Leita í fréttum mbl.is

Egill Helgason og Silfur Egils eitthvað að bila eða ofmetnast!

Nú í upphafi verð ég að viðurkenna að ég reyni helst aldrei að missa af Silfri Egils. Það hefur hingað til verið upplýsandi og Egill lengi framan af passaði sig að blanda ekki sinni persónu of mikið inn í þáttinn.

En nú síðustu mánuði hafa orðið breytingar á stjórn Egils á þættinum sem mér líka ekki.

Egill er farinn að sletta inn í þáttinn órökstuddum fullyrðingum sem hann gleypir á blogginu. Og eins þá er hann farinn að ofureinfalda hlutina.

T.d.

  • Í þættinum í dag fór hann að tala um að hann hefði heyrt að hægt hefði verið að skoða kjörskrá Samfylkingarinnar á netinu. Þarna er hann að rugla. Það var þannig að ef fólk var búið að kjósa og sló inn kennitöluna aftur þá kom melding um að þessi kennitala hefði þegar kosið. Þetta var nú ekki beint að fólk sæi kjörskránna.
  • Í þáttum undanfarið hefur hann kvartað um rannsóknir fjölda starfsmanna sérstakssaksóknara og að rannsóknir séu ekki komnar á fullt.. En skv. því sem ég hef kynnt mér skv. Evu Joly þá var hún nú í byrjun ein við rannsóknir í Frakklandi þó að teymi hennar stækkað. Og það tók 9 ár frá því að að rannsóknir hennar hófust þar til að dæmt var í málinu.
  • Egill farinn að segja viðmælendum að þeir þurfi ekkert að vera að tala um þetta málið eða hitt þar sem hann er viss um að eitthvað þurfi að gera fyrst. T.d. í dag þegar að Árni leyfði sér að nefna það að umsókn að ESB gæti hjálpað í að vinna til baka traust á okkur.
  • Egill gerði upp á milli viðmælenda sinna í dag. Sigmundur fékk að tala og tala en Guðfríður var höfð útundan.
  • Eins svona fullyrðingar eins og Egill kom með í dag um að það hefði skipt höfð máli að bregðast við bankakrísunni 2007 eða í síðasta lagi  febrúar 2008. Það hefði nú verið gaman hvað sérfræðingurinn Egill vildi að hefði verð gert þá. Minni á að þá voru bankarnir hættir að fá lán og vanhugsaðar aðgerðir þá hefðu kostað okkur væntanlega áhlaup á bankana og stórlega lækkað lánshæfismat á Ísland. Sem í ljósi þess að hrunið var alheimshrun þá væntanlega hefðu við fengið hrun 2007 og svo aftur núna 2008.
  • Þá talar hann alltaf um að við höfum fengið fullt af viðvörunum frá sérfræðingum. En þetta voru óvart bara 10 til 15 manns. Flestir fræðingar matsfyrirtækjanna, Íslensku háskólana og fleiri voru á annarri skoðun. Það eru líka fræðingar erlendis sem spá Heimsenda á næstu árum eigum við að fara að bregðast við því.

Annars er Egill ágætur nema að hann er farin að líta fullmikið á sig sem sérfræðing sem og fólkið sem skrifar í athugasemdir á síðunni hans og sendir honum pósta.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Hólmfríður Bjarnadóttir

Ég hef frá því í haust haft ákveðnar efasemdir um stjórnu Egils Helgasonar á Silfrinu. Hann gerir mikinn mannamun óg við suma viðmælendur er hann beinlínis dónalegur. Hann hefur komið mér fyrir sjónir sem lítt dulbúinn áróðursmeistari og talsmaður Davíðs Oddssonar og Íhaldsins. Hann var beinlínis ruddalegur í dag við Árna Pál vegna þess að ÁP var ekki að tala alveg eins og Agli er þóknanlegt.

Hann er góður í Kiljunni og sá þáttur ætti bara að duga með honum

Hólmfríður Bjarnadóttir, 16.3.2009 kl. 01:35

2 identicon

mér finnst hann vera farinn að missa alla stjórn á viðmælendum,samanber þegar Svanhildur var alltaf gjammandi og enginn heyrði neitt hver í öðrum,misst þá áhugann enda ekkert forvitninlegt efni þar,ætlaði að bíða eftir viðtalinu við Evu Joly en misst alveg áhugann og slökkti.

zappa (IP-tala skráð) 16.3.2009 kl. 10:38

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Magnús Helgi Björgvinsson
Magnús Helgi Björgvinsson

Skoðanir Magga um menn og málefni í fréttunum. maggihb@gmail.com Athuga að þetta eru mínar skoðanir og þið megið bara hafa ykkar hentisemi, því ég er að nota mína.

Eldri færslur

Maí 2024
S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31  

Twitter

Teljari

joomla visitor

Twitter

Tenging við twitter

Um bloggið

Vettvangur Magga

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband