Bloggfærslur mánaðarins, júlí 2008
Laugardagur, 19. júlí 2008
Svona tala menn ekki Bubbi!
Þó að vissulega sé til fátækt á Íslandi eins og í öllum öðrum löndum þá er það illa gert að hnýta í aðra Kollega fyrir að þeir halda tónleika fyrir að vekja athygli á sínum áhugamálum. Bendi Bubba á að hann hélt tónleika til að vekja umræður um kynþáttahatur hér á landi.
Hann á frekar að fagna því að hér eru fleiri eins og hann sem vilja leggja málum lið. Síðan er óheppilegt að í þessari grein er upplýst að hann hefur jú auðsjáanlega haft dálítið af umframfé sjálfur sem hann fjárfesti í hlutabréfum og tapaði á. Það er nokkuð ljóst að fátækt verður ekki upprætt nema að einhverjir sem hafa meira láti eitthvað frá sér til þeirra sem búa við verri kjör. Því að peningarnir þurfa að koma einhverstaðar frá. T.d. með skattleysismörkum sem þá þýðir að við hin þurfum að borga meira.
Björk ætti frekar að syngja gegn fátækt | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 13:05 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Fimmtudagur, 17. júlí 2008
FL GROUP - ICELANDIC BUSINESS MIRACLE
Bara varð að setja þetta hér inn. FL group sagan eins og hún leggur sig. Fann þetta á www.eyjan.is
Uppsveifla í evrópskum kauphöllum | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 23:07 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Fimmtudagur, 17. júlí 2008
Þetta er bara ekki ásættanlegt!
Það er algjörlega óásættanlegt þessi staða í lögreglumálum Höfuðborgarsvæðisins. Það sjá það allir sem sjá vilja að 14 lögregluþjónar fyrir allt höfuðborgarsvæðið er bara ekki næg mönnun. Það er ljóst að lögreglu fer hlutfallslega fækkandi miðað við þróun fólksfjölda hér á svæðinu.
Á meðan fer sífellt meiri peningum í ríkislögregluembættið.
Það er ömurleg þróun eins og er hér í Kópavogi þar sem að nú er lokað hjá lögreglunni hér á kvöldin og um helgar. Gjörsamlega óásættanlegt hér í næst stærsta bæ landsins.
Verst er þegar að yfirmenn lögreglumála koma svo fjölmiðla og verja þetta og tala um að þjónusta þeirra hafi ekki versnað.
Gagnrýna stöðu löggæslumála í Reykjavík | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Þriðjudagur, 15. júlí 2008
Gunnar veit betur en bæjarbúar hvað þeim er fyrir bestu.
Það var skv. venju þegar maður hlustaði á viðtöl í kvöld við Gunnar. Þegar að borið var undir hann sú skoðun bæjarbúa í Kársnesi að samráð hefði ekki verið nema í mýflugu mynd þá sagði hann það ekki satt og fólk færi ekki með rétt mál. Þetta er skv. venju hjá honum. Hann lætur alltaf eins og hann sé verktaki sem er að reyna að koma í framkvæmd verki sem er umdeilt. Viðbrögð hans mynna oft á vinnubrögð Landsvirkjunar þegar hún er að reyna að koma á umdeildum virkjunm.
Hann talar fjálglega nú um að stórskipahöfnin í Kársnesi verð lögð af. Það væri gaman að vita hvað mörg hundruð milljónum hann er búinn að eyða í þetta gæluverkefni sitt. En hann dreymdi um að gera þarna stóra höfn sem enginn annar nema hugsanlega Bykó vildi.
Gunnari væri holt að muna að hann er kjörinn bæjarfulltrúi til að framkvæma vilja bæjarbúa. Það er þeirra að ákveða hvernig bæ þeir vilja. Þeir sætta sig ekki til lengdar við að Gunnar sé með allskonar bolabrögðum að koma af stað framkvæmdum sem hennta vinum hans vertökum og fjárfestum sem kaupa lóðir og treysta á að Kópavogur hlaupi til að samþykki alla duttlunag þeirra. T.d. 30 hæða hús, mjög þétta byggð og svo framvegis.
P.s. Hlustaði á útvarp frá fundi bæjarstjórnar. Verð að segja að ég held að Ómar Stefánsson ætti að gera sjálfum sér greiða og hætta sjálfviljugur í pólitík.
Samþykkt að auglýsa nýtt Kársnesskipulag | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 22:55 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Þriðjudagur, 15. júlí 2008
Ætli áherslunar verði ekki á að hækka laun forstjórana?
Svona skv. reynslu þá verður starfsfólki fækkað og laun forstjóra og fríðindi aukin að sama skapi.
Ekki viss um að forstjórar í dag kunni að bregðast við þessu ástandi. Þeir margir voru ekki til síðast þegar almennileg kreppa var hér á landi. Það hefur jú verið áhersla síðustu ára að ráða unga menn í þessar stöður ný útskrifaða úr skólum. Sem hafa megnið af sinni þekkingu af bókum ekki reynslu af erfiðum tímum.
Fyrirtæki hagræða í rekstri | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Þriðjudagur, 15. júlí 2008
Vandaðri fréttamennsku takk!
Flosi Eiríksson var í 4 sæti á lista Samfylkingar og er ekki oddviti. Hún heitir Guðríður Arnardóttir sem er oddviti Samfylkingarinnar í Kópavogi
Það á ekki að sleppa Gunnari svona auðveldlega með að að jarðvegsdýpt hafi verið meiri en þeir reiknuðu með. Menn áttu að vita þetta þar sem búið er að byggja þarna áður. Þetta er fyrrverandi mýri og mátti öllum vera ljóst að það var langt niður á fast. Og þetta skýrir varla þennan auka kostnað.
Ekki þar fyrir að þetta er glæsileg stúka en það að menn geti bara hafið framkvæmdir án mikils undirbúnings og sagt að þetta kosti 300 milljónir en bæta síðan við svona bara til að monta sig hinu og þessu upp á tæpar 600 milljónir sýnir að það er ekki lagi með ákvarðanatökur í Kópavogi.
Stúkan fór úr 300 milljónum í 870 | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 08:48 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (8)
Mánudagur, 14. júlí 2008
Hvernig væri nú að menn færu að gera eitthvað til að fá botn í þetta mál?
Af hverju er verið að setja þetta í nefnd sem auðsjáanlega er gert að vinna þetta eins hægt og hún getur. Þ.e. ESB/evru?
- Mér dettur t.d. í hug að fengið yrði eitthvað virt erlent fyrirtæki eða þá að um samvinnu innlendra aðila og erlendra yrði að ræða. Þeim væri gert að koma fram með upplýsingar á mannamáli sem almenningur skilur um kosti þess og galla að sækja um ESB eða ekki. Um að taka upp evru eða ekki. Og loks að leggja á það mat hvort að Íslensku þjóðinni yrði betur komið innan eða utan ESB.
- Þessum aðilum yrði kannski gefnir svona um 3 til 4 mánuðir til að koma með gögn sem hægt er að leggja fyrir þjóðina.
- Þessi gögn á mannamáli væri hægt að vinna upp sem sjónvarpsþætti þar sem að fjallað yrði um málið frá öllum hliðum. Öll sjónarmið fengju að komast að og á heimasíðu samhliða gæti fólk komið fram með skoðanir og spurningar.
- Þannig að eftir kannski 6 til 10 mánuði yrði þjóðin mun upplýstari um hvaða ákvarðanir henni fyndist að leggja ætti áherslu á varðandi ESB/evru.
- Ef að þjóðin vildi að kannað yrði hver staða okkar væri í samningum við ESB og hvað við fengjum fram af því sem við leggjum áherslu á, þá yrði haldin þjóðaratkvæðagreiðsla um það hvort fara ætti í viðræður við ESB. Og síðan er náttúrulega skilda að leggja samning fyrir þjóðina að lokum svo hann öðlist gildi.
Þetta kjaftæði sem er í dag þjónar bara þeim tilgangi að halda aftur af raunverulegri umræðu um mál sem getur skipt almenning í þessu landi miklu máli. M..a væri gaman að einhver kannaði hvort og þá hvað hver fjölskylda er að borga í fórnarkosnað t.d. vexti, matarverði og hækkun lána vegna verðtryggingar og gengisfalls krónunar.
Eins eru flestir sem eru að tjá sig um þetta mál eru ekki að fjalla um þetta af þekkingu heldur tilfinningu. Það er ekki gott!
Íslenska krónan vænlegust | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Stjórnmál og samfélag | Breytt 15.7.2008 kl. 11:23 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Sunnudagur, 13. júlí 2008
Held að Guðni sé ekki að skilja þetta með verðbólguna!
Manni hefur jú verið kennt það að verðbólga sé að stórum hluta komin til vegna þenslu. Á það var bent þegar ráðist var í Kárahnjúka og Reyðarál að því myndi fylgja þensla sem mundi leiða til verðbólguskots.
- Framsókn og Sjálfstæðismenn fóru um leið í aðgerðir eins og að aflétta öllum hömlum af bönkum. Þeir voru einkavæddir af þeim létt ýmsum skildum m.a. bindiskyldunni að stórum hluta. Af því leiddi að allir sem vildu gátu fengið eins há lán og þeir vildu og bankarnir óðu í lánsfé frá útlöndum sem brann á þeim að endurlána til fyrirtækja og einstaklinga. Sem leiddi til að fyrirtæki og einstaklingar offjárfestu í ríku mæli og skuldsettu sig.
- Til að hamla á móti þenslunni reyndi Seðlabankinn að að hamla á móti eftirspurn eftir fjármagni og draga úr neyslu með því að auka stýrivexti. Þetta hefur svo aukið eftirspurn eftir krónubréfum þar sem að vaxtamunur er svo gríðarlegur.
- Get ekki með nokkru móti séð að það að við tökum 500 milljarða á óhagstæðum kjörum geri nokkuð til að bjarga þessum málum. Þetta mundi jú létta undir með bönkunum en um leið yrði þetta til þess að auka þensluna enn frekar og þar af leiðandi yrði verðbólgan enn meiri.
- Eins ef að vextir yrðu lækkaðir um leið mundi það líka auka á þensluna og valda þrýstingi á aukinni lántöku einstaklinga og fyrirtækja og gera þau enn viðkvæmari fyrir verðbólgu.
- Þetta mundi líka verða til þess að laun mundu hækka verulega nú á næsta ári þegar samningar eru lausir.
- Stóriðja strax mundi hafa sömu áhrif.
Það sem ég held að ríkið ætti að byrja á núna frekar er að
- Lækka tímabundið álögur á bensín, lækka tolla á matvöru og aflétta innflutningshöftum. Þetta mundi skila sér strax í lækkun verðbólgu.
- Síðan ætti ríkið af semja við aðila atvinnulífsins og verkalýðhreyfingu um hóflega samninga gegn því að vörur og þjónusta lítið bæði hjá ríki og einkaaðilum.
- Síðan þegar að lánamarkaður leyfi þá á að taka þetta lán. En um leið að auka bindiskyldu bankanna. Og gera þá ábyrgari fyrir sínum útlánum.
- Ekki flýta okkur í virkjunarmálum. Heldur leyta að nýtingu sem skilar okkur flestum störfum. Muna að nú eins og staðan er í dag er orka sífellt að verða verðmætari. Ekki gera samninga um gríðarlega orku til eins aðila til svo langs tíma eins og við gerum í dag. Hafa möguleika á að endurskoða samninga t.d. á 10 ára fresti.
- Stilla framkæmdir þannig af í tímaröð að þær valdi ekki umtalsverðri þenslu.
Þjóðin þarf festu í landstjórnina | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 01:36 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Föstudagur, 11. júlí 2008
Er engin leið að fá að vita hverjir það eru sem standa í viðskiptum með krónu upp á 75 milljarða?
Nú á þessum tímum þegar sífellt er verið að tala um gengi krónunar og viðskipti á gjaldeyrismarkaði finnst mér að það væri gaman að vita hverjir það eru sem eru í þessum viðskiptum. Er þá að meina þessa stærstu. Manni finnst það nú hálf skrýtið ef þetta er annað en brask vegna þess að menn séu að reyna að græða á falli krónunar og vaxtamun við útlönd.
Af hverju er þessi viðskipti ekki gefin upp?
Krónan veiktist um 2,2% | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Föstudagur, 11. júlí 2008
Bendi á flotta grein um brask og bókhaldsæfingar varðandi Sterling
Var að lesa grein á www.t24.is þar sem einmitt er verið að fjalla um brask íslendinga með þetta félag. Þar segir m.a.
8. júlí 2008Hringekja Sterling og alltaf aukast verðmætin
Varla eru mörg fyrirtæki í heiminum sem hafa verið seld jafn oft á jafn stuttum tíma og Sterling Airlines. Og það sem meira er; seljendur hafa ekki gert mikið annað en græða milljarða (a.m.k. á bókum) þó aðeins nokkrir mánuðir hafi liðið á milli kaupsamninga. Ekki verður betur séð en að íslenskir athafnamenn séu öðrum fremri að selja fyrirtæki aftur og aftur, yfirleitt sín á milli, með verulegum hagnaði.
Kaup- og söluævintýrið hófst í mars 2005 þegar Fons, eignarhaldsfélag Pálma Haraldssonar og Jóhannesar Kristinssonar, keypti Sterling fyrir um fimm milljarða króna. Frá þeim tíma hefur flugfélagið gengið kaupum og sölu á milli tengdra aðila. Sjö mánuðum eftir kaupin seldi Fons, með smá fléttu, flugfélagið fyrir 14,6 milljarða króna til FL Group, sem rúmlega ári síðar seldi félagið aftur til nýs hlutafélag sem þar sem Fons var stærsti eigandinn fyrir 20 milljarða króna.
Síðar segir
En söluferlinu á Sterling var langt í frá lokið.
Northern Travel Holding (NTH) var stofnað undir lok ársins 2006 þegar allt lék í lyndi og engum datt í hug að íslenskir útrásarvíkingar gætu stígið feilspor. Í tilkynningu til Kauphallar greindi FL Group frá því að tekist hefði að snúa rekstri Sterling við og væri það því rökrétt framhald að selja flugfélagið inn í hið nýstofnaða félag NTH fyrir 20 milljarða króna. FL Group var meðal hluthafa NTH ásamt Fons og Sundi (sem síðar gekk út úr félaginu). Fons var stærsti hluthafinn og því aftur eigandi Sterling í gegnum NTH.
Og loks
En að minnsta kosti einu sinni enn hefur Sterling verið selt en í byrjun þessa mánaðar var tilkynnt að Fons hefði keypt FL út úr Northern Travel Holding - en FL heitir nú Stoðir. Þar með er fjórðu sölunni á Sterling á rúmum þremur árum lokið og flugfélagið aftur komið í eigu Fons, sem keypti flugfélagið upphaflega í mars 2005. Kaupverðið hefur ekki verið gefið upp en Fons greiddi með hlutabréfum í Stoðum (FL Group) og hringnum hefur því verið lokað - að minnsta kosti í bili. [af www.t24.is nánar þá hér]
Þetta er náttúrulega bara fyndið. Fyrrum eigendur að kaupa fyrirtækið á mun hærra verði og á sama tíma er fyrirtækið í djúpri kreppu.
Endilega lesa greinina á www.t24.is hún lýsir þessu vel
Uppsagnir hjá Sterling | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 01:23 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Nýjustu færslur
- 22.10.2017 Nokkrar staðreyndir um skattaþróun í tíð hægristjórna
- 29.11.2016 Auðvita er leiðiinlegt að fyrirtækið skuli vera lent í þessu!...
- 7.11.2016 Á meðan að almenningur almennt á ekki kost á svona fyrirkomul...
- 6.11.2016 Garðabær er nú ekki til fyrirmyndar í málefnum þeirra sem þur...
- 1.11.2016 Halló er ekki allt í lagi á Mogganum?
- 30.10.2016 En jafnaðarmennskan hverfur ekkert!
- 29.10.2016 Hönd flokksins
- 29.10.2016 Þetta á erindi við kjósendur
Eldri færslur
- Október 2017
- Nóvember 2016
- Október 2016
- September 2016
- Ágúst 2016
- Júlí 2016
- Júní 2016
- Maí 2016
- Apríl 2016
- Mars 2016
- Febrúar 2016
- Janúar 2016
- Desember 2015
- Nóvember 2015
- Október 2015
- September 2015
- Júlí 2015
- Júní 2015
- Maí 2015
- Apríl 2015
- Mars 2015
- Febrúar 2015
- Janúar 2015
- Desember 2014
- Nóvember 2014
- Október 2014
- September 2014
- Júlí 2014
- Júní 2014
- Maí 2014
- Apríl 2014
- Mars 2014
- Febrúar 2014
- Janúar 2014
- Desember 2013
- Nóvember 2013
- Október 2013
- September 2013
- Ágúst 2013
- Júlí 2013
- Júní 2013
- Maí 2013
- Apríl 2013
- Mars 2013
- Febrúar 2013
- Janúar 2013
- Desember 2012
- Nóvember 2012
- Október 2012
- September 2012
- Ágúst 2012
- Júlí 2012
- Júní 2012
- Maí 2012
- Apríl 2012
- Mars 2012
- Febrúar 2012
- Janúar 2012
- Desember 2011
- Nóvember 2011
- Október 2011
- September 2011
- Ágúst 2011
- Júní 2011
- Maí 2011
- Apríl 2011
- Mars 2011
- Febrúar 2011
- Janúar 2011
- Desember 2010
- Nóvember 2010
- Október 2010
- September 2010
- Ágúst 2010
- Júlí 2010
- Júní 2010
- Maí 2010
- Apríl 2010
- Mars 2010
- Febrúar 2010
- Janúar 2010
- Desember 2009
- Nóvember 2009
- Október 2009
- September 2009
- Ágúst 2009
- Júlí 2009
- Júní 2009
- Maí 2009
- Apríl 2009
- Mars 2009
- Febrúar 2009
- Janúar 2009
- Desember 2008
- Nóvember 2008
- Október 2008
- September 2008
- Ágúst 2008
- Júlí 2008
- Júní 2008
- Maí 2008
- Apríl 2008
- Mars 2008
- Febrúar 2008
- Janúar 2008
- Desember 2007
- Nóvember 2007
- Október 2007
- September 2007
- Ágúst 2007
- Júlí 2007
- Júní 2007
- Maí 2007
- Apríl 2007
- Mars 2007
- Febrúar 2007
- Janúar 2007
- Desember 2006
- Nóvember 2006
- Október 2006
- September 2006
- Júlí 2006
- Júní 2006
- Maí 2006
- Apríl 2006
- Mars 2006
- Febrúar 2006
Tenglar
ESB
Samfylkingin
Maggi B er flokksbundinn samfylkingarmaður í Samfylkingarfélaginu í Kópavogi
Teljari
Tenging við twitter
Um bloggið
Vettvangur Magga
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (20.1.): 7
- Sl. sólarhring: 23
- Sl. viku: 49
- Frá upphafi: 969564
Annað
- Innlit í dag: 7
- Innlit sl. viku: 48
- Gestir í dag: 7
- IP-tölur í dag: 6
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
RSS-straumar
RSS
Hvað er nýtt
RUV
- Augnablik - sæki gögn...
DV
- Augnablik - sæki gögn...
Visir.is
- Augnablik - sæki gögn...
Pressan
- Augnablik - sæki gögn...
Pressan Kaffistofa
- Augnablik - sæki gögn...
Af Eyjunni fréttir
- Augnablik - sæki gögn...
Bloggvinir
- Ingibjörg Hinriksdóttir
- Guðni Már Henningsson
- Kristbjörg Þórisdóttir
- Kristbjörg Þórisdóttir
- Samfylkingin Norðvesturkjördæmi
- Gísli Tryggvason
- Guðríður Arnardóttir
- Guðmundur Magnússon
- Hlynur Hallsson
- Kristján Pétursson
- Vefritid
- Bjarni Harðarson
- Davíð
- Ólöf Ýrr Atladóttir
- Björn Benedikt Guðnason
- Sigurlín Margrét Sigurðardóttir
- Egill Rúnar Sigurðsson
- Hlynur Halldórsson
- Tómas Þóroddsson
- Adda bloggar
- Killer Joe
- Tíðarandinn.is
- Þórður Steinn Guðmunds
- Kolbrún Jónsdóttir
- íd
- Haukur Nikulásson
- Hrannar Björn Arnarsson
- Sigfús Þ. Sigmundsson
- Bleika Eldingin
- Sigurður Sigurðsson
- Inga Lára Helgadóttir
- Björn Emil Traustason
- Brosveitan - Pétur Reynisson
- Björn Heiðdal
- krossgata
- Þröstur Friðþjófsson.
- S. Lúther Gestsson
- Sigurjón Sigurðsson
- Guðrún Helgadóttir
- Jón Ragnar Björnsson
- gudni.is
- Jakob Falur Kristinsson
- Sæþór Helgi Jensson
- Bergþóra Árnadóttir - RIP 15.2.48 - 8.3.07
- Félag Ungra Frjálslyndra
- Alfreð Símonarson
- Hlekkur
- Þorsteinn Briem
- Jonni
- Torfusamtökin
- Gulli litli
- Sigurður Sigurðsson
- Helena Sigurbergsdóttir
- Elías Stefáns.
- viddi
- Oddrún
- Jón Gunnar Bjarkan
- Heimir Eyvindarson
- Himmalingur
- Eygló
- Hólmfríður Bjarnadóttir
- Axel Jóhann Hallgrímsson
- Ólafur Ingólfsson
- Rúnar Þór Þórarinsson
- Styrmir Reynisson
- Helga Kristjánsdóttir
- Sæmundur Bjarnason
- Ingimundur Bergmann
- Loftslag.is
- Kjartan Jónsson
- Brattur
- Gunnar Helgi Eysteinsson
- Högni Snær Hauksson
- Jack Daniel's
- Kama Sutra
- Magnús Ragnar (Maggi Raggi).
- Ómar Bjarki Smárason
- Stefán Júlíusson