Leita í fréttum mbl.is

Fyrirgefið er Mogginn ekki í lagi

Nú er auðlegðarskattur svona í framkvæmd:

Við álagningu gjaldárin 2012, 2013 og 2014 er skatthlutfallið 1,50% af eign á bilinu 75.000.000 kr. – 150.000.000 kr. hjá einhleypum og 100.000.000 kr. – 200.000.000 kr. hjá hjónum og samsköttuðum en 2,0% af eign yfir þessi fjárhæðamörk.

Viðbótarauðlegðarskattur

Viðbótarauðlegðarskattur er lagður á skattstofn sem er mismunur á nafnverði og raunvirði hlutabréfa í eigu framteljanda í lok árs 2009, 2010, 2011 og 2012 miðað við stöðu viðkomandi félaga samkvæmt skattframtali þeirra 2010, 2011, 2012 og 2013. Við útreikning á viðbótarauðlegðarskatti er tekið tillit til fríeignamarks og auðlegðarskattur þannig einungis lagður á ef eignir fara yfir þau mörk.

Viðbótarauðlegðarskattur er 1,25% við álagningu gjaldárið 2011 og 1,5% við álagningu gjaldárið 2012.

Við álagningu gjaldárin 2013 og 2014 er viðbótarauðlegðarskattur 1,5% af skattstofni á bilinu 75-150 m.kr. hjá einhleypum og á bilinu 100-200 m.kr. hjá hjónum og samsköttuðum, en 2% af skattstofni yfir þessum mörkum.

Ef að tekjulágir aldraðir einstaklingar eiga eignir umfram skuldir upp á yfir 75 milljónir, þá vorkenni ég þeim ekki að þurfa að losa sig við einhverjar eignir til að borga þennan skatt. Nú tl hvers á fólk annar þessar eignir nema til að nota þær.  Ekki ætla þau að taka þenna auð með sér í gröfinna

 Smá viðbót.Þessi skattur er enn minna mál en ég hélt:

Hér verða menn að hafa í huga að skatturinn er aðeins greiddur af hreinni eign umfram 75 milljónir hjá einstaklingum og 100 milljónum hjá hjónum. Einstaklingur sem á 80.000.000 (áttatíu milljónir) í hreinni eign, borgar því 75 þúsund í skatt á árið vegna þessa.


mbl.is Tekjulágir skattlagðir
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Kjósendur Sjálfstæðisflokks og Framsóknar athugið!

Það er að verða nokkuð ljóst að flokkar ykkar stefna að eftirfarandi:

  • Hér verði ekki gerðar nokkrar breytingar. Hvorki varðandi
    • Sjórnarskrá
    • Fiskveiðstjórnun
    • Gjaldmiðil
    • Verðtryggingu
    • Óbreytt styrkjakerfi til landbúnaðarins

Sennilega yrðu þið þá ánægðust ef að þessir flokkar myndu kalla til aftur Davíð Oddsson og Halldór Ásgrímsson og kannski Finn Ingólfsson.   Og þeir myndu hefja vinnu aftur við að:

  • Einkavinavæða hluti ríkisins í bönkunum
  • Hækka skatta á almenning og lækka á auðmenn og fyrirtæki. Eins og þeir gerðu mynarlega fyrir síðustu aldarmót . Þá fór staðgreiðslan upp í 42% en lækkaði niður í 18% á fyrirtæki eða minna. Og samt komu þeir alltaf og sögðu að hér hefðu skattar ekki hækkað. Og þegar þeir voru spurðir nánar þá kom í ljós að þeir voru að tala um samtals skatta. Þ.e. að lækkanir á auðmönnum voru fjármagnaðar með almennum skattahækkunum.
  •  Rjúka í allt of stórar stóriðjuframkvæmdir eins og 2003 með Kárahnjúkum og Reyðaráli sem skv. útreikningum þá var vitað að myndi valda svo kölluðu "verðbólguskoti" á árunum 2005 til 2009 og síðan atvinnuleysi.  Sem og að þessu fylgdi eignarbóla sem bættist ofan á það sem bankarnir gerðu með óheftum lánum

Fólk er sem sagt sama um þó að Sjálfstæðisflokkur komist til valda með sérhagsmuni ríkra að vopni. Flokkur sem hefur verið við völd 2/3 af lýðveldistímanum og aldrei ráðið við gengi krónunar, ekki við verðbólgu og hefur ekki áhuga á því. Flokks sem vill ekki skoða aðrar lausnir og svipta fólk í landinu möguleikanum á að sjá t.d. hvaða niðurstöður gætu komið út úr viðræðum við ESB.  Og því betri fréttir sem koma frá viðræðunefndum okkar eru þeir ákveðnari í að koma í veg fyrir að við sjáum niðurstöðurnar. Enda myndi það skapa hér samkeppni við innlend fyrirtæki varðandi verð handa neytendum. En það má ekki gerast að einhver geti skipt sér af okrinu sem við þurfum að greiða fyrir hina ýmsu þjónustu. 

Verði ykkur að góðu. Þið verðið ekki svona glöð með þessa flokka eftir 2 ár þegar að krónan hefur sigið um nokkra tugi % og ESB kannski ekki tilbúið aftur í viðræður strax. 


mbl.is Óskiljanlegt uppnám
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Jæja þá er málþóf sjálfstæðismanna og framsóknar byrjað aftur!

Vona að kjósendur þessara flokka séu ánægð með sína menn. Þeir vilja ekki að þið fáið nýja Stjórnarskrá. Og þetta er m.a. í annað skiptið sem Sjálfstæðismenn koma í veg fyrir að t.d. auðlindaákvæðið komist í stjórnarskrá. Munið þið eftir málþófi þeirra...

Þá er fleiri sem fara rangt með!

Sé í grein eftir Magnús Halldórsson viðskiptaritstjóra á visir.is í gær að hann segir: Ráðgjafar- og endurskoðunarfyrirtækið Deloitte spáði því að EBITDA-hagnaður í sjávarútvegi yrði ríflega 34 milljarðar á árinu 2011. Reyndin varð ríflega 70. Það verður...

Hver kostar Evrópuvaktina og hverjir eiga hana?

Nú þegar ljóst er að evropuvaktin.is er ritvöllur óvandaðar manna sem hika ekki við að ljúga upp á menn eins og í þessu tilfelli væri kannski ágætt að fá það upplýst hverjir eiga Evrópuvaktina og hvaða tilgangi hún þjónar? Nú er t.d. ljóst að Björn...

Óttalegt bull er þetta.

Það er ljóst að ef við göngum í ESB þá þarf að aðlaga ýmislegt hér að kerfum ESB. Og er Ragnheiður Elín virkilega svo illa að sér að hún átti sig ekki á að til þess að vera tilbúin í þessar breytingar er ekki bara kallaður til tölvukarl daginn sem á að...

Ég hlustaði nú á þennan fund og gat ekki heyrt þetta.

Lilja sat fundinn og hún eins og aðrir hljóta að átta sig á að með gjaldeyrishöftum er hér haldið uppi gengi krónunar. En Már sagði líka að raunjafnvægi krónunar ætti að vera hærra en hún er í dag. En höft og erlent fé hér veldur því að þrýstingur er á...

Fyrirgefið en veit einhver hvað Ólafur er að tala um?

Finnst svona í fljótu bragði að hvorki hann né aðrir hafi sagt okkur nokkurntíma almennilega frá þessu samstarfi. t.d. Þá mun forseti reifa hvernig það samstarfsform sem ríkin á Norðurslóðum hafa mótað á síðastliðnum 10-15 árum getur nýst í öðrum...

Hér tala allir um staðan hér sé svon miklu verri en á öðrum Norðulöndum varðandi fátækt

Engar tölur styðja það! Tölurnar hér að ofan sýna að hér eru hlutafallslega en töluvert færri undir fátæktarmörkum en á hinum Norðulöndunum. Og þessar þjóðir standa þó enna best af öllum Evrópuþjóðum og sennilega heimsins varðandi litla fátækt. Og 2011...

Ólafur Ragnar hefur verið Forseti nærri 1/4 af lýðveldistíma Íslands

Ólafur Ragnar varð forseti 1996. Fólk hér á landi er að krefjast endurnýjunar í öllum embættum af hverju þá ekki á Bessastöðum? Skömmu eftir að Ólafur varð forseti voru bankarnir hlutafélagavæddir. Og Ólafur gerði ekki athugsemdir við það. Síðar voru...

Held að Framsókn ætti þá að halda fundi með sínum þingmönnum.

Var að hlusta að Vigdísi Hauksdóttur í morgun þar sem hún heldur því fram að Íslandi sé stjórnað af illum embættismönnum. Þrónunaraðstoð fari í gegnum mann í utanríksráðuneytinu til Afríku þar sem menn sói þessu í vitleysu og röflaði um að Samfylkingin...

Jæja þá hefst baráttan við þá sem vilja engu breyta!

Þeir þingmenn sem stoppuð að fyrri umræða um þjóðarakvæðagreiðslu um atrið í stjórnarskárfrumvarpi kæmist af stað voru. ÁJ, ÁsbÓ, ÁsmD, BÁ, BjarnB, EKG, GBS, IllG, JónG, KÞJ, ÓN, PHB, REÁ, RR, SDG, SIJ, TÞH, UBK, VigH, ÞKG. Þetta eru allt þingmenn...

Nokkur góð ár án Sigurjóns

Æ var höfum við ekki nóg af fólki með svona málflutning. Held að hvorki þjóðinni né Alþingi sé greiði gerður með að bæta í hóp Vigdísar, Gunnars Braga og co. Svona upphrópanir, frasar og ómálefnalegur málflutningur er ekki það sem við þurfum . Þó að...

Þarna er Bjarni að skjóta sig í fótinn!

Bjarn sagði í ræðu sinni: "Fyrst ber að nefna að áður en drög að þingsályktun urðu til höfðu stjórnarflokkarnir komið Norðlingaölduveitu, hagkvæmasta virkjunarkostinum, og nokkrum öðrum, út af borðinu með baktjaldamakki. Allt sagt gert á faglegum...

Fyrst að menn eru nú að vitna í bæjarstjórnafund í Kópavogi þá verð ég að segja frá þessu

Ég hlustaði á þennan fund bæjarstjórnar Kópavogs og fannst annað mál meira áhugavert. En það er mál er varðar félagsheimili Skógræktarfélags Kópavogs. Eins og málið virðist vera þá réðst Skógræktarfélag Kópavogs í að byggja upp í Vatnsenda gríðar...

« Fyrri síða | Næsta síða »

Höfundur

Magnús Helgi Björgvinsson
Magnús Helgi Björgvinsson

Skoðanir Magga um menn og málefni í fréttunum. maggihb@gmail.com Athuga að þetta eru mínar skoðanir og þið megið bara hafa ykkar hentisemi, því ég er að nota mína.

Eldri færslur

Sept. 2025
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

Twitter

Teljari

joomla visitor

Twitter

Tenging við twitter

Um bloggið

Vettvangur Magga

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband