Leita í fréttum mbl.is

Hvað í ósköpunum eru menn að fara með þessu uppslætti.

Halda menn að það að fá hingað hæft fólk til að rannsaka þessi mál kosti bara ekki neitt. 6,7 milljónir þýða 480 þúsund á mánuði sem eru svona meðal deildastjóragreiðslur. Og eins með hana Evu Joly það er eðlislegt að svona hæfur sérfræðingur taki góð laun um leið og hún skapar þessari rannsókn trúverðugleika. Þannig að ég held að þessi uppblástur á launum þeirra sé bara til að skapa úfúð að óþörfu. Minni á að útseld vinna viðgerðamanna hér á landi t.d. vegna heimilistækja er um 10 þúsund á klst.
mbl.is Tengiliður Evu Joly kostar 6,7 milljónir
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Held að Sjálfstæðisflokkurinn ætti að átta sig á vilja meirihluta þjóðarinnar!

 Eða kannski ekki! Þeir held ég tala frá sér atkvæði með hverri mínútu þessa málþófs.

Þeir eru á móti því að þjóðin eigi auðlindir sínar. Menn eru alvarlega farnir að eigna sér fiskinn í sjónum til frambúðar. Og kvótakerfið er að skapa mönnum eignarrétt á óveiddum fiski. Sem erfist á milli kynslóða og því eru hér að verða til ættir sem koma til með að eiga allan okkar fisk. Þetta er Sjálfstæðisflokkurinn á móti því að breyta og færa þjóðinni aftur eignarrétt á þessari auðlind. Eins er þetta með orkuauðlindir okkar þær vil Sjálfstæðisflokkur ekki að séu tryggilega í þjóðareign.

Sjálfstæðisflokkur vill ekki stjórnlagaþing sem hafi einhver völd. Hann treystir ekki öðrum en Alþingismönnum sínum til að breyta stjórnarskrá.

Sjálfstæðisflokkurinn vill ekki auðvelda þjóðaratkvæðagreiðslur. Hann vill ekki að fólkið fái að hafa bein áhrif á ákvarðanatöku.

Þannig að þeir velja að tefja afgreiðslu vilja meirihlutans til að standa vörð um hagsmuni útgerðamanna og koma í veg fyrir allt sem gæti opnað á þjóðaratkvæði um aðildarviðræður við ESB. Þeir vilja ekki að stjórnarskrá verði breytt í heild því að flokkurinn og hagmundaaðilar tengdir þeim gætu misst völd við það.


mbl.is Enn fjölmargir á mælendaskrá
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

L listi - In memoriam

Flokkur sem gekk út á að einangra Ísland og koma í veg fyrir að fólk fengi að kjósa um aðild að ESB sem aðalmál átti aldrei möguleika. Sorry. Þeim gekk illa að koma fram með nokkuð annað sem vakti athygli nema kannski þetta með kreppusjóðinn. Þau vera...

Hvað er að hjá fréttastofu RUV?

Á heimasiðu rannsóknarnefndar Alþingis kemur fram að á þennan blaðamannafund mættu aðeins fulltrúar frá Stöð 2 og Mogganum. Held að það sé ekki allt í lagi hjá RUV! Þeir hljot að vita að þessi atriði brenna á fólki þ.e. að þessi mál séu rannsökuð. Og...

Leyfið Sjálfstæðisflokknum að halda uppi málþófi

Þau gera þá ekkert af sér á meðan! Meirihluti þingsins getur skipt með sér liði að vera þarna niður í þingi en að öðru leiti farið að vinna að framtíðarsýn og lausnum fyrir þjóðina á meðan sjálfstæðismenn gaspra og verja hagsmuni...

Ísland stefnir í að verða eins og Norður Kórea.

Nú þegar að Bjarni Ben, Bjarni Harðar, Steingrímur og flokkar þeirra vilja eyða allri umræðu um að fara í viðræður við ESB um inngöngu og jafnvel flýtimeðferð á upptöku evru þá eru að koma svona fréttir. Engir erlendir fjárfestar munu þora að fjárfesta á...

Sjálfstæðiflokkurinn sorglegar leifar valdasjúkra manna og hagsmunagæslu

Það verður að segjast að þegar ég horfði á Kastljós og málflutning Birgis Ármannssonar þá skil ég ekki í því að neinir aðrir en útgerðamenn komi til með að kjósa þann flokk. Þeir vilja ekki að þjóðin fái í Að auðlindir séu í sameign þjóðarinnar. Að...

Krónan handónýt og farin að valda okkur verulegum vandræðum

Steingrímur hefur nú varla ástæðu til að fegra krónuna. Var að hlusta á Ólaf Ísleifsson á rás 2 þar sem hann fullyrti að hér þyrftu að vera áfram gjaldeyrishöft svo lengi sem við hefðum krónu. Hann sagði að það væri gjörsamlega vonlaust að einhverjir...

Af hverju geta menn ekki bara viðurkennt að við eigum aðeins eina lausn?

Til frambúðar er ljóst að við getum ekki staðið undir örmynt eins og krónan er. Bendi á að allt peningamagn í umferð hér er aðeins rétt rúmlega árshagnaður meðalstórs fyrirtækis á alþjóðavísu fyrir hrun. Og það segir okkur að sæmilega öflugur fjárfestir...

Miðað við þetta hefðu þeir kannski þurft að vera fleiri!

Þetta sýnir kannski hvða þeir hafa kynnt sér málin vel þarna í Útgerðarflokknum xD. Verja sjálfstæði þjóðarinnar og tryggja yfirráð yfir auðlindum Íslands. Niðurstaða úr hugsanlegum viðræðum við Evrópusambandið skal borin undir þjóðina. Einu auðlindirnar...

Þriðja skiptið sem skóflustungur eru teknar að sömu húsunum

Það hefur gengið sú saga að Gunnar Birgirsson hljóti að ætla sér að handmoka fyrir þessum húsum. Því þetta er í þriðja skipti á 2 árum sem hann lætur taka skólfustungur að þessum íbúðum. Sjá myndir og yfirferð hér hjá henni Ingibjörgu...

Þetta er kannski ekki svo flókið!

Ef við reiknum með að Samfylking fái 21 þingmann, framsókn 8. Þá vantar bara 4 þingmenn til að styðja þingmannafrumvarp frá Samfylkingu um aðildarumsókn að uppfyltum ákveðnum skilyrðum og málið er komið í gegn óháð vilja Vg og Sjálfstæðismanna. Enda...

Auðvita samþykkir Samfylking þetta. Enda það eina rétta.

Það er allir sérfræðingar innlendir og erlendir sem ráðleggja okkur þetta. Að eins raunhæfa framtíðar lausn okkar er að ganga í ESB. Upptaka evru kemur til með að leysa út gjaldeyrisvandamálum okkar Vextir koma til með að lækka Vöruverð lækkar....

Miðað við hvað Sjálfstæðismenn klöppuðu fyrir Davíð þá er stefna þeirra ónýt.

Geri ráð fyrir að stefna þeirra hafi átt að miðast við þessa skýrslu um endurreisn sem þeir höfðu svo mikið fyrir að vinna. Nú er gamli leiðtoginn sem þeir klöppuðu svo mikið fyrir í dag búinn að dæma þetta ónýtt plagg. Þeir klöppuðu vel og lengi fyrir...

Davíð heldur betur að færa í stílinn!

Er Davíð virkilega að reyna að telja fólki trú um að sala á bönkunum sé Samfylkingunni að kenna. Man hann virkilega ekki eftir því að hann var forsætisráðherra þegar þeir voru seldir með styrkan meirihluta á bakvið sig. Ætlar hann virkilega að kenna Ástu...

« Fyrri síða | Næsta síða »

Höfundur

Magnús Helgi Björgvinsson
Magnús Helgi Björgvinsson

Skoðanir Magga um menn og málefni í fréttunum. maggihb@gmail.com Athuga að þetta eru mínar skoðanir og þið megið bara hafa ykkar hentisemi, því ég er að nota mína.

Eldri færslur

Júní 2025
S M Þ M F F L
1 2 3 4 5 6 7
8 9 10 11 12 13 14
15 16 17 18 19 20 21
22 23 24 25 26 27 28
29 30          

Twitter

Teljari

joomla visitor

Twitter

Tenging við twitter

Um bloggið

Vettvangur Magga

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband