Leita í fréttum mbl.is

Eftir lestur nokkra blogga sem mælast vinsæl á blog.is:

Þá varð mér hugsað til limru stórskáldsins í Kópavogi þar sem hann orti:

Vetur sumar vor og haust
vellur viskan endalaust
en svo er að sjá
ef menn að gá
Að heimskan hefur hæsta raust

 

Og verst er að það er fólk sem trúir þessum einstaklingum sem hafa yfirleitt nákvæmlega ekkert fyrir sér í því sem þeir halda fram. 

 

Stupid

 


Hvernig væri nú að fara að horfa fram á veginn?

 

Datt í hug eftirfarandi:
Hvernig væri nú að allir Íslendingar hættu að að:
- Horfa sífellt aftur á bak til fyrri tíma
- Sífellt að reyna að finna einhverja aðra til að kenna um vandamál sín sjálfra og þjóðarinnar sem heild
- Sífellt að vera að láta menn sem eru hræddir við allar breytingar ráða umræðu hér á landi

Heldur yrði sest niður og fundið út hvar veikleikar stöðunar í dag eru hverjir eru styrkleikar okkar til framtíðar og hættur og fá færustu menn til að móta leið okkar fram- og uppávið.
Er ekki að verða komið nóg af því að kenna öðrum um þegar núverandi stjórnvöld rökstyðja allt sem þau gera með að fyrri stjórnvöld hafi verið svo slæm. Og fyrri stjórnvöld kendu svo vondu fjármálamönnunum um. Og svo koll af kolli.
Halló staðan er svona í dag. Við breytum ekki fortíðinni en nú þurfum við að móta stefnu til framtiðar sem leiðir okkur til betra lífs.
Held nefnilega að engin sér saklaus af hlutum í fortíðinni. T.d. væru allir að drukkna í skuldum ef að allir hefðu gleypt við þeim gylliboðum sem voru fyrir hrun um að endurfjármagna eignir sínar og kaupa hluabréf, skuldabréf neða kaupa í einhverjum peningamarkaðssjóðum  selja fínu íbúðina sína og byggja skuldsett einbýlishús og svo framvegis.

Taka stöðuna eins og hún er í dag og finna lausnir:

Við viljum gott heilbrigðiskerfi fyrir alla - Hvernig vinnum við að því að laga það?

Við viljum góða menntun fyrir alla - Hvernig tryggjum við það?

Við viljum jafnan og góðan hagvöxt. Hverning tryggjum við það?

Við viljum góða vinnu fyrir flesta og mannsæmandni laun: Hvernig tryggjum við það?

Við erum lítið land og þolum illa að fáir njóti hér einhverja sér kjara- Hvernig tryggjum við það?

Ef fyrir öllu er að setja sér langtímamarkmið sem eru svo skipt í smærri þrep og fara að vinna að því. Engin risastökk sem bitna á öðrum markmiðum heldur er sígandi lukka best. 

Fólk verður að átta sig á að 2007 kemur aldrei aftur. Við getum ekki tekið lífskjör okkar að láni án þess að þurfa síðar að borga það til baka með tilheyrandi dýfum. 


Er krónan ekki löngu fullreynd?

Af eyjan.is eftir Andra Geir Arinbjarnarson. Smá skynsemi svona inn á svæði Heimssýnarliða hér á blog.is Krónan + hvíl í friði Íslendingar hafa tvo kosti: krónuna eða evruna. Krónunni fylgir krónískur gjaldeyrisskortur, höft, gengisfellingar og lág laun....

Eru kirkjur það sem kristni boðar að verði að vera til staðar?

Var að hugsa um það þegar ég las um vandræði safnaða hér um alla Borg vegna skulda - hversu marga milljarða eru við búin að festa í steinsteypu og búnaði í tengslum við þessar krirkjur? Og eins að að stórum hluta er þetta húsnæði nærri ónotað nema í...

Ætli fjárlög næsta árs verði "teygjanleg"?

Svona eins og "strax" hjá Vigdísi? Grínlaust þá finnst mér að nú eigi að Alþingi að taka völdin af skítkösturum eins og Sigmundi sem er á því að allir séu á móti sér sem ekki hafa sömu skoðun á málum. Þingmenn allra flokka að hittast og ræða sig niður á...

Svona að velta fyrir mér!

Hefði veiðigjaldið verið lagað til án þess að lækka það, VSK á gistiþjónustu verið haldið óbreyttu og auðlegðarskattur óbreyttur - Hefði þá ekki verið hægt að sleppa legugjöldum á sjúkrahúsum og komugjöldum á heilsugæsluna, hefði ekki verið hægt að auka...

Svona að velta fyrir mér hvað yrði um landið ef að 2000 milljarðar af krónum kæmu hér á markaðin?

Er ekki talað um að eignir gömlu bankana séu um 2000 milljarðar í erlendum eignum og svo um 800 milljarðar í krónueignum sem m.a. eru báðir bankarnir. En er svona að velta fyrir mér hvað þessi dómur þýðir. Er verið að tala um þessa 800 milljarða sem við...

Gætu þetta verið ástæður fyrir erfiðri stöðu okkar.

Þetta er grein eftir Jón Steinsson á eyjunni i kvöld: Láglaunalandið Ísland Í dag er Ísland láglaunaland í samanburði við nágrannalöndin. Tímakaup á Íslandi er svipað og í Slóveníu. Héðan streyma læknar stríðum straumum með þeim afleiðingum að það ríkir...

Er það þetta sem menn kalla hið íslenska fullveldi?

Á hrakhólum í eigin landi Á meðan forsætisráðherra segir að Ísland hafi ekkert til ESB að sækja eru kaupmáttamiklir ESB borgarar ólmir að komast til Íslands og spranga um í fínustu og dýrustu íbúðum og sumarhúsum landsins með láglauna Íslendinga...

Nokkuð ljóst að það liggur fiskur þarna undir steini!

Ljóst er að einhverjir hagsmunaaðilar hafa hag af því að gömlu náttúruverndarlögin haldi gildi sínu. Nú er það vinna fyrir fróða menn að skoða hverjir það eru sem græða á því að gömlu lögin veirð látin gilda áfram næstu ári. Því annar tilgangur getur...

Hvað á ráðherrann við?

Í fréttinni segir: „En burtséð frá stöðu ríkissjóðs þá eigum við að vera opin fyrir aðkomu annarra en ríkisins að uppbyggingu innviða í landinu, hvort sem það er við uppbyggingu vega, flugsamgangna eða hafnarmannvirkja. Sko ég get skilið að aðrir...

Skúbb varðandi samskipti við kröfuhafa?

Var að vafra um netið og rakst á pistil eftir Vilhjálm Birgisson sérlegan vin Framsóknar, sérfræðing í afnámi verðtryggingar og verkalýðsleiðtoga á Akranesi. Hann segir í pistli frá því gær hluti sem ég er hissa á að engin fjölmiðill hafi kannað nánar....

Sko hvernig á maður að skilja þessa ræðu!

Nú verð ég að viðurkenna að ég er ekki góður í "framsóknsku" en ég gat ekki skilið Sigmund öðruvísi en að í nánustu framtíð sennilega á næst ári yrðum við skattlaus, skuldlaus og með gríðarlaun! Og ég veit ekki hvað. Sé fyrir mér að kröfuhafar eigi...

Hefur verið reynt oft áður og rýmar illa við yfirlýsingar annarra ráðherra

Stjórn sem boðar frekar afnám reglna og eftirlits kemur nú til með að eiga erfitt með þetta. Það hafa áður verið gerðar aðgerðir í þessa átt sem ekki hafa skilað miklu til lengda. Og á meðan að hún segir þetta þá boða aðrir ráðherrar að hér eigi að...

« Fyrri síða | Næsta síða »

Höfundur

Magnús Helgi Björgvinsson
Magnús Helgi Björgvinsson

Skoðanir Magga um menn og málefni í fréttunum. maggihb@gmail.com Athuga að þetta eru mínar skoðanir og þið megið bara hafa ykkar hentisemi, því ég er að nota mína.

Eldri færslur

Jan. 2025
S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31  

Twitter

Teljari

joomla visitor

Twitter

Tenging við twitter

Um bloggið

Vettvangur Magga

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband