Leita í fréttum mbl.is

Held að það ætti ekki að vera erfitt að leysa þetta mál!

Held að ef alþingismenn tækju sig saman í andlitinu og snöruðu af frumvarpi um VEÐLAG SKULDA. þ.e. að lán með veði í íbúðarhúsnæði væri bundið eigninni og kröfuhafar gætu ekki gengið að öðrum eignum en veðinu og þessi lög væri virk fyrir þau lán sem þegar hafa verið veitt, þetta mundi að mínu mati leysa þetta mál að mestu fyrir þá sem eru með lán yfir virði íbúðahúsnæðis.

Þetta mundi þýðia að fólk í þessari stöðu kæmist í mun betri samnings aðstöðu. Því þetta gæfi fólki möguleika að afhenda bara íbúðina án frekari skuldbindinga varðandi þessi lán. Eins með bílalán. Þetta muni hvetja banka til að laga skuldir fólks að veðum þeim sem sett eru fyrir þessum skuldum.  Því annars fengju bankarnir að upplifa það að fá lykla af fjölda íbúða og húsa í hausinn og enginn til að kaupa það.


mbl.is Boða til þriðja greiðsluverkfallsins
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Það er einmitt ein af kröfum Hagsmunasamtaka heimilanna að lögfest verði að lánastofnanir megi ekki ganga lengra en að leysa til sín veðsetta eign.

Yfirlýsing greiðsluverkfallsstjórnar og leiðbeiningar um hvernig má skrá sig í greiðsluverkfallið er að finna hér auk kröfugerðar.

Theódór Norðkvist (IP-tala skráð) 9.2.2010 kl. 16:06

2 identicon

Gallinn er bara sá að ef slík lög verða þingfest, þá flyst bótaábyrgð af viðkomandi skuldurum yfir á ríkissjóð, sem þegar er að sligast af skuldum vegna hrunsins og virðist ekki mega við mikilu til viðbótar skv. ummælum forráðamanna þjóðarinnar.

Alþingi getur ekki sett lög sem fríar ríkissjóð af þessari bótaábyrgð, þar sem skv. lögum þegar lánin voru tekin þá var þetta möguleiki, þannig að lánveitendur eiga þennan rétt í dag, þ.e. að krefja lántaka um greiðslu lánsins jafnvel þó veðið sé ekki lengur fyrir hendi. Ef taka á þennan rétt af lántakendum þá er verið að svipta þá rétti sem stjórnarskrá landsins tryggir þeim. Eigum við að svipta þá þennan rétt með því að breyta stjórnarskránni??? Kannski, en ef við ætlum að opna fyrir það að menn séu sviptir rétti skv. stjórnarskránni, hvaða réttindi verða þá næst látin fjúka.

Hins vegar skil ég ekki þennan svefngengilshátt í þingmönnum að vera ekki þegar búnir að setja lög sem koma þessu fyrirkomulagi á vegna nýrra laga. Þar er ekkert til fyrirstöðu um að setja slík lög sem gildi þá gagnvart öllum nýjum lánum frá og með gildistöku þeirra lána.

Sigurður Geirsson (IP-tala skráð) 9.2.2010 kl. 16:48

3 Smámynd: Björn Benedikt Guðnason

Ég er alveg sammála þér um þetta Maggi!

En Sigurður, ég tel að ástæða þess að þeir séu ekki búnir að ssetja þetta í lög sé einmitt þessi ástæða. Nú eru bankarnir á fullu að skuldbreyta lánum hjá fólki með ýmsum hundakúnstum; 110% leiðir og svo framvegis. Ef þeir væru búnir að breyta lögunum núna myndi það ekki þýða að þau lán myndu falla undir þessi nýju lög? Ég er ekki viss en held að það gæti verið ástæðan.

Lilja M. hjá VG virðist vera sú eina sem er að berjast fyrir þessu, reyndar hefur fengið stuðning einhverra í framsókn og hreyfingunni. Þessar tillögur hennar hafa hins vegar ekki fengið mikinn hljómgrunn þarna á þinginu.

Björn Benedikt Guðnason, 11.2.2010 kl. 06:36

4 Smámynd: Magnús Helgi Björgvinsson

Sæll Bjössi gaman að sjá þig hér aftur á blogginu.

En ég hef verið a hugsa um þetta með  að ekki megi ganga að öðru en veðinu. Ég held að ef þetta hefði verið klárað sl. vor þá værum við að tala um allt annað og betra umhverfi milli banka og íbúðareigenda. Þá hefðu bankar orðið að gera allt til að fólk vildi halda áfram að broga af lánum. Þar með talið að lækka lánin niður eða undir verðmæti íbúðar.

Magnús Helgi Björgvinsson, 11.2.2010 kl. 09:18

5 Smámynd: Björn Benedikt Guðnason

nákvæmlega! ég er alveg sammála þessu... en það er alltaf hægt að vera vitur eftir á :D

Björn Benedikt Guðnason, 12.2.2010 kl. 08:25

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Magnús Helgi Björgvinsson
Magnús Helgi Björgvinsson

Skoðanir Magga um menn og málefni í fréttunum. maggihb@gmail.com Athuga að þetta eru mínar skoðanir og þið megið bara hafa ykkar hentisemi, því ég er að nota mína.

Eldri færslur

Apríl 2024
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

Twitter

Teljari

joomla visitor

Twitter

Tenging við twitter

Um bloggið

Vettvangur Magga

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband