Leita í fréttum mbl.is

ESB og mítan um fullveldisframsal og sjálfstæðismissi.

Umræðan hér á landi um ESB er með afbrigðum einföld og hreinlega röng. Menn komast upp með að halda að fólki að við inngöngu í ESB missum við algjörlega fullveldi okkar til ESB og enginn virðist geta leiðrétt þetta. Eins komast menn upp með að við inngöngu í ESB missum við allt sjálfstæði og eftir það yrðum við bara einhverjir þræla ESB. Þetta er náttúrulega kjaftæði.

Ég man ekki einu sinni hve oft ég er búinn að benda fólki á þjóðir sem þegar eru í ESB og segja mér hvaða þjóðir þar séu ekki sjálfstæðar.

ESB er í grunnin efnahagsbandalag. Og gengur enn í megin atriðum í að koma upp sameiginlegum mörkuðum og samvinnu um þau mál sem þjóðirnar kjósa að hafa samvinnu um. Til þess að koma á sameiginlegum mörkuðum þar sem allir væru jafnir þurfti að samræma þessa markaði og til þess þurfti að framselja yfirstjórn á þeim til sameiginlegra stofnana sem allar þjóðir koma að og eru staðsettar í Brussel. Til að samþætta reglunar á þessum mörkuðum þá framselja þjóðirnar vald til þeirra þannig að þær fari með yfirstjórn þessara mál. Þar má t.d. nefna Sjávarútveg, Iðnað, kjötframleiðslu og annan landbúnað.

Eins hafa ríki ESB kosið að hafa samvinnu um umhverfismál og fleira. Þetta er nú allt fullveldisframsalið. Enda ef við skoðum lönd eins og Finnland, Svíþjóð, Danmörk, Þýskaland, Bretland og Frakkland og fleiri þá segir mér engin að þessi lönd séu ekki fullvalda og sjálfstæð. Og þó yfirstjórn auðlinda eins og sjávarauðlinda sé sameiginleg þessum þjóðum þá hafa þær í raun allt um það að segja hvernig auðlindin er notuð.

Með EES samningnum þá afhentum við ESB þó nokkur völd varðandi lagasetningu hér á landi. Við erum skuldbundin til að taka upp lög ESB á öllum sviðum EES samningsins. Þetta nær yfir öll atrið vinnumarkaðs hér á landi ásamt lögum um verslun og viðskipti. T.d. er hvíldartími atvinnubílstjóra og fullt af lögum sem okkur bar að taka upp.

En hér kaupir fólk skýringar ESB andstæðinga sem lýsa ESB eins og sjálfstæðu valdi (skrímsli) sem hafi það helsta markmið að stela öllum auðlindum frá löndum sem þau ná að innlima. Fólk veltir ekki einu sinni fyrir sér fyrir hverja í ósköpunum eiga þeir að vera að stela þessu. Þetta er svona svipað og þegar fólk er að halda því fram að IMF sé sjálfstæð stofnun sem vinni að því að stela auðlindum fyrir USA.

Það er nauðsynlegt að uppfræða fólk hér á landi. Fólk á ekki að kaupa svona furðu rök án þess að kynna sér máli. Menn geta fundið á netinu eða í bókum neikvæð ummæli um allt. En ég minni á að það eru þjóðir í biðröð að komast í ESB en það er engin sem er að vinna í að komast þaðan út.


mbl.is ESB efst á blaði
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Hugmynd að tekjulind fyrir þjóðina.

Hef verið að velta fyrir mér nú í framhaldi af því að sjálfstæðismenn lýstu sig andsnúna ESB vegna þess að útlendingar gætu komist í auðlindir okkar í sjónum. Er þá ekki kominn tími til að við förum að rukka þessa útgerðamenn um skatt fyrir það að þeim voru afhent þessi auðævi sem þeir hafa sannanlega notað til að veðsetja, skuldsetja og arðræna til að nota í verkefni hér eins og bankabóluna og útrásarverkefni án þess að þeir hafi greitt nokkuð að ráði fyrir aðganginn sérstaklega.

Mér finnst nú í erfiðleikunum eigum við að rukka 10 þúsund krónur skatt á hvert tonn sem nenn eiga. Er ekki veitt hér um 1. milljón tonna af fiski. Það mundi gera um 10 milljarða á ári. EN þeir sem leigja kvótann þyrftu ekki að borga skatt aðeins þeir sem hafa eignarrétt á kvóta. Menn sem ekki myndu sætta sig við þetta gæfist þá kostur á að skila inn kvóta sem síðar yrði úthlutað aðeins til þeirra sem ætla að veiða hann í eitt ár í senn gegn hóflegu gjaldi.


mbl.is Kvóti úthafskarfa óbreyttur
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Til athugunar fyrir ESB andstæðinga!

Ég held að það sé rétt nú að fara að rukka ESB andstæðingar um lausnir á nokkrum gríðarlegum erfiðleikum sem blasa við okkur í nánustu framtíð. Það þýðir ekki að bera fyrir sig að menn séu bara á móti ESB, ESB séu svo vondir menn sem borði okkur í...

Held að fólk ætti að skoða feril okkar síðustu 100 árin áður en það hafnar aðild að ESB

Ég er stundum gáttaður á því að hér skuli stór hluti fólks vera ennþá á því að Íslandi sé betur borgið utan ESB. Ef við förum yfir söguna frá því að við urðum lýðveldi og jafnvel fyrr, þá er ljóst að öll þau stökk sem við höfum tekið upp á við tengjast...

Vert þú sæll Geir og hafðu það gott. En þetta er rangt hjá þér!

Það sem Geir skilur ekki nú þegar hann er að kveðja er að Þessi tvö mál eru akkúrat það sem fólkið í landinu hefur verið að fara fram á. Þ.e. að fá að hafa meira um það að segja hvernig fólk raðast á lista og að fá að kjósa um stærri mál eins og ESB, sem...

Held að sjálfstæðismenn ætti nú bara að hafa áhyggjur af sjálfum sér

Held að flokkur sem er ný búinn að detta á andlitið með alla sína stefnu og steypa þjóðinni í djúpt fen ætti ekki að vera að láta svona hluti trufla sig. Sér í lagi þegar að menn í flokknum vita ekki hvar flokkurinn þeirra sendur formlega í þessu máli....

Það sem vantaði í þetta minnisblað seðlabankans!

Hrikaleg lesning þetta minnisblað sem var víst lesið upp á fundi Geirs Davíðs Árna og Ingibjargar. En það er hvaða aðgerða bæri að grípa til. Í skýrslunni stendur: En þá niðurstöðu má draga af þessum viðræðum og ummælum manna sem svo vel til þekkja en...

Guðjón er þetta ekki augljóst?

Ásgerður segir: Ég hef gagnrýnt hvernig staðið hefur verið að starfsmannamálum og mörgu fleiru í æðstu yfirstjórn flokksins. Nú er hins vegar ljóst að formaður flokksins ætlar sér ekki að að gera nauðsynlegar breytingar á starfsmannahaldi flokksins. Þá...

Gaman að vita hvaða Sunnlendingar ætla að vera ábyrgir fyrir að Árni fari aftur á þing?

Ef fólk fer yfir þingmannsferil hans er nú ekki margt sem eftir hann liggur. Nema nokkur leiðinleg atvik, kirkja í Grænlandi og nokkur svona gæluverkefni hans. Og mörg hefur þurft að fara ofan í saumana á. Öðru hefur hann nú ekki komið í verk og oftar en...

Hvalveiðleyfið bjargaði Einari ekki!

Sennilega fáum við reikninginn fyrir atkvæðaveiðar Einars. Nú eru verslanir erlendis að hætta þátttöku í markaðsátaki og svo framvegis. Allt út af ákvörðun Einars daginn sem hann hætti. En sú ákvörðun var leynt og ljóst ætluð til atkvæðakaupa. En dugði...

Glæsilegt VG. Nú er ekkert í vegi fyrir Rauð-grænni stjórn eftir kosningar!

Frábært hjá Vg! Auðvita er það þjóðarinnar að ákveða hvort að farið verður í aðildarviðræður við ESB. Nokkur atrið sem ég hef verið að hugsa eftir Silfrið og Sprengisand í morgun. Ef að við ákveðum að vera áfram með íslenska krónu um óákveðin tíma getum...

Fé án hirðis!!!!

Pétur Blöndal barðis hér fyrir nokkrum árum að SPRON fengi að verða hlutafélaga. Held að reynslan sé að sýna okkur að sú leið var nokkuð vafasöm. Maður man eftir hlutafélagavæðingunni og sölu stjórnenda á hlutafé og einhverju skálduðu verði. SPRON hrundi...

Það væri nú ágætt að einhver benti Sigmundi á ákveðnar staðreyndir

Hann lýsir ánægju með Vg og skv. dv.is vill hann samstarf við Vg eftir kosningar. En ef hann veit það ekki þá eru Vg við stjórn núna ásamt Samfylkingu og hljóta því að falla undir þetta "loftbóludæmi "hans. Það var framsókn fyrir 2 mánuðum sem ítrekað og...

Og þessi könnun er gerð áður en Jóhanna tilkynnti að hún bíður sig fram til formanns.

Var að glugga í þessa könnun sem í heild má sjá hér . Þar kemur meðal annars fram þrátt fyrir að þær niðurstöður séu með miklum fyrirvörum að Samfylkingin er með heldur meira fylgi en D listinn í Kraganum. Hef ekki séð það...

Það er auðséð að glæpir ætla að vaxa í kreppunni

Vegna þess væri ekki rétt að ríkð færi að leita að húsnæði út á landi fyrir tímbundið fangelsi til að fjölga fangelsisrýmum . Það verður að koma þessu fólki út umferð eins fljótt og verða mál. Því þau virðast byrja að brjóta af sér um leið og þau labba...

« Fyrri síða | Næsta síða »

Höfundur

Magnús Helgi Björgvinsson
Magnús Helgi Björgvinsson

Skoðanir Magga um menn og málefni í fréttunum. maggihb@gmail.com Athuga að þetta eru mínar skoðanir og þið megið bara hafa ykkar hentisemi, því ég er að nota mína.

Eldri færslur

Júní 2025
S M Þ M F F L
1 2 3 4 5 6 7
8 9 10 11 12 13 14
15 16 17 18 19 20 21
22 23 24 25 26 27 28
29 30          

Twitter

Teljari

joomla visitor

Twitter

Tenging við twitter

Um bloggið

Vettvangur Magga

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband