Leita í fréttum mbl.is

Lausn í sjónmáli?

Var að lesa á pressunni.is að Breska stjórnvöld staðfesta að viðræður séu milli þeirra, Íslands og svo Hollands og Bretlands með aðkomu ESB.

Fór í framhaldinu að velta fyrir mér:

  • Ef að næst samningur um hvað ætlar Framsókn að fylkja sé í staðinn? Verður Sigmundur kannski kjaftstopp?
  • Mun Bjarni Ben hætta að snúast í hringi í sínum málflutningi?
  • Nú er búið að samþykkja skattatillögur, fjárlög og helstu aðgerðir næsta árs.
  • Eða sameinast þeir um að verða á móti hugsanlegu nýju samkomulagi, jafnvel þó þeir hafi komið að því að vinna að því?

mbl.is Reynt til hins ítrasta að semja
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Er þetta ekki maðurinn sem fyrir nokkrum dögum sagði allt annað?

Sögðu Bjarni og Sigmundur Davíð ekki fyrir nokkrum vikum eða dögum jafnvel að það væri með öllu óeðlilegt af stjórnvöldum að tengja Icesave og líf stjórnarinnar saman? Og hvað segir hann nú:

„Í víðu samhengi þá mun hún snúast um líf ríkisstjórnarinnar," segir Bjarni. „Ríkisstjórn sem getur ekki leyst þetta vandamál getur ekki haldið áfram.

Og í því samhengi þá undra það mann að Bjarni og eftir atvikum Sigmundur hafa ekki farið erlendis t.d. til Hollands og Bretlands og talað máli okkar þar við kollega sína í systur flokkum þar. Af hverju skildi það nú vera? Af hverju hamast þeir í stjórnvöldum fyrir skort á kynningu en hafa svo ekki sjálfir dug í að vinna að sínum góðu lausnum sem þeim finnast svo auðvelt að hrinda í framkvæmd? Maður hefði nú haldið að þeir vildu sína okkur efasemdarmönnum að við hefðum rangt fyrir okkur.

Er þetta kannski bara ekki ætlun þeirra. Getur verið að þeir séu bara vísvitandi að skapa hér falsvonir hjá þjóðinni og skapa hræðslu og ringulreið til að grafa undan núverandi stjórnvöldum. Nú þegar að búið er að ganga í skítverkin eins og hækka skatta og koma bönkunum af stað þá sé alveg þess virði að gera úrslitatilraun að koma stjórnvöldum frá.

Síðan væri gott fyrir Bjarna að átta sig á að hann sem talar um að við þeir segja að verðum að koma saman sem sterk heild gagnvart viðsemjendum, gerum það varla þegar að menn segja svona við Reuters:

 „Ríkisstjórn sem getur ekki leyst þetta vandamál getur ekki haldið áfram. "

Bjarni er að sýna sig sem tækifærisista sem segir bara það hentar í hvert skipti þó það stangist á við orð hans daginn áður.


mbl.is Bjarni: Snýst um líf ríkisstjórnarinnar
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Til umhugsunar fyrir fólk. Eru það greiðslur af Icesave sem setja okkur á hausinn?

Var að lesa bloggið hans Andra Geirs Arinbjarnasonar . Þar veltir hann fyrir sér eftirfarandi: Hvort er líklegar að Icesave samningurinn fari með þjóðina á hausinn eða sú staðreynd að allt er hér í stoppi vegna rifrildis um málefni sem nemur um 2.5% af...

Hvenær ætlar fólk að ná þessu?

Birti hér fréttatilkynningu ríkisstjórnarinnar af www.eyjan.is Innlent - mánudagur - 11.1 2010 - 16:33 Yfirlýsing ríkisstjórnarinnar: Enginn vafi að innlán í útibúum erlendis eru á okkar ábyrgð Ríkisstjórn Íslands hefur sent frá sér tilkynningu vegna...

Argentínuleiðin var nú leið sem sumir stjórnasndstæðingar hafa boðað sem góða

Hér á síðasta ári voru margir stjórnarandstöðuþingmenn og fleiri sem boðuð leið sem Argentína fór þ.e. að neita að gera upp skuldir sínar. Menn hafa talað um að Argentína hafi bara hætt að borga og það hafi ekki haft nein áhrif. En úps það eru 8 ár síðan...

Er svona að velta fyrir mér: Hvað er ásættanlegir samningar?

Sigumundur Davíð sem hefur farið hamförum yfir að allt eigi að vera upp á borði svaraði þessari spurningu í dag á Stöð 2 og í morgun á Bylgjunni minnir mig. Hann segir aðspurður um hvað séu ásættanlegir samningar að hann vilji nú ekki gefa það upp í...

Smá vandamál við þetta!

Svona til að byrja með er Íslands búið að gera samning og það t.d. 3x við Holland og 2x við Breta Holland Samkomulag milli Hollands og Íslands um IceSave 11.10.2008 Að loknum uppbyggilegum viðræðum hafa hollensk og íslensk stjórnvöld náð samkomulagi um...

Skipum þverpólítiska nefnd strax!

Ég persónulega tel að það eigi að ganga frá þessu Icesave máli hið fyrsta og að við komumst ekki hjá því að borga. En til að taka af allan vafa væri nú rétt að skipa þverpólitíska nefnd sem á næstu kannski 4vikum kanni möguleika okkar með færustu...

Duglegir þingmenn!

Gott að fólk er að tala okkar máli. En Lilja af hverju ætti að skipa sáttasemjara þegar að í gildi er samningur. Og ekki enn er útséð um hvort að þjóðin samþykkir eða synja ábyrgðinni? Og af hverju ættu Bretar og Hollendingar ekki að bíða bara rólegir...

Bíddu Pétur þetta en andstæðingar þess að samþykkja lögin

Hef nú ekki áhyggjur af því að andstæðingar Icesave 2 verði í vandræðum með að halda fram sínum málstað. Það er nú t.d. vegna málflutningsl þeirra sem við erum að fara í þessar kosningar. Og ekki hafa þeir verið með hlutlausan málflutning. Hef m.a. séð...

Nokkrar vangaveltur varðandi Icesave. Svör óskast!

Svona í framhaldi af þessu viðtölum þá væri kannski rétt að spyrja nokkra spurninga svona almennt hér á blogginu: Hvaða upplýsingar hafa menn um að lánakjör okkar séu svo slæm sem fólk hefur sagt? Eftir hverjum eru þau höfð? Og hverjir segja að við eigum...

Er það svona sem menn leita sátta og samvinnu?

Segir forsætisráðherra hafa sett Íslandsmet í afneitun Bjarni segir að það sé búið að vera átakanlegt að fylgjast með afneitun ríkisstjórnarinnar í þessu máli og að Jóhanna Sigurðardóttir, forsætisráðherra, hafi sett Íslandsmet í afneitun á Alþingi í gær...

Þó að allt gott umtal sé okkur í hag held ég að menn verði nú aðeins að segja rétt frá.

Þessi kona sem skrifar þessa grein er nú svo vel inn í málum hér að hún segir I only once sent a reporter to Reykjavik – in 1988, when they elected their first woman PM for a third term. I can still spell her fabulous name, Vigdis Finnbogadottir,...

Fannst ég kannast við þetta nafn

Og jú þetta er sami sérfræðingurinn sem InDefence talaði við í sumar. Ekki það að það dragi neitt úr því sem hann segir. En minni á að grein hans kemur fram að hann telur að um 60% líkur á að Bretar mundur vinna þetta mál fyrir dómi. En 21. ágúst var...

-"Economist: Icesave var síðasta púslið í endurreisn Íslands sem var á réttri leið"-

Eftirfarandi grein er á www.pressan.is og er endursögn á grein í Economist. Margt þar sem fólk ætti að skoða. Þar kemur m.a. fram að menn erlendis telja að Íslendingar hafi verið á hraðri leið upp úr kreppunni fyrir þetta útspil Indefence og Forsetans....

« Fyrri síða | Næsta síða »

Höfundur

Magnús Helgi Björgvinsson
Magnús Helgi Björgvinsson

Skoðanir Magga um menn og málefni í fréttunum. maggihb@gmail.com Athuga að þetta eru mínar skoðanir og þið megið bara hafa ykkar hentisemi, því ég er að nota mína.

Eldri færslur

Apríl 2025
S M Þ M F F L
    1 2 3 4 5
6 7 8 9 10 11 12
13 14 15 16 17 18 19
20 21 22 23 24 25 26
27 28 29 30      

Twitter

Teljari

joomla visitor

Twitter

Tenging við twitter

Um bloggið

Vettvangur Magga

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband