Leita í fréttum mbl.is

Verður Balur sýknaður í Hæstarétti?

Það læðist að manni sá grunur að þessi dómur gæti verið mildaður töluvert þegar hann kemur fyrir Hæstarétt. Nú þar eru dómarar sem voru skipaðir flestir með atbeina Sjálfstæðisflokks beint og óbeint. Gæti sem best trúað þvi að þar verði dómurinn mildaður en varla verður hann sýknaður. Eða hvað?
mbl.is Baldur í 2 ára fangelsi
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Einfaldlega skiljanlegt Icesave

Af hverju eru ekki fleiri notaðir af stjórnvöldum sem geta sett fram upplýsingar á einföldu skiljanlegu máli. Eftirfarandi er pistill eftir Soffíu Sigurðuardóttur áf eyjunni

Einfaldlega skiljanlegt Icesave 

Hér er stutta útgáfan af Icesave-málinu:

  • Íslenski innlánstryggingasjóðurinn ber ábyrgð á lágmarksinnistæðutryggingu á Icesave-reikningum Landsbankans. Um það er ekki deilt og heldur ekki um upphæð lágmarkstryggingarinnar.
  • Sjóðurinn átti ekki til fé til að standa við greiðslu tryggingafjárins.
  • Innlánstryggingasjóðir Breta og Hollendinga ábyrgðust hærri upphæð en lágmarkstrygginguna, þ.e. viðbótarfjárhæð. Það breytir engu um ábyrgð íslenska sjóðsins á lágmarkstryggingunni.
  • Innlánstryggingasjóðir Breta og Hollendinga greiddu innistæðueigendum út alla trygginguna, líka íslenska hlutinn af því íslenski sjóðurinn gat það ekki.
  • Innlánstryggingasjóðir Breta og Hollendinga krefja íslenska sjóðinn um endurgreiðslu til sín á íslenska tryggingarhlutanum, vegna þess sem þeir hafa lagt út fyrir hann. Það er Icesave-krafan.
  • Af því íslenski sjóðurinn getur ekki lagt út fyrir tryggingargreiðslu sinni, þá hefur verið samið um greiðslufyrirkomulag til nokkurra ára. Það er Icesave-samningurinn.
  • Í Icesave-samningnum felst að fram til miðs árs 2016, þá skuli allar innheimtur Landsbankans og andvirði seldra eigna hans renna til greiðslu þessarra innistæðutrygginga. Um það er ekki deilt.
  • Í Icesave-samningnum felst líka að ef innistæðutryggingin hefur ekki verið að fullu greidd um mitt ár 2016, þá er þess krafist að íslenska ríkið ábyrgist eftirstöðvarnar og greiði þær með ákveðnum hætti. Um þessa ábyrgð er deilt. Það er ágreiningurinn í Icesave-málinu.

Í kosningunum á laugardaginn kýst þú ekki um:

  • Hvort íslenski innistæðutryggingasjóðurinn sé ábyrgur fyrir lágmarks innistæðutryggingum á Icesave. Það er skýrt í reglum EES og óumdeilt.
  • Hvort eignir Landsbankans í formi skuldabréfa, fasteigna og fyrirtækjaeigna skuli renna til innistæðutryggingasjóðsins. Það er skýrt í íslenskum lögum og óumdeilt í þessu máli.

Í kosningunum á laugardaginn kýst þú um:

  • Hvort íslenska ríkið ábyrgist eftirstöðvar Icesave-skuldar íslenska innistæðutryggingasjóðsins, ef einhver verður, frá miðju ári 2016.

Fyrst þetta er svona einfalt, hvað er þá svona flókið?

Allt bullið!

Bullið um hvort okkur beri að gera þetta eða hitt, lagalega eða siðferðislega.

Bullið um hve skuldbindingin vegna eftirstöðvanna muni verða há á miðju ári 2016.

Bullið um það hvað gerist ef ……

Bullið með öllum rangtúlkununum á því hvað standi í lögum og samningum og fjárhæðum.

Bullið um það að hægt sé að komast hjá ábyrgð með því einu að afneita henni.

Bullið um það að fólk sem hefur helgað alla sína starfsævi því að berjast gegn auðvaldi og fyrir hagsmunum alþýðu hafi allt í einu gerst óvinir þjóðarinnar númer eitt, af þvi hinn pólitíski armur auðróna landsins heldur því fram


mbl.is Kostaði yfir 300 milljónir
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Væri gaman að vita hvað tekur hér við ef að þjóðin felli Icesave

Og þá á ég ekki við það sem óupplýstir Nei sinnar halda fram heldur raunverulega. Við vitum nokkuð hvað tekur við ef við samþykkum Icesave þó að upphæð sem þjóðin gæti þurft að borga sé á ákveðnu bili kannski 0 til 30 milljarða. En Nei við Icesave: Verða...

Ég er orðinn þreyttur á:

Að ríkisstjórnin með alla sína upplýsingafulltrúa og kynningarlið sé svona gjörsamlega misheppnuð í að kynna almennilega þau mál sem hún vill að komist í gegn. Hún lætur fólk komast upp með að halda fram allskonar vitleysu og hefur lítið fyrir að...

Guðmundur Ólafsson um Icesave og álit Gamma

Af www.dv.is „Ég ætla að samþykkja Icesave-samninginn. Þetta er kostaboð og „góður díll“, eins og sagt er, miðað við það lið sem við er að eiga hér,“ segir Guðmundur Ólafsson hagfræðingur um komandi kosningar um...

Icesave sett upp í dæmisögu sem fólk ætti að skilja

Fann þessa færslu hjá Valgarði Guðjónssyni á eyjan.is Hún lýsir ágætlega hvernig mér finnst Nei sinnar höndla Icesave núna og jafnvel meirihluti kjósenda. Þarna er Icesave yfrifært á Íslenskan raunveruleika. Svo ég tek mér það bessaleyfi að birta hana í...

Ég bara neita að trúa því að þetta verði útkoman

Ég bara trúi því ekki að þjóðin kjósi óvissu næstu árin. Ég bara trúi því ekki að fólk sé tilbúið að fórna því að koma þessu máli í fastan farveg með vörnum þannig að ekki þrengi um of að okkur vegna greiðslan ef að illa fer. Þ.e. framlengin á greiðslum...

Gylfi Magnússon fer á kostum í grein sinni í Fréttablaðinu í dag

Til að byrja með þá skýrir hann út fyrir þá sem sífellt eru að misskilja um hvað Icesave snýst: Hann segir m.a. Grunnurinn að Icesave-deilunni er sú einfalda staðreynd að þegar eigum þrotabús Landsbankans var ráðstafað var það gert þannig að útkoman varð...

Auglýsingin frá Nei sinnum tætt í sundur og rangfærslur afhjúpaðar

Smellið á mynd 3x til að stækka hana Smelli á mynd tll að stækka

Eignir Landsbankans haf væntanlega hækkað líka

Eignir þrotabúsins eru að stórum hluta erlendis þannig að þær haf væntanlega hækkað þá sambærileg. Bæði eignir sem þrotabúið á í reiðufé erlendis sem og eignir eins og Iceland og fleiri eignir. Eins eru útstandandi lán þrotabúsins að mestu erlendis bæði...

Það er nauðsynlegt að allir kjósi þann 9 apríl

Það væri með öllu óásættanlegt ef að það væri mikill minnihluti þeirra sem hafa hér kosningarétt semnægði til að taka ákvörðun um þetta mál. Nú er engin afsökun fyrir því að kjósa ekki. Svona þegar fólk er búið að taka ákvörðun þá gildir hún ekki nema að...

Ætli margir tala um þetta?

Svona að velta fyrir mér í framhaldi af þessari frétt um að Icesave sé mikið rætt á facebook hvort að eftirfarandi komi þar fram. Ef að sagt verður NEI við icesave ábyrgðinni gerir fólk sér grein fyrir því að ef að málið fer fyrir dóm og það ferli allt...

Nokkrir punktar um Icesave!

Síðunni hefur borist bréf frá aðila sem þekkir mjög vel til Icesave og vinnu Alþingismanna við að taka ákvörðun varðandi hvort samþykkja skildi Icesave samninginn. Auk þess að fræða mig á hversu mikið bull er í gangi varðandi Icesave þá sendi hann mér...

Tími til að gerast JÁkvæður!

Nú er komin tími til að horfa til framtíðar JÁ-kvæð. Segjum JÁ á laugardag 9. apríl og klárum málið. Eins og segir í auglýsingu dagsins: Við ljúkum langri deilu með sátt. Við öðlumst meira traust. Við forðumst áhættusöm dómsmál. Við eyðum óvissu. Við...

« Fyrri síða | Næsta síða »

Höfundur

Magnús Helgi Björgvinsson
Magnús Helgi Björgvinsson

Skoðanir Magga um menn og málefni í fréttunum. maggihb@gmail.com Athuga að þetta eru mínar skoðanir og þið megið bara hafa ykkar hentisemi, því ég er að nota mína.

Eldri færslur

Sept. 2025
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

Twitter

Teljari

joomla visitor

Twitter

Tenging við twitter

Um bloggið

Vettvangur Magga

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband