Leita í fréttum mbl.is

Kópavogur: Ekki ástæða til að örvænta út af svona könnun!

Ef ég heyrði rétt á stöð 2 áðan þá voru 800 manns spurðir og aðeins um 55% tóku afstöðu! Og þar sem að Sjálfstæðismenn hafa alltaf sitt fasta fylgi þá á það eftir að lækka í kosningum þegar fleiri taka afstöðu. Líka hjá framsókn. Annað væri nú furðulegt eftir allt sem á undan er gegnið hér í Kópavogi. Um 40 milljarðar í skuldum eftir feigðarflan Gunnars og félaga t.d. varðandi Knattspyrnuakademíuna, Glaðheimaklúðrið og fleira og fleira. Held að fólk hljóti að hugsa til þessa áður en þeir greiða atkvæði í næstu kosningum.
mbl.is Meirihlutinn myndi halda
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Æi greyin látið ekki eins og þetta komi ykkur á óvart!

Það er ekkert sem á að koma þarna á óvart!

  • Hollendingar og Bretar eru á móti því að gengið verði frá endurskoðun á áætlun AGS og okkar. Þar sem að þau vita að það setur þrýsting á okkur að ganga frá Icesave.
  • Norðurlönd og Eystrasaltsríkin eru á móti þessu vegna þess að ef ekki er gengið frá Icesave er réttaróvissa um alla banka sem eiga útibú í öðrum löndum
  • Norðurlönd vilja ekki lána okkur fé sem vegna Icesave gætu verið í hættu á að verða ekki greitt til baka.
  • Allar þjóðir Evrópu telja að okkur beri að greiða Icesave og því eru þau ekkert að auðvelda okkur lífið.
  • Flestar þjóðir sem ætla að lán okkur eru með í lánsloforði sínu ákvæði um að áður þurfi að ganga frá Icesave.
Því miður hafa þessar þjóðir völd og ítök m.a. í stjórn AGS og beita þeim. Svipað og við myndum gera ef að við ættum í deilum við eitthvað land. Ef við hefðum ítök einhverstaðar myndum við beita þeim. Við erum ekki þróunarland og því fáum við enga samúð nema hjá einstökum mönnum. Við erum jú ekki að svelta hér almennt nú um stundir.
mbl.is Íslandslán ekki á dagskrá AGS
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Jú víst þetta er vondu útlendingunum að kenna!

Það er nokkuð ljóst eftir lestur á sumum blogganna við þessa frétt að þó nokkur hluti bloggara hér er enn á þeirri línu að: Það séu vondu útlendingarnir sem eru aðal gerendurnir í okkar ógæfu. Erlendu bankarnir sem lánuðu okkar bönkum allt of mikið Sem...

Væri gaman að heyra núna lausnir Sigmundar/Indefence og Þjóðarheiðurs varðandi endurfjármögnun!

Landsvirkjun, OR, sveitarfélög og ríkið þurfa að endurfjármagna lánin sín á þessu og næstu 2 árum. Hundruð milljarða. Það væri gaman að sjá hvaða leiðir spekingarnir sem berjast á móti Icesave leggja til? Sem og að það yrði reiknað út hvað lækkað...

Og allir bullukollarnir búnir að blogga við þessa frétt!

Og allir á því að ekkert eigi að semja og manni sýnist að þeir telji jafnvel að Bretum og Hollendingum beri að borga okkur sumir. Þeir tala allir eins og við eigum að fara borga sjálf þjóðin hundruð eða þúsundir milljarða. En vita að eignir Landsbankans...

Furðuleg fyrirsögn en sennilega í takt við hugsunarhátt okkar um þessar mundir!

Auðjöfur gjaldþrota vegna láns frá Kaupþingi Hefði hún haldið að maðurinn væri gjaldþrota vegna þess að hann fór óvarlega. En eins og fólk talar hér á landi er sennilega eðlilegt að líta svo á að hann sé gjaldþrota vegna lánsins frá Kaupþingi. Alveg eins...

Heimurinn er óvart bara ekki sammála okkur!

Og áfram halda menn að rugla um vonda útlendinga og fleira. Dominique Strauss-Kahn var að segja að starfsmenn AGS og forstöðumenn telja að það sé ekkert þvi til fyrirtöðu að taka endurskoðunina á dagskrá óháð Icesave. En því eru meirihluti stjórnar AGS...

Ásmundur Daði hefur aðsjáanlega ekki lesið stjórnarsáttmála ríkisstjórninnar.

Alveg makalaust kjaftæði í sumum Vg liðum. Sér í lagi mönnum eins og Ásmundi Daða. Það er eins og þeir hafi bara samþykkt að ganga til stjórnarsamstarfs án þess að lesa sáttmála sem gerður var milli flokkana. T.d. þetta: Lögð er til í þessu skyni fækkun...

Held að það sé í lagi að messa aðeins yfir Vg!

Vg fór sjálfviljugt í þetta stjórnarsamstarf. Það var skrifað undir stjórnarsáttmála sem gekk út á ýmis mál t.d. Þá er einnig mikilvægt að ljúka sem allra fyrst samningum vegna innstæðutrygginga við nágrannaríki, uppgjöri á milli gömlu og nýju bankanna....

Icesave deilan kannski eitt ár í viðbót! Hvað kostar það okkur?

Engin lausn á Icesave fyrr en eftir kosningar í Bretlandi og Hollandi Jóhanna segir að það sé að koma á daginn það sem hún varaði eindregið við í aðdraganda þjóðaratkvæðagreiðslunnar. Formenn stjórnarandstöðuflokkanna hafi nú staðfest þetta og meðal...

Bíðið við! Skv. umræðunni eru hér allir á vonar völ!

En svo les maður svona fréttir. Það eru yfir 8 þúsund manns á leið erlendis í Páskaferðir. Samt hefur þessar ferðir hækkað væntanlega töluvert frá því 2008. Kannski að þetta fólk sumt sé fólk sem hefur farið í bankanna og samið um lækkanir á...

- "Hlemmur"- Ætti þetta nýja eldfjall að heita

Nú fyrst að þetta gos á Fimmvörðuhálsi er við "Laugaveginn" þá finnst manni að það liggi í augum uppi að það eigi að heita "Hlemmur" Enda er Hlemmur á miðujum Laugavegi í Reykjavík

Hughreysting til þeirra sem eru að verða fimmtugir á næstu árum!

Fékk póst með þessum líka fínu rökum fyrir að gleðjast yfir því að verða fimmtugur " Því fylgja kostir að verða 50 – komast yfir sextugt – og stefna í 70 ! Perks of reaching 50 or being over 60 and heading towards 70! 01. Kidnappers are not...

Fínar tillögur en hafa reyndar allar heyrst áður!

Fínt hjá framsókn að leggja fram þennan pakka. En þar mætti nú gjarnan vera meira kjöt á beinunum. Og sum rökin stangast á: T.d. vilja þeir hætta eða endurskoða samstaf við AGS og hafa viðrað að þeir vilji hætta við lántökur. En síðan er talað um í...

Jæja Kópavogsbúar! - Þetta ætti að vera ykkur til umhugsunar fyrir næstu kosningar!

Rakst á þetta á heimsíðu Guðríðar Arnardóttur bæjarfulltrúa í Kópavogi Miklar hrókeringar voru í nefndum og ráðum bæjarins af hálfu meirihlutans og Gunnar Birgisson m.a. kosinn í bæjarráð á ný. Þar með hefur náðst sátt milli oddvita Framsóknarflokks og...

« Fyrri síða | Næsta síða »

Höfundur

Magnús Helgi Björgvinsson
Magnús Helgi Björgvinsson

Skoðanir Magga um menn og málefni í fréttunum. maggihb@gmail.com Athuga að þetta eru mínar skoðanir og þið megið bara hafa ykkar hentisemi, því ég er að nota mína.

Eldri færslur

Sept. 2025
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

Twitter

Teljari

joomla visitor

Twitter

Tenging við twitter

Um bloggið

Vettvangur Magga

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband