack Daniel's
- Kama Sutra
- Magnús Ragnar (Maggi Raggi).
- Ómar Bjarki Smárason
- Stefán Júlíusson