Leita í fréttum mbl.is

Málefni Kópavogs og Heiðmerkur skýrð á skemmtilegan hátt

Ég vitnaði í síðustu færslu í blogg Hafsteins Karlssonar og ætla að gera það hér líka. Hafsteinn Karlsson er auk þess að vera skólastjóri bæjarfulltrúi í Kópavogi. En í þessari færslu fer hann yfir málið á skemmtilegan hátt:

Þegar klaufabárðarnir tóku að sér að stjórna bæ
Einu sinni var stundum skotið inn á milli dagskráratriða í sjónvarpinu litlum þáttum af leirkörlum sem kallaðir voru klaufabárðarnir. Mig minnir að í einum þættinum hafi þeir setið í meirihluta í bæjarstjórn í bæ nokkrum.

Hvert málið rak annað þar sem klaufabárðarnir klúðruðu málunum. Þeir t.d. óðu án nokkurs leyfis yfir dýrmætt skógræktarland til þess að koma fyrir rörum sem áttu að flytja kalt gjafavatn til íbúa í næsta bæ við þann sem þeir stjórnuðu.

Já, það var nefnilega eitt klúðrið hjá þeim rétt fyrir kosningar að bjóða bæjarstjórn nágrannabæjarins niðurgreitt vatn næstu áratugina. Ekki vegna þess að nágrannabærinn væri svona fátækur eða íbúar hans illa haldnir.

Nei en blessaðir klaufabárðarnir höfðu í flumbrugangi sínum lofað hestamönnum aðstöðu og meira að segja hestaakademíu inn á vatnsverndarsvæði nágrannabæjarins.

Það var nefnilega út af því að klaufarnir ruku til án þess að hugsa málin og keyptu fjármálabraskara út úr klúðri sem þeir voru búnir að koma sér í með kaupum á hesthúsum sem hestamennirnir áttu og voru í bænum.

Braskararnir voru búnir með peninginn og enginn vildi lána þeim til að kaupa fleiri hesthús, en þeir ætluðu að græða svo mikið á því. Og nú voru þeir í miklum vandræðum, blessaðir fjármálabraskararnir.

En klaufabárðarnir fréttu þetta og vorkenndu bröskurunum svo mikið að þeir buðust til að láta bæinn sem þeir stjórnuðu kaupa öll hesthúsin sem þeir höfðu keypt á miklu hærra verði en þeir höfðu sjálfir borgað fyrir þau.

Braskararnir voru glaðir af því að nú höfðu þeir grætt mörg hundruð milljónir á því að skemma fyrir hestamönnunum. Nú gátu þeir farið með peninginn eitthvert annað og gert einhvern óskunda þar.

Hestamennirnir voru reiðir því að braskaranir voru að eyðileggja félagið þeirra. En  klaufabárðarnir keyptu bara líka öll hestuhúsin af þeim á sama verði og þeir borgðuðu bröskurunum og lofuðu líka landi undir ný hesthús og hestaakademíu.

En svo átti nágrannabærinn að fara að fá vatnið. Þá varð ná í vatnið. En það var flókið vegna þess að bóndi einn átti land sem þeir þurftu að fara yfir. Hann vildi það ekki og því þurftu þeir að láta bæinn kaupa allt landið af honum.

Og hann fékk marga marga milljarða og mátti svo selja lóðir af landinu sem hann var búinn að selja bænum og ráða svolítið yfir fólkinu sem ætlaði að búa þar.

Og svo byrjuðu þeir að grafa og koma rörunum oní jörðina því tíminn var orðinn naumur. Þeir höfðu nefnilega lofað vatninu fyrir ákveðinn tíma og ef það tækist ekki að ná því upp úr jörðinni úr borholum bæjarins varð að kaupa vatnið af vatnssölufyrirtæki á miklu hærra verði.

Æ, en svo var allt í einu þetta skógræktarland. Og klaufabárðarnir ákváðu bara að vaða yfir það. Þetta voru hvort eð er bara ómerkileg tré.

En það fattaðist og þeir máttu þetta ekki. Löggan kom og allt.

Og þetta varð til þess að klaufabárðarnir voru látnir hætta að stjórna bænum. Enda allt í klúðri.

Og þannig endaði þessi þáttur um klaufabárðana.

Finnar farnir að bera óttablandna virðingu fyrir okkur og útrásinni

Rakst á þessa frásögn á síðu Hafsteins Karlssonar skólastjóra sem er við nám í Finnlandi:

Misjöfn þjónusta
Frá því að ég kom til Finnlands í byrjun janúar hef ég þráfaldlega reynt að stofna bankareikning hérna. Það hefur gengið furðu illa. Ég hafði áhuga á að gerast viðskiptavinur Nordeabankans, það var einhver Finni sem benti mér á að það væri líklega best. Ég fór þangað og stillti mér upp í röðina hjá þjónustufulltrúanum. Þegar kom að mér bar ég upp erindi mitt og þá kallaði þjónustufulltrúinn á annan þjónustufulltrúa. Svo spurðu þeir mig um vegabréf og ég dró það upp. Þegar þær sáu að ég væri frá Íslandi urðu þær skrýtnar í framan og báðu um staðfestingu frá traustum aðila á því að ég væri hér við störf. Ekki hafði ég slíkt handbært og sendu þær mig þá heim.

Ég kom aftur nokkrum dögum seinna og aftur hófst sami leikurinn nema nú hafði ég gleymt vegabréfinu. Nú spurðu þær mig auk þess um finnska kennitölu. Þegar ég slengdi henni á borðið settu þær upp svip og sögðu að ég fengi engan reikning nema sýna þeim vegabréfið. Og aftur sendu þær mig heim.

Svo nennti ég ekki að gera neitt í þessu um hríð og hugsaði mér að vera hér bara án þess að stofna bankareikning.

En svo fyrir tveimur dögum ákvað ég að gera úrslitatilraun og stakk í vasann öllum hugsanlegum bréfum og staðfestingum sem ég fann hjá mér. Ég rölta út í verslunarmiðstöðina og fór einhvern veginn hæðavillt þannig að ég lenti í Sampo-banka í þetta skipti. Þessum sem Íslendingar keyptu um daginn. Þar gekk ég beint til gjaldkera, rétti henni vegabréfið mitt og sagðist vilja stofna bankareikning. Hún skoðaði vegabréfið, leit og mig og spurði: „Islanhtissa?“ „Gulla“ svaraði ég (þetta þýðir ertu íslenkur og ég svara já). Hún horfði á mig svolítið eins og óttaslegin og kyngdi nokkrum sinnum. Svo byrjaði hún bara að búa til bankareikning. Ég sagði henni að ég væri með staðfestingarpappíra og finnska kennitölu en ekkert af því vildi hún sjá. Flýtti sér bara að ganga frá þessu og var greinilega hálf létt þegar hún var búinn og hafði kvatt mig. 

Svona er nú fínt orðsporið okkar Íslendinga hérna.

"200 króna seðilgjald "

Bendi á góða grein Jónasar Kristjánssonar í DV en hana má nálgast hér . Í henni segir m.a. 200 króna seðilgjald Engum öðrum en Íslendingum dytti í hug að borga 200-250 króna seðilgjald fyrir að njóta þeirrar náðar að fá senda reikninga. Gjaldið er...

Þetta er náttúrulega komið út í öfgar

Þetta var dýrkeyptur brandari hjá þessum dreng. Ekki sniðugt nú á tímum alheimshræðslu við hryðjuverk. Frétt af mbl.is   Táningur sem þóttist beina byssu að David Cameron handtekinn Erlent | mbl.is | 24.2.2007 | 13:13 Táningspiltur sem þóttist beina...

Framsókn talar tungum tveim

Gat nú verið að yfirlýsingar Jónínu Bjarmarz um eignarnámið væri talaðr niður af formanninum daginn eftir. Fréttablaðið, 24. feb. 2007 08:00 Útiloka ekki eignarnám Jón Sigurðsson, iðnaðar- og viðskiptaráðherra, getur ekki tjáð sig um hugsanlegt eignarnám...

Þetta ljóð á frábærlega við nú um stundir bréfasendinga og Baugsmála

Verð að viðurkenna að ég vissi ekki um þetta ljóð fyrr en ég las þetta í dag á síðu Jóns Axels www.jax.is Þetta ljóð segir allt sem segja þarf:                                                   Orðið Ef ætlarðu að svívirða saklausan mann, þá segðu aldrei...

Bandaríkin í forystu ríkja sem hanna og framleiða vopn sem bitna á óbreyttum borgurum

Það setur að mér hroll við þessa frétt. Það rifjast upp að Bandaríkin hafa hannað og framleitt öll þau ógeðslegustu vopn sem komið notuð hafa verið síðustu öld. Fosfórsprengjur í Vietnam Kjarnorkusprengjur Flísasprengjur Klasasprengjur Jarðsprengjur...

Þetta er nú merki um að við þurfum að leggja meiri peninga í áfengismeðferðabatteríið

Anskotans fyllibyttur mega menn vera að geta ekki látið vera að drekka og keyra. Finnst þetta að verða algengara og algengara. Það þarf að fara að dæma menn harðar. Jafnvel í fangelsi við ítrekað brot. t.d. annað skipti sem þeir eru teknir. Eða dæma fólk...

Hef verið að hugsa um viðbrögð okkar við fyrirhugaðri skemmtiferð "The porno dogs" til Íslands

  Nú eru allir að missa sig yfir þeirri frekju og afskiptasemi Hótel Sögu, Borgarinnar, Alþingis og fleiri að hafa mótmælt og jafnvel neitað að hýsa þetta fólk. Ég viðurkenni að þetta orkar mjög tvímælis að gera þetta og getur skapað okkur vandræði í...

Bréfið komið inn á visir.is

Ég hef nú verið að glugga í þetta fræga bréf og það er ekkert smá bréf upp á nokkrar síður. Þar er farið yfir dómana og samsæriskenningar reyfaðar. Og allt málið sagt sett upp sem leikrit og fjölmiðlum blandað inn í þetta. EN svei mér þá ég nenni ekki að...

Er þetta ekki eitthvað skrítið

Fl group kaupir 370 milljónir hluta en svo seinna er sagt að þeir og skildir aðilar eigi 4,7 milljónir hluta. Frétt af mbl.is   FL Group kaupir í Glitni fyrir 10,5 milljarða Viðskipti | mbl.is | 23.2.2007 | 11:52 Félag í eigu FL Group, FL Group Holding...

Ekki fögur upplifun á Kópavogi

Jónasi Kristjánssyni þykir ekki mikið koma til nýja miðbæjar Kópavogs sem er væntanlega á svæðinu í kring um Smáralind: 23.02.2007 Slömm í Kópavogi Ég ók í dag um Kópavoginn. Mér fannst ég vera kominn í útlent slömm. Sá hluti bæjarins, sem er í nágrenni...

Þetta fer að verða efni í bíómyndaröð

Þetta er með afbrigðum hvert Baugsmálið er að fara. Ofan á allt annað hefur nú síðustu daga komið í ljós að málið sé hugsanlega byggt á reiði vegna kvennamála og meinta viðreynslu við eiginkonu Jóns Geralds. Nú í dag er það bréf sem skrifað er að því...

Furðurlega orðuð frétt

Ég verð að segja þó ég sé ekkert ofboðslega sleipur í íslenskunni þá finnst mér þetta furðulegt orðalag í frétt. Ég fæ þá tilfinning að óveðrið í Evrópu sé glæpsamlegt. Vísir, 22. feb. 2007 21:07 Eignaspjöll á go-kart höll Snjóþyngslin í Danmörku eru...

Ætli ég eigi þá himinháan kröfurétt á bankana?

Var að hlutsta á fréttina frá Bretlandi þar sem viðskiptavinir bankana eru að fara fram á endurgreiðslur af ofteknum FIT kosnaði. Þetta var nú í gamladaga mínar ær og kýr. Hvern mánuð þá lenti ég á FIT og það nokkrum tékkum um hver mánaðarmót. Þannig að...

« Fyrri síða | Næsta síða »

Höfundur

Magnús Helgi Björgvinsson
Magnús Helgi Björgvinsson

Skoðanir Magga um menn og málefni í fréttunum. maggihb@gmail.com Athuga að þetta eru mínar skoðanir og þið megið bara hafa ykkar hentisemi, því ég er að nota mína.

Eldri færslur

Feb. 2007
S M Þ M F F L
        1 2 3
4 5 6 7 8 9 10
11 12 13 14 15 16 17
18 19 20 21 22 23 24
25 26 27 28      

Twitter

Teljari

joomla visitor

Twitter

Tenging við twitter

Um bloggið

Vettvangur Magga

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband