Leita í fréttum mbl.is

Full mikil einföldun hjá Ómari.

Hef verið að velta fyrir mér málfluttningi Ómars nú þegar Íslandshreyfingin er komin á koppin. Og finnst að hann klæði málið í kannski fulleinfaldan búning. Hjá honum viriðist það vera að almenningur láti ráðst nær eingöngu af stöðu flokkanna í umhverfismálum. Nú held ég að þó vissulega fólk hafi áhyggjur af umhverfismálum þá eru önnur mál sem brenna eðlilega mikið á fólki. Þar horfir fólk t.d. mjög til samgöngumála og velferðarmála. Og einnig til framtíðarþróunar í efnahagsmálum.

Það er samt alltaf ákveðinn hópur kjósenda sem svona sveiflast eftir tískufylgi. Það fer eftir stöðu í skoðunarkönnunum velur skv. þeim.  EN svo þegar kemur að kosningunum sjálfum þá fer fólk að hugsa þetta nánar. Þá er horft í þá sem eru í framboði. Þá hlýtur fólk að horfa í þá sem stýra flokknum og hvaða reynslu það hefur af því að stýra hóp fólks.  Þar stendur Íslandshreyfingin ekki vel að vígi. Jú Margrét hefur verið framkvæmdarstjóri í örflokki þar sem að allt endaði í ósköpum. Jakob hefur jú stýrt stuðmönnum og staðið fyrir samkomum en ekki hægt að segja að þeir sem hafi starfað með honum í flokki hafi veitt honum brautargengi hingað til. Ómar hefur nú lengstum starfað sem einyrki. Jafnvel hjá Sjónvarpinnu. Þó allir séu sammála um að gott sé að vinna með honum þá er spurning um stjórnunarhæfileika.

Enginn efast um hugsjónir hans og eldmóð. En allar þessar góðu hugmyndir hans taka langann tíma í framkvæmd. Og spurning hversu lengi fólk vill bíða?

Ómar sagði í dag:

Ég tel alveg raunhæft að við getum tvöfaldað þetta fylgi," segir Ómar. Í hans huga sé aðalatriðið að nógu margir komi til liðs við hreyfinguna úr öllum áttum, sérstaklega úr þeim áttum sem stóriðjustefnan eigi nú föst tök. Því fleiri sem komi til hreyfingarinnar, aukist líkur á að takmarkið náist örugglega.

Ómar segir könnunina sýna að Íslandshreyfingin geti komið í veg fyrir að stóriðjuflokkarnir tveir, Sjálfstæðisflokkur og Framsókn geti kippt Frjálslyndum upp í hjá sér og myndað hreina stóriðjustjórn. Íslandshreyfingin taki fylgi af Sjálfstæðisflokknum en líka Vinstri grænum.

Að mati Ómars var hættan sú áður en Íslandshreyfingin bauð fram að þeir hefðu áður kosið Sjálfstæðisflokkinn eða Frjálslynda flokkinn en ætluðu að kjósa Vinstri græna út af umhverfismálunum, hrykkju í heimahagana þegar á reyndi í kjörklefanum. Nú hefðu þessir kjósendur val um að koma til Íslandshreyfingarinnar. (www.visir.is)

Mér finnst þetta full einfaldar skýringar á stöðu mála. En skv. www.jax.blog.is  er frétta að vænta um nýja menn í fylkingarbrjóst hreyfingarinnar tekið verður eftir og verður gaman að sjá hverjir þetta eru.


Stór nöfn á leið til Íslandshreyfingar!

Eitthvað spennandi í vændum.  Um leið og ég hendi hér inn tilvitnun í bloggið hans Jóns Axels Ólafssonar vil ég benda fólki á að kýkja þar reglulega. Hann virðist vera í góðum tengslum við það sem er að gerast og oft sér maður þar skúbb nokkru áður en þau birtast annarsstaðar. Nú í dag má lesa eftirfarandi:

Samkvæmt öruggum heimildum Litlu frjálsu fréttastofunnar er að vænta mikilla frétta í næstu viku frá Íslandshreyfingunni. Samkvæmt þeim munu ganga til liðs við hana "stór nöfn" frá hægri auk þess sem hin sömu nöfn munu gefa listanum (eða hreyfingunni) þungavigt og glæsta ímynd.

Spennandi verður að fylgjast með málum Íslandshreyfingarinnar á næstunni, en henni er spáð 3 til 9 einstaklingum á þing í komandi kosningum.


Nýjar áherslur hjá Bandaríkjunum - Von um betri framtíð í Palestínu?

Í famhaldi af þessari frétt um styrki ESB er þessi frétt sem ég las á www.visir.is kannski vonarneisti í málefnum palestínumanna. Og kannski merki um að Bandaríkin séu að breyta um aðferðir. Rice: Stofnun sjálfstæðs ríkis Palestínumanna forgangsatriði...

Nú fer að færast fjör í leikinn.

Frjálslyndiflokkurinn loksins að líða fyrir klofninginn. Íslandshreyfingin nýtur nú þess að hafa verið að kynna framboðið 2 dögum fyrir þessa skoðunarkönnun. En bendi á að samkvæmt frétt á www.visir.is eru vikmörk hjá flestum flokkum í þessari könnun +/-...

Sundabraut - Eigum við að borga vegatoll eða hvað?

Nú hafa Faxaflóahafnir boðið ríkinu að byggja Sundabraut í einu lagi. Og ríkið hefur tekið veli í þetta. Sjóvá-almennar hafa boðist til að byggja tvöfaldan Suðurlandsveg og hefur bætt við að þeir séu tilbúiir að standa líka að svipuðum framkvæmdum á...

Nýju framboðin taka hugsanlegt fylgi frá Vg, Frjálslyndum og Framsókn.

Merkileg frétt sem rétt er að halda til haga.  Samkvæmt þessu gætu Frjálslyndir og framsókn nær þurrkast út. www.ruv.is Fyrst birt: 24.03.2007 12:22 Síðast uppfært: 24.03.2007 14:21 Nýju framboðin ná fylgi frá VG og Fr. Fjórðungur stuðningsmanna Vinstri...

Heimasíða Íslandshreyfingarinnar

Ekki er hún nú beint upplýsandi: Forbidden You don't have permission to access / on this server. Apache/2.0.59 (FreeBSD) PHP/4.4.4 with Suhosin-Patch FrontPage/5.0.2.2635 mod_ssl/2.0.59 OpenSSL/0.9.7e Server at www.islandshreyfingin.is Port 80 Hefði nú...

Þorgerður er Sjálfstæðisflokkurinn miðjuflokkur?

Haf nú ekki orðið var við það að Sjálfstæðisflokkurinn sé umburðarlyndur miðjuflokkur. Hef nú frekar séð hann sem hagsmunaflokk þeirra sem meira meiga sín og einkavina flokksins. Þar nægir að nefna Gjafir á ríkisfyrirtækjum til vina sinna og vina...

Jón Sigurðsson ekki á þing skv. Gallup

Var að lesa þessa frétt inn á www.ruv.is   um síðustu könnun Capacent Gallup  Athyglisvert að skv. því verða 28 nýliðar á þingi næsta kjörtímabil. En Jón Sig kemst ekki á þing. Og Frjálslyndir, og framsókn  ekki manni að í Reykjavík. Í...

"En hvað er Margrét Sverrisdóttir að gera í umhverfisverndarframboði?"

Rakst á þetta inn á síðu Marðar Árnasonar. Þar er hann að velta fyrir sér nýju framboði Íslandshreyfingunni og hvað hún eigi sameiginlegt meða Margréti Sverrisdóttur. Mörður segir m.a. En hvað er Margrét Sverrisdóttir að gera í umhverfisverndarframboði?...

Það er ýmislegt að í löggjöf hérna á þessu landi!

Í framhaldi af þessu að þessari kæru Náttúruverndasamtaka Íslands er vísað frá m.a. þar sem Ísland hefur ekki fullgilt alþjóðlegasamninga sem við höfum skrifað undir, þá fer maður að velta fyrir sér hversu skilvirkt Alþing er. Hér hefur verið til siðs að...

Það eru að koma kosningar

Nú er hægt að fá ýmislegt frá Ríkinu. Afhveju eru ekki kosnigar á hverju ári. Frétt af mbl.is   Jöfnunarsjóður sveitarfélaga fær tímabundið aukaframlag frá ríkinu Innlent | mbl.is | 23.3.2007 | 10:41 Í setningarræðu XXI. landsþings Sambands íslenskra...

Árni Mathiesen: Skattalækkanir til almennings - Hátekjuskattur og Eignarskattur

Var að lesa grein í Fréttablaðinu eftir Árna Mathiesen. En þar heldur hann því fram að það hafi verið gríðarlegar skattalækkanir fyrir almenning á þessu kjörtímabilinu. Og því til stuðnings nefnir hann hátekjuskatt og eignarskatt. Er nú ekki alveg viss...

Smá hugleiðing

NAT'O liðar myrða 12 ára dregn. Í framhaldi af þessu fór ég að velta fyrir mér þessari nýju stöðu í heiminum. Þ.e. að Nató eða eða Bandaríkin og vinir þeirra eru að mér virðist orðinn landföst í í löndum eins og Afganistan og Írak. Reyndar er svo í enn...

Ætlar enginn að benda á hversu skrítið þetta er?

Nú korter fyrir kosningar kemur Björn Ingi í umboði Faxaflóahafna og býðst til að byggja og fjármagna Sundabraut. En svo á ríkið að borga Faxaflóahöfnum þetta síðar. En ef við hugsum um þetta aðeins betur þá veldur þetta furðu: Vissulega er full þörf á...

« Fyrri síða | Næsta síða »

Höfundur

Magnús Helgi Björgvinsson
Magnús Helgi Björgvinsson

Skoðanir Magga um menn og málefni í fréttunum. maggihb@gmail.com Athuga að þetta eru mínar skoðanir og þið megið bara hafa ykkar hentisemi, því ég er að nota mína.

Eldri færslur

Mars 2007
S M Þ M F F L
        1 2 3
4 5 6 7 8 9 10
11 12 13 14 15 16 17
18 19 20 21 22 23 24
25 26 27 28 29 30 31

Twitter

Teljari

joomla visitor

Twitter

Tenging við twitter

Um bloggið

Vettvangur Magga

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband