Leita í fréttum mbl.is

Hátt bylur í tómri tunnu

Held að Sigmundur hafi verið að mismæla sig þegar hann fór að tala um flokk sem hannar atburðarrás og hefur áhyggjur af ímynd frekar en pólitík.

  • Kusu framsóknarmenn sér ekki formann í febrúar sem hafði til skammstíma ekki verið í flokknum né vissi neinn hvað hann stóð fyrir?
  • Evrópumálinn. Er flokkurinn ekki bæði með og á móti ESB eftir því við hvern hann talar.
  • Hvað stefnu hefur framsókn yfirleitt á málum hér fyrir utan 20% niðurfellingu skulda og fleiri Álver?
  • Og hvaða flokkur eignaði sér heiðurinn af því að núverandi stjórn tók við völdum? Var það ekki framsókn sem hannaði þá atburðarrás?

Er nema von að maður haldi að Sigmundur hafi verið að mismæla sig?


mbl.is Samfylkingin „loftbóluflokkur“
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Er gengið á leið til andskotans aftur?

Það er náttúrulega að æra óstöðugan að fara að fjalla aftur um nauðsyn okkar að komast í samstarf við ESB. Þetta á auðvita ekki síst við um myntsamstarf. Það verður aldrei byggjandi á krónunni. Nema að við ætlum að takamarka viðskipti okkar við útlönd um komandi framtíð.

Mogginn í dag er undirlagður af greinum manna sem ætla að bjóða sig fram fyrir L listann þar var m.a einn Friðrik Daníelsson sem skrifaði grein um að Svía væru á leið í algjört hrun vegna aðildar sinnar að ESB. Alveg ótrúlegur boðskapur. Og enn verra að sumur trúa svona skrifum.  En hér á eftir fer greinin með athugasemdum frá mér.

ÞJÓÐARATKVÆÐAGREIÐSLA um ESB-aðild var haldin 13. nóvember 1994. Tímar erfiðleika og bankakreppu höfðu hrjáð Svía. Sænskum kunningja mínum sagðist svo frá að fjölmiðlarnir hafi útvarpað linnulausum áróðri frá samtökum launþega, atvinnuveitenda og stjórnmálaflokkum sem sögðu: Svíþjóð verður útilokuð frá Evrópu ef við verðum ekki með, mikilvæg fyrirtæki leggjast af eða fara, atvinnuleysið eykst og lífskjörin rýrna. Norðmenn ætluðu að hafa þjóðaratkvæðagreiðslu nokkrum vikum síðar og töldu fjölmiðlarnir Svíum trú um að Norðmenn myndu samþykkja aðild. Niðurstaðan varð að 52,3 % Svía sögðu já. Norðmenn höfnuðu svo aðild. Þegar það varð ljóst sáu margir Svíar eftir að hafa samþykkt aðildina, stuðningurinn hrapaði niður fyrir 40%.

 

Á árunum eftir inngönguna flutti um tugur stærri fyrirtækja á ári höfuðstöðvar sínar frá Svíþjóð. Verslunarhömlur ESB hafa valdið fyrirtækjum miklum búsifjum, mikilvæg verslun Svía hefur verið utan evrusvæðisins og sk. innri markaður ESB í stöðnun. Evrópurétturinn jók skrifræðið, ofan á sænska regluverkið bættust reglur ESB. Góðar umbótatillögur í þinginu hafa tafist eða strandað á lögum ESB. Atvinnuleysið hefur farið í 10% þrátt fyrir góðæri á heimsvísu síðustu fimm árin.
Hverskonar bull er þetta. Það væri gaman að vita hvaða fyrirtæki fluttu og hversvegna. Þau eru væntanlega ekki að græða mikið að flytja sig innan ESB ef að það er svona slæmt. Og hvað á maðurinn við með verslunarhömlur ESB. Það er t.d. staðreynd að vöruverð í Svíþjóð sem var sambærilegt og í Noregi er nú meira en 30% lægra. Og eins og þessu er lýst væru Svíar nokkurn veginn á hausnum. Minni líka á að það eru fyrirtæki t.d. frá USA sem hafa verið að kaupa sig inn í Sænsk fyrirtæki t.d. SAAB og koma ESB ekkert við

 

Nú hafa sænskir bændur fengið boð frá ESB um fjölda trjáa í beitarlöndum, það eru mörg tré í Svíþjóð og standa bændur í stórfelldu trjáhöggi. Stefna ESB hefur leitt til aukins stórreksturs, sjö býli hafa verið lögð niður að meðaltali daglega í Svíþjóð. Starfsmönnum eftirlitsstofnunar landbúnaðarins fjölgaði samt úr 100 í 800. Víða í dreifbýlinu hefur alla tíð verið fastmúruð andstaða við aðildina.
Hefur maðurinn kynnt sér landbúnað hér á landi. Bændum hér hefur fækkað um meira en helming á nokkrum áratugum. Heilu byggðalögin hafa hætt landbúnaði og eru í eigu nú að mestu manna sem búa í höfuðborgin. Fyrirtæki reka nú landbúnað á mörgum jörðum og stórbýli hafa keypt kvóta og jarðir í kring um sig. Hér er landbúnaður niðurnegldur og menn mega ekki selja afurðir sjálfir heldur verða að nota rándýra milliliði. Og við borgum líka ríflega fyrir auk þess sem við greiðum framleiðslustyrki.

 

Aðildargjald Svía er 29 milljarðar sænskra króna á ári. Þar á ofan bætist svipaður kostnaður við tilskipanir ESB.
Maðurinn gleymir að sænskir neytendur eru líka skattgreiðendur og þegar svona er reyknað út þá verður hann að reikna með hvað þeir spara með því að allur tollur milli Svía og annarra ESB þjóða er 0. Því hafa Svíar t.d. getað selt bíla í samkeppni við mun ódýrara vinnuafl í Japan og Kóreu. Þó reyndar nú séu uppi alvarleg vandamál hjá þeim. Enda skrítið að í landi sem borgar norræn laun hafi bílaiðnaður gegnið svo lengi.
Lokun landamæraeftirlits hefur valdið mikilli aukningu kostnaðar vegna áfengismisnotkunar, eiturneyslu og glæpa. Bein útgjöld Svía af aðildinni eru því líklega orðin á annað þúsund milljarðar SEK auk óbeins taps.

Svíar eru með sambærilegt eftirlit við okkur. Það ræðst ekki af ESB heldur Schengen samningnum. Sem er eins hjá þeim og okkur. Og áfengisneysla kemur þessu máli bara ekkert við. Ekki erum við í ESB og við misnotum áfengi í meira mæli en Svíar. Þetta með að ríkið sjái ekki um að selja áfengi heldur einkaaðilar hefur ekkert með aðgengi þeirra að gera.

Samkvæmt stjórnvöldum í Svíþjóð eru Svíar ánægðir með veru sína í ESB þó eðlilega séu alltaf einhverjir gallar. Það er eins og að það er mikill galli fyrir okkur að standa utan ESB. Danir hafa verið í ESB í hvað eitthvað um 30 eða 40 ár. Finnar hafa verið jafnlengi og Svíar og eins og allar hinar 27 þjóðirnar er ekkert land að leyta að leið til að komast út úr sambandinu.


mbl.is Gengi krónunnar lækkar um 1,27%
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Bíddu hvar eru öll afskrifuðu lánin sem bloggarar hafa verið að velta sér upp úr?

Nú sér maður að það er ekki rétt að trúa öll þó það standi á netinu. Í athugsemdum á Silfri Egils og í raun út um allt er talað um alla milljarðana sem hafa verið afskrifaðir. Og hvað einstaklingar og hafa fengið afskrifað hjá sér. Nú kemur fram að...

Bíður einhver betur?

Nú kemur Lilja Mósesdóttir og talar um 4 milljóna lækkun á öllum íbúðarlánum og er þó heiðarlega og áætlar kostnað upp á 300 milljarða. En ég verð að vísa til fyrri skrifa minna um þetta mál. En kannski helst að 4 milljóna lækkun á 25 milljóna láni þýðir...

20% niðurfelling skulda??????????????

Hef verið að velta fyrir mér þessum hugmyndum Tryggva og Framsóknar. Ef maður setur upp dæmi: Fjölskylda hefur keypt sér íbúð 2007 á kannski 25 milljónir og fengið kannski 20 milljónir lánaðar. Nú hefur lánið kannski hækkað ef það var verðtryggt upp í 23...

Smá ábending til L listans.

Hvet ykkur til að skoða umræður sem hér voru m.a. á þingi 1969 þegar að umræður voru um inngöngu í EFTA. Þá mátti finna orð eins og afsal á fullveldi og að hingað kæmu útlendingar og tækju yfir allt sem verðmætt væri t.d. fiskinn. "Við skulum ekki gleyma...

Það er nú ekki skrýtið þó að við séum komin á hausinn ef að allur kostanður ríkisins er svona

Er það ekki rétt að það eiga að vera 42 á þessu stjórnlagaþingi. Og ef það starfar í 18 mánuði. Þá er kostanaður við hvern fulltrúa um 50 milljónir. Ég held að menn séu bara ekki lagi. Það á að borga hverju fulltrúa sem þarna fer inn um 500 þúsund. Sem...

Egill Helgason og Silfur Egils eitthvað að bila eða ofmetnast!

Nú í upphafi verð ég að viðurkenna að ég reyni helst aldrei að missa af Silfri Egils. Það hefur hingað til verið upplýsandi og Egill lengi framan af passaði sig að blanda ekki sinni persónu of mikið inn í þáttinn. En nú síðustu mánuði hafa orðið...

Ef við hefðum hlutstað á sérfræðingana?

Svona í framhaldi af Silfri Egils í dag þar sem hann á tímabili byrjaði að ausa úr viskubrunni sínum yfir Árna Pál um að við hefðum nú getað með því að grípa til aðgerða 2007 eða snemma árs 2008 gert eitthvað til að koma í veg fyrir þetta hrun sem varð...

Þetta er alveg makalaust! Árni aftur í 2 sætið.

Árni Johnsen kosinn enn og aftur! Þingmaður sem varla hefur sést né heyrst síðan hann var kosinn siðast. Og samt er hann kosinn aftur og aftur. Eru Vestamanneyingar bara að tryggja honum laun næstu árin? Eða eru þau að velja sér launaðan fulltrúa til að...

Lítil breyting hjá x D í Suðvestur kjördæmi.

Þorgerður og Bjarni hafa sætaskipti. Aðrar breytingar litlar nema að Óli Björn treður sér þarna inn.

Engin nýliðun í Reykjavík hjá xD

Voru þau ekki að hrópa þarna út D- lista um að engin endurnýjun væri hjá Samfylkingu. Nú er mikil endurnýjun hjá Samfylkingu í Reykjavík en sama tóbakið hjá Sjálfstæðismönnum í fyrstu 7 sætunum og svo Þórlindur í 8 sæti. Ekki margt nýtt og miklir...

Já, já Sigumundur!!!

Auðvita gerir IMF bara eins og íslendingar segja þeim! Þeir bara koma hér og gegna öllu sem Steingrímur segir þeim.Þetta er nú merkilegt í ljósi þess að Vg og fleiri hafa sagt að IMF mundi taka hér öll völd og við mættum ekkert gera nema það sem þeir...

Eru Sjálfstæðismenn að tapa sér??????

Maður les ekki blað, fer inn á netfréttamiðla, hlustar á útvarpið án þess að það dynji á manni auglýsingar frá fólki í framboði í prófkjörum sjálfstæðismanna. Síðan virðast sumir eins og Guðlaugur vera með her af fólki í að hringja út fyrir sig. Svo...

Nú hefði kannski komið sér vel að eiga sjóðina óskipta sem voru fyrir í þessum sparisjóðunum

Held að sparisjóðir stæðu mun betur í dag ef þeir hefðu haldið sig við að vera það sem þeir áttu að vera þ.e. sparisjóðir. Þeir virtust allir fá mikilmennsku brjálæði og fóru að stofna alskyns fjárfestingar banka og félög sem og lána ótæpilega til...

« Fyrri síða | Næsta síða »

Höfundur

Magnús Helgi Björgvinsson
Magnús Helgi Björgvinsson

Skoðanir Magga um menn og málefni í fréttunum. maggihb@gmail.com Athuga að þetta eru mínar skoðanir og þið megið bara hafa ykkar hentisemi, því ég er að nota mína.

Eldri færslur

Júní 2025
S M Þ M F F L
1 2 3 4 5 6 7
8 9 10 11 12 13 14
15 16 17 18 19 20 21
22 23 24 25 26 27 28
29 30          

Twitter

Teljari

joomla visitor

Twitter

Tenging við twitter

Um bloggið

Vettvangur Magga

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband