Leita í fréttum mbl.is

Ahyglisverðar kosningar framundan á suðurlandi.

Nú er framundan annsi skrautleg kosningabarátta á Suðurlandi. Hvað ætla suðurnesjamenn að kjósa. Þeir eiga ekki marga fulltrúa í sætum sem líkleg eru til að verða þingsæti.´

  • Með því að greiða Sjálfstæðismönnum atkvæði sitt þá hjálpa þeir Árna Johnsen inn á þing.
  • Með því að kjósa Framsókn þá velja þeir 2 menn frá Árborg sem aðallega tala máli landbúnaðar og málefna dreifbýlis.
  • Vg þar er Reyknesingur í 3 sæti en gjörsamlega óreynd í stjórnmálum (Heiða í Unun)
  • Með því að sameinast um að kjósa Samfylkingu þá gæti náðst inn 4 maður þeirra sem er Guðný Hrund Karlsdóttir 35 ára viðskiptafræðingur, Reykjanesbæ
  • Með því að kjósa Frjálslynda er verið að kjósa ? Flokk sem er samsafn af fólki sem ekki hefur fengið brautargengi í öðrum flokkum, Nýju afli, og flokk sem daðrar við að veiða atkvæði með hræðsluáróðri gegn útlendingum.

Frétt af mbl.is

  Frambjóðendur af Reykjanesi eiga erfitt uppdráttar að sögn Björns Inga Hrafnssonar
Innlent | mbl.is | 21.1.2007 | 21:32
Brotthvarf Hjálmars Árnasonar út úr stjórnmálum leiðir hugann að stöðu Reykjaness í hinu nýja Suðurkjördæmi. Frambjóðendur þaðan áttu erfitt uppdráttar í prófkjörum Samfylkingar og Sjálfstæðisflokks og hið sama gerist nú hjá Framsókn, enda þótt Hjálmar hafi óspart hvatt sveitunga sína til dáða.


mbl.is Frambjóðendur af Reykjanesi eiga erfitt uppdráttar að sögn Björns Inga Hrafnssonar
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Heill og sæll, Magnús Helgi !

Væri nokkuð óraunhæft, að gera ráð fyrir sérframboði þeirra Reyknesinga ? Framboði, sem taka vildi á alls lags þjóðfélagsmeinum, s.s. óheftan straum útlenzkra (hvar er ASÍ?), nú, skynsamlgeri áætlun um, t.d. koparver eða silfurver (er álið nokkuð heilagur málmur íslenzkra?) í Helguvík, ívið minni orkuþörf; jafnvel, miðað við þá raforku, sem álverin þurfa á að halda, alla jafna,,, og síðast en ekki hvað sízt; einhver gáfuleg og skynsamleg notkun mannvirkjanna, uppi á Sandgerðis (Keflavíkur) flugvelli, án þess að hin háskalega Valgerður Sverrisdóttir utanríkisráðhera kæmizt með krumlur sínar, í málið, heimamönnum til ógagns. Nefna má hrakhóla Náttúrugripastofnunar, reyndar eru frændur mínir, Borgfirðingar, á Hvanneyri; reiðubúnir að taka safnið að sér, sæi fyrir mér gott samstarf Reyknesinga og þeirra Borgfirzku í framtíðinni, ef vildi.

Nú, nú,, Magnús Helgi þarna hefi ég nefnt hina ýmsu kosti, hverja þeir ágætu Útnesjamenn kynnu að gaumgæfa frekar, að þeirra beztu manna yfirsýn. Það er margt hægt að sýsla, þótt hefðbundnir stjórnmálaflokkar komi hvergi nærri.

Með beztu kveðjum, úr Árnesþingi /

Óskar Helgi Helgason, frá Gamla Hrauni og Hvítárvöllum      

Óskar Helgi Helgason (IP-tala skráð) 21.1.2007 kl. 23:01

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Magnús Helgi Björgvinsson
Magnús Helgi Björgvinsson

Skoðanir Magga um menn og málefni í fréttunum. maggihb@gmail.com Athuga að þetta eru mínar skoðanir og þið megið bara hafa ykkar hentisemi, því ég er að nota mína.

Eldri færslur

Maí 2024
S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31  

Twitter

Teljari

joomla visitor

Twitter

Tenging við twitter

Um bloggið

Vettvangur Magga

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband