Leita í fréttum mbl.is

Færsluflokkur: Sniðugt

Telja óþarft að banna kynlíf með dýrum

Ég veit það ekki svei mér þá en eru Danir ekki flull frjálslegir á stundum. Ég hefði nú haldið að svona meðferð á dýrum væri ekki nokkrum dýraverndunarsamtökum að skapi.

Vísir, 30. nóv. 2006 10:56

Telja óþarft að banna kynlíf með dýrum

Dönsku dýraverndarsamtökin telja ekki ástæðu til þess að banna fólki að stunda kynlíf með dýrum, en vilja hinsvegar banna opinberar sýningar á slíku athæfi.

Dómsmálaráðherra Danmerkur leitaði álits samtakanna á því hvort ástæða væri til þess að grípa til aðgerða, eftir að danska blaðið Nyhedsavisen birti fréttir um dýravændi.

Í áliti samtakanna segir að meðan dýrin líði ekki fyrir að manneskjur stundi með þeim kynlíf, sé ástæðulaust að banna það.


Furðuleg frétt

Var virkilega ekki búið að kanna hvort maðurinn væri heima?

Frétt af mbl.is

  Leitað að manni sem fannst síðar á heimili sínu
Innlent | mbl.is | 21.11.2006 | 12:09
Björgunarsveitir Slysavarnafélagsins Landsbjargar á höfuðborgarsvæðinu leituðu í morgun að karlmanni á áttræðisaldri en hann hafði síðast sést um klukkan 22 í gærkvöldi við bensínstöð á Ártúnsholti á bíl sínum. Þegar björgunarsveitir höfðu leitað á um aðra klukkustund kom maðurinn fram heill á húfi á heimili sínu.


mbl.is Leitað að manni sem fannst síðar á heimili sínu
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Ók undir áhrifum á ljósastaur

NFS, 18. nóv. 2006 10:15

Ók undir áhrifum á ljósastaur

 

Er bannað að aka ljósstaurum undir áhrifum?


Nokkrir frá Hafnarfirði (Brandarar)

 

Frændfólk

Hafnfirðingur tók sér far með leigubíl frá Reykjavík til Hafnarfjarðar. Leigubílstjórinn reyndi að koma á vitrænum samræðum og spurði: ,,Veistu hver er ekki bróðir minn, ekki systir mín en samt barn foreldra minna?"
Hafnfirðingurinn hugsaði sig lengi um en svaraði síðan neitandi.
,,Nú, auðvitað ég sjálfur!" skríkti leigubílstjórinn og Hafnfirðingurinn kinkaði kolli og klóraði sér.

Þegar hann kom heim í Hafnarfjörð spurði hann konuna sína sömu spurningar:
,,Heyrðu, Dúna mín, veistu hver er ekki bróðir minn, ekki systir mín en samt barn foreldra minna?"
,,Nei, Siddi, vinur. Það veit ég ekki, hver er það?" svaraði eiginkonan áhugasöm.
,,Það er einhver leigubílstjóri í Reykjavík," sagði þá Hafnfirðingurinn, kinkaði kolli og klóraði sér!

*lol*----------------------------------*lol*

Smáauglýsingar:

Bolabítur til sölu. Borðar hvað sem er. Hefur mjög gaman af börnum.

*lol*----------------------------------*lol*


Nokkrir gullmolar úr læknaskýrslum:

 

  • Að höfðu samræði við lækni féllst hann á að koma sjálfviljugur inn.
  • Á öðrum degi var hnéð betra og á þriðja degi var það alveg horfið.
  • Daginn fyrir innlögn borðaði hún kvöldmat á eðlilegan hátt með kjötbollum.
  • Eðlileg augnskoðun fyrir utan sérkennilegt andlitsfall...
  • Eftir það var hún í samkvæmi...
  • Fékk vægan verk undir morgunsárið...
  • Hún hefur þroskast eðlilega framan til...
  • Hún rann til á svelli og virðist að lappirnar á henni hafi farið í sitt hvora áttina í byrjun desember.
  • Húðin var rök og þurr.
  • Misnotaði áfengi í óhófi áður fyrr...
  • Móðir getur látið barnið sitja með því að setja fæturna í hring...
  • Nú er svo komið fyrir henni að hún getur að mestu hjálpað sér sjálf...
  • Saga er fengin hjá uppgefnum ættingjum...
  • Sjúklingur á vanda til að fara austur í sveit um helgar. Þar datt undan henni hestur...
  • Sjúklingur var í morgun að drekka te og borða maís þegar að bar mann sem heitir Kristmundur.
  • Skoðun við komu leiðir í ljós unglingspilt...
  • Tekin var mynd af sjúklingi sem sýndi breytingar í Hafnarfirði...
  • Við komu á spítalann var sjúklingur fljótlega skoðaður af undirrituðum og kemur þá í ljós að um er að ræða 46 ára karlmann sem er mjög þrekvaxinn og vöðvastæltur...
  • Við rectal exploration fannst stækkaður skjaldkirtill...
  • Við skoðun á sjúklingi kemur fram áberandi kyndeyfð...
  •  Við skoðun eru engar eitlastækkanir að gagni...
  • Það sem fyllti mælinn var þvagleki...
  • Það vottar fyrir gyllinæð hægra megin á kálfa...
  • Þegar hann var lagður inn hafði ör hjartsláttur stoppað og honum leið betur.
  • Þessi maður veit ekkert um skyldleika í ætt....
  • Sjúklingur batnar ef lagst er ofan á hann...
  • Sjúklingur borðar reglulegt mataræði...
  • Sjúklingur er ekki þekktur fyrir að fremja sjálfsmorð.
  • Sjúklingur er fertug, að öðru leyti ekkert athugavert.
  • Sjúklingur er svo hress að hann gæti gengið langleiðina til Akureyrar...
  • Sjúklingur er tilfinningalaus frá tá og niður úr.
  • Sjúklingur fékk sér vöfflur í morgunmat og var kominn með lystarstol í hádeginu.
  • Sjúklingur fékk þá mjög langsótt kvef...
  • Sjúklingur fær verki í bringuna ef hún liggur á vinstri hlið lengur en í eitt ár.
  • Sjúklingur hefur aldrei fundið fyrir þessum verkjum nema þegar hann vaskar upp í sumarbústað en er ráðlagt eftirlit ef verkirnir koma fram við önnur tækifæri...
  • Sjúklingur hefur átt við gott heilsufar að stríða...
  • Sjúklingur hefur fremur óbærilega verki...
  • Sjúklingur hefur formlegar hægðir...
  • Sjúklingur hefur skilið eftir hvítu blóðkornin á öðrum spítala.
  • Sjúklingur hefur verið að þyngjast af asmanum sl. sólarhring...
  • Sjúklingur hefur verið mædd sl. fimm ár...
  • Sjúklingur hefur verið niðurdreginn alveg síðan hann byrjaði að hitta mig 1983.
  • Sjúklingur lenti á parketgólfi og bar fyrir sig höndina með þeim árangri að hún brotnaði...
  • Sjúklingur hefur verið í vandræðum með gervifótinn en hann hefur haft fjóra fætur frá því að hann lenti í slysinu, en þann síðasta fékk hann í apríl sl. Sjúklingur lærði söngnám...
  • Sjúklingur tekur engin lyf en magnyl þess á milli...
  • Sjúklingur tárast og grætur stöðugt. Virðist líka vera niðurdreginn.
  • Sjúklingur var í góðu ásigkomulagi þangað til flugvélin hans varð eldsneytislaus og hrapaði

Þetta er gamalt en stendur allaf fyrir sínu!


Uppeldisgildi frystikistunar

Sverrir fékk páfagauk í afmælisgjöf og komst fljótt að því að sá var með afbrigðum skapvondur og orðljótur. Sverrir gerði allt sem honum datt í hug til að venja fuglinn af þessum ósið, hann notaði sjálfur eintóm kurteisisorð, spilaði hugljúfar ballöður fyrir hann og reyndi með því að sýna honum gott fordæmi. Ekkert gekk upp. Hann prófaði að skamma fuglinn sem svaraði honum fullum hálsi. Hann hristi búrið en gaukurinn varð bara enn skapverri og dónalegri við það.

Sverrir vissi nú ekki sitt rjúkandi ráð og í örvæntingu sinni tók hann fuglinn og setti hann í frystikistuna. Um stundarsakir heyrðust ógurleg læti úr kistunni, fuglinn sparkaði og öskraði og bölvaði -- en skyndilega datt allt í dúnalogn og ekki eitt einasta hljóð heyrðist í langan tíma.

Sverrir fór nú að óttast að hann hefði meitt fuglinn og flýtti sér að opna kistuna. Páfagaukurinn var hins vegar hinn rólegasti, steig upp á útrétta hönd Sverris og sagði: "Að undanförnu hefur hegðun mín og orðbragð ekki verið til eftirbreytni og sennilegast orðið til að móðga þig. Ég mun þegar í stað taka mig rækilega á og breyta þessari hegðun minni.
Mér þykir verulega leitt hvernig ég hef látið og mig langar til að biðja þig innilega fyrirgefningar."

Sverrir varð orðlaus af undrun og var um það bil að fara að stama upp spurningu um hvað hefði valdið breytingunni þegar páfagaukurinn hélt áfram: "Bara svona fyrir forvitni sakir, hvað gerði kjúklingurinn eiginlega?"


Munurinn á að gera konu eða karl hamingjusöm

 

 

Munurinn á að gera konu eða karl hamingjusöm
Ýmislegt til skemmtunar

 Hvernig gera á konu hamingjusama :

Það er ekki erfitt, að gera konu hamingjusama, þú þarft bara að vera:

1.         vinur
2.         félagi
3.         ástmaður
4.         bróðir
5.         faðir
6.         húsbóndi
7.         yfirmaður
8.         rafvirki
9.         trésmiður
10.        pípari
11.        handlaginn
12.        skreytimeistari
13.        stílisti
14.        sérfræðingur í kynlífi
15.        mannþekkjari
16.        sálfræðingur
17.        hagfræðingur
18.        reiknimeistari
19.        góður huggari
20.        góður hlustandi
21.        skipuleggjari
22.        góður faðir
23.        snyrtilegur
24.        samúðarfullur
25.        sportlegur
26.        hlýr
27.        skemmtilegur
28.        aðlaðandi
29.        snillingur
30.        fyndinn
31.        hugmyndaríkur
32.        mjúkur
33.        sterkur
34.        skilningsgóður
35.        þokkafullur
36.        prúður
37.        metnaðarfullur
38.        hæfileikaríkur
39.        þolgóður
40.        skynsamur
41.        trúr
42.        ábyggilegur
43.        ástríðufullur

..og gleymir aldrei að:

44.       gefa henni gjafir reglulega
45.       fara með henni að versla
46.       vera heiðarlegur
47.       vera örlátur
48.       að stressa hanna ekki
49.       horfa ekki á aðrar konur

og um leið þá verðurðu líka að:

50.       veita henni mikla athygli, og hugsa ekki mikið um sjálfan þig
51.       gefa henni allan tíma sem hún þarf
52.       gefa henni mikið frelsi, ekki hafa áhyggjur af því hvert hún fer

Það er mjög áríðandi:

53.       að gleyma aldrei:

    1.         afmælisdögum
    2.         brúðkaupsdögum
    3.         plönum sem hún hefur ákveðið

TIL AÐ GERA KARLMANN HAMINGJUSAMANN :

1.         Gefa honum að borða góðan mat

2.         Sjá til að hann fara reglulega að sofa (ekki einn)

3.         og þegja svo að hann geti horft á leikinn í sjónvarpinu í friði

 


Sturla litli

 

Sturla litli.

Sturla litli er sá klárasti í bekknum, og er alltaf fyrstur að klára prófin og spurningarblöðin. Svo að hann hafi nú eitthvað að gera, eftir að hann var fyrstur búinn að svara spurningarblaði kennarans, ákvað kennarinn að spyrja hann aukaspurningar. " Sturla minn, þú ert nú svo klár, að ég ætla að spyrja þig einnar aukaspurningar. Það eru 5 fuglar á grein, þú ert með byssu og skýtur einn fuglinn, hvað eru þá margir fuglar eftir?" "Enginn", svarar Sturla. "Hvað meinar þú... enginn?", spyr kennslukonan? "Já, einn drepst, dettur til jarðar og hinir fljúga í burtu"  segir Sturla

Kennslukonan kinkar kolli og segir "svarið átti nú að vera 4, en mér líkar hvernig þú hugsar"

Örstuttu seinna réttir Sturla litli upp hendi. "Já Sturla " "Má ég spyrja þig einnar spurningar?" "Endilega" segir kennslukonan. "Ókei, 3 konur standa við ísbíl, og allar eru búnar að kaupa sér ís, ein af þeim sleikir ísinn, ein af þeim bítur í ísinn og ein af þeim sýgur ísinn. Hver þeirra er gift?" Spyr Sturla Kennslukonan roðnar og segir, "Eee....ég veit ekki alveg, ætli það sé ekki sú sem sýgur ísinn?....eða eitthvað" "Neeiiii" segir Sturla litli, "það er sú sem er með giftingarhringinn, en mér líkar hvernig þú hugsar"


Ja hann Alfreð.

Fann þennann á netinu

Ja hann Alfreð.

Einn mánuð fram yfir !

Þegar ungur eiginmaður kemur heim eitt kvöldið tekur konan á móti honum með því að hlaupa upp um háls honum og segja; Ástin ég er kominn einn mánuð fram yfir. Ég er viss um að nú er ég ófrísk, heimilislæknirinn okkar sagði að hann gæti ekki fullvissað mig um fyrr en hann fengi niðurstöðu úr rannsókninni á morgun og við skyldum þegja yfir þessu þangað til.

Að morgni næsta dags kom maður frá Orkuveitunni til þess að loka fyrir rafmagnið, þar sem ungu hjónin höfðu ekki greitt síðasta reikning. Hann hringdi dyrabjöllunni og þegar unga frúin kom til dyra sagði hann; "Þú ert kominn mánuð fram yfir". "Hvernig í ósköpunum veist þú það?" spurði unga frúin. "Nú það er allt svona skráð kyrfilega í tölvukerfi Orkuveitunnar" var svarið. "Heyrðu þetta sætti ég mig sko ekki við og ég ætla að tala við manninn minn í kvöld og hann mun örugglega hafa samband við ykkur á morgun" sagði unga frúin og skellti hurðinni.

Þegar eiginmaðurinn kom heim fékk hann að heyra allt um persónunjósnir Orkuveitunnar og hann fór vitanlega öskuvondur á fund Alfreðs Þorsteinssonar morguninn eftir. "Heyrðu Alfreð þetta er nú algjörlega út í hött. Hvað eiginlega í ósköpunum gengur að ykkur, þið eruð með það í skrám ykkar að við séum komin mánuð fram yfir, hvern andskotann kemur ykkur það við?".

"Slakaðu nú á þetta er ekkert mál, borgaðu okkur bara og þá tökum við þetta úr skránni okkar."svaraði Alfreð. "Borga ykkur, ertu ekki í lagi, nú ef ég hafna því hvað þá?" "Nú þá klippum við bara á og tökum þig úr sambandi." "Og hvað á konan mín þá að gera?" "Nú hún verður þá bara að nota kerti." Svaraði Alfreð.


Brandarar dagsins

 

Kæri sonur,

Ég skrifa þetta bréf hægt af því að ég veit að þú getur ekki lesið mjög hratt. Við búum ekki lengur þar sem að við bjuggum þegar þú fórst að heiman. Pabbi þinn las í blöðunum að flest slys gerast innan við 20 mílur frá heimilunum, þannig að við fluttum. Ég get ekki sent þér heimilisfangið af því að fjölskyldan sem bjó hérna á undan okkur tók húsnúmerið þegar þau fluttu til þess að þau þyrftu ekki að breyta heimilisfanginu sínu.

Veðrið er ekki slæmt hérna. Það rigndi bara tvisvar í síðustu viku; í fyrsta skipti í þrjá daga og í seinna skiptið í fjóra daga.

Varðandi jakkann sem þú vildir að ég sendi þér, þá sagði Stjáni frændi þinn að hann væri of þungur til að senda í pósti með tölunum, þannig að við klipptum þær af og stungum þeim í vasana.

Jón læsti lyklunum sínum inni í bílnum í gær. Við erum öll mjög áhyggjufull vegna þess að það tók tvo tíma að ná okkur pabba þínum út.

Systir þín eignaðist barn í morgun; en ég hef ekki enn komist að því hvers kyns það er þannig að ég veit ekki hvort það er frænka eða frændi. Barnið lítur alveg eins út og bróðir þinn...

Annars er ekki mikið meira í fréttum. Það hefur ekkert mikið gerst.

Ástarkveðjur,

mamma.

P.S. Ég ætlaði að senda þér peninga en ég var búin að loka umslaginu

*lol*----------------------------------------*lol*

19 ástæður fyrir því að súkkulaði er betra en kynlíf:

    1. Þú getur fengið súkkulaði.
    2. "Ef þú elskar mig þá gleypirðu þetta" hefur raunverulega merkingu með súkkulaði.
    3. Súkkulaði fullnægir meira að segja þegar það er orðið mjúkt.
    4. Þú getur hættulaust fengið þér súkkulaði meðan þú keyrir.
    5. Þú getur látið súkkulaði endast eins lengi og þú vilt.
    6. Þú getur fengið þér súkkulaði meira að segja fyrir framan mömmu þína.
    7. Ef þú bítur og fast í hneturnar þá kvartar súkkulaðið ekki.
    8. Tvær manneskjur af sama kyni geta fengið sér súkkulaði án þess að vera kölluð klúrum nöfnum.
    9. Orðið "skuldbinding" hræðir súkkulaði ekki í burtu.
    10. Þú getur fengið þér súkkulaði í vinnustólnum/við vinnuborðið á vinnutíma án þess að koma vinnufélugunum í uppnám.
    11. Þú getur beðið ókunnugan um súkkulaði án þess að eiga það á hættu að vera löðrungaður.
    12. Þú færð ekki hár í munninn af súkkulaði.
    13. Með súkkulaði er engin þörf á að þykjast.
    14. Súkkulaði gerir þig ekki ólétta.
    15. Þú getur fengið þér súkkulaði á hvaða tíma mánaðarins sem er.
    16. Það er auðvelt að finna gott súkkulaði.
    17. Þú getur fengið þér eins margar tegundir af súkkulaði eins og þú ræður við.
    18. Þú ert aldrei of ungur eða of gamall til að fá þér súkkulaði.
    19. Þegar þú færð þér frábært súkkulaði þá heldur það ekki vöku fyrir nágrönnunum

*lol*----------------------------------------*lol*

 


« Fyrri síða | Næsta síða »

Höfundur

Magnús Helgi Björgvinsson
Magnús Helgi Björgvinsson

Skoðanir Magga um menn og málefni í fréttunum. maggihb@gmail.com Athuga að þetta eru mínar skoðanir og þið megið bara hafa ykkar hentisemi, því ég er að nota mína.

Eldri færslur

Nóv. 2024
S M Þ M F F L
          1 2
3 4 5 6 7 8 9
10 11 12 13 14 15 16
17 18 19 20 21 22 23
24 25 26 27 28 29 30

Twitter

Teljari

joomla visitor

Twitter

Tenging við twitter

Um bloggið

Vettvangur Magga

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband