Leita í fréttum mbl.is

Sigmundur Davíð: Samningar við kröfuhafa gætu tekið nokkur ár

Frétt af eyjan.is:

Nokkur ár gætu liðið þangað til viðræðum við kröfuhafa föllnu bankanna lýkur og hægt verður að afnema gjaldeyrishöft, segir Sigmundur Davíð Gunnlaugsson, forsætisráðherra. Hann segir kröfuhafa hafa það of náðugt innan íslensks hagkerfis.

Þetta kemur fram í viðtali við Sigmund Davíð á vef Reuters. Formlegar viðræður við kröfuhafa eru ekki enn hafnar og segir í frétt Reuters að forsætisráðherrann sé orðinn óþreyjufullur vegna þess að staðan sem nú er uppi hamli bæði fjárfestingu og vexti. Að hans mati hafi kröfuhafar á Íslandi það of náðugt.

Þetta hefur ekki gengið jafn hratt fyrir sig og við vonuðumst eftir…en við bjuggumst við að þetta gæti jafnvel tekið nokkur ár,

segir Sigmundur Davíð, en í frétt Reuters er rifjað upp að hann hafi spáð því í júní að samningar gætu jafnvel náðst á þessu ári.

Þetta er spurning um hvenær kröfuhafar eru reiðubúnir að finna lausn…og það er betra ef þeir finna lausnina.

Haft er eftir forsætisráðherra að kröfuhafar hafi sent misvísandi skilaboð og þrátt fyrir að þreifingar hafi átt sér stað hafi lítið haldfast komið upp á borðið.

Að mínu viti hefur ríkisstjórn Íslands verið mjög liðleg við kröfuhafa.

Sigmundur Davíð segir að um leið og samningar nást við kröfuhafa ætti að vera hægt að aflétta gjaldeyrishöftum á tiltölulega skjótan hátt.

Ekki eru liðnar nema tvær vikur síðan Bjarni Benediktsson sagðist í viðtali við Bloomberg fréttastofuna að hann vonaðist til að hægt verði að ljúka samningum við kröfuhafa og afnema gjaldeyrishöft svo snemma sem í apríl á næsta ári.

 


Sigmundur Davíð í sjálfvorkun á Sprengisandi!

Verða að segja að Sigmundur Davíð sem forstætisráðherra geriri lítið annað en að vorkenna sér. Dá góður hluti viðtals hans í þættinum Á Sprengisandi fór í að vorkenna sjálfum sér út af fjölmiðlum og vondum netverjum. Honum viðrðist gjörsamlega vera fyrirmunað að sjá að hann og félagar hans létu eins eða verr í síðasta kjörtímabili.  Skoðið þetta nýja videó sem ég fann youtube:

 


 


Sigurður Ingi ekki í nokkrum tengslum við þjóðina?

Ef að Sigurður Ingi heldur að: Svokallaðri samningaleið sem gerði ráð fyrir að útgerðaraðilar fengju úthlutað veiðiheimildir til langs tíma, 20-25 ár hugsanlega, til þess að tryggja nauðsynlegan stöðugleika í greininni og svigrúm til fjárfestinga. sé...

Hvaða leyndó geyma þessi félög?

Nú setti Sigmundur Davíð reglugerð um að eftirfarandi félög séu undanskilin upplýsingaskildu stjórnsýslulaga. Af hverju? Væri gaman að vita það. Auðvita eru ýmis af þessum félögum í samkeppni og maður skilur það að það megi ekki gefa upp viðkvæmar...

Leiðréttingarsjóður?

Var aðeins að kynna mér þessar hugmyndir eins og Guðmundur í XG lagið þetta fram. Er það rétt skilið hjá mér að óverðtryggðu lánin komi til með að bera 7,6% vexti og vaxtamunur verði um 7% á þessum lánum og lán leiðréttingarsjóðsins sem verð verðtryggð...

Rökin fyrir aðild að ESB

Af eyjan.is Hagsbæturnar leiða meðal annars af upptöku evru í stað krónu. Með evru fæst langþráður stöðugleiki, verðtrygging verður ekki lengur nauðsynleg, vextir lækka og viðskiptakostnaður minnkar. Tilraunin með íslensku krónuna er fullreynd og tókst...

Ríkisstjórnarflokkarnir tapa fylgi! (Engar efndir bara nefndir)

Frétt af ruv.is: Báðir stjórnarflokkarnir, Framsóknarflokkur og Sjálfstæðisflokkur, hafa tapað fylgi frá kosningum, samkvæmt nýrri könnun Félagsvísindastofnunar Háskóla Íslands. Sjálfstæðisflokkurinn er þó stærstur flokka á landsvísu, en 23% kjósenda...

Svona kannski rétt að einhver bendi Jóni Bjarnasyni á eftirfarandi:

Ef hann var með kröfur í samningaviðræðum upp á 16 til 17% og ESB er með tilboð núna upp á 12 til 14% þá munar ekki nema 2% á því sem hann var tilbúinn að samþykkja og því sem ESB er að bjóða upp á. Þannig að hann þó að maðurinn sé blindaður af hatri á...

Hvar er Simmi? :)

...

Bjarni ætti kannski að lesa þetta!

Af vefsvæði Andra Geirs Arinbjarnasonar á eyjan.is Lexían frá Hong Kong Um þessar mundir eru 30 ár síðan Hong Kong festi gjaldmiðil sinn við bandaríkjadollar. Það verður ekki annað sagt en að vel hafi tekist til enda hefur Hong Kond dollarinn staðið af...

Flott svona á að hefna sín!

Veit ekki alveg hvað menn vilja fá út úr þessu nema hefnd. En svona miðað við að nær allar þjóðir á tímum Icesave töldu 2008 til 2010 að okkur bæri að borga þetta og meira að segja dómur ESA kom flestum á óvart þá held ég að Sjálfstæðismenn fái lítið út...

Eftir lestur nokkra blogga sem mælast vinsæl á blog.is:

Þá varð mér hugsað til limru stórskáldsins í Kópavogi þar sem hann orti: Vetur sumar vor og haust vellur viskan endalaust en svo er að sjá ef menn að gá Að heimskan hefur hæsta raust Og verst er að það er fólk sem trúir þessum einstaklingum sem hafa...

Hvernig væri nú að fara að horfa fram á veginn?

Datt í hug eftirfarandi: Hvernig væri nú að allir Íslendingar hættu að að: - Horfa sífellt aftur á bak til fyrri tíma - Sífellt að reyna að finna einhverja aðra til að kenna um vandamál sín sjálfra og þjóðarinnar sem heild - Sífellt að vera að láta menn...

Er krónan ekki löngu fullreynd?

Af eyjan.is eftir Andra Geir Arinbjarnarson. Smá skynsemi svona inn á svæði Heimssýnarliða hér á blog.is Krónan + hvíl í friði Íslendingar hafa tvo kosti: krónuna eða evruna. Krónunni fylgir krónískur gjaldeyrisskortur, höft, gengisfellingar og lág laun....

« Fyrri síða | Næsta síða »

Höfundur

Magnús Helgi Björgvinsson
Magnús Helgi Björgvinsson

Skoðanir Magga um menn og málefni í fréttunum. maggihb@gmail.com Athuga að þetta eru mínar skoðanir og þið megið bara hafa ykkar hentisemi, því ég er að nota mína.

Eldri færslur

Maí 2025
S M Þ M F F L
        1 2 3
4 5 6 7 8 9 10
11 12 13 14 15 16 17
18 19 20 21 22 23 24
25 26 27 28 29 30 31

Twitter

Teljari

joomla visitor

Twitter

Tenging við twitter

Um bloggið

Vettvangur Magga

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband